Morgunblaðið - 17.03.1984, Page 23

Morgunblaðið - 17.03.1984, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. MARZ 1984 23 Grænland: Áfengisólga í Egedesminde tr- V _ -é-a— ■'sAv4 - <§h*. ■ í- - ii - - . -/* ‘ <»- ,í' .-.i. >•„ *'<»■ gfr, . •• : ■ 1 j Kaupmannahöfn, 16. rnars. Krá NJ. Bruun, (.ra nlamisfrHlarilara Mhl í BÆNIIM Kgedesminde á Nord- vestur-Grænlandi er áfengisdrykkj- an svo óskapleg, að bæjarstjórn og lögregla hafa ákveðiö að loka fjórum veitingahúsum bæjarins í þrjá mán- uði. Áfengisneyslan í Grænlandi er með hreinum ólíkindum og í þeim í stuttu máli Skæruliðum vex ásmegin W*.shington, 16. mans. AP. BANDARÍSKA leyniþjónustan tclur, að skæruliðum, sem Jberj- ast gegn sandinistum í Nicar- agua, muni brátt fjölga í 18.000 en þeir eru nú taldir vera 15.000 talsins. Heimildamenn innan CIA, bandarisku leyniþjónustunnar, segja, að það færist mjög í vöxt, að hermenn sandinista gangi til liðs við skæruliða auk þess sem hændafólk og indiánar veiti þeim æ meiri stuðning. Segja þeir einnig, að hernaður skæru- liða sé nú árangursríkari en áð- ur var. Birgðamál þeirra eru nú i betra horfi og þeim hefur tek- ist að einangra tvær hafnir, Corinto og E1 Bluff, með tund- urduflum. Mótmæli í Dóminikanska lýðveldinu Santo Domingo, 16. mars. Al’. TIL átaka kom i gær milli námsmanna og lögregíu í Dóm- inikanska lýðveldinu, þriðja daginn í röð. Námsmennirnir hafa verið að mótmæla dýrtíð í landinu og samningaviðræðum stjórnvalda við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn um 599 milljón dollara lán. Set- ur sjóðurinn ýmis ströng skil- yrði fyrir lánveitingunni, sem stjórnin hefur enn ekki getað samþykkt. Vegna mótmælanna hefur ýmsum skólum verið lok- að en heldur virðist þó vera far- ið að kyrrast. efnum eru íbúarnir í Egedesminde engir eftirbátar annarra. Það, sem nú fyllti þó mælinn, voru mikil slagsmál á tveimur veitingahús- anna í bænum. í þeim slasaðist einn maður alvarlega og þegar lögreglan ætlaði að handtaka ofbeldismanninn, sem hafði flúið í félagsheimilið, réðust félagsheim- ilisgestirnir á lögreglumennina. Á páskum verður haldið í Ege- desminde Grænlandsmeistaramót í skíðagöngu og vegna þess hefur bæjarstjórnin ákveðið að banna alla áfengissölu þann tíma, jafnt bjór sem brennivín. „Foreldrar eiga ekki að þurfa að óttast að senda börnin sín í keppnina," segir bæjarstjórinn. Vinnuveitendur héldu nýlega aðalfund sinn í Syðri-Straumfirði og þar samþykktu þeir að taka upp harða baráttu gegn drykkju- skap á vinnustöðum, sem verið hefur umtalsverður. Julianeháb í Grænlandi Kosningar verða á Grænlandi 6. júní lf •■■nmannaltAfn I C mapu L'„n M I Dpiiiin f IpnnlpnilijfpÁllppítppp Mkl Kaupmannahöfn, 16. mar.s. Krá NJ. Bruun, (>rænlandsfréttaritara Mbl. GRÆNLENSKA landsþingið samþykkti í dag einróma að kosningar færu fram 6. júní nk. Samkomulag varð einnig um þær lagabreytingar, sem nauð- synlegar eru til að unnt sé að fella stjórn og efna til kosninga þótt kjörtímabili sé ekki lokið. Það var ekki hægt samkvæmt þeim lögum, sem giltu áður. Si- umut-flokkurinn mun sitja áfram fram til kosninga. Grænland: Engin ein- ing í stjórn- málunum Kaupmannahöfn. 16. mars. Krá N. J. Hruun. (jrænlandsfréttaritara Mbl. Samningur Grænlendinga og Efnahagsbandalagsins var undirritaður í dag í lands- þingssalnum í Nuuk og kom þá vel í ljós það sundurlyndi, sem nú ríkir í grænlenskum stjórnmálum. Þegar formaður landsstjórnar- innar, Jonathan Motzfeldt, skrif- aði undir samninginn risu hinir 11 fulltrúar Siumut-flokksins úr sæt- um. Tólf fulltrúar Atassut- flokksins sátu hins vegar sem fastast og tveir fulltrúar vinstri- flokksins Inuit Ataqatigiit gengu út. Upphaflega hafði verið ráðgert, að Motzfeldt færi til Brússel til að skrifa undir samninginn en vonskuveður kom í veg fyrir það ferðalag. Þess vegna var samning- urinn sendur til Nuuk. Súdan: Loftárás á Khartoum Kairó, 16. mars. AP. FIMM sprengjum var í dag varpað úr flugvél á Khartoum, höfuðborg Súdans, og ollu þær nokkrum skemmdum á tveimur húsum og út- varpsstöð. Ekki er vitað hvaðan vél- in kom eða hvert hún fór en að sögn egypsku fréttastofunnar var hún af sovéskri gerð. Flugvélin var af gerðinni TU-22, sprengjuflugvél, sem ekki er til í súdanska flughernum, en Líbýu- menn ráða hins vegar yfir vélum af þessari tegund. Fyrir ári rauf TU-22-flugvél lofthelgi Súdans en sneri síðan til Líbýu. Nokkrir menn særðust í árásinni í dag og var hernum skipað að vera við öllu búinn. Gaafar Nimeiri, Súdanforseti, hefur lengi átt í höggi við skæru- liða í landinu, sem nióta stuðnings Eþíópíu og Líbýu. I fyrra komst upp um ráðagerðir Líbýumanna um innrás í Súdan að sögn ráða- manna þar. Þaö skiptir máli hvernig þú feröast Nútímatækni og þekking okkar í þína þágu Sérfræðingar í sérfargjöldum _ ____ /\ Tæknivæddasta feröaskrifstofa landsins með sérhæft starfsfólk þér til aðstoðar LONDON Heimsborgin - miðstöð viðskipta og listalífs Evrópu Farþegar ÚTSÝNAR ferðast á lægstu fargjöldum, búa á völd- um hótelum á beztu stööum í borginni fyrir stórlækkað verð, t.d. CUMBERLAND á horni HYDE PARK og OXFORD- STRÆTIS — í HJARTA TÍZKUHEIMSINS — ÚTSÝN hefur ein ísl. ferðaskrifstofa sérsamning við CUMBERLAND. Reynsla farþeganna: „Við hjónin höfum í 6 skipti ferðast á vegum Útsýnar, og getum ekki hugsað okkur betri þjónustu^la staði, bæði heima og erlendis." VERÐ FRA: vikuferð kr. 14.505.- helgarferð kr. 9.810,- í kaupbæti: Tekið á móti þér um leiö og þú kemur úr flug- vélinni á Lundúnaflugvelli. Flutningur frá og til flugvelli, innritun á hótel, dagleg aðstoð þaul- kunnugs fararstjóra meðan á dvölinni stendur. Allt svo auðvelt og öruggt með Eyrúnu farar- stjóra. Lundúnaferðin sem borgar sig. W0T Eyrún fararstj. SKEMMTILEGT —ODYRT — ORUGGT Páskaferð: 18.—25. apríl — uppselt 16.—23. apríl — fá sæti laus Reykjavík: Austurstræti 17, sími 26611. Akureyri: Hafnarstræti 98, simi 22911. Feróaskrifstofan ÚTSÝN

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.