Morgunblaðið - 17.03.1984, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 17.03.1984, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. MARZ 1984 Einsog mer synist • • • • Gisli J. Ast|)órsson Ó, sóló míó Ef við höldum áfram að gamna okkur við grím- urnar sem voru hér til umræðu um daginn, nefnilega sparisvipinn með viðeigandi viðmóti sem við seilumst til þegar við þurfum að sýnast, þá er líklega ekki til það mannsbarn á öllu landinu sem tekur ekki þátt í þessu sjónarspili, með því fororði þó að mannsbarn- ið sé allsgáð og við sæmi- lega geðheilsu. Það er þá helst að menn séu mis- jafnlega fallnir til þess að iðka þennan látbragðsleik sem mannkindin hlýtur að læra ef hún á að vera í húsum hæf liggur mér við að segja. Skapgerðin spilar vit- anlega inní og svo það hvað menn taka sjálfa sig hátíðlega, en ætli það sé samt ekki óhætt að slá því föstu að þetta leggist mis- jafnlega í sttttir og að einum sé brýnna en öðr- um að hafa tiltækan sparisvipinn. Að vísu hef- ur maður á seinni árum verið að kynnast banka- stjórum sem hafa ekki séð ástæðu til að temja sér bankastjóragervið al- ræmda sem um árabil gerði hina síblönku hús- byggjendur þessa lands að skjálfandi reköldum; en ugglaust eru það samt fremur þeir sem hafa mannaforráðin sem eru háðastir sparisvipnum heldur en hinir sem hafa fátt annað að leggja með sér en lúkurnar. Stórforstjórinn við risaskrifborðið þykist sjaldnast hafa efni á því að bera sama andlitið á kontórnum einsog þá hann er aftur kominn í heimahöfn og kominn í gömlu góðu gatslitnu inniskóna og undir heim- ilisagann. Hann er nær alltaf með langtum ábúð- armp'H svip þarsem hann trói ir í brúnni með þrí- skrúbóaðan einkaritaia á aðra hönd og þrjú póleruð símatól á hina — og þaraf meira að segja eitt sem er raunverulega í sambandi. Hann þykist vita að ef hann ræki nú allt í einu upp skerandi gól og byrj- aði síðan að kyrja 0, sóló míó einsog hann gerir iðu- lega í baðherberginu heima hjá sér, þá mundi hann setja ofan í augum undirsáta sinna; og ætti eflaust kollgátuna. Afturámóti eru til starfsgreinar í þessu þjóð- félagi okkar og raunar um víða veröld þarsem þessu er eiginlega alveg snúið við, einsog títtnefndu sjónarspili, sem er partur af serimoníu tilverunnar, væri allt í einu skellt í bakgír. í stað þess að taka „virðulega" gervið með sér í vinnuna má einstakling- urinn gera svo vel að skiija það eftir heima. Ef við tökum víðu ver- öldina fyrst þá hef ég til dæmis oftar en einu sinni á blaðamennskuferli mín- um orðið sjónarvottur að þessu fyrirbæri þarsem hermennska er iðkuð. Ég vék snöggvast að einu svona atviki í grein í Lesbók um árið eftir skrepptúr til Bandaríkj- anna, þarsem ég varð vitni að því, alger fáráður í iðninni, hvernig stjörnu- skrýddur liðsforingi messaði yfir tveimur óbreyttum kvendátum sem höfðu farið eitthvað í taugarnar á honum. Kon- urnar stóðu bísperrtar í réttstöðu og algerlega svipbrigðalausar á meðan hann fláði þær lifandi, og Stjarni var kunnáttumað- ur á þessu sviði orðlistar- innar. Mér varð þetta vafa- laust minnisstæðara en eila afþví vettvangurinn var suðurríkin, en þar í mollunni státa menn gjarna af því á sinn syfju- lega hátt hvað þeir séu óviðjafnanlega skilnings- ríkir og riddaralegir við kvenfólkið sitt. En í her- mennskubransanum eru menn ekkert að sýnast og þar er það aginn sem gild- ir, og á samri stundu sem kvensan er komin í her- mannabúninginn hrynja af henni forréttindin eins- og nálar af visnuðu jóla- tré. Serimoníuhjólið er komið á fulla ferð aftur- ábak og meira að segja hin vegsamaða Miss Sally Smith verður rétt og slétt Smith ef það heitir þá bara ekki Þú þarna, Smith. Hér á heimaslóðum gengur þetta aftur á móti þannig fyrir sig að roskn- ir og ráðsettir fjölskyldu- feður heita „strákar" jafnskjótt og þeir eru komnir með skóflu í lúk- urnar, og rosknar og ráð- settar húsmæður, sem hlaupa í fiskinn þegar þær mega koma því við, heita nú allt í einu „stelp- ur“. Ætli við drífum okkur ekki í stæðuna þarna, stelpur, skipar verkstjórinn, og meðal „stelpnanna" sem hlýða kallinu í sjávarplássunum okkar að minnstakosti er formaður kirkjukórsins og kona símstöðvarstjór- ans og sjaldnast færri en tvær þrjár ömmur. Menn meina vitaskuld ekkert illt með þessu — þetta er bara plagsiður um borð — en engu að síð- ur hefur það sínar skop- legu hliðar. Síðast þegar ég kynntist „stelpum" af þessu tagi var indælis Ak- ureyrarstelpa í hópnum sem ég trúi ekki að hafi verið árinu yngri en sex- tug og svo afbragðsstelpa héðan að sunnan sem átti að minnastakosti fimm tugi að baki. Maður hefur líka smágaman af þvi þeg- ar verkstjóri, sem er orð- inn dálítið taugaveiklaður í öllu atinu, byrjar að emja og hrína afþví hon- um finnst „kellingunum" ... Svo eru til starfsgreinar bæði innan lands og utan þar sem reglunum í látbragðsleiknum er eiginlega alveg snúið við dveljast einum of lengi í kaffinu; og sem þær nú veltast útúr kaffiskons- unni hver um aðra þvera, til þess að helvítið fái ekki tilfelli einsog það heitir gjarna, þá reynist meðal- aldur þessara „kellinga", einsog var raunar vitað fyrir, ekki mikið meiri en tuttugu og tvö þrjú ár. Við mætum með spari- svipinn á samkomum sem við sækjum af skyldu- rækni eða jafnvel afþví við óttumst afleiðingarn- ar ef við látum það eftir okkur að skrópa, og svo er hann vitanlega aldrei glaðbeittari en þá við verðum fyrir því óláni að mega í myndatöku. Það er engin tilviljun að myndir sem eru teknar án vitund- ar okkar eru nær alltaf skömminni skástar. Mað- ur hefur ekki haft ráðrúm til þess að grímuklæðast. En undireins og við erum komin inná ljósmynda- stofuna þá dettur af okkur eiginlegi svipurinn og sparisvipurinn brýst fram í allri sinni dýrð: augun standa á stilkum, munnurinn verður við- bjóðslegt matvinnslutól og einhver hefur rekið kústskaft niðurmeð hryggnum á okkur svoað við erum einsog staursett- ir fjöldamorðingjar. Myndirnar í ökuskírtein- um kunningja minna eru ýmist af góðlátlegum fá- vitum að reyna að gleypa á sér nefið ellegar af heimskum en sauðþráum hestapröngurum með lymskulegt bros og útstæð eyru. Þegar þessi mál ber á góma verður samt ævin- lega einhver til þess að hlaupa í baklás og lýsa yf- ir af mikilli vandlætingu að hann iðki ekki svona hundakúnstir: hafi aldrei tamið sér þessa sýndar- mennsku sem menn séu að fjasa um. Engin láta- læti er viðkvæðið hjá þessum görpum um leið og þeir blása út brjóst- kassann og láta það ber- ast hátt og snjallt útyfir mannskapinn að þeir hafi alla tíð kosið að vera sjálfum sér trúir einsog það heitir og að koma til dyranna einsog þeir séu klæddir einsog það heitir líka; og allt það þrugl. Hvað er auðvitað helber vitleysa. Svona getur eng- inn maður hagað sér og haldið lífi. Svoað tekið sé dæmi af handahófi, þá verðum við fiest fyrir því einhverntíma á lífsleið- inni að einhver móðirin segi í sakleysi sínu um litlu nóruna sína í ein- hverri fermingarveislunni skulum við segja: „Já, finnst þér hún ekki falleg, litla krílið?" En nú getur auðvitað allteins verið að blessað barnið sé bara alls ekkert fallegt nema síður sé, þvíað þess eru svosem dæmin illu heilli. Eftir kokkabókum mannanna sem eru sífellt að guma af því hvað þeir séu trúir sjálfum sér, á maður samt líklega ekkert að vera að skera utanaf því í svari sínu. Líklega á maður bara að segja við móður- ina: „Nei, frú. Og ef ég á að vera alveg einlægur þá ætti þetta afkvæmi þitt að ganga með pappírspoka yfir hausnum, frú.“ Nei, þökk fyrir. Ekki undirritaður. Við verðum að vera dálítið lygin ef svo ber undir, bæði í orðum og athöfnum, eða heita hvers manns óþverri ella. Sann- leikurinn er ekki alltaf sagnabestur, sannleikur- inn er sá. Ég nefndi samkomur áðan: sennilega er sam- komu- eða samkvæmis- svipurinn sú gríman sem oftast er tekin fram hér í höfuðstaðnum. Ég hef í huga opinberu og hálfop- inberu samkomurnar sem efnt er til í tíma og ótíma afþví hér hefur myndast heil hjörð af fólki sem er ótrúlega þefvíst á allskyns tilefni; einskonar íslenskt „sósæití" sem ég er hérna. Á þessum samkomum verða allir að láta einsog þeir skemmti sér konung- lega, og sumir gera það raunar og sumir vita ekki betur. Menn verða að spígspora um parkettið með flennistórt bros á andlitinu einsog höfuð- paurinn í tannkremsaug- lýsingu: menn verða að pata og prata, sötra og smjatta. Sumum er þetta áskap- að, aumingja sálunum, einsog ilsig eða ólánlegt hár á nefbroddinum, en ég giska samt á að ef þjón- ustufólkið er talið með, þá eigi minnst helmingur viðstaddra þá ósk heitasta að hann væri ekki við- staddur. Þetta eru þeir sem eru bara að sýnast og hafa af illri nauðsyn tekið fram samkvæmisgrímuna með tannkremsbrosinu væna. Ýmislegt hefur valdið því einsog gengur að þeir gátu ekki skorist úr leik. En hugurinn er heima hjá gömlu góðu gatslitnu inniskónum þarsem menn geta beljað 0, sóló mfó af hjartans lyst án þess að sendiherrar og annað stórmenni fái kúltúr- sjokk. Gerðuberg: Vörusýning og ráðstefna um matvæla- iðnað og verslun í menningarmiðstöðinni Gerðu- bergi verður haldin í dag vörusýning og ráðstefna fyrir matvælaiðnaðinn og verslun. Ráðstefnan hefst kl. 10.00 og stendur til kl. 20.00. Á þeim tíma verða fyrirlestrar og umræður frá kl. 13.00—18.00. Matvælatækni stendur fyrir ráðstefnunni og er Hákon Jó- hannsson, matvælafræðingur, framkvæmdastjóri hennar. Sagði hann í samtali við Mbl. að með ráðstefnunni væri verið að leggja megináherslu á nýjungar í mat- vælavinnslu og verslun, hreinlæti og gæðaeftirlit í matvælaiðnaðin- um. Fimm menn flytja erindi á ráðstefnunni, þeir Sigurður Greipsson, sem ræðir um helstu gerðir örvera, fisk og fiskvinnslu, Þorsteinn Ólafsson sem flytur er- indi um hreinsi-og þvottaefni, Há- kon Jóhannesson sem fjallar um kjöt og kjötvinnslu, Eiríkur Þor- kelsson, sem ræðir um mjólk og mjólkurvinnslu og Egill Einars- son, en hann flytur erindi um gæðaeftirlit. Hægt er að sækja ráðstefnuna og vörusýninguna, en þeir sem áhuga hafa geta einnig skoðað vörusýninguna, án þess að sitja ráðstefnuna. Hollandshátíð í Háskólabíói HOLLANDSHÁTÍÐ verður haldin í Háskólabíói á morgun, sunnudag, frá kl. 14.00—16.30. Að hátíðinni standa Samvinnuferðir-Landsýn og koma þar fram bæði hollenskir og íslenskir listamenn. Hollenskur lírukassaleikari leikur létt lög í anddyri bíósins, tréklossasmiður sýnir hæfni sína og bakarameistari bakar hollensk- ar pönnukökur handa gestum. í salnum verða sýndar teiknimynd- ir, spilað ferðabingó, barnaleik- húsið Tinna sýnir Nátttröllið, trúðurinn Skralli, Aðalsteinn Bergdal, kemur ,í heimsókn og Magnús og Ómar bregða sér í gervi Steina og Olla. Á sunnudagskvöid verður síðan hollensk ferðaveisla í Súlnasal Hótel Sögu. Menningarstofnun Bandarfkjanna: Michael McClure les eigin Ijóð Leikritahöfundurinn og ljóð- skáldið Michael McClure mun lesa úr eigin ljóðum og flytja fyrirlest- ur í Menningarstofnun Bandaríkj- anna mánudagskvöldið 19. marz nk. kl. 20.30. Fyrirlestur þessi er í þáttaröð Menningarstofnunar „Meet the authors". McClure hefur samið níu ljóða- bækur, fjögur bindi af leikritum og skrifað fjölda ritgerða. Hann hefur og verið vinsæll fyrirlesari við háskóla, leikhús og ýmsar stofnanir bæði í Bandaríkjunum og í Evrópu. flr fréltatilkrnninxu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.