Morgunblaðið - 21.03.1984, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. MARZ 1984
25
lafnarfirði í gær.
ægðar
tid sitt
því að í Svíþjóð væri rúmur helming-
ur systra í Karmel-reglunni sænskur.
Príorinnan sagði að þær hefðu
numið nokkra íslensku af kunnáttu-
manni í þeim fræðum í Póllandi, þótt
þær kynnu enn ekki nægjanlega mik-
ið til að halda uppi samræðum á
þessu erfiða, en hljómmikla máli og
að þær myndu halda áfram að nema
sitt nýja móðurmál eftir föngum og
sækja tíma í íslensku vikulega.
Séra Georg sagði, að Hinrik
Frehen, biskup kaþólskra á íslandi,
Glemp, kardináli í Póllandi, Bellotti,
pater provincial, sendiherra Vati-
kansins í Kaupmannahöfn, og gener-
áli nokkur í Vatikaninu hefðu unnið
að undirbúningi komu systranna.
Karmel-klaustrið í Elblag hefði orðið
fyrir valinu vegna fjölda þeirra sem
þar sækja um vist. Hann bætti við að
systurnar mættu vart vera færri en
16 ef klausturlífið ætti að ganga sam-
kvæmt fyrirlögðum forskipunum
Karmel-reglunnar.
Eins og áður er komið fram munu
nunnurnar eyða lífi sínu innan veggja
klaustursins héðan í frá. Það verður
þó að einu leyti vandkvæðum bundið.
Séra Georg sagði að nærliggjandi
byggð væri orðin svo háreist að af
efstu hæðum mætti auðveldlega sjá
inn í klausturgarðinn og þyrfti því að
hækka veggi þá sem umlykja hann
svo að systurnar gætu óséðar farið
ferða sinna í garðinum.
23. — exd4, 24. De5+ — Ka8, 25. Re6 —
Dh7.
Ekki 25. - Hxh2?, 26. Kxh2 -
Hh8+?, 27. Dxh8+ o.s.frv.
26. h4
Svartur hótaði 26. — Dxh2+ og mát.
— Hhe8.
27. De2
Hvítur verður að losa leppun riddar-
ans á e6, því svartur hótaði 27. — Dh6,
28. Hel — d3, o.s.frv.
27. - Hd6, 28. Df3+ - Db7, 29. Dxb7+
— Kxb7, 30. Rxc5+ — Rxc5, 31. Hxc5 —
d,3.
Frípeðið á d3 tryggir svarti jafn-
tefli.
32. Hdl — He2, 33. Hb5+ — Ka6, 34.
Hxb4 — d2, 35. Kfl
Svartur hótaði 35. — Hel.
35. — Hde6, 36. Kg2
Svartur hótaði 36. — Hel, skák^
36. - Hd6
Endurnýjar hótunina He2 — el og
Kasparov bauð jafntefli, sem Smyslov
þáði, því ekkert er annað að gera en að
þráleika.
Trassaskapur sjómanna hef-
ur dregið úr öryggisnetinu
— segir Guðjón Kristjánsson, forseti FFSI, um Tilkynningaskylduna
„VIÐ GETUM ekki dregið fjöður yf-
ir það, að vegna þess að sjómenn
hafa ekki staðið sig nógu vel við að
gefa tilkynningaskylduna, veikir það
öryggisnetið. Ef allir pössuðu sig á
að melda sig fyrir réttan tíma, væri
fljótar brugðið við. Það er ekki hægt
að neita því, að það er trassaskapur-
inn, sem hefur valdið því, að í flest-
um tilfellum er brugðizt seinna við
en öruggast væri,“ sagði Guðjón
Kristjánsson, forseti Farmanna- og
fiskimannasambandsins, er Morg-
unblaðið innti hann álits á öryggi
Tilkynningaskyldunnar.
„Eg er á þeirri skoðun, að það
bezta, sem hægt sé að gera, ef
menn tilkynna sig ekki á réttum
tíma, sé að radíóið kalli á skip í
nágrenninu og óski þess, að þau
svipist um eftir viðkomandi skipi.
Það kæmi varla fyrir nema einu
sinni eða tvisvar að menn færu að
láta félaga sína leita að sér án
þess að vera í vanda staddir. Þeir
myndu passa sig eftirleiðis. Ég
held að sektir hafi ekkert að segja
í þessu sambandi. Það geta legið
svo margar ástæður að baki þess,
að menn tilkynna sig ekki. Ég tel
það miklu meira aðhald, að menn
eigi það á hættu vegna trassa-
skapar, að félagar þeirra þurfi að
hætta veiðum og fara að leita að
þeim.
Hugmyndin um sjálfvirka til-
kynningaskyldu er fremur fjar-
lægur en framkvæmanlegur
möguleiki. Við höfum hins vegar
bent á aðra leið, „selfcall“-kerfið,
sem er þannig, að hægt er að
hringja beint frá radíóinu í hvert
RIKISSTJÓRNIN ákvað á fundi
sínum í gær, að tillögu samgöngu-
ráðherra, að skipa nefnd um örygg-
ismál sjómanna. í nefndinni munu
eiga sæti níu alþingismenn, fimm frá
stjórnarflokkunum og fjórir frá
stjórnarandstöðuflokkunum.
Nefndin skal fjalla um alla þætti
skip. Þá hefur hvert skip sérkall
og verði ekki svarað á svoleiðis
kalli, mætti draga þá áætlun, að
eitthvað væri að. Hugsanlegt væri
að svona tæki væri tengt inn á
kallkerfi viðkomandi skips og þá
TILRAUNIR með kerfi, sem á sjálf-
virkan hátt gæti leyst af núverandi
tilkynningaskyldu bátaflotans, hefj-
ast í sumarbyrjun. Unnið hefur verið
við þróun kerfisins á vegum
samgönguráðuneytisins undanfarin
misseri og tvívegis veitt til verkefnis-
ins af fjárlögum, að sögn dr. Þorgeirs
Pálssonar prófessors, sem hefur
stjórnað verkefninu í Háskóla ís-
lands. Einn maður hefur verið í föstu
starfi við þróun kerfisins í heilt ár.
„Þetta er tvíþætt verkefni," sagði
dr. Þorgeir í samtali við blaðamann
Morgunblaðsins. „Annars vegar er
verið að athuga möguleika á að
koma upp kerfi fyrir landið og mið-
in. Allir mögulegir þættir þessa
hafa verið kannaðir: kostnaður,
kostir og gallar, þjónustumöguleik-
ar, öryggisatriði og fleira. í öðru
lagi erum við að þróa tilraunakerfi,
öryggismála sjómanna og gera til-
lögur um nauðsynlegar endurbæt-
ur á öryggisbúnaði áhafna og
skipa.
Hún skal í störfum sínum hafa
náið samstarf við Siglingamála-
stofnun ríkisins, Rannsóknarnefnd
sjóslysa, Slysavarnafélag íslands
myndi kallið heyrast hvar sem er
um borð. En eins og staðan er i
dag hefur trassaskapurinn dregið
úr örygginu. Vegna þess að menn
hafa ekki staðið sig nógu vel með
að vera með tilkynningaskylduna
til að prófa hluti í endanlega kerf-
inu og geta sýnt hvernig kerfið
mun geta virkað í notkun."
En hvað gæti þetta tölvuvædda
tilkynningakerfi bátaflotans gert?
„Tilkynningaskyldan yrði að-
gjörlega sjálfvirk. Það væri hægt
að fylgjast með öllum skipum, sem
hefðu tilsettan tækjabúnað. Þau
myndu senda frá sér hljóðmerki á
15 mínútna fresti eða jafnvel
oftar,“ sagði Þorgeir. „Þetta gæti
byggst á því, að staðarákvörðun
bátanna kæmi í gegnum lóraninn.
Hún yrði send til lands með auð-
kenni hvers skips og jafnvel ýms-
um öðrum viðbótarupplýsingum.
Þá er einnig reiknað með að í þessu
verði möguleiki á sérstakri neyð-
arsendingu, sem hægt væri að setja
í gang með einum rofa.
Hrifnastir erum við sem stendur
sjómanna
og samtök sjómanna og útvegs-
manna.
Jafnframt skal nefndin gera til-
lögur um fjármögnun nauðsyn-
legra aðgerða til úrbóta í öryggis-
málum sjómanna.
Samgönguráðherra hefur þegar
óskað eftir tilnefningu allra þing-
flokka í nefndina.
á réttum tíma, hefur það leitt af
sér, að menn fara ekki eins fljótt
af stað með leit. Við veikjum ör-
yggið með því að standa okkur
ekki sjálfir," sagði Guðjón Krist-
jánsson.
af því að í hvern bát yrðu sett
sjálfstæð tæki, sem hefðu í sér eig-
in sendistöð," sagði Þorgeir um
hugsanlegan viðbótarbúnað í báta
vegna þessa kerfis. „Við höfum at-
hugað ýmsa möguleika á þessu og
vitum t.d., að til greina kemur að
tengja þetta í lóran og talstöð, en
okkur sýnist að hitt sé heppilegra
enda er líklegt, að hægt sé að fram-
leiða þau tæki á viðráðanlegu
verði.“
Hann sagði að einnig yrði þörf
fyrir hlustunarstöðvar með strönd-
um í landi, sem tengdar yrðu
miðstöð í Reykjavík.
Verkefni þetta er unnið að frum-
kvæði nefndar á vegum samgöngu-
ráðuneytisins undir forystu Brynj-
ólfs Sigurðssonar, dósents í við-
skiptafræði. í fyrra var veitt til
verkefnisins 400.000 kr. á fjárlög-
um og 500.000 kr. í ár. Þorgeir
sagðist reikna með að einhverra
frekari fjárveitinga yrði þörf síðar
á þessu ári.
„Við höfum stefnt að því að ljúka
undirbúningsathugunum á þessu
ári og þá ættum við að vita í aðal-
atriðum hve mikið þetta kerfi gæti
kostað og að hve miklu gagni það
gæti komið," sagði dr. Þorgeir
Pálsson.
Nefnd um öryggismál
Rannsóknir í Háskólanum:
Verður Tilkynninga-
skyldan tölvuvædd?
Sverrir Hermannsson á ársþingi FÍI:
Samningar um 50%
un álvers á góðum
Rætt um 175 þúsund tonna álver við Eyjafjörð
SVERRIR Ilermannsson, iðnaðar-
ráðherra, sagði á ársþingi iðnrek-
enda í gær, aö hann gerði ráð
fyrir, að samningar mundu takast
fljótlega við Svissneska álfélagið
um 50% stækkun álversins í
Straumsvík og mundi nýr hluti ál-
versins þá verða tekinn í notkun á
árinu 1988. Iðnaðarráðherra
kvaðst segja þetta með fyrirvara
um orkuverð, en „menn væru
teknir að tæpa á þeim tölum, sem
stefna á álitlega niðurstöðu“.
Sverrir Hermannsson sagði, að
tækjust samningar um stækkun
álversins væri líklegt að hraða
þyrfti framkvæmdum við Blöndu-
virkjun á þessu ári. Þá sagði ráð-
herrann, að viðræður við erlenda
aðila um byggingu álvers í Eyja-
firði hefðu gengið betur en búast
mátti við og í því sambandi væri
rætt um 175 þúsund tonna ál-
bræðslu. Sverrir Hermannsson
stækk-
vegi
sagði viðræður við japanska stór-
fyrirtækið Sumitomo um aðild að
járnblendisverksmiðjunni í Hval-
firði á góðum vegi og mætti vænta
niðurstöðu innan tíðar. Loks sagði
ráðherrann að hann mundi innan
tíðar gefa Alþingi skýrslu um kís-
ilmálmverksmiðjuna á Reyðar-
firði.
Iðnaðarbankinn:
Hlutabréf ríkis
boðin til sölu
SVEKKIR Hermannsson, iðnaðarráð-
hcrra, sagði á ársþingi iönrekenda í
gær, aö ráöuneyti hans mundi í þess-
ari viku senda hluthöfum í Iðnaðar-
bankanum bréf og bjóða þeim for-
kaupsrétt aö allri hlutabréfaeign
ríkisins í bankanum, sem væri 27%.
Ráðherrann sagði ennfremur, að
starfsmenn Landssmiðjunnar
hefðu nýlega stofnað með sér félag
til að ráðast í kaup á smiðjunni og
kvaðst hann hafa skipað nefnd í
síðustu viku til þess að annast söl-
una af hálfu ráðuneytisins. Sverrir
Hermannsson sagði, að Siglósíld
hefði þegar verið seld, „væntanlega
til gæfu og gengis fyrir Siglufjörð
en til angurs fyrir kreddumenn og
kerfiskarla".
Sverrir Hermannsson, iðnaðarráðherra ávarpar ársþing iðnrekenda í gær.
Morgunbiaóió KÖE.