Morgunblaðið - 21.03.1984, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 21.03.1984, Blaðsíða 22
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. MARZ 1984 22 V-Þýskaland: Frænka Stophs komin Frankfurt, Vestur Þýskalandi. 20. mars. AP. FRÆNKA WILLY Stophs, forsætisríð- herra Austur-I>ýskalands, kom til Vestur-I>ýskalands í dag eftir nokkurra vikna baríttu fyrir því að flytja vestur. Frænkan, Ingdrid Berg, sem hét fyrir hjónaband sitt Ingrid Stoph, komst í fréttirnar þegar hún flýði ásamt fjöl- skyldu sinni í vestur-þýska sendiráðið í Prag í Tékkóslóvakíu. Með frú Berg var eiginmaður hennar, Hans Dieter, 35 ára, 7 ára sonur og 3 ára dóttir þeirra. Ekki var vitað hvort tengdamóðir frú Berg, Olga Berg, var með í förinni, en hún dvaldist með þeim í sendiráð- inu á dögunum. Það var 24. febrúar síðastliðinn, að þau stungu sér inn í sendiráðið. Þaðan fóru þau ekki fyrr en 1. mars, er þeim hafði verið heitið brottfararleyfi frá Austur-Þýska- landi. Afganistan: Fjöldi bfla eyðilagður Nýju Delhí, 20. m»rs. AP. FREL.SISSVEITIR múhameðstrúar- manna í Afganistan hafa eyðiiagt meira en 50 flutningabifreiðir Sovét- manna á síðustu tveimur vikum. Voru bílar þessir að koma frá Sovétríkjun- um, þaðan sem þeir fluttu birgðir handa sovéska setuliðinu í Afganistan. Afleiðing þessa er m.a. sú, að tilfinnan- legur skortur er nú á bensíni í tveimur stærstu borgum landsins. Frelsissveitirnar eyðilögðu hinn 8. mars sl. 40 til 50 bifreiðir Sovét- manna við Khenjang-fjallaskarðið, sem liggur fyrir norðan höfuðborg- ina Kabúl. Þá voru 10 herbílar eyði- lagðir fyrir Sovétmönnum 13. mars í grennd við Salang-göngin og 10—12 til viðbótar daginn eftir, skammt frá Jebelserat í Shomali-héraðinu. Bensín er sagt á þrotum í Kabúl og Kandahar. Þjóðbrautin milli þessara borga er jafnframt sögð afar „vara- söm“ og Sovétmenn hafa eflt mjög allan vörð við Salang-göngin til verndar flutningalestum á leið til Kabúl. Hryðjuverkamaður framseldur Yfirvöld í Dublin framseldu lögregluyfirvöldum á Norður-írlandi hryðjuverkamanninn Dominic McGlinchey sl. sunnudag. McGlinchey (fyrir miðju með yfirvararskegg) var einn eftirlýstasti hryðjuverkamaður landsins og hafði hrósað sér af því að hafa orðið tugum manna að bana. ísrael: Stjórn Shamirs riðar til falls Jerúsalpm, 20. marz. AP. STJÓRN Yitzhaks Shamirs, forsætisráðherra ísraels, virtist riða til falls í dag, eftir að einn af smærri stuðningsflokkum stjórnarinnar tilkynnti allt í einu öllum á óvænt, að hann vildi að kosningar færu fram í landinu sem fyrst. Kallaði Shamir leiðtoga allra fimm stuðningsflokka stjórnarinnar saman í dag í því skyni að fá þá til þess að fresta kosningum um nokkra mánuði, svo að honum gæfíst tími til þess að koma í framkvæmd nýrri stefnu í efnahagsmálum landsins. ísraelsþing átti að taka ákvörðun um það í kvöld, hvenær atkvæðagreiðsla um kosningafrumvarpið færi fram. Fyrsta atkvæða- greiðsla um frumvarpið kann að fara fram strax á fimmtudag, en síðan þarf enn að greiða þrisvar sinn- um atkvæði um frumvarpið, áður en það verður að lögum. Það var smáflokkurinn Tami, sem hefur þrjá full- trúa á þingi, er lýsti því yfir að hann vildi kosningar. Þetta virtist koma Shamir algerlega á óvart, en sam- kvæmt skoðanakönnunum virðist flokkur hans njóta minna fylgis nú en Verka- mannaflokkurinn, sem er í stjórnarandstöðu. Shamir Hart Lv. og Mondale ræða málin í sjónvarpsviðræðum fyrir skömmu. Síðasta könnun í Illinois: Simamynd AP. Hart og Mondale hnífjafnir ( 'hirago, lllinois. 20. marH. AP. ÞEIR WALTER Mondale, Gary Hart og Jesse Jack- son sátu í dag spenntir eftir úrslitum í forkosningun- um í lllinois-ríki um útnefningu Demókrataflokksins á forsetaefni. Kjörstaðir voru opnir og áttu að loka klukkan eitt eftir miðnætti, en úrslita var að vænta um tveimur stundum síðar. Úrslit í ríkinu skipta þá Mondale og Hart geysilegu máli hvað varðar fram- haldið, en slagurinn stendur milli þeirra um útnefn- inguna þó Jackson sé enn með. Lítið var vitað um kjörsókn, en veður var slæmt víðast hvar í ríkinu, kuldi og mikil hálka og því ekki ólíklegt og sóknin yrði minni en ella. Síðasta skoðanakönnunin sem birt var áður en kjörstaðir opnuðu bentu til gífurlegrar rimmu milli Harts og Mondale. Samkvæmt henni voru þeir hnífjafnir með 39 prósent kjósenda hvor, en Jackson með 17 prósent, en aðrir voru annað hvort óákveðnir eða vildu ekki svara. Fara frá Angóla gegn skilyrðum Meiíkóborg. 20. mars. AP. KÚBU- OG Angólamenn hafa undirrit- að samkomulag þar sem þeir fyrr- nefndu heita að kalla herlið sitt heim frá landi þeirra síðarnefndu, en ekki þó fyrr en vissum skilyrðum hefur ver- ið fullnægt. Eitt þeirra skilyrða er að allt herlið Suður-Afríku verði umsvifa- laust kallað heim frá Angóla. í samkomulaginu stendur skil- merkilega, að hinir 25.000 kúbönsku hermenn sem eru í Angóla fari það- an „samstundis og skilyrðunum hef- ur verið fullnægt". Fidel Castro Kúbuleiðtogi og Dos Santos forseti Angóla undirrituðu plaggið. Auk fyrrgreinds skilyrðis má nefna ann- að sem hljóðar þannig að Namibía hljóti það sjálfstæði sem landinu ber og Bandaríkin og „vinir þeirra" skipti sér ekki af málunum. Einnig að Suður-Afríka hætti að styðja við bakið á skæruliðahreyfingu Unita svo og öðrum „brúðusamtökum" sem leitast við að koma réttmætum stjórnum á kné. Sjö Tékkar flýðu af sovézku skipi Istanbul, 20. marz. AP. SJÖ tékkneskir farþegar, sem saknað var af sovézku skipi í Istanbul um helg- ina, hafa sótt um hæli í Bandaríkjun- um sem pólitískir fióttamenn. Skýrði bandaríska ræðismannsskrifstofan í Istanhul frá þessu í dag. Tékkarnir sjö eru úr hópi 199 ferðamanna, sem fóru flugleiðis sl. fimmtudag fra Prag, höfuðborg Tékkóslóvakíu, til Istanbul í því skyni að fara þar um borð í sovézkt skip, sem var að leggja af stað í sigl- ingarferð um Svartahafið. Flóttamennirnir vörðu fyrsta kvöldinu eftir komuna til Istanbul í að skoða merkisstaði borgarinnar, en hurfu svo, er sovézka skipið „Aivasovsky" átti að leggja úr höfn þaðan. Skipherrann lét skýra tyrkn- eskum yfirvöldum frá • hvarfi sjömenninganna, en sigldi síðan skipi sínu áleiðis til Svartahafs á föstudag. Stuttfréttir Tveir handteknir Belfant, 20. mars. AP. TVEIR MENN hafa verið hand- teknir í Belfast, grunaðir um að hafa skotið og sært illa Gerry Adams, foringja Sinn Fein, hins pólitiska arms IRA, á dögunum. Báðir hinna grunuðu eru mót- mælendatrúar og annar þeirra félagi í ólöglegum öfgahópi. Hin- ir grunuðu eru verkamaðurinn Gerard Welsh og slátrarinn Col- in Grey, báðir atvinnulausir. Öfgahópur sá er Grey tilheyrir, frelsisher Ulster, lýsti ábyrgð á tilræðinu á hendur sér. Kólerufaraldur kaduna, Nígerlu. 20. mars. AP. AÐ MINNSTA kosti 10 börn hafa látist í ýmsum þorpum Sokoto- fyikis í norðvesturhluta Nígeríu siðustu dagana, en kólera hefur herjað þar á börn og gamal- menni. Yfir 3.000 börn hafa verið bólusett og yfirvöld eru bjartsýn að vel takist að bera sýkina ofurliði. 70 drukknudu Accra, Ghana. 20. mars. AP. FRÁ ÞVÍ var greint í Accra í Ghana í dag, að 70 manns hefðu drukknað um helgina, er tveimur ferjubátum hvolfdi skammt frá ströndinni, en fólkið var að fara úr öðrum bátnum í hinn er slysið varð. Alls voru 100 manns í bát- unum, en fólk á ströndinni náði að bjarga 30 manns. Ekki fylgdi fréttinni hvernig stóð á fólksflutningunum frá Ghana til Nígeríu, en þangað var för bátsins heitiö. Enn er í fersku minni kergja Ghanamanna í garð Nígeríumanna eftir að þeir siðarnefndu ráku næstum 2 milljónir Ghanamanna úr landi snemma á síðasta ári. Nóg „kók“ Oordrecbt, HolUndi. 20. m»rs. AP. LÖGREGLAN í Dordrecht í Hollandi lagði í dag hald á 7 kíló- grömm af eiturlyfinu kókaín. Verðmætið er talið um 1,5 millj* ón gyllini, eða 508.500 dollarar. Efnið var falið I ferðatösku 44 ára gamals Kólombiumanns sem var í lest á leið frá Parfs til Hol- lands. Sá kólombíski var beðinn að framvísa vegabréfi, en er það vafðist fyrir honum var hann handtekinn og leitað í farangri hans með fyrrgreindum afleiö- ingum. Mitterand til Bandaríkjanna ParÍH. 20. mara. AP. FRANCOIS Mitterand, Frakk- landsforseti, heldur í dag áleiöis til Bandaríkjanna, og er það fyrsta opinbera ferð hans þangað sem forseti Frakklands. Hann mun eiga viðræður við banda- ríska ráðamenn, þar á meðal for- setann, Ronald Reagan. Kunnug- ir telja að meiri vinátta svífi yfir vötnunum í sambúð ríkjanna heldur en nokkru sinni fyrr, og báðir aðilar hafi fullan hug á þvf að bæta ástandið enn meira. Flotinn minnkar Lundúnum, 20. marn. AP. Fiskiskipafloti heimsins minnkaði árið 1983, i fyrsta skipti síðan f siðari heimsstyrj- öldinni, og er bágu efnahagslífi víðast hvar kennt um. Þetta kom fram i árlegri skýrslu sem Lloyds-tryggingafélagið sendir jafnan frá sér. Þar kemur einnig fram, að óvíst er með framtið skipasmíða. Samdrátturinn er svona í tölum: 1982 nam fiski- skipafloti heimsins 424,7 milljón- um tonna og var það hæsta tala frá upphafi. 1983 var samsvar- andi tala 422,6 milljónir tonna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.