Morgunblaðið - 21.03.1984, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 21.03.1984, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. MARZ 1984 21 Rangt að forustu- menn í verkalýðs- hreyfingunni séu of vel launaðir — segir Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir „ÞAÐ ER alltof mikil félagsleg deyfð hjá félögum í verkalýðshreyf- íngunni, en ég er nú hrædd um að það sé víðar og í félögum yfirleitt núna," sagði Aðalheiður Bjarnfreðs- dóttir er blaðamaður Morgunblaðs- ins innti hana álits á þeirri gagnrýni sem fram hefur komið að undan- förnu á forystu verkalýðshreyf- ingarinnar og tengsl hennar við hinn almenna félagsmann. „Hvað mig snertir finnst mér ég vera í miklu sambandi við mitt fólk. Ég er með mikið af vinnu- staðafundum og gef mér mikinn tíma til að tala við mitt fólk og það er gott samband yfirleitt milli mín og trúnaðarmanna. Ég vil ekki segja mikið um önnur félög, þar sem maður þekkir minna til. Ég veit ekki með þessa menn sem eru að gagnrýna verkalýðshreyf- inguna mest. Mér heyrðist nú á viðtalinu við Pétur Tyrfingsson hann ekki vera tilbúinn til að taka að sér forustu. Þetta eru kannski þeir sem eiga eftir að erfa landið og það á kannski bara eftir að koma í ljós hvort þeirra samband við félagsmenn verður betra en okkar.“ — Hvað viltu segja um þá gagnrýni að forustumenn deili ekki kjörum með félagsmönnum? „Ég tek sjálf laun eftir Sóknar- taxta. Ég get sagt þér alveg eins og er að ég held að það sé mjög rangt að segja það að forustu- menn í verkalýðshreyfingunni taki meiri laun en þeim ber eftir vinnuframlagi. Það er hins vegar kannski rangt að taka laun eftir öðrum töxtum og þá hærri. Það væri miklu réttara að taka laun Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir eftir taxta síns félags og gera síð- an reikning fyrir yfir- og nætur- vinnu, en það væri miklu dýrara fyrir félögin. Ég segi þér alveg eins og er að ég yrði mjög reið við hvaða félagskonu sem er í Sókn, sem ynni fyrir jafnlitlu kaupi og ég geri í raun og veru. Það er einhvern veginn í mér að mér finnst að maður verði að leggja eitthvað í þetta frá sjálfum sér, en það er engan veginn sann- gjarnt og sjálfsagt að leggja á sig vinnu á kvöldin og um helgar og fá ekki eyri í greiðslu fyrir, en þetta gerum við yfirleitt. Ég held því að þetta sé ósanngjörn gagnrýni. Það getur vel verið að þessir menn sem skrifa sem mest um þetta séu svo fórnfúsir að þeir myndu vinna fyr- ir miklu minna, en ég verð nú að játa það að ég efast stórlega um það,“ sagði Aðalheiður Bjarn- freðsdóttir ennfremur. Kirkjunni á Reykhól- um gefin Maríustytta Á vígsludag Reykhólakirkju fyrir 20 árum var stofnaður sjóður sem helgaður var móður Matthí- asar Jochumssonar, Þóru Einars- dóttur, Skógum í Þorskafirði. Sjóðurinn heitir „Minningarsjóð- ur breiðfirskra mæðra“. Einkunnarorð þessa sjóðs eru eftirfarandi ljóðlínur Matthíasar: Ef þú, sem ef til vill lest mitt ljóð þá löngu er orðið kalt mitt blóð, ó gleym ei móður minni, en legg þú fagurt liljublað á ljóða minna valinn stað og helga hennar minni. Sjóðnum skal varið til skreyt- ingar Reykhólakirkju. Nýlega hefur Reykhólakirkju borist gjöf, en það er stytta af Maríu með barnið og er hún gerð eftir styttu frá 13. eða 14. öld og skorin af Sveini Ólafssyni myndskera í Reykjavík. Upprunalega styttan var eitt sinn eign Reykhólakirkju, en þeg- ar Matthías Þórðarson, þjóð- minjavörður, skrásetti muni Reykhólakirkju 1913—1915 var upprunalega styttan horfin úr kirkjunni. En árið 1926 var hún færð Landakotskirkju að gjöf og prýðir þá kirkju nú. Eftirtöldum mönnum sem stuðl- uðu að eftirgerð styttunar skulu færðar þakkir, en þeir eru Björn Th. Björnsson, listfræðingur, hr. biskup H. Frehen, kaþólska safn- aðarirns á Islandi, og Torfa ólafs- syni, formanni leikmanna ka- þólska safnaðarins Reykjavík, og áðurnefndum listamanni Sveini ólafssyni myndskera. Styttan er gefin til minningar um Guðmund Sveinsson, Miðhús- um, fæddur 27. apríl 1957, dáinn 27. september 1974. Gefendur eru nánustu ættingjar hans. DAGAR Húsgagnahöllin er ekki bara stærsta húsgagnaverzlun landsins, hún á líka stærsta og besta sýningahús landsins. Stundum eru sýningar svo stórar aö viö veröum aö víkja meö húsgögnin og nú eru bara 5 dagar þangaö til Bílgreinasambandiö byrjar aö setja upp þriöju stórsýningu sína í Húsgagnahöllinni — Auto ’84. A laugardaginn kemur frá kl. 4 flytjum viö öll húsgögn okkar inn á lager og lokurrt venjulegri sölubúö til 18. apríl. Ef þú getur ekki beðið með húsgagnakaup þar til við opnum aftur eftir páska ættir þú að líta inn sem fyrst. Nú er að sjálfsögðu hægt að teygja okkur og toga í samningum og fá vænan viðbótarafslátt við staö- greiðslu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.