Morgunblaðið - 17.03.1984, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. MARZ 1984
Mannréttindanefnd Evrópu:
_
»Utburðarmál-
inu“ vísað frá
KÆRII hjónanna Olafs Kafns Jónssonar og Danielle Somers í l>ingvallastræti
22 á Akureyri var í gær vísað frá af Mannréttindanefnd Evrópu í Strasbourg á
þeirri forsendu, aó kæran ætti ekki við rök að stvðjast, skv. upplýsingum Mbl.
„Ritari Mannréttindanefndar
Evrópu hringdi i mig í dag og á
honum var að skilja að máli okkar
hefði verið vísað frá. Við höfum
hins vegar ekkert formlegt fengið
um niðurstöðu nefndarinnar eins
og vaninn er. Lögfræðingur okkar
er nú staddur í París og því hefur
honum líklega ekkert borizt um
málið. Það er hins vegar ljóst, að
við munum ekki láta okkur frávís-
un lynda," sagði Ólafur Rafn Jóns-
son, í samtali við Mbl. í gærkvöldi.
Þeim Ólafi og Daniellu var með
dómi Hæstaréttar á síðasta ári
gert að flytja úr íbúð þeirra í Þing-
vallastræti 22. Otburði þeirra var
frestað 17. febrúar sl. og var þá
sætzt á að þau flyttu út innan eins
mánaðar, eins og varð.
„Það er ákaflega undarleg og
óvenjuleg leið af Mannréttinda-
nefnd að hringja í viðkomandi að-
ila án þess að hafa samband við
lögmann þeirra, sem hefur sérstakt
umhoð til þess að annast málið. Þá
verður það að teljast dálítið sér-
stakt, að Hæstiréttur með úrskurði
27. desember sl. breytir uppruna-
legum dómi sínum. Við höfðum
miðað kæru okkar við uppruna-
legan dóm, sem fjallaði um útburð,
en með seinni breytingu, þegar fóg-
eti taldi sig ekki geta framfylgt
þessum furðulega dómi, sagði
Hæstiréttur, að ekki væri aðeins
um útburð að ræða, heldur væri
tvennt, sem máli skipti. I fyrsta
lagi að við héldum umráðum yfir
húsnæðinu, en í öðru lagi mættum
við ekki búa í þvl. Þetta er svolítið
þversagnarkennd fullyrðing út af
fyrir sig, en í raun og veru höfðum
við ekki haft ráðrúm til að breyta
beiðni okkar í samræmi við breyt-
ingar Hæstaréttar á upprunalegum
dómi. Við hefðum sennilega þurft
að bera fram nýtt mál vegna þessa.
Þarna var Hæstiréttur að fikta við
upprunalegan dóm og samkvæmt
stjórnarskránni má hann alls ekki
gera það.
Ég segi ekkert um það hver
viðbrögð okkar við þessu verða, við
látum lögmann okkar í Belgíu um
það. Það get ég hins vegar fullyrt,
að þetta eru engan veginn endan-
legar lyktir á málinu. Því fer víðs
fjarri," sagði Ólafur Rafn Jónsson.
Jk, i 4
Oklahoma í miðbænum
„Má bjóða þér miða á Oklahoma?“ Þessi uppáklæddi hópur brá undir sig betri fætinum í gær, fór niður í miöbæ
og var þar í óða önn að selja miöa á sýningar Herranætur á söngleiknum Oklahoma, þegar Ólafur K.
Magnússon, Ijósmyndari Mbl. átti leið um miðbæinn. Tvær sýningar eru nú eftir á söngleiknum, sú fyrri verður
í Tónabæ kl. 14.30 í dag, laugardag, og síðasta sýningin á sama staö kl. 21.30 á mánudagskvöld.
„Gjaldskráin hlýtur að
miðast við vaxtakerfið"
— segir Baldvin Tiyggvason, bankastjóri í Sparisjóði Reykjavíkur
„ÞESSI mál hafa verið í athugun hjá
Sparisjóönum og koma raunar ekk-
ert við áliti verðlagsstjóra. Gjald-
skrárákvarðanir hljóta að miðast
mikið við hvernig vaxtakerfið er í
bönkum og sparisjóðum. Þetta hang-
ir allt á sömu spýtunni,“ sagði Bald-
vin Tryggvason, bankastjóri í Spari-
sjóði Reykjavíkur og nágrennis, þeg-
ar hann var inntur álits á frétt Morg-
unblaðsins í gær um bréf, sem Verð-
Aðalfundur Verzl-
unarbankans í dag
AÐALFUNDUR Verzlunarbanka
íslands verður haldinn í dag í
Súlnasal Hótel Sögu. Fundurinn
hefst klukkan 14.
lagsstofnun hefur sent bönkum og
sparisjóðum, en þar segir, aö óheim-
ilt sé að samræma gjaldtöku inn-
lánsstofnana.
Sagði Baldvin, að þegar stjórn-
völd, Seðlabanki og ríkisstjórn,
ákvæðu að minnka vaxtamuninn,
yrðu bankar og sparisjóðir að fá
rekstrartekjur sínar að hluta með
öðrum hætti. Ef vaxtamunurinn
ykist, minnkaði aftur á móti sú
þörf. „Þetta er þó ákaflega flókið
mál,“ sagði Baldvin, „t.d. hvað
varðar innheimtu. Nú geta menn
borgað inn í hvaða stofnun sem er,
og verða þá e.t.v. að greiða annað
gjald og hærra en það, sem tekið
er í stofnuninni, sem greiðslan á
að berast til. Slíkt veldur að
sjálfsögðu ruglingi og sýnir að
þetta er ekki eins einfalt og ætla
mætti. Ég segi hins vegar það og
svara bara fyrir okkur hjá Spari-
sjóði Reykjavíkur, að við höfum
verið að athuga þessi mál.“
Eins og kunnugt er hefur Seðla-
bankinn heimilið nokkru meira
frelsi en áður ríkti hvað varðar
innlánsvexti, en Baldvin sagði, að
forsendan fyrir einhverri sam-
keppni í þeim efnum væri náttúr-
lega frelsi á útlánsvöxtum einnig.
Vildi hann að lokum láta það
koma fram, að sparisjóðsstjórarn-
ir hefðu lengi haft áhyggjur af því
hvernig farið hefði verið með
sparifjáreigendur og þess vegna
fögnuðu þeir því hvernig nú væri
þó komið, þegar þeir gætu ávaxtað
sitt fé betur en nokkru sinni fyrr.
Skinnauppboðinu í Kaupmannahöfn lokið:
Verð íslensku skinnanna
rétt undir meðalverði
Skinnauppboðinu í Kaupmanna-
höfn lauk 15. mars sl. þegar boðin
voru upp svokölluð „scan-black“
minkaskinn. Meðalverð þeirra var
909 kr íslenskar fyrir læðuskinn og
kr. 1025 íslenskar fyrir högnaskinn.
Högnaskinnin hækkuðu um 7% í
verði frá síðasta uppboði í febrúar,
en verð á læðuskinnum hélst stöö-
ugt. íslensku „scan-black“ skinnin
seldust á kr. 927 sem fékkst fyrir
högnaskinnin og kr. 827 fyrir læðu-
skinnin. Á „scan-black" skinnaupp-
boðinu fékkst hæsta verð sem gefið
hefur verið fyrir skinn af þeirri teg-
und, eða í ísl. kr. 2745.
Frá íslandi voru á skinnaupp-
boðinu 4.441 minkaskinn, 1.843
blárefakinn og 474 „shadow“refa-
skinn. Kaupendur voru 385 talsins
frá 20 löndum og nam veltan á
uppboðinu alls 720 milljónum
danskra króna, eða um 2,2 millj-
örðum íslenskra króna.
Ríkisvíxlar:
24 tilboð upp á
30milljónir kr.
SEÐLABANKA íslands höfðu alls
borizt 24 tilboð í ríkisvíxla í
gærkvöldi, en frestur til að gera
tilboð rennur út á mánudaginn
kemur. Heildarverðmæti þessara
24 víxla var 30 milljónir króna,
samkvæmt þeim upplýsingum,
sem Morgunblaðið fékk í Seðla-
bankanum í gærdag.
II. alþjóðamótið á Neskaupstað
Þrfr stórmeistarar og
6 alþjóðlegir tefla
ANNAÐ alþjóðamót timaritsins Skákar hefst í Egilsbúð í Neskaupstað á mánudag
og taka 12 skákmenn þátt í mótinu. Þeir eru stórmeistararnir Lombardy, Knezev-
ic og (iuðmundur Sigurjónsson, alþjóðlegu meistararnir Margeir Pétursson, Helgi
Olafsson, Jóhann lljartarson, Vincent McCambridge, og Svíarnir Harry Schiissler
og Tom Wedberg og skákmeistararnir Benóný Benediktsson, Dan Hansson og
Róbert Harðarson.
Mótið er í áttunda styrkleikaflokki
FIDE og þarf 8 vinninga til að ná
áfanga að stórmeistaratitli og 6
vinninga að titli alþjóðlegs meistara.
Tímaritið Skák hefur á undanförn-
um árum gengist fyrir helgarskák-
mótum og í beinu framhaldi hefur
verið bryddað upp á þeirri nýjung að
halda alþjóðamót úti á landi og var
hið fyrsta í Grindavík.
Jóhann Þórir Jónsson, ritstjóri
Tímaritsins Skákar, sagði í samtali
við Mbl. að á Neskaupstað hefði ríkt
mikill velvilji I garð skáklistarinnar
og að Norðfirðingar með Loga
Kristjánsson, bæjarstjóra, I broddi
fylkingar hefðu lagt mikið af mörk-
um til þess að vel tækist til. Aðstæð-
ur á Neskaupstað væru mjög góðar
til mótshalds sem þessa.
1 h 1 • Morgunblaðið/RAX
Sandey að bryggju
Starfsmönnum Björgunar tókst í gær að draga dæluskipið Sandey II að
bryggju í Elliðavogi, en í fyrradag var skipinu snúið. Vel gekk að koma
skipinu frá Engey. Myndin var tekin er Sandey var bundin við bryggju.
Hópur Hollendinga, sem nu er staddur hér á landi, vakti mikla athygli
og hrifningu þeirra sem áttu leið um miðbæinn í gær, en þar tók Ólafur
K. Magnússon þessa mynd af hollenskum klossasmiði, manni sem lék
á lírukassa og öðrum sem gaf viðstöddum drykk úr öltunnu sem hann
hafði meðferðis.
Ástæðan fyrir þessari uppá-
komu var sú, að nú stendur yfir
kynning á Hollandi og Amster-
dam og þeim möguleikum sem
islenskir ferðalangar eiga kost á
nú í sumar og er hópurinn nú
staddur hér á landi í því skyni að
kynna land sitt fyrir Islending-
um.
Fjölskylduskemmtun verður
haldin í Háskólabíói á morgun,
sunnudag, og hefst hún kl. 14.
Um kvöldið verður síðan „Hol-
landskvöld" á Hótel Sögu.
Lírukassi og klossa-
smiður á Lækjartorgi