Morgunblaðið - 21.03.1984, Qupperneq 37

Morgunblaðið - 21.03.1984, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. MARZ 1984 37 Símahylur í Hofsá. Einarsstaðir í baksýn. Laxveiðin Á árunum 1962 til 1971 veiddust að meðaltali árlega 389 laxar. Á tímabilinu 1972—1981 var hlið- stæð tala 953 laxar og er aukning- in því um 145%. Flestir laxar, 1.336 stk., fengust árið 1978 og fæstir komu á land úr vatnasvæð- inu 1981, eða 145 laxar. Meðal- þyngd á laxi úr Hofsá er um 8 pund. — Veitt er með sjö laxa- stöngum á félagssvæðinu og þrem- ur silungastöngum í Sunnudalsá og í Hofsá neðan ármóta ánna. Laxveiði í ánum í Vopnafirði rýrnaði verulega árin 1980, 1981 og 1982, sem rekja má tii kaldari veðráttu, en einnig er talið að laxveiði í úthafinu komi þar við sögu. Það gleðilega gerðist hins vegar 1983, að veiðin lyfti sér úr öldudalnum og fengust t.d. þá um sumarið um 260 laxar úr Hofsá. Aðbúnaður veiðimanna Veiðifélagið lét byggja veiðihús- ið Árhvamm árið 1974 og var það innréttað veturinn 1975 og tekið í notkun þá um sumarið. Húsið er steinsteypt, 240 fermetrar að flat- armáli. Sex tveggja manna her- bergi eru í húsinu með tilheyrandi snyrtiaðstöðu. Auk þess er her- bergi fyrir starfsfólk. Auk hússins er hjallur 10 m2, en hann er þvottahús fyrir lax og þar er hægt að geyma vöðlur og veiðistengur. I veiðihúsið er innbyggður frysti- klefi fyrir lax. Rafhitun er í hús- inu og öll venjuleg tæki til mats- eldar og þvotta, og það er búið húsgögnum. Arkitekt hússins var Helgi Hafliðason. Tekjur af veiði og arðskrá Tekjur af veiði í Hofsá hafa ver- ið góðar. Arður til veiðieiganda 1981 og 1982 nam 300 þúsund krónum hvort ár. Arðskrá félags- ins, er sýnir hlutdeild hverrar jarðar í veiði, var sett 1969 og tek- ur til 18 jarða, sem fyrr greinir. Núverandi stjórn Veiðifélags Hofsár í Vopnafirði skipa: for- maður séra Sigfús J. Arnason, Hofi, ritari Haraldur Jónsson, Einarsstöðum, og gjaldkeri Bragi Vagnsson, Burstarfelli. Arangursríkt starf Víst er, að mjög gott starf hefur verið unnið í þágu veiðimála við Hofsá í Vopnafirði á vegum veiði- félagsins. Nægir í því efni að benda á hið glæsilega veiðihús, en slík aðstaða er ekki síður mikil- væg en áin sjálf, og aðra bætta aðstöðu veiðimanna gagnvart veiði í ánni. Þrátt fyrir þá lægð, sem var í laxveiði á seinustu árum, er ástæða til bjartsýni um framtíð- ina. Kemur þar hvort tveggja til, að góðar vonir eru við það bundn- ar að takast megi, ef óhagstæð veðrátta veldur þrengingum í náttúrulegri seiðaframleiðslu, að brúa bilið með sleppiseiðum af heppiiegri stærð. Hitt atriðið er að stöðvuð hefur verið frekari út- færsla laxveiða í hafinu og það takist að draga enn frekar úr þeim veiðiskap, sem Færeyingar stunda nú. Þá er ógetið um þá miklu möguleika, sem kunnáttumenn telja að svæðið ofan ófiskgengra fossa í Hofsá, búi yfir gagnvárt uppeldi laxaseiða. Einar Hannesson er fulltrúi hjá Veiðimálastofnuninni. Helslu heimildir: VeiAirélae Hofsár. Vatna- mdingar, Orkustofnun, Veiðimálastofnun. I.jósmyndir: Haraldur Jónauon. Samvinnubankinn Háaleitisbraut 68 mun frá og meö fimmtudeginum 22. mars nk. auka viö þjónustusvið sitt og sjá um sölu á feröa- og námsmannagjaldeyri. Þar veröur einnig hægt aö stofna innlenda gjaldeyrisreikninga auk þess sem útibúið veitir alla þjónustu varöandi VISA-greiðslukort. ERLEND VIÐS Háaleitisbrauí 68 Aðalfundur Iðnaöarbanka íslands hf. árið 1984 verður haldinn í Súlnasal Hótel Sögu kl. 14:00, fimmtudaqinn 26. apríl 1984. Á dagskrá fundarins eru aðalfundarstörf samkvæmt ákvæðum 18. gr. samþykkta bankans. Lagðar verða fram tillögur um breytingar á samþykktum bankans. Aðgöngumiðar að fundinum verða af- hentir hluthöfum eða umboðsmönnum þeirra í aðalbanka að Lækjargötu 12, 3. hæð, dagana 17. apríl til 25. apríl, að báð- um dögum meðtöldum. Reikningar bankans fyrir árið 1983, ásamt tillögum þeim sem fyrir fundinum liggja verða hluthöfum til sýnis á sama stað. Tillögur, sem hluthafar vilja leggja fyrir fundinn, þurfa að hafa borist bankaráðinu skriflega í síðasta lagi 16. apríl n.k. Reykjavík 5. mars 1984 Bankaráð IÐNAÐARBANKA ÍSLANDS HF. lónaðartankinn Kork'oPlast Sænsk gæðavara KORK-gólfflísar með vinyl-plast- áferð. Kork*o*Plast: í 10 gerðum. Veggkork í 8 gerðum. Ávallt tilá lager. Aðrar korkvörutegundir á lager: Undirlagskork í þremur þykktum Korkvélapakkningar í tveimur þykktum Gufubaöstofukork Veggtöflu-korkplötur í þremur þykktum Kork-parkett venjulegt, í tveimur þykktum Kinkaumboð á islandi fyrir WICANDERS KORK- (ABRIKER: Hringið oftir ókeypis sýnishorni og bæklingi. Db P. ÞORGRÍMSSON & E0 CO ,Armúla 16 símí 38640

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.