Morgunblaðið - 21.03.1984, Side 26

Morgunblaðið - 21.03.1984, Side 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. MARZ 1984 Fjármálaráðherra: Lögin um endur- greiðslu söluskatts af snjómokstri illframkvæmanleg ALBKKT Guðmundsson, fjármálaráðherra, svaraði á Alþingi í gær fyrirspurn frá Páli Péturssyni um hvenær yrði neytt heimildar til að endurgreiða söluskatt af kostnaði sveitarfélaga við snjómokstur. Ráðherrann kvað illframkvæmanlegt að neyta þessarar heimildar þar sem vinnuvélaþjónusta væri söluskattskyld bæði fyrir einkaaðila og opinbera aðila og erfitt gæti verið að greina þar á milli. Hann talaði um að þarna gæti jöfnunarsjóður átti hlutverki að gegna og ástæða væri til að styrkja hann og sveitarfélög til að koma til móts við þessa breytingu á lögum um söluskatt. Ráðherr- ann kvaðst vera á því að ósann- gjarnt væri að ríkisvaldið hagnað- ist af snjómokstri. Hann kvað að því unnið í ráðuneytinu að finna leið til að framkvæma þessi lög. Páll Pétursson, Ragnar Arnalds og Karvel Pálmason tóku til máls og kvað við þann tón hjá þeim öll- um að fjármálaráðherra væri með fyrirslátt í þessu máli. Honum væri skylt að fara að lögum sem Alþingi hefði samþykkt. Karvel kvað svo sterkt að orði að þarna væri ríkissjóður að innheimta blóðpeninga og rangt væri að dreifbýlismenn þryftu að sæta slíku í viðbót við það óhagræði sem fannfergi og ótíð ylli fólki langtímum saman. Heilbrigðisráðherra um hundahreinsun: Ekki hægt að una til lengdar við ófremdar- ástand í Reykjavík MATTHÍAS BJARNASON sagði á Alþingi í gær að hann teldi ekki þörf aðgerða í sambandi við varnir gegn útbreiðslu sullaveiki umfram þær sem lög gera þegar ráð fyrir. Hann taldi einnig ástæðulaust að láta fara fram könnun á framkvæmd gildandi laga um hundahreinsun. Ráðherr- ann sagðist telja nútíma heilbrigðisþjónustu það öfluga að varla ætti að koma til að sullaveiki breiddist út. Matthías sagði að hann væri á þeirri skoðun að reglugerð um hundahreinsun væri vel fylgt á flestum stöðum á landinu nema í Reykjavík. Þar væri hundahald bannað en fjöldi þeirra eigi að síð- ur mikill. Ekki væri hægt að una við það ófremdarástand til lengd- ar sem þar ríkti í hundahreinsun- armálum. Ráðherrann kvað sér hins vegar óljúft að skipta sér af því máli, enda væri hundahald sveitarstjórnarmál og kvaðst hann vænta þess að borgaryfir- völd í Reykjavík myndu taka þetta mál föstum tökum. Þessi ummæli heilbrigðisráð- herra voru svör við fyrirspurnum frá Kolbrúnu Jónsdóttur, alþing- ismanni, um hvað ráðherrann hyggðist gera til að varna út- breiðslu á sullaveiki og hvort hann hyggðist láta gera úttekt á fram- kvæmd gildandi laga um hunda- hreinsun. Landað úr Rauðsey AK 14 í Vesturhöfninni, en hún fékk um 520 lestir á laugardag. MorKunblaðið/ öi.k.m. Um 520 þús. lestir af loðnu komnar á land: Bræla hamlar veiðum BRÆLA hefur hamlað loðnu- veiðunum frá því á sunnudag, en þokkalegur afli var á laug- ardag. Á mánudag tilkynnti eitt skip um afla, Guðrún Þor kelsdóttir SU, 150 lestir, og ekkert hafði verið tilkynnt um afla síðdegis í gær. Alls eru nú komnar um 520.000 lestir á land og hefur loðnunni verið landað á flestum móttökustöðv- um á landinu, en auk þess sigldi einn bátur, ísleifur VE, með aflann til Færeyja. Loðnan hefur fengizt við Snæfcllsnes, í Faxaflóa og við Suðurland aust- an Eyja. Til viðbótar þeim skipum, sem getið var í Morgunblaðinu á sunnudag, tilkynntu eftirtalin skip um afla á laugardag: Guð- Þær eru helstar að bætt er við launafiokki fyrir þá sem hafa unn- ið 17 ár eða lengur í blaða- mennsku. í öðru lagi er háskóla- nám metið meir til starfsreynslu en áður. Þá munu útgefendur taka þátt í námskeiðskostnaði til mundur Ólafur ÓF 250, Jón Finnsson RE 580, Börkur NK 1.100, Sæberg SU 630, ísleifur VE 680, Gígja RE 750 og Gull- berg VE 580 lestir. Á sunnudag FLUGLEIÐIR hafa nú tekið þá ákvörðun að veita fylgdarmönnum sjúklinga, sem sendir eru til að- gerða í London, 50% afslátt frá svokölluðu normal-fargjaldi. Þýðir Samkomulagið gildir frá 1. mars og til 15. apríl 1985. Upp- sagnarákvæði og áfangahækkanir eru þær sömu og í samningi ASÍ og VSÍ að öðru leyti en því að hækkunin 1. janúar verður 2,9% í stað 3% hjá ASÍ og VSÍ. tilkynntu eftirtalin skip um afla, flest með slatta vegna brælunnar: Hilmir II SU 250, Eldborg HF 1.150, Júpíter RE 550 og Heimaey VE 230 lestir. þetta verðlækkun til fylgdar- manna á bilinu rúmlega 5.000 krónur til um 12.000 krónur. Sigfús Erlingsson, fram- kvæmdastjóri Markaðssviðs Flug- leiða, sagði í samtali við blaðið, að ákvörðun þessi hefði meðal annars verið tekin í framhaldi erindis frá Félagi hjarta- og æðasjúklinga og kæmi afslátturinn aðeins til ef fylgdarmaður væri talinn sjúkl- ingnum nauðsynlegur. Hingað til hefðu fjargjöld þessa fólks nær eingöngu verið með tvennum hætti. Annars vegar hefði það tek- ið svokölluð 6—30 daga fargjöld að upphæð rúmar 17.000 krónur fram og til baka og hins vegar normal fargjöld að upphæð rúmar 23.000 krónur. Afslátturinn frá normal-fargjöldunum .væri 50% eða nálægt 12.000 krónum. Það þýddi í raun, að afslátturinn væri frá rúmum 5.000 krónum að tæp- um 12.000 eftir því hvoru fargjald- inu fylgdarmenn hefðu átt kost á. Blaðamenn semja FÉLAGSFUNDUR í Blaðamannafé lagi íslands samþykkti í gær með yfirgnæfandi meirihluta kjarasamn- inga sem undirritaðir voru í fyrri- nótt. Samningurinn er í meginatrið- um samhljóða samningi ASIog VSÍ, en auk þess náðust fram nokkrar sérkröfur. endurmenntunar fyrir blaðamenn og fást námskeiðin að einhverju leyti metin til starfsþjálfunar. Einnig varð samkomulag um nýja tækni á ritstjórnum, þar sem blaðamenn telja sig tryggja hags- muni sína í sambandi við tölvu- vinnslu. Sjúkraflutningarnir til London: Fylgdarmönum veittur afsláttur Á stórstraumsflóði í Sandgerðishöfn síðastliðinn sunnudag. Morgunblaðið/ Arnór. Garður: Vorið er komið hvað sem hver segir... (*arAi, 20. marz. FÁTT EITT er meira rætt manna á meðal en vorið og kvótakerfið. Um vorið er það helzt að segja, að það hagar sér eins og lítill strákur sem hringir dyrabjöllunni og hleypur svo í felur. í fyrri viku var ekki ann- að að sjá en vorið væri komið, kollurnar voru farnar að para sig á síkinu. Þá voru komnar tvær álftir, en undanfarin sum- ur hefir verið mikið um þær á síkinu. Það var svo um helgina að það gerði hret sem stendur enn og í morgun var allt hvítt yfir að líta og engar álftir að sjá, en'aftur á móti söng tjaldurinn með sínum hvella rómi í gærkvöldi eins og hann væri að láta vita að hann væri kominn á staðinn. Fuglalíf þykir mjög fjölskrúð- ugt í Garðinum og hingað flykk- ist á hverju sumri fjöldi fugla- fræðinga sem vappa um klukku- tímum saman. Jörð virðist ætla að koma mjög lifandi undan snjónum og eru græn grös farin að sjást, einkum þar sem sina er. Um kvótakerfið er best að segja sem minnst, en fróðlegt verður að fylgjast með stjórn- málamönnunum um mánaða- mótin þegar þriðji eða jafnvel annarhver bátur verður búinn að fylla þorskkvóta sinn. Arnór.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.