Morgunblaðið - 21.03.1984, Page 38

Morgunblaðið - 21.03.1984, Page 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. MARZ 1984 Nýr skattur til launajöfiiunar — eftirJón Val Jensson Ástandið er svart hjá mörgum iaunamönnum um þessar mundir. Aðgerðir stjórnvalda til að ráða niðurlögum verðbólgunnar og draga úr skuldum okkar erlendis, hafa komið hart niður á þeim, sem lægst hafa launin. Almennur róm- ur er nú gerður að tillögum um að bæta kjör hinna lægstlaunuðu. Það er að segja: Alls staðar nema hjá vinnuveitendum, sem höfnuðu málaleitan um hækkun lægstu launa upp í 15.000 krónur og hirtu ekki einu sinni um að gera gagn- tilboð. (í slíku gagntilboði hefði t.d. mátt freista þess að jafna nokkuð þær misþungu byrðar, sem láglaunatryggingin hefði í för með sér fyrir hinar ýmsu tegundir at- vinnurekstrar.) Herská stefna VSÍ Því verður ekki neitað, að stefna Vinnuveitendasambands íslands er öll miklu herskárri og ósvífnari gagnvart launafólki en tíðkast hefur um árabil. Kom þetta gleggst fram, þegar Magnús Gunnarsson lýsti því yfir — eftir að kaupmáttur verkalauna hafði verið skertur um fjórðung — að „ekkert svigrúm væri til að auka launakostnað fyrirtækjanna í landinu", en lagði á sama tíma fram það „tilboð", að launatengd gjöld yrðu skert og sá hluti tekn- anna látinn ganga beint í launa- umslög launþega. Með öðrum orð- um: Framboðnar kjarabætur af hálfu VSÍ voru fólgnar í því, að launafólk flytti fé úr eigin vasa yfir í hinn, en vinnuveitendur skyldu áfram gína yfir þeim hundruðum milljóna króna, sem til þeirra ganga vegna afnáms vísitölubindingar. Þessu fráleita „samningstilboði" var að sjálfsögðu hafnað af full- trúum launþega sem hverri ann- arri smekkleysu. Vinnuveitendur hristu þá rykið af annarri tillögu, illskárri, þótt einnig þar hafi verið gert ráð fyrir, að framlag þeirra í launaumslögin ykist ekki um eina einustu krónu. í staðinn átti að taka fé úr sameiginlegum sjóði landsmanna til að bæta nokkuð úr kjörum hinna lægstlaunuðu. Slík- ur er nú viljinn til að leggja fram einhvern skerf til úrbóta á því böli, sem mörg heimili þessa lands hafa mátt reyna um hálfs árs skeið vegna efnahagsráðstafana ríkisstjórnarinnar. Sérgæzku sína reyna forsvars- menn VSÍ að réttlæta með fárán- legum talnaleik, þar sem gripnar eru á lofti hæstu launakröfur verkafólks (40 prósentin hjá Ál- versmönnum) og þær sagðar leiða til 175% verðbólgu. Hér er um grófa fölsun að ræða, ekki aðeins vegna þess að langflestir launa- menn myndu sætta sig við helm- ingi minni hækkun en þessi 40%, heldur og vegna þess að í gildi eru lög, sem banna vísitölubindingu Iauna, svo að nýjar víxlhækkanir launa og verðlags eru alls ekki á dagskrá. Það má heldur ekki gleymast, að hækkun á þjónustu- liðum er háð samþykki verðlags- stjórnar og launaliðurinn hjá framleiðendum er aðeins einn þáttur af mörgum í tilkostnaði þeirra. 20% launahækkun myndi því ekki hafa í för með sér hækkun vöruverðs og þjónustu sem jafn- miklu næmi. Ýmsar atvinnugreinar aflögufærar Vegna þeirra erfiðleika, sem verkalýðshreyfingin á nú í varð- andi samningamálin, mun ég í þessari grein leggja fram nýjar tillögur um raunhæfar kjarabæt- ur til þeirra lægstlaunuðu, sem komi þó ekki of þungt niður á þeim atvinnugreinum, sem veita umræddu fólki vinnu (t.d. iðnfyr- irtækjum). Það er álit mitt, að mörg fyrir- tæki þessa lands hafi ekki haft þörf fyrir það, að kjör starfs- manna þeirra væru skert á sl. ári. Þar á meðal má nefna Álverið í Straumsvík og flest verzlunarfyr- irtæki, en afkoma verzlunarinnar var mjög góð árið 1983. Magnús L. Sveinsson, formaður Verzlunar- mannafélags Reykjavíkur — og flokksbróðir minn í Sjálfstæðis- flokknum — lét þau orð falla í október, að óskir verzlunareigenda um lengingu á opnunartíma verzl- ana fælu það í sér, að þeir gætu tekið á sig 61% aukningu launa- kostnaðar án þess að nokkur tekjuaukning kæmi á móti. „Þar að auki er fjárfesting í verzlun- arhúsnæði um þessar mundir meiri en nokkru sinni fyrr,“ sagði hann. Þessi síðastnefnda staðreynd var viðurkennd í öðru stjórnar- blaðinu 19. nóv. sl., þar sem sagt var: „Offjárfesting er enn meiri hjá verzluninni en sjávarútvegin- um, en samt heldur áfram fjár- festing þar af fullu kappi. Verzlun er bersýnilega talin arðvænleg" (Tíminn í forystugrein). I Reykjavík eru nú „fjórir fer- metrar af verzlunarhúsnæði á hvern íbúa. Það er tvöfalt meira verzlunarrými en í stórborgum Norðurlanda" (Þjóðviljinn, 2. nóv.). Að halda áfram að hygla kaup- mönnum, sem búa við þvílíka hag- sæld, á meðan lágtekjufólk berst í bökkum að framfleyta fjölskyld- um sínum, væri hróplegt ranglæti. Þótt fyrirtæki í útgerð og fisk- vinnslu hafi þurft á sérstakri hjálp að halda með bráðabirgða- lögum vegna aflatregðu, óskyn- samrar fjárfestingar og skulda- söfnunar, réttlætir það ekki, að stórfelld kjaraskerðing verði látin ganga yfir alla launamenn til frambúðar. Komið hafa fram raddir um að lækka ætti verzlunarálagningu í kjölfar minnkandi verðbólgu. Til- kostnaður verzlunarinnar er nú mun minni en áður, m.a. vegna stöðugra gengis og hægari verð- lagssveiflna. Með allt þetta í huga væri réttmætt, að verzlunarálagn- ing yrði lækkuð að mun, enda er það raunhæf kjarabót, sem ekki myndi auka á verðbólgu. Reyndar er erfitt að búast við slíkri verð- lækkun, þegar stefna stjórnvalda virðist þveröfug, þ.e.a.s. að gefa álagningu frjálsa. Þótt sagt sé, að ein ástæða þess sé sú, að leyfileg álagning sé nú orðið iðulega van- nýtt hjá kaupmönnum, þá er það auðvitað ekki merki þess að gefa megi þeim lausan tauminn, heldur þvert á móti vottur þess, að þeim hafi verið leyfð of há áiagning. En komi „frjálshyggjustefnan" í veg fyrir, að þessi skynsamlegasta leið verði farin til að auka kaupmátt- inn, þá verður að huga að öðrum lausnum. Jón Valur Jensson „Ég set hér fram þá til- lögu, að Alþingi leggi nýjan skatt á laun þeirra starfshópa, sem koma til með að fá all- verulega leiðréttingu á launum sínum, t.d. yfir 15% (að undanteknum þeim, sem ekki ná 15.000 kr. mánaðarlaun- um). Skuli sá skattur notaður til að greiða út láglaunabætur handa þeim launþegum, sem verst eru staddir.“ Það er ekkert efamál, að 10—15% leiðrétting á kaupi alls þorra launþega er réttlætiskrafa, sem erfitt er að sniðganga. En meðal vissra hópa launþega eru forsendur til mun meiri kaup- hækkana, þar sem staða atvinnu- greina þeirra er góð. Þannig er t.a.m. um verzlunina, sem hefur á sínum snærum stóran hóp lág- tekjumanna, en heldur þó áfram að fá í sinn hlut fjórðung af samn- ingsbundnum launum þeirra. Sú spurning vaknar, hvort það sém máske ætlunin að efla verzlunar- auðvaldið til að sölsa undir sig at- vinnutæki frá sjávarútveginum, se er á kafi í skuldasúpu, og ríkis- eignir, sem seldar verði jafnvel undir raunvirði. Ég er ekki viss um, að allir hafi hugleitt, hvílíka röskun á fjármálajafnvægi lands- ins það gæti haft í för með sér. Því verður ekki trúað að óreyndu, að VSÍ muni reynast svo óþjóðhollt að þvinga starfsmenn Að eiga framtíð eftir Þórð Kristinsson Ný menning er sífellt að verða til, góð eða vond eftir mönnunum, viðmiðunum þeirra og mælikvörð- um. Menningin á sér rætur í arfi genginna kynslóða, en mótast mjög af breytni lifenda og við- brögðum í heiminum. Hún er sí- fellt að breytast og aukast og sumt sem menn kalla menningararf er einungis andvana til í gömlum bókum. Lifandi menning er aldrei fastmótað afmarkað fyrirbæri sem unnt er að skilja og skilgreina í eitt skipti fyrir öll, slíkt á aðeins við um dauða menningu gamalla bóka. Hins vegar er lífsmark menningarviðleitni eigendanna til skilnings á henni og öllum heimin- um; hún heldur ekki áfram að vera til nema menn séu sífellt að ráða í rúnir hennár og leita svara við gömlum spurningum og nýjum. Þekkingin hjálpar okkur að finna svör og skiptir þá menntun- in miklu því hún er hvorttveggja í senn öflun þekkingar og miðlun hennar. Sú tið er löngu fyrir bí að menningararfurinn hjálpaði sér sjálfur á milli kynslóða ef svo má orða; því flóknari sem samfélög hafa orðið verður æ minni sá hluti menningar sem flyst á milli kyn- slóða án sérstakra ráðstafana um flutninginn. Eru nú víðast um hann sérstakir menn og stofnanir sem gera ekkert annað. En með því þekking á veröldinni verður æ meiri, fjölþættari og flóknari, þá krefst það sérstaks og samfellds átaks að ná tökum á henni — og að kenna öðrum þessi tök krefst annars og meira en tilviljunar- kenndra leiðbeininga. Þeir sem hafa það hlutverk að afla þekk- ingar og miðla verða að valda hlutverki sínu og auk þess að vera færir um að ná tökum á þekking- unni verða þeir að hafa til þess sérstök skilyrði. Og með því þekk- ingin vex og vex og hraði breyt- inganna eykst, þá krefst þekk- ingaröflunin æ sértækari skilyrða, æ meiri yfirsýnar. Tilgangur þekkingarmiðlunar er löngu hætt- ur að vera sá einn að flytja menn- inguna milli kynslóða hennar sjálfrar vegna einungis, að auki varð mönnum snemma ljós annar tilgangur menntunar — sem sé sá að öðlast hið skiljanlega markmið að lifa hamingjuríku lífi; m.ö.o. varð tilgangurinn að efla með mönnum viljann til að auka á vel- ferð samfélagsins. Þar eð menntun er í senn öflun og miðlun þekkingar er ljóst að rannsóknir eru órofa hluti mennt- unar: Þær eru viðleitni til að bæta, auka og hreinsa þekkinguna. Rannsóknir leiddu snemma í ljós að heimurinn er í rauninni ekki allur þar sem hann er séður — með þeim er unnt að nálgast sannleikann um hvaðeina í efnis- heiminum og um mannlífið í hon- um; með þeim birtist heimurinn mönnum eins og hann er, en ekki eins og hann sýnist vera eða eins og þeir vilja að hann sé. Og menn verða að bregðast við honum sam- kvæmt því, leitast við að ráða í rúnir hans og finna hið sanna um hann, enda þótt þeim starfa ljúki aldrei þar eð sannleikurinn um hvaðeina í veröldinni verður seint hreinn og tær og endanlegur. En með því að nálgast hann eykst þekkingin og styrkist viljinn til að bæta mannlífið. Og hér gildir hið sama og um menntunina: Með aukinni fjölbreytni þekkingarinn- ar og æ flóknari veröld, sem af henni leiðir, krefjast rannsóknir sérstaks og samfellds átaks svo þær megi bæta, auka og hreinsa þekkinguna. Og að auki krefjast þær sérstaks hóps manna sem hafa tök á þekkingunni og skilyrði til að spá i hana í leit að nýjum og nýjum leiðum. Skilningurinn gerir mönnum kleift að öðlast þekkingu. Þekk- ingin takmarkast hinsvegar og ákvarðast af þeim hugmyndum sem umhverfið býður upp á — og langanir takmarkast og ákvarðast af þeim markmiðum sem samfé- lagið setur sér. Viljinn ræður hvaða langanir verða ofan á. Þekking sem slík ein og sér nægir nefnilega ekki: Menn verða að skilja hana og gildi hennar. Og til þess að skilja hana þarf sífellda menntun og rannsóknir. Og til menntunar og rannsókna duga ekki orðin tóm, heldur verða að koma til sérstakar aðstæður og skilyrði sem eru undirorpin örum breytingum og þurfa samfelldan Álversins til að beygja sig undir þær lágmarkslaunahækkanir, sem harðdrægt forystulið vinnuveit- enda hefur hugsað sér að hreyta í launafólk í landinu. Ein allsherj- arregla getur ekki gilt um þessa hluti, heldur verður að fara eftir aðstæðum og afkomu einstakra atvinnugreina. Einstefna í þessu máli bæri keim af einokunar- stefnu, sem málsvarar frjálsrar samkeppni ættu ekki að láta bendla sig við. Og það á ekki að vera hlutverk íslenzkra samtaka að draga taum erlendra aðila með þeirri afleiðingu, að hlutur íslands (í launum og sköttum) út úr þeim skiptum verði smærri en efni standa til. Nýr launaskattur Ég set hér fram þá tillögu, að Alþingi leggi nýjan skatt á laun þeirra starfshópa, sem koma til með að fá allverulega leiðréttingu á launum sínum, t.d. yfir 15% (að undanteknum þeim, sem ekki ná 15.000 kr. mánaðarlaunum). Skuli sá skattur notaður til að greiða út láglaunabætur handa þeim laun- þegum, sem verst eru staddir. Framkvæmd slíkrar skattheimtu þarf ekki að vera flókið mál, þar sem heimta má skattinn hjá vinnuveitendum og miða hann við umsamdar launahækkanir, svo að ekkert fari á milli mála. Að mínu viti væri 40% skattur af þessum „umframlaunahækkunum" sann- gjörn álagning, miðað við allar að- stæður. En ljóst þarf að vera, að hér sé aðeins um neyðarráðstöfun að ræða til eins árs eða svo. Með þessu væri það unnið, að lágtekjufólk fengi nokkrar úrbæt- ur með félagslegum aðgerðum, án þess að gengið væri á sjóði ríkis- ins, en þær atvinnugreinar væru látnar standa undir þessu, sem bezt eru aflögufærar og þarfnast þess ekki, að kaupi starfsmanna þeirra sé haldið niðri. Misrétti? Nú kunna einhverjir að spyrja: „Hvar er réttlætið í því að taka af mínum launum og stinga því í vasa náunga míns? Er þetta nokk- uð annað en löghelgaður þjófnað- ur?“ Slík spurning ber ekki vott um mikla innsýn í eðli þjóðfélagsins. Hver mótmælir rétti ríkisins til að leggja á skatta, þegar nauðsyn krefur? Og spyrja má aftur: Hvar er réttlætið í því, að lögin heimili atvinnurekendum að greiða 20— 25% lægri laun en samizt hafði um? — Svarið hlýtur að taka mið af ástandinu i efnahagslífi þjóðar- innar. Það getur — en þarf ekki — að vera réttlætanlegt að skera niður laun með lagasetningu. Um það hafa allir stjórnmálaflokkar stuðning og styrk. Ástæðurnar eru bara tvær: Menntun og rannsóknir eru einu vopn samtímans til að bregðast við framtíðinni — og til þeirra er ekki stofnað í eitt skipti fyrir öll, heldur stöðugt. Þeim lýk- ur aldrei, en ef þeim er hvorki sinnt né sýnd sú virðing sem þau eiga skilið, þá sláum við vopnin úr eigin hendi og tínumst í svart- nætti vanþekkingarinnar. Og slíku hlutskipti er ósköp auðvelt að ná ef ekkert er að gert. Virðingin, forgangurinn og vit- undin um mikilvægið getur ein- ungis komið fram í því að samfé- lagið tryggi æðstu stofnun mennta og rannsókna (sem á íslandi heitir Háskóli) möguleikann til að lifa, og geri kleift samspil á milli menntunar, rannsókna og þjón- ustu við samfélagið. Önnur við- brögð bera vott um vanþekkingu, óvirðingu og skilningsleysi. Ver- öldin er nefnilega löngu orðin slík, eins og við nefndum hér framar, að menntun er ekki lengur unnt að skoða sem miðlun skýrt afmark- aðrar þekkingar — einskonar „þekkingarpakka", svo notuð sé líking við orðskrípasmíð stjórn- málamanna; — heldur ber m.a. að líta á hana sem innlegg í hina margvíslegu röklegu viðleitni sem kallast rannsóknir. Og á gagn-

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.