Morgunblaðið - 17.03.1984, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. MARZ 1984
Daníel Karlsson
Þórshöfn - Minning
Fæddur 2. febrúar 1928
I)áinn 6. mars 1984
„Hann Dalli vinur okkar er dá-
inn, varð bráðkvaddur áðan,“ var
sagt við mig. Nei, þessu getur
maður varla trúað, hann sem var
svo hress og kátur í gær.
En enginn má sköpum renna.
Þessu verð ég að trúa hversu erfitt
sem það er.
Dalli var einn þessara dyggu,
trúu manna sem verk sitt vann af
trúmennsku, alúð og vandvirkni
sem frekast var unnt. Hann var
náttúrubarn, unni fegurð og
frjálsræði þess ósnortna og bar
virðingu fyrir því sem fagurt var
og gott.
Hann var maður sem ekki bar
tilfinningar sínar á torg, en svo
tryggur vinum sínum og svo góður
félagi að á betra var ekki kosið.
Glöggt sást hans hjartalag og eðli
í því, að aldrei gleymdi hann
gömlu hjónunum, nágrönnum sín-
um, sem ekki voru orðin sjálfum
sér nóg, hann gleymdi ekki að
hengja fiskband á grindina eða að
færa gömlu konunni einhvern
góðfiskinn inná eldhúsborðið þeg-
ar hann kom úr róðri. Eða þegar
veðrin voru vond að vita hvort
eitthvað þyrfti að gera fyrir þau,
og þannig var þetta gert að gott
var að þiggja.
Ég ætla ekki að skrifa löng skrif
um Dalla vin minn, veit að það
hefði hann ekki viljað, aðeins
þakka honum fyrir allt sem ég og
mín fjölskylda höfum fengið að
njóta af hans tryggu vináttu og
góða félagsskapar.
„Far þú í friði
íriður guðs þig blessi
hafðu þökk fyrir allt og allt.“
Una Guðjónsdóttir
Minning:
Úlfar Kjartansson
Fæddur 19. mars 1945.
Dáinn 10. mars 1984.
Laugardaginn 10. mars gerðist
sá hörmulegi atburður, að vinur
okkar og félagi Úlfar Kjartansson
varð bráðkvaddur að heimili sínu.
Við skiljum ekki hvað að baki ligg-
ur, þegar maður í blóma lífsins er
svo skyndilega burt kallaður, svo
fullur orku og lífsgleði. Alltaf var
Úlli tilbúinn að aðstoða náungann,
hvernig sem á stóð, því hjálpsemi
og ósérhlífni varð aðalsmerki
Úlla.
Fyrr þennan sama dag kom Úlli
í heimsókn á heimili okkar eins og
svo oft „með hann Bimbó sinn“
eins og hann kallaði Sveinbjörn
yngri fóstursoninn. Þá var Úlli
fullur framtíðarvona og tilhlökk-
unar, því breytingar á starfsemi
fyrirtækis, sem hann og félagi
hans höfðu unnið hörðum höndum
að síðustu misseri, stóð fyrir dyr-
um. Úlli hafði stofnað bifreiða-
verkstæði ásamt félaga sínum,
Óttari, fyrir u.þ.b. ári og áttu þeir
margan langan vinnudaginn að
baki. Æltuðu þeir félagar að flytja
verkstæði sitt í nýrra og betra
húsnæði. Oft var lítill vinnufriður,
margir þurftu að koma við, fá
hjálp og „diskutera" hlutina.
Heimili Úlla og Gurrýar var
ævinlega opið öllum þeirra vinum
og kunningjum enda var þar mjög
gestkvæmt og vel á móti öllum
tekið. Margra góðra samveru-
stunda eigum við að minnast bæði
í ferðalögum og af heimilum
okkar, en enginn ræður örlögum
sínum. Við hörmum það, að okkur
varð ekki auðið jeppaferðarinnar
á Krókinn eða helgarferðarinnar í
Þjórsárdalinn í sumar, eins og svo
oft hafði verið rætt um. Það er
sárt, að tíminn, sem okkur var
gefinn saman varð ekki lengri, svo
margt var það sem við áttum
ógert og hlökkuðum til. Þess tíma
sem við áttum samleið með Úlla
munum við alltaf minnast og
þökkum honum samfylgdina af
heilum hug.
Við sendum foreldrum og systk-
inum Úlfars okkar innilegustu
samúðarkveðjur. Fyrrverandi eig-
inkonu, Unni Magneu, og börnum
þeirra, Kristjönu Svölu og fjöl-
skyldu hennar, Önnu Björk og
Ásgeiri ómari, óskum við alls
velfarnaðar á þessum erfiðu tím-
um.
Elsku Gurrý, Gunnar Ingi og
Sveinbjörn Logi, Guð veri með
ykkur og styrki í sorg ykkar.
Villi og Kristín.
Starfsmenn sælgætisgerðarinnar Opal sjást hér pakka nýja bláa Opalnum. Á
myndinni eru Helga Sigurðardóttir, Hrafnhildur Héðinsdóttir og Kagna
Gísladóttir. Ljósm Mbl. GRÁ.
Blár Opal kominn aftur
BLÁK OPAL er nú kominn aftur á markaðinn eftir nokkurt hlé á framleiðslu
þessa sælgætis. Fyrirtækið Opal framleiðir því fjórar gerðir af opal, í rauðum,
bláum, gulum og grænum pökkum.
I fréttatilkynningu frá fyrir-
tæk.inu segir m.a.: „Framleiðslu á
bláum Opal var hætt í bili fyrir
hálfu öðru ári. Ástæðan var sú, að
fyrirtækið ákvað að breyta þeirri
uppskrift sem notuð var við fram-
leiðsluna, einkum til þess að draga
úr bragðefnainnihaldi, sem æski-
legt þykir að hafa í lágmarki. Síð-
an hafa staðið yfir tilraunir með
samsetningu bláa Opalsins í sam-
vinnu við svissneska fyrirtækið
Givaudan í Zúrich, sem er eitt
kunnasta fyrirtæki heims í sinni
grein. Þessi vöruþróun hefur leitt
til þess, að framleiðsla er nú hafin
á bláum Opal, sem hefur sama
bragð og fyrr, en inniheldur að-
eins 1,4% af aðalbragðefninu
chloroform. Leyfilegt magn, sam-
kvæmt nýrri reglugerð, er hins
vegar 2 prósent."
VERD FRÁ 410.000 KRÓNUM, MED RYDVÖRN
Reynsluakstur i boöi \S2t3I?
' SUÐURLANDSBRAUT 16 - SÍMI 3S200