Morgunblaðið - 21.03.1984, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. MARZ 1984
33
Ár vaxandi framkvæmda og
umsvifa í starfsemi bankans
HankaráAsmt’nn ásamt bankastjór-
um Verzlunarbanka Islands. Krá
vinstri: Höskuldur Olafsson, banka-
stjóri, Ámi Gestsson, stórkaupmaó-
ur, Leifur ísleifsson, kaupmaóur,
Sverrir Norland, verkfræóingur,
Imrvaldur Guómundsson, forstjóri,
Guðmundur H. Garóarsson, vió-
skiptafræðingur og Kristján
Oddsson, bankastjóri.
— sagði Höskuldur Olafsson bankastjóri
„SÍDASTA ÁR var ár framkvæmda og vaxandi umsvifa í starfsemi bankans.
Lokió var við framkvæmdir á eignarhluta bankans í Húsi verzlunarinnar og
þar opnaó útibú. Tölvudeild bankans var stækkuð og henni fenginn full-
komnari búnaður til þess að sinna vaxandi verkefnum, jafnframt var hún
flutt í nýtt húsnæói í IIúsi verzlunarinnar. Hafinn var fyrsti áfangi gjaldeyr-
isverzlunar en bankinn fékk á árinu heimild til þess aó annast sölu á
gjaldeyri til feróamanna og námsmanna, svo og aó hafa innlenda gjaldeyris-
reikninga. Óskaó var eftir heimild viðskiptaráðherra til þess aó stofna
veðdeild viö bankann og hefir ráðherra veitt hana meö bréft dagsettu 17.
þessa mánaóar. Ég vil færa Matthíasi Á. Mathiesen, viðskiptaráðherra,
sérstakar þakkir fyrir það hve vel hann hefir greitt úr erindum bankans þann
tíma er hann hefir gegnt störfum viðskiptaráðherra. Hann veitti bankanum
starfsleyfi fyrir útibúi í Húsi verzlunarinnar. Hann hjó á þann hnút sem
gjaldcyrisvióskipti hafa verið í og nú hefir hann veitt hankanum heimild til
stofnunar veðdeildar. Allt stuðlar þetta að því að auka starfssvið bankans,"
sagði Höskuldur Olafsson, bankastjóri Verzlunarbanka íslands, í ræðu sinni
á aðalfundínum sl. laugardag.
Höskuldur rakti því næst
rekstrarreikning bankans. Rekstr-
artekjur sl. árs voru 475 milljónir
króna, sem er hækkun um 94,8%
og er langstærstur hluti þeirra
vaxtatekjur og verðbætur af út-
lánum, eða alls 360,4 milljónir
króna. Rekstrargjöld bankans
urðu alls 467,4 milljónir króna og
höfðu hækkað um 95,7% frá árinu
1982. Munaði þar mestu um vexti
og verðbætur, sem námu 372,4
milljónum króna af heildargjöld-
unum. Rekstrarhagnaður á árinu
1983 var því 7.627 þúsund krónur.
Innlán við bankann urðu alls
693,8 milljónir króna á síðasta ári,
sem er aukning um 67% frá fyrra
ári. Utlánsaukningin varð nokkru
meiri í hundraðshlutum eða um
81,3%, en í krónum voru útlánin
675,4 milljónir. í ræðu sinni sagði
Höskuldur m.a. í þessu viðfangi:
„Svo sem að líkum lætur eru lán
til verzlunar stærsti hluti útlána
bankans. Lán allra deilda bankans
til verzlunar í lok síðasta árs
námu 430 milljónum króna, sem er
21,6% af heildarlánum til einka-
verzlunar á landinu öllu.
Á árinu fór meginhluti útlána-
aukningar í verðtryggð lán allt
fram á síðari hluta ársins, þegar
markaðsaðstæður breyttust með
lækkun verðbólgunnar. Urðu þá
snögg umskipti og voru vextir
lækkaðir mánaðarlega frá sept-
ember til desember. Þrátt fyrir
það tókst fyrir árslok að ná þeim
áfanga að innlánsvextir urðu
jákvæðir, en það hafa þeir ekki
verið af óverðtryggðu fé um langt
árabil.
Ef því markmiði verður náð,
sem öll skilyrði eru fyrir, að verð-
bólga hér á landi sé svipuð og er í
helztu viðskiptalöndum okkar,
skapast skilyrði fyrir því að
treysta grundvöll lánamarkaðar-
ins með því að gæta þess að vextir
séu jafnan jákvæðir. Það er meg-
inforsenda fyrir því að efla megi
frjálsan peningalegan sparnað.
Það olli okkur nokkrum von-
brigðum að ná ekki hærra hlut-
falli í innlánum en raun bar vitni.
Hygg ég að meginástæður séu
helztar tvær, það er að þær ytri
aðstæður sem við var að fást hafi
verið okkur sérstaklega andstæð-
ar, en þess gætti mjög að verð-
bólgan þrengdi í vaxandi mæli að
öllum verzlunarrekstri. Að vísu
gerbreyttust aðstæður þegar líða
tók á árið, gengið varð stöðugt og
fjármagnskostnaður fór lækkandi.
En það tekur nokkurn tíma að bati
fari að skila sér í rekstri. Inn-
flutningsverzlunin fann strax
þann mun, sem fylgdi því að vinna
við stöðugt gengi. Nýting fjár-
magns varð strax betri. Hins veg-
ar tekur lengri tíma hjá smásölu-
verzluninni að aðlagast stöðugra
verðlagi, þar sem hún verður að
standa undir hækkun vörubirgða.
Þá urðu lánsviðskipti vaxandi í
smásöluverzlun samhliða harðn-
andi samkeppni.
1 annan stað varð sterk árstíð-
arsveifla í viðskiptum síðustu
mánuði ársins, sem kallaði á aukið
starfsfé. Við þær aðstæður þurftu
menn að nota fjármagn sitt til
hins ítrasta til þess að sinna þeirri
eftirspurn, sem markaðurinn kall-
aði á. Við þessar aðstæður hélst
verr á innistæðum eins og alltaf
verður í sveiflukenndu ástandi.
En það er trú mín, að með stöð-
ugleika í efnahagsmálum og já-
kvæðri vaxtastefnu verði önnur og
betri skilyrði fyrir peningalegan
sparnað og þykjumst við reyndar
sjá þess merki á fyrstu mánuðum
þessa árs, þar sem innlánsþróunin
er mun jákvæðari en áður.“
SINCLAIR SPECIRUM 48K
o
TOLVAN.FÆST AFTUR
EFTIR FAEINA DAGA
VERÐ KR.6.450-
CYAN YEUjOW white ESH3
<=j o O t=> GRAPHICS DELETE
Nú bjóöum viö Sinclair Spectrum 48K tölvuna á
stórlækkuöu veröi.
Sinclair Spectrum er ótrúlega fullkomin: Hún hefur
48K minni, allar nauösynlegar skipanir fyrir Basic, fjölda
leikja-, kennslu- og viöskiptaforrita, tengimöguleika viö
prentara og aörar tölvur, grafiska útfærslu talna og er í lit.
Viö erum sveigjanlegir i samningum.
Hci|]g>_Li w
HAFNARSTRÆTI 3 - 20455- SÆTÚNI 8- 15655
OOTT fÓLK