Morgunblaðið - 21.03.1984, Síða 40

Morgunblaðið - 21.03.1984, Síða 40
40 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. MARZ 1984 Sounds, útbreiddasta popp- rit Breta, birti opnuviötal viö hann með flennistórum mynd- um fyrir jólin og fyrir skemmstu lét hann sig hafa þaö aö leika á „videói" meö Tracey Ullmann. Var það sýnt í sjónvarþsrás 4 í Bretlandi þann 24. febrúar sl. Aö sögn Ullman fékk hún hugmyndina að þessu er hún hitti verkalýðsleiötogann í þætt- inum „Loose Talk“ í rás 4 í breska sjónvarpinu. „Hann virt- ist hafa gott skopskyn og mér fannst þetta bráðsmellin hug- detta.” Kinnock þekktist boð hennar og sagöi jafnframt, aö dóttir hans heföi aldrei fyrirgef- iö sér ef hann heföi hafnaö til- boöinu. Á meðfylgjandi mynd má sjá Kinnock og Ullman saman í einu atriða „videósins". „Vinir senda ekki hvorir öðrum telex“ Kastast hefur í kekki meö þeim Elton John og Rod Stew- art ef marka má fregnir er- lendra blaða og tímarita. Þessir tveir hafa um langt árabil veriö miklir mátar og ákváöu í vetur aö halda í sameiginlega heims- reisu. Aö sögn Elton John höföu hann og Stewart gert meö sér þaö serh nefnt er á ensku „gentleman’s agreement” en Stewart sveikst undan merkjum. Höföu þeir gert meö sér munn- legt samkomulag um aö halda í tónleikaferöalag um Bandaríkin og Evrópu. Ljóst er nú, aö af því veröur ekki. „Viö uröum ásáttir um aö sleppa öllum gömlu lögunum okkar á þessum tónleikum og einbeita okkur aö nýju efni,“ sagöi Elton John í sjónvarpsviö- tali í Bretlandi fyrir nokkru. Hann átti erfitt meö aö leyna beiskju sinni í garö Stewart er hann sagði: „Mér fannst þetta vera frábær hugdetta á sínum tíma, en þetta ætlar greinilega allt saman aö veröa aö engu.“ Elton sagöist ekkert hafa heyrt frá Rod um þetta mál í lengri tíma. „Hann hefur ekki einu sinni nennt aö hringja. Hins vegar sendi hann mér telex-skeyti, þar sem hann saltaöi þessi áform. Allir vita, aö vinir senda ekki hvorir öörum telex.“ Talsmaöur Rod Stewart sagö- ist undrandi á þessum viðbrögö- um Elton John. Sagöist hann ekki hafa tekiö þessa hugdettu alvarlega og litiö á þetta sem brandara. „Svo mikiö er vist, aö þaö hafa engir skriflegir samn- ingar veriö rofnir,“ sagöi hann. Elton John og Rod Stewart á meöan allt lók í lyndi. Alþýðlegur maður Kinnock Neil Kinnock, leiðtogi breska Verkamannaflokksins, lætur sér ekki allt fyrir brjósti brenna og lætur sig hafa það að blanda geöi viö háa jafnt sem lága. Popparar eru þar ekki aldeilis undanskildir. Strákarnir fimm í Incantation. tónlist landanna, sem liggja aö Andesfjöllunum. Þaö er einmitt þessi þjóölaga- tónlist, sem strákarnir í Incanta- tion hafa vakiö svo rækilega at- hygli á í heimalandi sínu. Á plöt- unum er að finna ýmsar útgáfur þjóölagatónlistar frá Andesfjöll- um, taktföst lög meö þungum undirtóni, róleg og seiöandi lög og nánast allt þar á milli. Sungiö er í nokkrum laganna, en söngur- inn skipar þó ekki háan sess á plötunum. Til þessa hefur Incantation lítiö sem ekkert veriö kynnt hér á landi en báöar plöturnar eru nú fáanlegar. Járnsíöan skorar á alla unnendur þjóölagatónlistar aö kynna sér þessa tónlist því hér er á feröinni einkar athyglis- verö og áheyrileg tónlist.— SSV. Incantation Ted Nugent um Boy George: „Þessi maður er alvarlega særður“ — þjóðlagahljómsveitin sem skeytti ekki um tísku bylgjurnar og óð upp breska vinsældalistann lögmálum en hin heföbundna popptónlist nútfmans. Upprunalega voru meölimir Incantation sjö talsins og sveitin kom þannig fyrir á fyrri plötunni. Simon Rogers lék á charango, gítar, tiple og sá um áslatt, Mike Taylor lék á sikus, anata og bombo, Forbes Henderson á gítar, Nick Carr á sikus, Chris Swithinbank á sikus, gítar, guit- arron og sá um söng, Andy Tyrr- ell lék á bombo, caja, pinkillo og sá um áslátt og Tony Hinnigan lék á quenas, sikus, tarka, gítar, guitarron, pinkillo og sá um áslátt. Á síöari plötunni hafa þeir Carr og Tyrrell helst úr lestinni. Fyrir þá, sem ekkert þekkja til þessarar tónlistar kunna nöfnin á sumum hljóöfæranna hér aö ofan aö hljóma kynduglega. Anata er Iftil tréflauta meö munn- stykki, tarka er stærri útgáfa af sams konar flautu, bombo er stór tromma meö geitarhúö, caja er smátromma, pinkillo er lítil reyrflauta, quena er sömuleiöis lítil flauta, annaðhvort úr reyr eöa beini, sikus er panflauta úr reyr, charango er lítill gítar, tiple er sömuleiðis gítartegund ættuö frá Kolombíu og guitarron er bassa- gítar. Þá hafa menn þaö. Eins og sjá má af upptalningu þessara hljóöfæra eru flautur allsráöandi og þær setja geysi- mikinn svip á heildarmyndina. Þessar flautur eru geröar aö ævafornri fyrirmynd og heimildir segja þær vera allt frá tímum ink- anna. Þegar Spánverjar komu til S-Ameríku kynntust indíánarnir gítarnum og þróuðu frá honum annaö svipaö hljóöfæri, char- ango, sem nú er eitthvert mest áberandi hljóöfæriö f þjóölaga- Gamla bárujárnsbrýniö Ted Nugent viröist hreint ekkert vera aö gefa eftir þótt hann sé nú oröinn 35 ára. Spengilegri en nokkru sinni fyrr og hárið aldrei síðara. Nugent heimsótti Breta fyrir skemmstu og fékk prýðisgóðar móttökur. Hafði þó á orði, að hann væri undrandi yfir því hversu fáar stelpur kæmu á tónleikana sína. „Mér er skít- sama um peninga, þaö eru stelpurnar sem ég vil,“ sagöi hann viö Melody Maker um daginn. Sá gamli er orðhákur hinn mesti sem fyrr og var ekki aö spara Boy George kveðjurnar. „Gott og vel, hann semur fín lög og ég kann vel aö meta þau mörg hver, en hvernig hann lít- ur út! Maöur minn. Ég mein- a’ða, þessi maöur er alvarlega særður.” Sem fyrr segir er Nugent orðinn 35 vetra gamall og lét Ted Nugent aldrei hressari. þess getiö í lokin, aö allar svaöilfarasögurnar, sem færu af sér, væru hver annarri sann- ari. Gamla mottóið hans er enn viö lýði: „Ef þú þolir ekki há- vaðann ertu bara orðinn of gamall." AC/DC verður aðal- númeriö á Donington FJÖLDAMARGIR hafa komiö að máli viö umsjónarmann Járnsíðunnar og spurst fyrir um hvort efnt veröi til annarr- ar hópferðar á Donington- rokkhátíöina í Englandi I sumar líkt og gert var á síö- asta sumri. Svarið er já og það sem meira er, undirbúningur er þegar hafinn. Ljóst er að ferðin veröur farin á vegum hins ný- stofnaöa bárujárnsrokks- klúbbs og Flugleiða. Ekki er hægt að skýra nákvæmlega frá því hvaö kosta muni í þessa ferö, en Ijóst er að það verður töluvert dýrara en í fyrra þegar farið var með ms. Eddu, enda flogið og gist á hóteii. Ætlunin er að fara í vikuferö aö þessu sinni og verður vænt- anlega flogiö út fimmtudaginn 16. ágúst og heim 22. eöa 23. ágúst. Donington-hátíðin verö- ur haldin laugardaginn 18. ág- úst. Gist veröur á ágætu hóteli í Lundúnum. Væntanlega verö- ur farið í einhverjar skoðunar- feröir, e.t.v. á völlinn og kannski einhverja aöra tónleika ef þannig stendur á. Eins og nærri má geta bíöa menn spenntir eftir aö komast aö því hvaða hljómsveitir koma fram á tónleikunum. Járnsiö- unni bárust af því fregnir á mánudagsmorgun, að AC/DC myndi leika á Donington. Þetta er formlega staðfest. Ef aö lík- um lætur veröur AC/DC aöal- númer dagsins. Frekari fregnir af þátttakendum hafa ekki bor- ist. Óhætt er aö fullyröa, aö bárujárnsunnendur munu fagna þessu mjög svo og allir þeir, sem ætla meö í ferðina. Angus Young, höfuöpaur AC/DC. Breska hljómsveitin Incanta- tion er án nokkurs vafa einhver sérstæöasta sveitin, sem gist hefur vinsældalistana þar í landi um langt árabil. Tónlist Incantation tengist ekki neinum tískubylgjum nútímans heldur grundvallast á margra alda gamalli tónlistararfleifö indíána í Andesfjöllum Suöur-Ameríku. Á listilegan hátt hefur meölim- um Incantation tekist aö útsetja tjónlistina á þann veg, að unun er á aö hlýða. Báöar plöturnar, sem Incantation hefur sent frá sér, bera handbragöi þeirra glöggt vitni. Fyrri platan heitir „Cach- arpaya” og kom út 1982, en sú síðari „Dance of the Flames” og kom út síöla árs 1983. Þaö vakti aö vonum athygli þegar lagiö „Cacharpaya" komst i 12. sæti breska vinsældalistans og samnefnd plata í 9. sætiö. í raun ekki erfitt aö skilja vinsældir þessarar tónlistar, en þó erfitt í Ijósi þess aö hún lýtur allt öðrum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.