Morgunblaðið - 21.03.1984, Qupperneq 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. MARZ 1984
| atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna |
Fiskvinna
Okkur vantar fólk í fiskvinnu nú þegar. Unniö
í bónus, mikil vinna, fæði og húsnæði á
staðnum.
Upplýsingar hjá verkstjóra í símum 98-1101
og 98-1102.
ísfélag Vestmarwaeyja hf„
Vestmannaeyjum.
Hjúkrunar-
fræðingar
Sjúkrahús Vestmannaeyja óskar að ráða
skuröhjúkrunarfræðing nú þegar eöa eftir
nánara samkomulagi. Ennfremur hjúkrunar-
fræðinga á legudeildir í fast starf og til sum-
arafleysinga.
Uþþlýsingar gefur hjúkrunarforstjóri í síma
98-1955.
Endurskoðunar-
skrifstofa
Óskum að ráða ritara til starfa á endurskoð-
unarskrifstofu. Starfiö felur m.a. í sér síma-
vörslu, vélritun og innslátt á tölvu.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun,
aldur og fyrri störf sendist augld. Mbl. merkt:
„H — 1139“.
Steinullar-
verksmiðjan Hf.
Sauðárkróki
óskar að ráða:
Framkvæmdastjóra
Verksvið: Yfirstjórn verksmiðjunnar með
fjármál, sölu- og markaðsmál sem sérstök
viðfangsefni.
Skilyrði: Menntun á háskólastigi á sviði við-
skipta er æskileg. Reynsla í sölu- og mark-
aðsmálum er áskilin. Góð kunnátta í ensku
og a.m.k. einu Norðurlandamálanna er nauð-
synleg.
Verksmiðjustjóra
Verksvið: Yfirstjórn tæknisviös verksmiðj-
unnar bæði á framkvæmdastigi og þegar
verksmiðjan tekur til starfa. Tæknisviðið
spannar framleiðslu og viðhald ásamt rann-
sókna- og þróunarstarfsemi.
Skilyrði: Verkfræði- eða tæknifræðimenntun
er áskilin. Reynsla af iðnrekstri er æskileg.
Góö kunnátta í ensku og a.m.k. einu Norður-
landamálanna er nauösynleg.
Umsóknir, þar sem m.a. eru tilgreindar
hugmyndir um launakjör, sendist til:
Steinullarverksmiðjan hf„
c/o Hagvangur hf„
Grensásvegi 13,
108 Reykjavík,
fyrir 5. apríl nk. Þar má einnig leita nánari
upplýsinga kl. 13—19, sími: 91-83666.
Steinullarverksmiöjan hf., er fyrirtaeki í eigu Kaupfélags Skag-
firöinga, Oy Partek ab., ríkissjóös, Sambands ísl. samvinnufé-
laga og Sauöárkroksbæjar auk 300 minni hluthafa.
Framkvæmdir viö verksmiöjubyggingu eru hafnar og gert er ráö
fyrir aö verksmiöjan taki til starfa um mitt ár 1985 Áætlaö er aö
35—40 manns starfi viö verksmiöjuna.
Setjarar
pappírsumbrot
Morgunblaðið óskar eftir að ráða 2 vana
menn í pappírsumbrot. Um er að ræða
vaktavinnustarf og dagvinnustarf.
Áhugaverð störf fyrir tæknisinnaöa aðila.
Allar nánari uppl. veita verkstjórar tækni-
deildar. Uppl. ekki veittar í síma.
fttargtsnMfifrifr
Ritari óskast
Viðskiptaráðuneytið óskar aö ráöa ritara frá
1. apríl nk. Góð kunnátta í vélritun og ensku
nauðsynleg.
Umsóknir sendist viðskiptaráðuneytinu Arn-
arhvoli fyrir 28. mars þ.m.
Reykjavík, 19. mars 1984.
Skrifstofustjóri
Stórt sjúkrahús á Norðurlandi óskar eftir að
ráða skrifstofustjóra. Starfið felst í umsjón
með bókhaldi, tölvuvinnslu og stjórnun
skrifstofu.
Leitað er eftir viðskiptafræðingi eða manni
með reynslu við bókhaldsstörf.
Umsóknir sendist:
Endurskoðunarskrifstofu
Hallgríms Þorsteinssonar og
Þorvaldar Þorsteinssonar s/f,
Hafnarhvoli v/Tryggvagötu, Reykjavík.
Sími 27575.
Afgreiðsla í leik-
fangaverslun
Óskum eftir að ráða nú þegar starfsmann til
afgreiðslu í leikfangaverslun í Reykjavík sem
sérhæfir sig í þroskaleikföngum. Um heils-
dagsstarf er að ræða.
Æskilegt er að umsækjendur hafi menntun
frá Fósturskóla íslands, þó ekki skilyrði.
Aðeins tekið á móti umsóknum miðvikudag-
inn 21. og fimmtudaginn 22. mars.
Maður með þekk-
ingu á pípulögnum
Afgreiöslumaður óskast hjá byggingavöru-
verslun í austurborg Reykjavíkur. Nauðsyn-
legt er að umsækjendur hafi lokiö námi í
pípulögnum eða hafi meö reynslu í sölu á
hreinlætistækjum og lögnum öðlast þekk-
ingu sem miöla má til viöskiptavina.
Portafgreiðslu-
menn
Óskum eftir að ráða tvo portafgreiðslumenn
hjá fyrirtæki sem flytur inn byggingavörur.
Vinnan er ekki líkamlega erfið, en áhersla er
lögð á að viðkomandi séu liprir og léttir í
lund.
Um nokkra yfirvinnu er að ræöa, og viökom-
andi þurfa að geta unnið annan hvern laug-
ardagsmorgun. Umsækjendur séu ekki yngri
en 20 ára. Góð aöstaða fyrir starfsmenn.
Nánari upplýsingar á skrifstofunni frá kl.
9—15.
AFLEYSWGA-OG RÁÐMNGARÞJÖNUSIA
Lidsauki hf. @
HVERFISGOTU 16A — SIM113535
Hafnarfjörður
Okkur vantar konur í snyrtingu og pökkun.
Unnið eftir bónuskerfi.
íshús Hafnarfjarðar hf„
sími 50180.
Hraðfrystihús
Konur vanar snyrtingu vantar strax.
Upplýsingar í síma 93-6679 og 93-6761.
Búrfell hf„
Rifi.
Atlantis hf.
óskar eftir að ráða áhugasaman mann til
starfa á hugbúnaðarsviði. Góöir framtíðar-
möguleikar. Upplýsingar um menntun og fyrri
störf óskast sendar fyrir 31. mars til skrif-
stofu okkar að Skúlagötu 51, 105 Reykjavík.
Sími: 19920.
■;ff^ PÓST- OG SIMAMÁLASTOFNUNIN
irjtt___
óskar að ráða
símvirkja
og
tæknifulltrúa I
til starfa við loranstööina á Gufuskálum. Frítt
húsnæöi á staðnum. Nánari upplýsingar veit-
ir stöövarstjórinn Gufuskálum og starfs-
mannadeild Reykjavík.
Frá Svæðisstjórn
Vestfjarða
Bræöratunga, þjálfunar- og þjónustumiöstöð
fatlaðra (þroskaheftra) á Vestfjörðum tekur
til starfa 5. maí nk. Þeir sem óska eftir dvöl
eða annari þjónustu hafi samband við for-
stöðumann eða framkvæmdastjóra Svæðis-
stjórnar í síma 94-3290 og 94-3224.
Jafnframt er auglýst eftir starfsfólki. Æskileg
menntun: Þroskaþjálfun, iðjuþjálfun, fóstru-
eða önnur uppeldisfræðileg og félagsfræði-
leg menntun og reynsla.
Frá 1. maí verður skrifstofa Svæðisstjórnar
staðsett í Bræðratungu á ísafirði.
Hafnarfirði
Hjúkrunar-
fræðingar
óskast í sumarafleysingar. Einnig vantar
hjúkrunarfræðing á næturvakt, 50%, frá 1.
júní.
Sjúkraliði
óskast í fullt starf á vistheimili.
Uppl. gefur hjúkrunarforstjóri í síma 53811.