Morgunblaðið - 17.03.1984, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 17.03.1984, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. MARZ 1984 Öryggismálanefnd: Kjarnorku- vopn og sam- skipti risa- veldanna ÚT ER komið fjórða ritið í ritröð Oryggi.smálancfndar um öryggis- og alþjóðamál. Ritið ber heitið „Kjarn- orkuvopn og samskipti risaveld- anna“ og er höfundur þess Albert Jónsson. Kjarnorkuvopn skipa stóran sess í samskiptum risaveldanna tveggja, Bandaríkjanna og Sovét- ríkjanna, og gegna ráðandi hlut- verki í því öryggiskerfi, sem koma á í veg fyrir átök milli þessara aðila. Af þeim sökum hafa kjarn- orkuvopn og samskipti risaveld- anna löngum verið mönnum ofar- lega i huga og að undanförnu hafa þessi mál leitt til meiri og víðtæk- ari umræðu en áður. í riti því sem hér birtist er gefin innsýn í öll helstu atriðin í stefnu og þróun kjarnorkuvígbúnaðar risaveld- anna, yfirlit yfir áhrif og hlutverk kjarnorkuvopna í samskiptum þeirra og lagt nokkurt mat á stöðu mála um þessar mundir. í ritinu er fjallað um eðli og eyðingarmátt kjarnorkuvopna og gerð grein fyrir kjarnorkuher- styrk risaveldanna. Annars vegar er rætt um hinn langdræga eða svonefnda strategíska herafla, uppbyggingu hans og skiptingu í einstaka hluta og stöðuna á milli risaveldanna í vopnum af þessu tagi. Hins vegar er greint á svip- aðan hátt frá kjarnorkuheraflan- um í Evrópu. Einnig er útskýrð merking þeirra herfræðilegu hugtaka og fyrirbæra, sem legið hafa til grundvallar fræðilegri umfjöllun um kjarnorkuvopn og samskipti risaveldanna. Ennfrem- ur er gefið sögulegt yfirlit yfir samskiptin og áhrif kjarnorku- vopnanna á þau, svo og á afstöðu aðilanna til kjarnorkuvopna og átaka sín á milli. Hér er fjailað um hvernig notkun kjarnorku- vopna hefur ekki verið talin geta þjónað pólitískum markmiðum, takmarkað gildi tölulegra yfir- burða þegar kjarnorkuvopn eru annars vegar og hvort munur hafi verið á kjarnorkuvopnastefnu risaveldanna og afstöðu þeirra til kjarnorkuvopna. Einnig er greint frá þeim tilfellum þegar alvarlegir árekstrar eða hættutímar hafa orðið í samskiptunum og hvaða ályktanir megi draga af þeim um áhrif kjarnorkuvopnanna á hegð- un risaveldanna. Loks er spurt hvort líkur séu á því að bilanir í tækjabúnaði geti hrint af stað kjarnorkuátökum. Þá er rætt um þær breytingar, sem orðið hafa í kjarnorkuvopna- stefnu risaveldanna á undanförn- um árum í átt til vaxandi áherslu á viðbúnað fyrir takmarkað kjarn- orkustríð, og orsakir þessara breytinga. Hér er einnig rætt nán- ar um stöðuna í Evrópu, kjarn- orkuvopnastefnu Atlantshafs- bandalagsins og ákvörðun þess um að koma fyrir nýjum kjarnorku- vopnum í Vestur-Evrópu. Síðan er greint frá þróun kjarnorkuvíg- búnaðarins, nýjustu vopnunum í heraflanum og þeim sem eru að koma fram á sjónarsviðið. Enn- fremur er fjallað um hlutverk fjarskipta- og stjórnkerfa, undir- búning fyrir gagnkafbátahernað og getu hvors aðila á því sviði, og loks um eldflaugavarnir, þ.á m. um hugmyndir um að koma upp varnarkerfum í geimnum. Að lok- um er spurt hvaða áhrif sú þróun geti haft, sem orðið hefur í stefnu og vígbúnaði risaveldanna, og hvort ætla megi að kjarnorkuátök þeirra í milli hafi orðið líklegri af hennar völdum eða ekki. Ritið er til sölu í bókaverslunum og það má einnig fá í póstkröfu frá Öryggismálanefnd, Laugavegi 170, Reykjavík. (FrétUlilkriniiix frí OryMMnáUnefnd) íslenski dansflokkurinn: Ólafía Bjarnleifsdóttir í hlutverki Dísarinnar góðu. Öskubuska Ásdís Magnúsdóttir sem Öskubuska og Jean Yves Lormeau sem prins- inn. Ballett Helga Magnúsdóttir Ballctt í þremur þáttum. Tónlist: Serge Prokofév. Byggt á ævintýri eftir Perrault. Danshöfundur og stjórnandi: Yelko Yurésha. Yfirsumsjón með dönsum: Belinda Wright. Leikmynd, búningar og lýsing: Yelko Yurésha. Aðstoð við leikmynd: Stígur Stein- þórsson. Öskudaginn 7. mars sl. frum- sýndi íslenski dansflokkurinn í Þjóðieikhúsinu ballettinn Ösku- busku við tónlist Serge Prokofév og mátti merkja á viðbrögðum leikhúsgesta, að þeir kynnu vel að meta. Uppfærsla ballettsins er í höndum Júgóslavans Yelko Yur- ésha en hann ásamt konu sinni Belindu Wright, hafa unnið sleitulaust að þessari sýningu sl. þrjá mánuði. Hér er um nýsköp- un á ballettinum að ræða og árangur því ótrúlega góður á ekki lengri æfingartíma. Þá má einnig get þess, að aðalkarldans- arinn Jean-Yves Lormeau, sem kemur hingað frá Frakklandi, gat ekki æft með íslensku döns- urunum nema í örfáa daga, sök- um anna. Sannar dansflokkur- inn því nú sem oft áður, að hann er erfiðum viðfangsefnum vax- inn. Ævintýrið Öskubuska hefur verið notað sem söguþráður í ballettum í rúm 150 ár. Það er þó ekki fyrr en í lok síðari heims- styrjaldar eða árið 1945, sem ballettinn nær verulegri frægð með tilkomu tónlistar Serge Prokofév. Venjulega er hinum hefðbundna söguþræði ævintýr- isins haldið og er svo einnig nú. Að vísu er þeim kafla úr ævin- týrinu sleppt, þegar prinsinn ferðast úr einu landi í annað ásamt fylgdarliði, í leit að sinni heittelskuðu. í sovéskum upp- færslum hefur þessum kafla oft- ast verið haldið en á Vesturlönd- um yfirleitt ekki. Má í þessu sambandi minnast á uppfærslu Sir Frederick Ashton hjá Sadler Wells-ballettinum í Convent Garden árið 1948. Þar sleppir hann úr þessu atriði og leggur ennfremur mun meiri áherslu á allt látbragð en áður hafði verið gert svo og notar hann karlmenn í hlutverk stjúpsystranna, til að undirstrika hin skörpu skil á milli persóna. Þessi uppfærsla Sir Ashton náði heimsathygli og er bví oft notuð sem viðmiðun. I sýningu Þjóðleikhússins nú, hefur Yelko tekist ágætlega að ná fram andstæðunum í ævin- týrinu. Hann virðist leggja áherslu á að hafa öll boð einföld og skýr, þannig að ekki sé hætta á misskilningi. Þá er dansgerð (choreography) hans hvað skemmtilegust þegar hún tengist miklum sviptingum, sbr. 1. þátt, þegar stjúpsysturnar eru hvað atkvæðamestar. Öskubuska er rómantískur ballett og krefst því umgerðar í takt við þann hugblæ. Leik- myndin, sem er hönnuð af Yelko sjálfum, hefur að vísu yfir sér nokkuð ævintýralegan blæ en er langt frá því að vera í samræmi við hina glæsilegu búninga, sem hann á einnig heiðurinn af. Þá þrengir leikmyndin æði mikið að dönsurum og er vart á bætandi, þar sem að sviðsflötur er ekki stór fyrir. Sjaldan eða aldrei hafa sést jafn skrautlegir bún- ingar á sviði Þjóðleikhússins og var unun að horfa á alla þessa glitrandi dýrð, sem endurspegl- aði ljóma ævintýrsins. Það er vel, að ekki hafi verið til sparað til aö gera sýningu þessa sem glæsilegasta. Betur hefði þó mátt gera, með því að hafa hljómsveit og þá sérstak- lega þegar haft er í huga, að um þessar mundir heldur Islenski dansflokkurinn upp á 10 ára af- mæli sitt. Dansgerð Yelko er áhugaverð að mörgu leyti. Þó fannst undir- ritaðri, að oft hefði mátt nýta kosti hvers dansara betur og þá sérstaklega í dönsum árstíð- anna. Þar er jdansgerðin einnig á köflum nokkuð einhæf sbr. dans sumardísarinnar en um leið tæknilega mjög erfið. Þær Auð- ur Bjarnadóttir, Guðmunda Jó- hannesdóttir, Helga Bernhard og Katrín Hall árstíðirnar fjór- ar, komust þó vel frá sínu, döns- uðu af öryggi og báru með sér mikinn þokka. Auður Bjarna- dóttir hefur nú gengið til liðs við flokkinn á nýjan leik og er það fagnaðarefni. Verður hún án efa mikil lyftistöng fyrir flokkinn í framtíðinni. Þá mun Auður dansa hlutverk öskubusku á einni eða tveimur sýningum á næstunni. Örn Guðmundsson og Jóhann- es Pálsson, einu karldansarar flokksins, voru m.a. I hlutverk- um Zaffire baróns og Dormatt greifa. Voru þeir hinir reffi- legustu og samspil þeirra við stjúpsysturnar ágætt. Þá mátti glöggt sjá, að Jóhannes sem er einn af nýliðum flokksins, er orðinn mun kraftmeiri í stökk- um en áður var. Endurnýjunin, sem átt hefur sér stað í flokkn- um, hlýtur að teljast jákvæð og eðlileg eftir 10 ára starf þar sem að nýtt blóð er jafnan örvandi og ákveðinn ferskleiki fylgir. Aðrir karldansarar í sýningunni hafa ekki þá reynslu að bera, þannig að um réttlátan samanburð geti verið að ræða. Þó verður að telja, að árangur hafi verið harla góð- ur, miðað við áðurnefndar for- sendur. Hópsenur voru að jafnaði ágætlega unnar. Þó voru þrengsli á sviði áberandi. Nokk- urrar ónákvæmni gætti í lyft- ingum t.d. í klukkudansi en miklu oftar var heildarsvipur góður. Að Öskubusku og prinsinum frátöldum, er hlutverk stjúp- systranna tveggja hvað mest áberandi. Birgitte Heide og Ingi- björg Pálsdóttir njóta sín vel í þessum hlutverkum fóru oft á kostum, fléttuðu saman látbragð og dans, þannig að persónusköp- un varð skýr. Þá var áberandi, hversu miklu meiri léttleiki var yfir öllum hreyfingum Birgittu en áður hefur verið. Hlutverk dísarinnar góðu er í höndum Ólafíu Bjarnleifsdóttur. Þetta er tiltölulega lítið hlutverk en vandmeðfarið. Hefur Ólafía einmitt þá töfra til að bera, til að ná fram göfuglyndi dísarinn- ar. Þá er komið að aðalstjörnum kvöldsins, þeim Jean-Yves Lormeau og Asdísi Magnúsdótt- ur. Jean-Yves Lormeau er nú einn vinsælasti dansari Frakka og var fenginn hingað til þess að dansa hlutverk prinsins. Hann hefur dansað öll helstu aðalhlut- verk í klassískum ballettum víðs vegar um heim og fór því létti- lega með að dansa prinsinn, enda mótdansarinn góður þegar Ásdís Magnúsdóttir á í hlut. Samspil þeirra var yfirleitt mjög gott, þótt örlaði stöku sinnum á nokkru hiki, enda ekki furða, þar sem Yean kom til Islands tveim- ur dögum fyrir frumsýningu og því ekki langur tími til samstill- ingar. Áð öðrum ólöstuðum, verður Ásdís Magnúsdóttir þó að teljast ókrýnd drottning kvöldsins. Hún hefur sýnt og sannað á undan- förnum árum, að hún lætur sér ekki nægja að vera góð og standa í stað, heldur er í stöðugri fram- för. Það er t.d. áberandi, hversu miklu meiri þroski og fágun er yfir öllu yfirbragði Asdísar nú, en var fyrir einu til tveimur ár- um. Þá eru hreyfingar orðnar mun samhæfðari og öruggari en áður var og er óhætt að fullyrða, að þessar framfarir hafa ekki gerst af sjálfu sér. 1 þessu sam- bandi er gaman að benda á, að Ásdís hefur nær einvörðungu fengið þjálfun sína hér heima og sýnir það, að við erum fulifær um að sjá um þjálfun dansara okkar sjálf. Loka atriði kvöldsins var heillandi og ævintýralegt í töfra- garði góðu dísarinnar. Þar ríkir gleði, prinsar dansa við prinsess- ur og allt er gott og fagurt: Hamingjusamleg endalok eins og ævinlega í góðum ævintýrum. Helga Magnúsdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.