Morgunblaðið - 17.03.1984, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 17.03.1984, Qupperneq 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. MARZ 1984 Yfirlýsing frá Heilsu ræktinni í Glæsibæ Dagblöðin Tíminn og Morgun- blaðið greindu frá því þann 11. og 12. janúar sl. að Borgarráð Reykjavíkur hefði ákveðið að greiða ekki reikninga frá Heilsu- ræktinni í Glæsibæ vegna þjón- ustu við aldraða árið 1983, að upp- hæð kr. 229 þúsund. í Morgun- blaðsgreininni er það haft eftir skrifstofustjóra borgarinnar að ástæða þess að borgaryfirvöld vildu ekki greiða umrædda reikn- inga væri sú „að Heilsuræktin hefði ekki staðið við samkomulag sem gert var við Reykjavíkur- borg“. í greininni segir ennfremur orðrétt: „Þjónustu Heilsuræktarinnar við aldraða átti borgin að greiða samkvæmt þessum samningi, en borgaryfirvöld telja að Heilsu- ræktin hafi ekki staðið við það ákvæði hans að ráða til starfa sér- stakan sjúkraþjálfara. — í grein- argerð Heilsuræktarinnar til borgarráðs var á hinn bóginn bent á, að ástæða þess að sjúkraþjálfari hefði ekki verið ráðinn væri sú, að mjög mikil óvissa hefði ríkt um reksturinn um tíma vegna deilna um húsnæði fyrirtækisins í Glæsi- bæ.“ í grein um málið í Tímanum sem birtist á forsíðu blaðsins 11. jan. sl. gætir nokkurs misskiln- ings og vill stjórnarformaður Heilsuræktarinnar leiðrétta þenn- an misskilning jafnframt því að skýra málin frá sjónarhóli Heilsu- ræktarinnar. Fyrirsögnin í Tímanum hljóðar svo: „Reykjavíkurborg neitar að greiða umsaminn kostnað og rift- ar samningum við Heilsuræktina í Glæsibæ: Telur heilsuræktina ekki hafa staðið við samninga". Það er ekki rétt að borgaryfir- völd hafi riftað samningi þeim er gerður var við Heilsuræktina þann 15. mars 1976 um að Reykja- víkurborg greiddi 40% af kostnaði við heimsóknir aldraðra og ör- yrkja i endurhæfingarstöð Heilsu- ræktarinnar. Samningurinn var Jóhanna Tryggvadóttir Bjarnason endurnýjaður þann 23. janúar 1980 og er enn í gildi. í Tímagreininni segir orðrétt: „Ástæðan fyrir neitun borgarinn- ar er sú að Heilsuræktin hefur ekki staðið við sinn hluta samn- ingsins, en í honum fólst m.a. að sjúkraþjálfarar skyldu vera starf- andi við Heilsuræktina." Þarna er að finna orsökina fyrir ákvörðun borgarráðs og þarna er líka að finna frumorsök þeirra erfiðleika sem Heilsuræktin á nú í og vill stjórnarformaður hennar taka eftirfarandi fram, nauðugur þó: Árið 1976 gerði Heilsuræktin fimm ára samning við Félag danskra yfirsjúkraþjálfara um samstarf. Samninginn eyðilagði stjórn Félags íslenskra sjúkra- þjálfara, þótt ekki væri félagið af- lögufært um þjálfara handa okkur. Hafði þá danskur sjúkra- þjálfari starfað hjá okkur í hálft ár. Þann 1. október 1978 fengum við svo ráðinn sjúkraþjálfara frá Englandi. Starfaði hann hjá okkur Leiðrétting NOKKRAR villur slæddust inn í bréf Guðmundar Sigurðssonar, Ás- landi um skuldbreytingu bænda, sem birt var í Morgunblaðinu sl. miðvikudag. Um leið og beðið er velvirðingar á þessu birtast hér aftur nokkrar setningar úr bréfinu og eru feitletruð þau orð, sem ýmist féllu alveg niður eða misrituðust: „1.—5. gr. hafa eingöngu að geyma tæknileg ákvæði og sjálf framkvæmdin er öll geymd til 6. gr. þar sem hún er falin ráðherra f samráði við veðdeild Búnaðarbank- ans, fulltrúa Búnaðarbankans, fulltrúa búnaðarfélagsins og Stéttarsambands bænda.“ „Þótt það hafi gengið við síðustu skuldbreytingu að hafa slík bréf vaxtalaus hafa ávöxtunarkröfur á fjármagnsmarkaðinum breyst á undanförnum árum á þann veg að erfitt. vefður fyrir bændur að sannfæra lánardrottna sína um að taka við vaxtalausum bréfum til í hálft ár en sá sem átti að taka við af honum hætti við að koma á síðustu stundu og tókst Heilsu- ræktinni með hjálp Rannsóknar- lögreglu ríkisins að ná heim skjöl- um sem benda til saknæms athæf- is. Hefur stjórn Féiags sjúkra- þjálfara verið stefnt vegna þessa máls. Árið 1980 stóð okkur til boða að fá sjúkraþjálfara frá Banda- ríkjunum. Hafði sjúkraþjálfari þar lýst sig reiðubúinn til starfa fyrir Heilsuræktina en einhver hefur kippt í einhvern spotta því hún hætti við á síðustu stundu. Fyrir tilstuðlan yfirmanns Al- þjóða endurhæfingarsjóðsins (World Rehabilitation Organiza- tion Fund) tókst okkur að komast í samband við frábært fólk sem sendi hingað tvo sjúkraþjálfara þann 1. október 1982. Skyldu þeir kynna sér rekstur stöðvarinnar og gefa yfirmönnum sínum vitnis- burð um hann. Var vitnisburður þeirra okkur mjög hagstæður. Á Heilsuræktin öldrunarnefnd þjóð- kirkjunnar, sr. Ólafi Skúlasyni og sr. Pétri Sigurgeirssyni biskupi, það að þakka að Félag íslenskra sjúkraþjálfara féllst á að við fengjum þessa þjálfara til starfa. Afráðið hafði verið að tveir aðrir sjúkraþjálfarar, erlendir, tækju við af þeim fyrri um áramót ’82—’83 en þá kom heldur betur babb í bátinn þar sem eru hús- næðismái stofnunarinnar. Hefur Heilsuræktin verið starfrækt í Glæsibæ að Álfheimum 74 frá ár- inu 1972. í fógetarétti Reykjavíkur var þann 20. október árið 1982 gerð eftirfarandi sátt: „Gerðarþoli, Heilsuræktin, skuldbindur sig til að hafa rýmt leiguhúsnæði sitt í Glæsibæ, þ.e.a.s. húsnæði það sem Heilsu- ræktin hefur á leigu frá gerðar- beiðanda, í síðasta lagi þann 5. janúar 1983. Gerðarbeiðandi fellur frá kröfu um málskostnað. Gerðar- beiðandi skuldbindur sig að ganga margra ára upp í lausaskuldir.“ „Þetta kemur svo aftur niður á bændum, sem frekar skulda við- skiptabönkunum og stærri spari- sjóðunum." „Legg ég til að bætt verði við viðbótargrein á þann veg að inn- lánsstofnunum verði gert skylt að taka við yeðdeildarbréfum upp í lausaskuldir, en þær eiga rétt til endursölu á bréfunum til Seðla- bankáns í sömu hlutföllum og nú gilda fyrir afurðalán." nú þegar til samninga við gerðarþola um húsnæði það, sem gerðarþoli hef- ur í Glæsibæ, um kaup gerðarþola á húsnæðinu, enda verði samningum lokið fyrir 1. desember 1982. Heilsu- ræktin skal hafa forkaupsrétt á hús- næðinu til 5. janúar 1983. Verði ekki af kaupum og gerðarbeiðandi vill leigja húsnæðið skal gerðarþoli hafa forleigurétt. Guðmundur Ingvi Sigurðsson (sign) Jóhanna Tryggvadóttir (sign) Ingi R. Helgason (sign)“ Guðmundur Ingvi Sigurðsson hrl. skiptaforstjóri dánarbús Helgu Jónsdóttur, ekkju Sigurliða Kristjánssonar, gekk aldrei til samninga við Heilsuræktina í sam- ræmi við sáttina í fógetarétti. Fékk stjórn Heilsuræktarinnar eitt sölutilboð frá honum í húsnæði það sem hún hafi haft á leigu á jarðhæð og miðhæð (endur- hæfingarstöð) en aldrei neitt tilboð um kaup á húsnæðinu sem Heilsu- ræktin hafði haft á leigu á efstu hæðinni (heilsuræktardeildin) en sú deild hafði staðið undir þeim hluta kostnaðar við endurhæfingu aldraðra sem Heilsuræktin bar, 19,88%, á móti 40,12% framlagi Tryggingastofnunar ríkisins og 40% framlagi Reykjavíkurborgar eins og að framan greinir. Hefur Heilsu- ræktin nú því miður verið svipt umráðum yfir húsnæði þessu. í skiptaforstjórann náðist ekki fyrr en í janúar 1983 eftir að frestur sá er fógetaréttur hafði sett, var út- runninn. Komst ég að því sl. haust að hann hafði verið að ganga frá skiptum dánarbúsins ásamt Sveini Snorrasyni, hrl. og Jóhanni Níelssyni, hrl. í stað þess að ganga til samninga við Heilsuræktina eins og hann hafði skuldbundið sig til í fógetarétti. Skiluðu þeir af sér til fógeta þann 30. nóvember 1982. Hefur þetta háttarlag lögmanns- ins bitnað harkalega á líknar- stofnun vorri og ellilífeyrisþegum þeim er læknar senda í stofnunina og er bein ástæða þess að sjúkra- þjálfarar voru ekki ráðnir um ára- mótin ’82—’83 sem aftur er ástæða þess að borgarráð svipti Heilsuræktina umræddum styrk, eins og að framan greinir. Er átakanlegt að þær menningar- stofnanir sem húsið erfðu, ís- lenska óperan, Listasafn íslands, Leikfélag Reykjavíkur og tveir sjóðir við Háskóla íslands, skuli hafa leyft þetta gerræði skiptafor- stjórans. Mun Heilsuræktin leita réttar síns í þessu máli. Með dyggi- legri hjálp ráðamanna tókst Heilsuræktinni að ná kaupum á húsnæðinu á jarðhæð og miðhæð í Glæsibæ þann 9. júní 1983. í Tímagreininni segir ennfrem- ur: „Svipuð staða kom upp við síð- ustu áramót en þá var ákveðið að sjá í gegnum fingur við eiganda Heilsuræktarinnar, Jóhönnu Tryggvadóttir, og greiða kostnað vegna aldraðra ...“ Það er alrangt að undirrituð sé eigandi Heilsuræktarinnar. Ég er reyndar stofnandi og frumkvöðull hennar og leyfi mér að vitna í eft- irfarandi ummæli Þórðar Gunn- arssonar, hrl. (greinargerð): Noregur: Anders er viss um, að orrustan, sem átti sér stað árið 986, hafi verið í Hjörundfirði en ekki í Hjörungavogi en þá sukku þar tvö skip með miklu gulli, sem átt hafði Búi digri. Anders hefur leitað nokkuð með landi í firðinum en hyggst nú færa sig út á djúpið. Ymsir fornleifafræðingar hafa tekið þátt í leitinni að gulllnu en þeir segjast engin merki hafa fundið um víkinga við Hjörund- „Heilsuræktin, Reykjavík var stofnuð þann 10. maí 1969. Til- gangur félagsins var að stuðla að aukinni heilsurækt meðal almenn- ings. Stofnendur Heilsuræktar- innar voru í upphafi 18 en er stofnunin flutti starfsemi sína að Álfheimum 74, á árinu 1972, urðu félagar á milli 30—40. Heilsurækt- in hefur frá upphafi verið rekin í formi sjálfseignarstofnunar, sbr. 5. gr. laga stofnunarinnar. í því sam- bandi er á því vakin sérstök at- hygii að Heilsuræktin hefur frá byrjun verið rekin fyrir framlög stofnenda og félaga, bæði framlög og endurgjaldslausa vinnu og að tekjum og eignum stofnunarinnar hefur eingöngu verið varið til að styrkja í samræmi við 5. gr. laga stofnunarinnar. Ábyrgð stofnenda er því takmörkuð samkvæmt al- mennum lagasjónarmiðum og ákvæðum í stofnskrá. í þessu sam- bandi skiptir engu máli þótt ekki hafi verið leitað staðfestingar á stofnskrá enda hefur slík staðfest- ing aðrar réttarverkanir. Heilsu- ræktin er ekki skráningarskyld samkvæmt 1. mgr. 8. gr.l. 42/1903 ... Heilsuræktin lýtur sérstakri stjórn og var aðalfundur stofnunarinnar síðast haldinn í september 1982. Ársuppgjör stofn- unarinnar er í höndum löggilts endurskoðanda." Enn leyfi ég mér að vitna í Tímagreinina, máli mínu til glöggvunar, en þar segir ennfrem- ur: „Fjárhagur Heilsuræktarinnar stendur afar tæpt en tap á rekstrin- um á tímabilinu 1. janúar til 31. október sl. nam 737.776 krónum.“ Forráðamenn Heilsuræktarinn- ar hafa ekki viljað loka á gamla fólkið sem hefur sótt sér heilsu- og kjarabót og andlega hressingu í heimsóknum sínum í stöðina en þjónustu hefur gamla fólkið og ör- yrkjar fengið ókeypis frá 15. mars 1976 er samningurinn við Reykja- víkurborg var gerður. Þjónustan sem veitt er er þessi: Steypiböð, afnot af hveralaugum sem hægt er að gera æfingar í, gufubað fyrir þá sem það mega stunda, fullkomin solarium-ljós með gigtarlömpum, hárrúllur og hitarúllur fyrir kon- urnar, afnot af þjálfúnartækjum, vibrabekkjum, rimlum, aðstaða til æfinga í rúmgóðum þjálfunarsal og aðstaða til hvíldar. Svo er þarna setustofa þar sem fólki býðst heilsudrykkur, vatn með eplaediki og hunangi. Stórlega dró úr aðsókn á síðasta ári vegna þess að sjúkraþjálfara vantaði en þó komu 2.691 manns í endurhæf- ingardeildina. í lok þessarar greinar vil ég vitna í ummæli endurskoðanda Heilsuræktarinnar, Jóns Ólafs- sonar: „... hefur rekstur þessi ein- göngu tekist vegna óþrjótandi elju og fórnfýsi stjórnenda, en þeir hafa lagt allt í sölurnar svo takast mætti að halda a.m.k. hluta starfseminnar gangandi." Vænti ég þess að háttvirt borg- arráð muni breyta afstöðu sinni í ljósi framangreindra upplýsinga. Hafnarfirði, 15. mars 1984, Jóhanna Tryggvadóttir. fjörð. Anders reiðir sig hins vegar meira á skyggnt fólk og það sem sér í gegnum holt og hæðir, en það hefur sagt honum að skipin séu í heilu líki á botni fjarðarins. Dvergkafbáturinn, sem Anders ætlar að leigja, kostar rúmlega 100.000 kr. ísl. á dag en fólk á þess- um slóðum hefur áhuga á fyrir- tækinu og er fúst til að leggja sitt af mörkum. Leitað með kafbát að gulli Búa digra Ósló. Frá Jan-Erik Laure, frétlaritara Mbl. ANDER8 Hustadnes, sagnfræðingur frá Hjörundfirði í Noregi, ætlar nú að verða sér úti um dvergkafbát til að finna tvö víkingaskip, sem sagan segir að hafi sokkið í orrustunni í Hjörungavogi á Sunnmæri fyrir þúsund árum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.