Morgunblaðið - 17.03.1984, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. MARZ 1984
fólk f
fréttum
■£KVC' daviö'e9-
. \etöasKT''S9p\es
se9'T * l s\ti\oT'sp
utttto
KÓ09
t'°* °t\SÍ
set'
“uÁdö«*'
w*T
+ „An Janni væri
ég ekki lengur í ‘ lif-
anda tölu,“ sagöi ferðaskrif-
stofukóngurinn Simon Spies,
þegar hann var útskrifaður af
sjúkrahúsi fyrir nokkru, 25 kíló-
um léttari en þegar hann fór
þangað. Spies er enn illa hald-
inn og getur ekki gert sér neina
von um að fá bót meina sinna.
Hann þjáist nefnilega af því,
sem er að verða þjóðarsjúk-
dóm
ur í Danmörku.
Lifrin er ónýt og lækn-
arnir kenna þaö of miklum
drukk.
„Ég kom að Spies meðvitund-
arlausum í rúminu," segir Janni,
sem kallaði strax á sjúkrabíl og
bjargaöi þannig lífi mannsins
síns. Þótt Spies sé nú bara
skuggi af sjálfum sér hefur hann
ekki með öllu glataö gamansem-
inni. Þaö sýndi sig t.d. í því, að
þegar hann fór af sjúkrahúsinu
þér þykja vænt
um lifrina,“ segir á
skyrtubolnum hans
Spies, sem þarna er
með Janni eftir að
hann kom út af
var hann í skyrtubol þar sem á
stóð á ensku: „Láttu þér þykja
vænt um lifrina“.
„Þaö er kannski nokkuö seint
séð hjá mér en þrátt fyrir þaö hef
ég ekki gefið upp alla von. Ég
verð þó aö sætta mig við, aö ég
er ekki jafn ódauölegur og ég
hélt,“ segir Spies, sem gerir sér
fulla grein fyrir, að líf hans hangir
á bláþræöi. Miltað er sjúkt og
það er þó fyrst og fremst lifrin,
sem hefur gefist upp, ónýt eftir
margra áratuga stanslausa
áfengisneyslu. Hún getur ekki
lengur hreinsaö burt eiturefni úr
líkamanum og Spies verður því
aö vera á sterkum lyfjum og fá
blóöskipti reglulega.
COSPER
— Nú verðurðu bráðum að fá þér gleraugu.
Frances og Sting. Nú eru þau hætt öllum ástarhótum.
Skjótur
skilnaður
+ Það tók ekki nema 30 sek-
úndur aö slíta því, sem standa
átti að eilífu, það er aö segja
hjónabandi poppstjörnunnar og
margmilljónerans Stings í
hljómsveítinni Police og Fran-
ces Tomelty. Á eftir brostu þau
bæði sínu breiöasta og sögöust
alls hugar fegin aö vera laus úr
prísundinni þótt þau hafi raunar
ekki búið saman sl. tvö árin.
Sting hefur aö undanförnu
búið með leikkonunni Trudie
Styler og nú nýlega eignuöust
þau eitt barn saman. Með
Frances átti hann tvö börn, sjö
ára dreng og tæpra tveggja ára
stúlku.
Frances giftist Sting þegar
hann var bara kennari að nafni
Gordon Sumner og fór með
honum til London þegar hann
var að reyna aö koma sér áfram
sem söngvari. Það voru erfiðir
tímar fyrir þau en þá stóðu þau
saman í blíöu og stríöu. Þegar
betur fór að ganga og frægðin
kom til sögunnar röknuðu hins
vegar hnútarnir, sem bundu
þau saman. í mörgum laganna á
nýjustu plötu Police, „Syn-
chronicity", fjallar Sting einmitt
um konuna sína fyrrverandi og
það, sem fylgir upplausn heim-
ilis.
Því ekki að kaupa plöturnar
þar sem þær eru ódýrastar?
Plötubúðin Bengan í Gautaborg (Svíþjóð) byrjar núna
með póstkröfuþjónustu. Eftir að hafa haft lægsta plötu-
verð í Svíþjóð í 9 ár, viljum við nú einnig gefa þér
tækifæri á aö versla hjá okkur. Okkar markmið er að
hafa allar plötur og snældur sem fáanlegar éru í Svíþjóð
í dag 30.000 titlar. Allt frá sígildri tónlist til nútíma tón-
listar. Okkar verð: albúm 52 skr., snældur 52 skr., tvö-
falt albúm 65—70 skr., lítil plata 16 skr. Ef þú vilt panta
skrá yfir þessar 30000 plötur þá er það ekkert mál.
Velkomin með pantanir. Settu bara inn 45 skr. á póst-
gíró 839687-1 þá sendum við skrána. Skrifið til:
BENGAN’S, Allmanna Vágen 26, 414 £0 Göteborg,
Sverige eða hringið í síma 31-422242.
Sparneytnir bílar þurfa
ekki að vera þröngir
og óþægilegir. Það
sannar MAZDA 323
MAZDA 323 er rúmgóður og sparneytinn
alvörubíll á smábílaverði.
Þú fórnar allt of miklu í rými og
þægindum, ef þú kaupir suma af þessum
„smábílum" sem eru á markaðnum og
endar með að borga allt of mikið fyrir
allt of lítið.
Hugsaðu þig því tvisvar um, því að
MAZDA 323 kostar aðeins
Kr. 273.000 í Deluxe útgáfu,
með ryðvörn
og 6 ára ryðvarnarábyrgð.
MAZDA 323
Sættu þig ekki við neitt
minna!
BÍLABORGHF
mazoa
/ Smiðshöfða 23. sími 81299
8
Metsölublaó á hverjum degi!