Morgunblaðið - 17.03.1984, Qupperneq 25
24
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. MARZ 1984
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. MARZ 1984
25
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Auglýsingastjóri
hf. Árvakur, Reykjavík.
Flaraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Þorbjörn Guömundsson,
Björn Jóhannsson.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Að-
alstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskrift-
argjald 250 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 20 kr. eintakiö.
Afrekssaga
úr Eyjum
Einstakt afrek ungs Vest-
manneyings, Guðlaugs
Friðþórssonar, er á hvers
manns vörum í landinu. Hann
synti fimm til sex km vega-
lengd í köldum sjó og gekk
tveggja til þriggja km. leið,
berfættur og í náttmyrkri yfir
úfið og freðið apalhraun, eftir
að skip hans hafði sokkið við
Eyjarnar aðfaranótt sl. mánu-
dags. Væri þessi Guðlaugs
saga, sem nú hefur verið skráð
á „bókfeir veruleikans, kapít-
uli í fornum íslendinga sögum,
yrði sannleiksgildi hennar ekki
hátt metið hjá .efasemd-
armönnum. Engu að síður er
hún viðblasandi veruleiki. Lík-
lega hefur Guðlaugur Frið-
þórsson varpað skýrustu ljósi á
sannfræði íslendinga sagna,
fyrst jafnvel Grettis saga,
ævintýrið um útlagann, gæti
verið sönn.
Mannlífið kemur einhvern
veginn öðru vísi fyrir augu, séð
í ljósi skipsskaðans og afreks-
sögunnar úr Eyjum. Starfsskil-
yrði sjómanna, sem sækja
björg í bú á haf út, fá skýrari
mynd í huga landkrabbans.
Það rifjast upp að fimm hundr-
uð sjómenn hafa farizt við
Vestmannaeyjar á um það bil
hundrað árum. Og frásögn
Guðlaugs Friðþórssonar af
samtali þriggja skipverja á kili
skips þeirra, sem hvolft hafði,
meðan það sígur í sjó undir
þeim, lætur engan ósnortinn.
Hún er lærdómsrík á margan
veg. Ekki verður komizt hjá að
minna á eftirfarandi orð, sem
hann mælti í sjóprófum í Vest-
mannaeyjum:
„Á meðan við sátum á kili
skipsins, eftir að því hafði
hvolft, töluðum við ýmislegt
saman. Þá ákváðum við þrír, að
láta það koma fram, ef við
fyndumst, því þá var ekki
reiknað með að einhver okkar
gæti synt í land, að sjálfvirkur
sleppibúnaður á björgunarbát-
unum hefði örugglega bjargað
okkur þremur. Við hefðum ekki
komizt í handfang, en sjálf-
virkur búnaður hefði komið að
gagni."
Hugvit og tækniþróun hafa
vissulega bætt starfsaðstöðu og
aukið öryggi sjómanna, eins og
annarra starfsstétta, en víða er
þó pottur brotinn í því efni.
Allt kapp verður að leggja á að
slíkur búnaður, sem hér um
ræðir, komi þegar í öll íslenzk
skip. Tryggingar sjómanna og
staða eftirlifandi fjölskyldu-
meðlima, ef dauða fyrirvinnu
ber að höndum, eru og mál,
sem hafa verður niður njörvuð.
Sá einn sem er mikill atgerv-
ismaður, bæði til líkama og
sálar, vinnur jafn einstætt af-
rek og Guðlaugur Friðþórsson
hefur nú gjört. En hann segir
hiklaust frá því að hann og fé-
lagar hans hafi á þrautastundu
leitað guðlegrar forsjónar. Öll
frásögn hans bendir til þess að
þeim hafi verið mikill styrkur
gefinn. Og heimtur úr helju
segist Guðlaugur „umfram allt
vilja þakka almættinu í auð-
mýkt“. Margur, sem lendir
undir þungu álagi, verður
hliðstæðrar reynslu aðnjót-
andi.
Margir eiga um sárt að binda
vegna fráfalls fjögurra ungra
sjómanna, sem fórust með
Hellisey VE 503. Morgunblaðið
sendir aðstandendum þeirra
dýpstu samúðarkveðjur. Þeir
fóru ungir. En líf þeirra er orð-
ið mikilvægur þáttur í baráttu-
sögu lítillar þjóðar.
Lífefna-
iðnaður
Ymsir staðhæfa að lífefna-
iðnaður muni setja svip
sinn á atvinnulíf næstu aldar á
sama hátt og stóriðja efna- og
málmiðnaðar hefur sett svip
sinn á þessa. Þeir hinir sömu
staðhæfa að líftækni muni
skapa algjörlega nýtt atvinnu-
líf með lítilli orkuþörf.
í maímánuði 1982 fól Alþingi
með þingsályktun þáverandi
ríkisstjórn að kanna, hvort
hagkvæmt væri að koma á fót
innlendum lífefnaiðnaði. Þessi
tímabæra ályktun týndist eða
lagðist upp fyrir í möppusafni
fyrrverandi iðnaðarráðherra.
Hún hlaut enga efnislega með-
ferð í hans tíð. Máske var engin
forskrift að slíkri framvindu
mála í marx-lenínismanum?!
Það kom fram í umræðum
um þetta mál á dögunum að
afurðir örveranna hafi nú þeg-
ar verulega efnahagslega þýð-
ingu í mörgum löndum. í
Danmörku er umfangsmikill
iðnaður á þessu sviði og þar er
eitt stærsta fyrirtæki heims á
sviði ensímiðnaðar. Söluverð-
mæti örveruafurða hafa á síð-
ustu árum numið tugum millj-
arða i Bandaríkjunum einum
saman. Lífefnatæknimarkað-
urinn í heiminum velti meira
en 700 milljörðum íslenzkra
króna þegar árið 1980.
Því ber að fagna að nýr iðn-
aðarráðherra hefur heitið því
að ýta úr vör með könnun á
þessu stórmáli. „Við eigum
ekki að velta þeirri spurningu
fyrir okkur,“ sagði ráðherrann,
„hvort hagkvæmt sé að koma á
fót innlendum lífefnaiðnaði eða
ekki, heldur með hvaða hætti“
slíkt verður gert.
Sund Grettis lengra en Guðlaugs,
sem var við erfiðari aðstæður
Mönnum hefur orðið mjög tíðrætt um
frækilegt afrek Guðlaugs Friðþórsson-
ar, Vestmanneyingsins, sem komst lífs
af úr Helliseyjarslysinu, einkum eftir
sjóprófin og viðtal Morgunblaðsins við
hann í gær. Frægt er og sundafrek
Grettis Ásmundssonar, er hann synti úr
Drangey í Reykjanes til þess að sækja
sér, bróður sínum Illuga og þræl, er
með þeim var, eldivið.
Þótt vegalengd sú, sem Guðlaugur
synti, sé nokkru styttri en Grettis, er
margt líkt með afreki þessara
tveggja manna. Báðir voru í raun að
bjarga lífi sínu með sundinu, en i
Grettis sögu segir að hann hafi haft
strauminn með sér. Guðlaugur synti
gegn útfallinu. Grettir synti að
sumarlagi, en Guðlaugur í 2ja gráðu
frosti.
í Grettis sögu eru þessu svo lýst:
„Býst Grettir nú til sunds og hafði
söluvoðarkufl og gyrður í brækur;
hann lét fitja saman fingurna. Veður
var gott. Hann fór að áliðnum degi úr
eyjunni; allóvænlegt þótti Illuga um
hans ferð.
Grettir lagðist nú inn á fjörðinn,
og var straumur með honum, en
kyrrt með öllu. Hann sótti fast sund-
ið og kom inn til Reykjaness, þá er
sett var sólu. Hann gekk til bæjar að
Reykjum og fór í laug, því að honum
var kalt orðið nokkuð svo, og bakaðist
hann lengi í lauginni um nóttina og
fór síðan í stofu. Þar var mjög heitt,
því að eldur hafði verið um kveldið,
og var lítt rokin stofan. Hann var
móður mjög og sofnaði fast; lá hann
þar allt á dag fram.“
Þá segir einnig í sögunni:
„En er það fréttist, að Grettir hafði
lagzt viku sjávar, þótti öllum frábær
fræknleikur hans bæði á sjó og
landi."
I frásögn Morgunblaðsins af afreki
Guðlaugs segir, að klukkan hafi verið
um 22,30, er hann og félagar hans
lögðu af stað til lands. Klukkan 7 um
morguninn eða 8V4 klukkustund síðar
bankaði hann á dyr í Vestmannaeyj-
um og er talið að hann hafi verið um
5 til 6 klukkustundir á sundi. Guð-
laugur skiptist á að synda bringu-
sund og baksund og segir að þegar
hann hafi synt bringusund hafi hann
getað tekið mið af kennileitum í
landi. Á leiðinni fækkaði hann fötum,
fór m.a. úr stakknum, og síðasta
spottann í land, gegnum brimið, synti
hann baksund.
Er í land var komið lá hann í
fyrstu kyrr á ströndinni, en svalaði
síðan þorsta sínum í brynningarkeri,
sem var þar skammt frá. Grettir hins
vegar gat komist í heita laug, eftir að
hann kom í land kaldur og blautur.
Að lokum skal hér vitnað í leiðara
Morgunblaðsins í dag, þar sem segir
um frækilegt afrek Guðlaugs Frið-
þórssonar: „Líklega hefur Guðlaugur
Friðþórsson varpað skýrustu ljósi á
sannfræði Islendingasagna, fyrst
jafnvel Grettis saga, ævintýrið um
útlagann, gæti verið sönn.“
Sjávarútvegsráðherra breytir
reglugerð um kvótaskiptingu
Sjávarútvegsráðuneytið hefur ákveðið að gera nokkrar breytingar á
gildandi reglugerð um stjórnun fiskveiða.
Meðal annars má nefna að samkvæmt þeim verða þrjár botnfiskteg-
undir veiddar með ákveðnum veiðarfærum utan kvóta, ákveðinn tíma á
arinu.
í meðfylgjandi frétt frá sjávarútvegsráðuneytinu er gerð nánari grein
fyrir breytingum þessum:
Um þessar mundir eru liðnar
þrjár vikur frá því að kvótaskipt-
ing botnfiskaflans árið 1984 fór
fram og útgerðir 676 fiskiskipa
fengu send leyfi til botnfiskveiða
með aflamarki fyrir skip sín. Með
hverju leyfisbréfi voru send gögn
um forsendur kvótaúthlutunar
hvers skips, sérprentun af reglu-
gerð um stjórn botnfiskveiða 1984
og eyðublað fyrir athugasemdir
viðkomandi útgerðar við úthlutað-
an kvóta á skip þeirra.
Frestur til að skila þessum at-
hugasemdum rann út 5. mars sl.
og hafa borist rúmlega 330 at-
hugasemdir. Flestar þeirra eru
vegna mats á frátöfum einstakra
skipa en einnig eru athugasemdir
vegna vantalins afla skipa á
skýrslum Fiskifélags fslands, óska
um að fá meðalkvóta, endurskoð-
unar á reikningi kvótans o.fl.
Samráðsnefndin, sem fjalla á um
öll álita- og ágreiningsmál varð-
andi veiðileyfi samkvæmt áður-
nefndri reglugerð, mun næstu
daga fjalla um athugasemdir
þessar og er vonast til að því verki
verði lokið fyrir mánaðarlok. Öll-
um athugasemdum verður svarað
bréflega. En þrátt fyrir að ekki sé
lokið við að fjalla um athugasemd-
ir þær sem gerðar hafa verið hefur
ráðuneytið ákveðið að gera nokkr-
ar breytingar á reglugerðinni í
ljósi þeirrar reynslu sem þegar er
fengin. Breytingar þessar felast í
eftirtöldum atriðum:
a) Steinbítur veiddur á línu verði
utan kvóta fram til 30. apríl.
b) Grálúða veidd á línu verði utan
kvóta frá 1. júní þangað til
annað verður ákveðið, þó ekki
lengur en til 31. ágúst.
c) Skarkoli veiddur í dragnót
verði utan kvóta frá 1. júní.
d) Ný skip og skip sem orðið hafa
á eigendaskipti á árinu 1983
skulu fá reiknað aflamark í
samræmi við veiðar þeirra
þann tíma sem þau hafa verið í
eigu nýrra aðila hafi þau verið
gerð út í 5 mánuði eða lengur á
árinu. Útgerðum þessara skipa
verður síðan gefinn kostur á að
velja reynslukvóta skipsins eða
meðalkvóta.
e) Þeim útgerðaraðilum sem úrelt
hafa skip á viðmiðunartímabil-
inu og keypt sér annað sam-
bærilegt eða stærra í þess stað
Ljósm. Mbl. KEE.
Halldór Ásgrímsson, sjávarútvegsráðherra, kynnir breytingar þær sem gerð-
ar voru á reglugerð um kvótaskiptingu.
verður heimilt að taka mið af
aflareynslu hins úrelta skips
þegar aflamark skipa þeirra er
reiknað út. Sama gildir um þær
útgerðir sem skipt hafa um
skip á árinu 1983 enda þótt
fyrra skip þeirra sé nú í eigu og
rekstri annarra aðila.
f) Sóknarmarkstímabil 3 (frá
maí—ágúst) og 4 (frá sept.
—des.) verða sameinuð í eitt
tímabil þannig að þau skip sem
stunda veiðar með sóknar-
marki geta notað sóknardaga
sem þeim hafa verið úthlutaðir
samfellt hvenær sem er frá
maíbyrjun og til ársloka.
g) Meðalkvótar minnstu báta í
stærðarflokki 1 munu hækka
verulega frá því sem fyrst var
ákveðið.
h) Þá verður heimilt í þeim tilvik-
um sem skipstjóraskipti á ár-
inu 1983 hafa orðið með þeim
hætti að skipstjóri, sem fram
að skiptum hafði stýrt sama
skipi samfellt á viðmiðunar-
tímabilinu, tekur við öðru sam-
bærilegu skipi 51 brl. eða
stærra, og meiri hluti áhafnar
flyst með honum, að gefa kost á
því að aflakvóti skipsins sem
skipstjóri og áhöfn hans tekur
við miðist við aflareynslu
áhafnarinnar á fyrra skipinu.
Smyslov fær ekki rönd við reist
Skák
Margeir Pétursson
Það verður líklega skammt stórra
högga á milli hjá tvítuga stórmeistar-
anum Garry Kasparov sem teflir nú
einvígi um áskorunarréttinn á
heimsmeistarann, hinn 62ja ára
gamla Vassily Smyslov, fyrrum
heimsmeistara. Kasparov vann
þriðju skákina á miðvikudaginn og
náði forystunni í einvíginu og í gær-
dag tefldi hann af miklum krafti og
þegar skákin fór í bið voru fáir í vafa
um að honum myndi takast að inn-
byrða vinninginn þegar skákin verð-
ur tefld áfram í dag. í biðstöðunni
hefur Kasparov peð yfir og hefur
auk þess mun heilsteyptari peða-
stöðu.
í öllum skákunum hefur Smysl-
ov reynt að stýra framhjá flækj-
um en freistað þess að fá fram
uppskipti og skýrar línur. En þó
honum hafi tekist þetta, hefur
Kasparov einnig reynst ofjarl
hans í slíkpm stöðum. Stórmeist-
arinn ungi hefur teflt af miklum
léttleika og krafti í síðustu tveim-
ur skákum og stefnir hraðbyri í
heimsmeistaraeinvígið. Karpov
má fara að vara sig!
Hvítt: Vassily Smyslov
Svart: Garry Kasparov
Drottningarbragð
1. d4 — d5, 2. Rf3 — Rf6, 3. c4 —
e6, 4. Rc3 — Be7
1 annarri skákinni svaraði
Kasparov drottningarbragði
Smyslovs með Tarrasch-vörn, en
afþakkar það nú á hefðbundinn
hátt. Sú leið þykir mjög traust og
með vinnings forskot vill Kasp-
aróv ekki tefla á tvær hættur.
5. Bf4
Áður var nær undantekningar-
laust leikið 5. Bg5, en þessi leikur
Kraftaverk að Guðmundur Ingi bjargaðist
„ÉG NÁÐI að kasta mér á gólfið og
lenti á kafi í ísköldu vatni — náði að
halda höku og nefi upp úr vatninu,
en gat mig hvergi hreyft utan aðra
höndina lítillega,“ sagði Guðmundur
Ingi Karlsson, sem bjargaðist á
ótrúlegan hátt eftir að 14 tonna
vélskólfa, sem hann ók, valt niður
þriggja metra háan kant á hlaðinu í
Hrauni í Ölfusi. Athurðurinn átti sér
stað á þriðjudag og birti Mbl. viðtal
við Guðmund Inga á miðvikudag.
Þeir sem komu á slysstað töldu
það ganga kraftaverki næst að
Guðmundur Ingi skuli hafa komist
heill frá þessum hildarleik. Hús
vélskóflunnar lagðist alveg saman
og með ólíkindum að Guðmundur
skuli ekki hafa klemmst, að ekki sé
talað um að vit hans stóðu upp úr
ísköldu uppsprettuvatninu og
hann gat því andað, en að öðru
leyti var líkami hans á kafi í vatni.
Þegar var hafist handa um að
losa Guðmund Inga úr prísund-
Krani, sem sóttur var til Selfoss, lyfti vélskóflunni upp úr vatninu og stundar-
fjórðungi síðar náðist Guðmundur úr flakinu.
Vélskóflan, eftir að henni hafði verið lyft úr vatninu. Til hægri eru brúsarnir og
slöngurnar, sem heitt vatn var leitt í gegnum til að forða Guðmundi Inga frá því
að krókna úr kulda. Myndir/Hergeir Kristgeirsson.
inni. Stundarfjórðungi eftir
óhappið var hann farinn að skjálfa
af kulda, enda vatnið ískalt. Því
var brugðið á það ráð að leiða heitt
vatn að líkama hans í slöngum.
Vatnið var sótt í fötum í bæinn,
3ett í brúsa og síðan leitt í slöng-
um að Guðmundi.
Um tveimur klukkustundum eft-
ir óhappið tókst að lyfta vélskófl-
unni með öflugum krana, sem sótt-
ur var til Selfoss. Guðmundur var
klemmdur í flakinu og varð að
nota tjakka til þess að rjúfa gat á
hús vélskóflunnar og ná honum út.
Það tók um stundarfjórðung. Þá
steig Guðmundur Ingi heill úr
prísundinni — frelsinu feginn.
Fyrir kraftaverk hafði hann bjarg-
ast.
Guðmundur Ingi Karlsson, sem á
ótrúlegan hátt bjargaðist þegar vél-
skófla sem hann ók valt niður þriggja
metra háan kant.
Morgunblaðid/Friðþjófur.
hefur notið mikilla vinsælda ný-
lega.
5. — 0-0, 6. e3 — c5, 7. dxc5 —
Bxc5, 8. Be2
Mun hvassara er 8. Dc2 — Rc6,
9. a3 - Da5, 10. Hdl - Be7, en í
því afbrigði hefur svörtum farnast
vel upp á síðkastið.
8. — dxc4, 9. Bxc4 — a6, 10. De2 —
b5, 11. Bd.3 — Bb7, 12. (H) — Rbd7!
Þarna stendur riddarinn mun
betur en á c6 þar sem hann væri í
vegi biskupsins á b7.
13. — e4?!
Með þessum „sóknarleik“ veikir
hvítur reitina d4 og f4 og það tekst
Kasparov að notfæra sér.
13. — Rh5!, 14. Bd2 - Dc7
Framkallar nýja veikingu vegna
hótunarinnar 15. — Rf4.
15. g3 - Had8, 16. Be3 — Bxe3, 17,
Dxce3 — Dc5
Svartur hefur náð öruggu frum-
kvæði eftir áætlunarlausa tafl-
mennsku Smyslovs.
18. Hfel — Rhf6, 19. a3 — Rg4, 20.
Dxc5 — Rxc5, 21. Bc2
Hvítur virðist vera að komast
úr erfiðleikunum, en nú hefur
Kasparov sóknina fyrir alvöru:
arov velur aðra leið, engu síðri.
26. — h6, 27. bxc5 — hxg5, 28. He3
- Rxf4.
Nú er hótunin 29. — Hc8. Hvít-
ur á enga fullnægjandi vörn.
29. a4 - b4, 30. Re2 — Hc8, 31. Bb3
— Hxc5, 32. Rxf4 — gxí4, 33.
Bxe6+ — Kf8, 34. Hel — He5, 35.
Bb3
Leiðir til peðstaps og vonlítils
endatafls, en 35. Bf5 — Ha5, 36.
Hal — Bc6 var sízt betra.
35. — Hxe4, 36. Hdl — Ke7, 37.
Kfl — a5, 38. Hcl — Kf6, 39. h3 —
g5, 40. Hc7 — He7, 41. Hc5
í þessari stöðu fór skákin í bið
og Kasparov, svartur, lék biðleik.
21. — f5!, 22. Rg5 - f4!
Kasparov féll að sjálfsögðu ekki
í gildruna 22. — Hd2?, 23. Rxe6! —
Rxe6, 24. Bb3.
23. Hadl — Hxdl, 24. Bxdl — Re5,
25. gxf4 — Red3, 26. b4!?
Örvæntingarfull tilraun til að
snúa við blaðinu með skiptamun-
arfórn, því 26. He3 — Rxb2 er aug-
ljóslega mjög slæmt. Nú hefur
svartur mjög góða vinningsmögu-
leika ef hann þiggur fórnina: 26.
— Rxel, 27. bxc5 — Hc8, en Kasp-
Fíkniefni
fundust við
húsleit
1 FYRRAKÖLI) voru tveir piltar
teknir meó amfetamín í mióborg
Reykjavíkur. í kjölfarió fékk fikni-
efnadeild lögreglunnar húsleitar-
heimild í íbúó í Breióholti. Þegar
þangaó kom var tvítugur piltur á leió
úr íbúóinni. Hann reyndi aó komast
undan á flótta, en var gómaóur. í
fórum sínum hafói hann nokkur
grömm af amfetamíni.
Um 30 grömm af amfetamíni
fundust við leit í íbúðinni, lítils
háttar magn af kókaíni, ofskynj-
unarlyfinu LSD og hassi. Piltun-
um, sem teknir voru í miðbænum,
var sleppt í gær, en lögreglan
gerði kröfu um gæzluvarðhald yfir
þeim, sem tekinn var í Breiðholti.