Morgunblaðið - 17.03.1984, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 17.03.1984, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. MARZ 1984 19 Tafla I. Gefin út í ársbyrjun 1982 Áætluð stærð hrygningarstofns þorsks 1982—1985 við mismunandi árs- afla. Ár Ársafli 500.000 tonn Ársafli 450.000 tonn Ársafli 400.000 tonn 1982 570 570 570 1983 635 680 730 1984 455 550 650 1985 280 420 570 Tafla II. Gefin út í ársbyrjun 1983 Áætluð stærð „hrygningarstofns" (7 ára og eldri) þorsks 1983—1985 miðað við mismunandi ársafla (þús. tonna). Ár Ársafli Ársafli Ársafli 400 350 300 1983 560 560 560 1984 470 510 550 1985 330 420 490 Árgangurinn frá 1976 verður aðeins að hluta til kynþroska árið 1983. Tafla III. Gefin út í ársbyrjun 1984 Áætluð stærð hrygningarstofns þorsks (þús. tonna) 1984—1986 við mis- munandi ársafla. Ár Ársafli Ársafli Ársafli 300.000 250.000 200.000 1984 300 300 300 1985 260 290 320 1986 225 290 360 Tekið tillit til seinni kynþroska en áður. f öllum skýrslum Hafrann- sóknastofnunar, allt frá upphafi, er aðaláhersla lögð á að byggja þurfi upp hrygningarstofninn. Hvenær fór hrygningarstofninn svona illa, að hann þurfi að vera í stöðugri uppbyggingu að tilstuðl- an íslenskra fiskifræðinga? E.t.v. er ekki að undra að fiskifræðingar okkar óttist um afkomu hrygn- ingarstofnsins, það er eðli manna að óttast hið óþekkta. Er e.t.v. sá möguleiki fyrir hendi að fiskifræðingarnir hafi látið undan einhvers konar þrýst- ingi frá hinum pólitísku öflum í landinu, sem stöðugt eru að sækj- ast eftir meiri völdum? Mesta vald sem nokkrum manni getur fallið í skaut á fslandi, er að hafa öll tögl og hagldir á sjávarútveginum, allt niður í það að ákveða hve mörg tonn af fiski hver bátur fær að veiða. Einhvers staðar liggur fisk- ur undir steini. Heilaþvottur Stór hluti íslensku þjóðarinnar er farinn að trúa boðskap og spá- dómum fiskifræðinganna, enda situr her manna á Hafrannsókna- stofnuninni við að skrifa skýrslur, ritgerðir og greinar milli þess sem þeir skjótast í viðtöl hjá hljóð- varpi og sjónvarpi, sem óhjá- kvæmilega hefur leitt til þess að þjóðin er orðin meira og minna heilaþvegin af boðskap þeirra. Að iokum Furðulegt verður að telja að þeir er mestra hagsmuna eiga að gæta í sjávarútvegi skuli ekki hafa látið meira í sér heyra en raun er á um forsendurnar fyrir kvóta- skiptingunni á þorskinum, þ.e. 200.000 tonnunum. Vonin um að geta bjargað sér á næstu vertíð, ef illa hefur gengið á vertíðinni á undan, er frá útgerðarmönnum og sjómönnum tekin og þar með slit- in sú taug er best hefur dugað til að menn starfi áfram við þennan atvinnuveg. Að kvótaskipting skuli hafa verið sett á línu- og handfærabáta sýnir best þá van- þekkingu sem að baki þessu býr. Eins og nú er komið á daginn, ætti flestum að vera ljóst hversu haldlausar friðunarkenningarnar hafa verið. Samt sem áður er það enn stefna stjórnmálamanna að styðjast við ágiskanir í þessum málum. Þeir vilja enga áhættu taka til þess að verða ekki sakaðir um neitt ef illa fer. Fari fram sem horfir, að kerf- iskarlar úthluti aflakvótum, sem endurspegla spádóma fiskifræð- inga og hér komist á laggirnar stór hagsmunahópur sem hefur atvinnu sína af að framfylgja þeirra fyrirmælum, styttist óðum í að þetta land haldist í byggð. Þegar menn taka sig til og fara að leika sér með fjöregg þjóðar- innar verða þeir að bera einhverja ábyrgð á gerðum sínum og hafa betri forsendur að byggja á en þær sem nú eru fyrir hendi og hafðar eru að leiðarljósi við skömmtun á fiski upp úr sjó við strendur lands- ins. Ef menn ætla að stjórna fisk- veiðum af einhverju viti, verður að gera það í takt við náttúruöflin í sjónum, en ekki með því að draga tölur upp úr töfrahatti. Nú er kominn tími tl að snúa við blaðinu og segja hingað og ekki lengra, látum lönguvitleysu lokið, hún hefur þegar valdið þjóðinni ómældu tjóni. Halldór Hermannsson er skipstjóri á Ísaíirói. Sjósókn og aflabrögð í Vestfirðingafjórðungi í febrúar: Páll Pálsson með 406 lestir í fjórum róðrum Patrekur aflahæstur línubáta með 185,9 lestir í 22 róðrum ISLENSK HONNUg^ GERÐU KÖNsffjN! MARS Bcitamerki Batamerki marz mánaðar valið MORGUNBLAÐINU hefur borizt eftirfarandi yfirlit yfir sjósókn og aflabrögð í Vestfirðingafjórðungi í febrúarmánuði frá skrifstofu Fiski- félags íslands á ísafirði: Tregfiski var á miðunum útaf Vestfjörðum mestallan mánuðinn. Línubátarnir fengu þó nokkra góða róðra við Víkurálinn, en tog- ararnir héldu sig mikið á karfa- slóð vegna aflaleysis á heimamið- um. í febrúar stunduðu 13 (13) tog- arar og 15 (21) bátar botnfiskveið- ar frá Vestfjörðum, og reru bát- arnir allir með línu. Heildaraflinn í mánuðinum var 5.584 lestir, og er aflinn frá áramótum þá orðinn 10.028 lestir. í fyrra var aflinn í febrúar 5.261 lest og aflinn frá áramótum 9.611 lestir. Aflahæsti línubáturinn í mán- uðinum var Patrekur frá Patreks- firði með 185,9 lestir í 22 róðrum, en í fyrra var Þrymur frá Patreks- firði aflahæstur í febrúar með 178,7 lestir í 19 róðrum. Páll Pálsson frá Hnífsdal var afla- hæstur togaranna í mánuðinum með 407,4 lestir, en í fyrra var Guðbjörg frá ísafirði aflahæst í febrúar með 322,1 lest. Aflinn í einstökum verstöðvum: PATREKSKJÖRDIIR: lestir ferdir Sigurey tv. 302,8 3 Patrekur 185,9 22 l»rymur 169,9 - 22 Vestri 136,7 22 TÁLKNAFJÖRDUR: TálknfirAingur tv. 324,7 3 María Júlía 111,0 17 Stígandi BtLDUDALUR: 15,9 3 Jón I»órAarson MNGEYRI: 68,6 4 Sléttanes tv. 343,7 3 Framnes tv. FLATEYRI: 189,2 4 Gyllir tv. 223,2 3 Ásgeir Torfason 125,0 21 Sif SUÐUREYRI: 53,8 11 Elín l’orhj.rnarri t». 131,0 1 Sigurvon BOLlJNCARVlK: 115,0 19 Dagrún tv. 297,4 4 Heiórún tv. 213,9 4 Jakob Valgeir 128,0 18 llugrún 126,6 19 llalldóra Jónsdóttir ISAFJÖRÐUR: 53,2 11 Páll Pálsson tv. 407,4 4 GuAbjöri; tv. 306,6 3 Júl. (ieirmundss. tv. 303,1 3 (iuðbjartur tv. 243,9 3 Orri 161,5 19 Víkingur III 124,9 17 GuAný SÚÐAVfK: 73,6 15 Bessi tv. 304,5 4 Framanritaðar aflatölur eru miðaðar við slægðan fisk hjá tog- urum, en óslægðan fisk hjá bátum. Aflinn í einstökum verstöðvum í febrúar 1984 1983 PatreksfjörAur 816 lestir 1.148 lestir TálknafjörAur 461 lestir 466 lestir Bíldudalur 69 lestir 225 lestir Pingeyri 568 lestir 375 lestir Flatejri 424 lestir 321 lest SuAureyri 249 lestir 380 lestir Bolungarvík 889 lestir 8% lestir ísafjörAur 1.783 lestir 1.26« lestir SúAavík 325 lestir 190 lestir 5.584 lestir 5.261 lestir janúar 4.444 lestir 4.350 lestir 10.028 lestir 9.611 lestir Rækjnveiöarnar í febrúarmánuði Rækjuafli var tregur í Arnar- firði í febrúar, en yfirleitt góð rækja, sem veiddist, en í ísafjarð- ardjúpi og Húnaflóa var ágætur afli. Heildaraflinn í mánuðinum var 932 lestir (941 lest), og er heildar- aflinn frá byrjun vertíðar í haust þá orðinn 2.901 (2.719) lest. Sjávarútvegsráðuneytið hefir nú veitt leyfi til veiða á 4.038 lest- um af rækju á þessum þrem veiði- svæðum á þessari vertíð. Aflinn í febrúar skiptist þannig eftir veiðisvæðum: KARNABÆR heldur ótrauður áfram með batamerkin. Fyrsta batamerkið birti fyrirtækið í júní í fyrra og síðan hefur nýtt batamerki komið í hverjum mánuði, eða 10 merki. Ætlunin er að merkin verði 12 alls ag það síðasta birtist í maí nk. Lokaspretturinn er því framundan og hefur fyrirtækið auglýst eftir tillögum og vísar í þvi sambandi til eftirfarandi setningar, sem birtist í auglýsingu fyrirtækisins hér í Mbl. síðasta sunnudag: „Nú er daginn loksins tekið að lengja og bráðum kemur vorið með sólskini og fuglasöng. Verum bjartsýn." Batamerki marzmánaðar var „ís- lenzk hönnun, gerðu könnun!“, höf- undur Oddný Halldórsdóttir, Reykjavík. Batamerki febrúar var „Ef bata vilt finna, skalt vaka og vinna", höfundur Högni Torfason, Réykjavík. Högni var spurður hvers vegna hann hefði tekið þátt í samkeppni um batamerkin? „Mér leist stráx vel á hugmynd Guðlaugs Bergmann í Karnabæ um batamerki. Það er alltaf fengur í mönnum, sem láta bjartsýni og kjark ráða ferðinni, en gefast ekki upp þótt syrti í álinn í bili. Hér kvað við nýjan tón í kynn- ingarstarfi fyrirtækja, og ég er viss um að þessi bjartsýnisherferð hef- ur haft hvetjandi áhrif á marga aðra. Almenningur virðist hafa gefið framtaki Karnabæjar mikinn gaum, því að mér skilst að margir hafi sent inn tillögur. Það er reynd- ar athyglisvert, að í seinni tíð hafa æði mörg fyrirtæki farið inn á þá braut, að leita til almennings um ný nöfn, heiti eða vígorð, og ber að fagna því, að ýtt er undir áhuga fólks á íslenzku máli á þennan hátt, en einungis með því að leggja hug- ann að verkefninu er árangurs að vænta. Sjálfur gerði ég mér það til gam- ans að senda inn tillögu, mest til að sýna dóttur minni á ísafirði, sem var höfundur eins batamerkisins, að þetta gætu nú fleiri í fjölskvld- unni!" 1984 1983 Lestir Bátar Alls Leyfll. lestir bátar Arnarfjörður 60 9 257 500 84 7 Lsafjarðardjúp 641 34 1.837 2.488 595 28 Húnaflói 231 13 807 1.050 262 12 932 56 2.901 4.038 941 47

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.