Morgunblaðið - 21.03.1984, Side 45

Morgunblaðið - 21.03.1984, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. MARZ 1984 45 opinberra mála eru efnislega svip- uð og eru þau í 6. gr. Evrópusamn- ings og 14. gr. samnings Samein- uðu þjóðanna. í 6. gr. Evrópuráðs- samningsins segir: „1. Nú leikur vafi á um réttindi þegns og skyld- ur eða hann er borinn sökum um glæpsamlegt athæfi og skal hann þá njóta réttlátrar og opinberrar rannsóknar innan hæfilegs tíma, fyrir óháðum, óhlutdrægum, lögmæltum dómstóli. Dómur skal upp kveðinn í heyranda hljóði, en banna má blaðamönnum og al- menningi aðgang að réttarhöldum að nokkru eða öllu vegna almenns siðgæðis, allsherjarreglu eða þjóð- aröryggis í lýðfrjálsu landi, þegar unglingaverndun eða verndun einkalífs málsaðilanna býður, eða að svo miklu leyti sem dómstóllinn telur brýna nauðsyn bera til í sér- stökum tilvikum, þar sem vitn- eskja almennings mundi torvelda rétta niðurstöðu. — 2. Hvern þann mann, sem borinn er sökum fyrir glæpsamlegt athæfi skal telja saklausan, uns sök hans er sönnuð lögfullri sönnun. — 3. Hver sá maður, sem borinn er sökum fyrir glæpsamlegt athæfi, hefur þessi lágmarksréttindi: — a. rétt til þess að fá tafarlaust vitneskju á máli, sem hann skilur, um eðli og orsök ákærunnar gegn honum, í einstökum atriðum; — b. rétt til nægilegs tíma og aðstöðu til að undirbúa vörn sína; — c. rétt til að verja sig sjálfur eða kjósa sér verjanda. Hafi hann ekki efni á að greiða lögfræðilega aðstoð, skal hann fá hana ókeypis, ef réttar- sjónarmið krefst þess; — d. rétt til að spyrja eða láta spyrja vitni, sem leidd eru gegn honum. Séð skal um, að vitni, sem bera honum í vil, komi fyrir dóm og séu spurð á sama hátt og þau vitni, sem leidd eru gegn honum; — e. rétt til að fá ókeypis aðstoð túlks, ef hann skilur ekki eða talar mál það, sem notað er fyrir dómi.“ Venjulega rannsókn opinbers máls hjá RLR verður að telja brot gegn þeirri reglu 6. gr. að sakaður maður skuli njóta réttlátrar, opinberrar rannsóknar fyrir óháð- um, óhiutdrægum, lögmæltum dómstóli innan hæfilegs tíma. Þannig er ekki farið að hér á landi. RLR er ekki dómstóll og rannsóknir þar eru oft tímafrekar, þannig að langur tími líður frá upphafi rannsóknar þar til mál er lagt fyrir dómstól. Auga leið gefur að sakborningur eða réttargæslumaður hefur ekki sömu aðstöðu til að spyrja vitni á sama hátt, sem bera sakborningi í vil, og þau sem bera gegn honum, þar sem þess mun oft ekki gætt að sakborningur og réttargæslumað- fjöllun í fjölmiðlum bæði hér heima og erlendis og menn forðist að dæma hann fyrirfram. Hann á rétt á því eins og hver annar að teljast ekki sekur um annað en það sem á hann sannast, brot hans er nógu stórt þó við séum ekki að bæta við það með getgátum. En fyrst Morgunblaðið dró skýrslu þremenninganna inn í umræðuna og fór að túlka ummæli þeirra um ís- lenska embættismenn, þá ber Morg- unblaðinu skylda til að færa rök fyrir túlkunum sínum og fullyrðingum. En hér er ég kannski að fara fram á of mikið. íslensk stjórnmálaumræða hefur einkennst um of af útúrsnún- ingum og rangtúlkunum og því er von að Morgunblaðinu finnist að allt sé því leyfilegt í þeim efnum. Með þökk fyrir birtinguna. Það er ekki víst að ég nenni að svara þó þið klínið aftan við þessi skrif mín nýj- um útúrsnúningum. Hallgrímur llródmarsson er kenn- ari í Menntaskólanum við Hamra- hlíð. Athugasemd rítstjóra: Hallgrímur Hróðmarsson ritaði grein í Dagblaðið-Vísi (DV) 7. mars sl. undir fyrirsögninni „Tre- holt: Leiksoppur óprúttinna valdhafa í austri og vestri?“ Eins og fyrirsögnin og athugasemd Hallgríms hér að ofan gefur til kynna leitast hann við að beita „samanburðarfræðunum" í Tre- holt-málinu. Tilgangur þessara fræða er sá að sýna fram á að þeir ur hans fái að fylgjast vel með máli og hafa yfirsýn yfir það hjá RLR. Er ástæða til að ætla að réttargæslumönnum sakborninga sé jafnan ekki gefinn kostur á að vera viðstaddir yfirheyrslur yfir vitnum hjá RLR. Vitni, sem gefa skýrslur hjá RLR gera það að við- lagðri refsiábyrgð og eru bundin af henni, þegar og ef til skýrslu fyrir dómi kemur. Þar sem rann- sókn opinbera málsins fer fram í lokaðri lögreglustofnun er óger- legt fyrir réttargæslumenn að ganga úr skugga um jafnóðum, að hún fari eðlilega fram, bæði að því er tekur til ákvæða í alþjóðasamn- ingum og einnig að því er varðar aðrar réttarreglur. Fleira kemur til, en ljóst er að hér er brotið gegn hinum alþjóðlegu samning- um. Óverjandi er að verulegur ágreiningur sé um staðreyndir í opinberum málum, en það hefur borið við. í alvarlegustu refsimálum og málum sem ágreiningur er um, eru á síðasta dómstigi kvaddir til fimm hæstaréttardómarar til að dæma í málum, en í Hæstarétti er gert ráð fyrir að þannig hafi verið unnið að upplýsingu opinbers máls, að ágreiningur um stað- reyndir sé í lágmarki. Þessi skipan er frá gamalli tíð, væntanlega byggð á, að því er opinber mál varðar, að réttargæslumanni og verjanda hafi gefist svo góð tæki- færi til að hafa áhrif á rannsókn málsins, þegar hún fór fram og að hann sætti sig við hana, en hefði ella getað kært ágreiningsefni til Hæstaréttar. Eftir að RLR tók til starfa voru verjendur að verulegu leyti sviptir þessum möguleikum. Það er því ankannalegt, svo ekki sé meira sagt, að fela fimm dóm- endum Hæstaréttar að fjalla um lagaleg vafaatriði, en fela einum eða tveimur lögreglumönnum að afla upplýsinga í sama máli, með mjög takmörkuðum afskipta- möguleikum og forræði ákæru- valds og sakbornings. Áberandi er einnig lakari staða sakbornings til réttarfarsaðgerða í opinberu máli, en staða aðila í einkamáli og er þó jafnan fjallað um mikilsverðari hagsmuni í opinberum málum. Forsendur RLR I kynningu Hallvarðs á RLR er lögð áhersla á að stofnunin starfi samkv. lögum nr. 108/1976 og hagi störfum í samræmi við reglur, sem kveða á um rannsóknir opin- berra mála að öðru leyti. Dómstól- ar hafi oft kveðið upp dóma í mál- um, sem RLR hafi rannsakað og ekkert hafi komið fram, sem dragi sem standa vörð um lýðræðishug- sjónina og halda uppi andstöðu við kommúnískt valdabrölt séu í raun ívið purkunarlausari en málsvar- ar heimskommúnismans hvort heldur þeir eru í dularklæðum eða ekki. Sú fullyrðing í Staksteinum stendur óhögguð að tilgangurinn með grein Hallgríms í DV hafi verið að „bera dálítið í bætifláka fyrir Arne Treholt“. 2. í augum þeirra Islendinga sem ekki aðhyllast misheppnaða og ranga stefnu Hjörleifs Gutt- ormssonar gangvart Alusuisse er samanburður milli samningsins um „gráa svæðið", óskasamning Sovétmanna í Barentshafi, og . samnings íslands við Alusuisse um álverið í Straumsvík vörn fyrir hinn sovéska óskasamning. 3. Öllum þeim spurningum sem Hallgrímur Hróðmarsson varpar fram til að „sanna“ fullyrðingu sína um „Ijótasta dæmi um subbu- skap í íslenskum blaðaheimi nú síðustu árin“, hvorki meira né minna, hefur í raun verið svarað í fréttum Morgunblaðsins og Stak- steinum. Morgunblaðið hefur birt það úr umræddri, pólitískri skýrslu fulltrúa þriggja vinstri flokka á allsherjarþingi Samein- uðu þjóðanna haustið 1971 sem gerir menntaskólakennaranum fært að semja umræddar spurn- ingar og svara þeim. Slíkir spurn- ingaleikir í blaðagreinum eru fremur til marks um rökþrot og tilbúnar ásakanir en einlæga sannleiksleit. Morgunblaðið hefur í efa réttmæti starfshátta RLR. Þetta eru auðvitað meginforsend- ur starfs RLR. En lítum nánar á þær. Þegar um er að ræða jafn mikilsverð réttindi manna og þau, sem opinber mál taka til og fjalla um, er óhjákvæmilegt að gæta að grundvallarreglum laga, svo sem stjórnarskrárákvæðum og lögum og réttarframkvæmd þeirra þjóða, sem fremst eru taldar standa á þessu sviði, auk almennra við- horfa. Má ljóst vera að þar rekast ákv. laga um RLR harkalega á stjórnarskrárákvæði og samninga Evrópuráðsins og Sameinuðu þjóðanna eins og áður er lýst. Reglur Evrópuráðssamningsins, Sameinuðu þjóðanna og stjórnar- skrár hafa oft verið brotnar. Hins vegar skal ekki fullyrt hversu vel lögmenn hafa lagt mál fyrir dómstóla að þessu leyti, en telja má fremur ástæðu til að ætla að ekki hafi svo skort á málsútlistan- ir þeirra, að dómstóll eða dómstól- ar ættu ekki að gera sér ljóst hvað um væri að ræða og gera alvarleg- ar athugasemdir eða ógilda máls- meðferð. Það hefur hins vegar ekki gerst. Þá má spyrja hvers vegna sakborningar hafi t.d. ekki skotið málum til umsagnar Mann- réttindanefndar Evrópuráðsins. Er líklegt að óvani lögmanna við að fara þá leið eigi þar nokkurn hlut, en auk þess geta komið til kostnaðaratriði og sérstaklega það sjónarmið sakbornings að „aug- lýsa“ ekki meintar ávirðingar sín- ar með málskotinu. EF meint ágæti starfshátta RLR eru nokkurs konar leiktjöld sem sakborningur, sem misgert hefur verið við, getur látið draga frá, ef hann t.d. skýtur máli sínu til Mannréttindanefndarinnar og síðar Mannréttindadómstólsins, eru staða og starfshættir RLR ekki nógu góð. Viðfangsefni RLR Meginatriði við rannsóknir opinberra mála má telja tvö. Ann- að er að upplýsa um afbrot. Hitt er að leitast verði við að misgera sem minnst gagnvart mönnum að því leyti sem menn eru eða kunna að vera saklausir og gæta réttinda þeirra. Hlutverk rannsóknalög- reglumanna er því tvíþætt. Það hefur ætíð þótt vandasamt og stundum ógerlegt að þjóna tveim- ur herrum. Og þegar um jafn mik- ilsverð mál er að ræða og opinber sakamál, er ástaða til að skipta verkum milli manna, eins og gert er hjá nágrannaþjóðunum. Þar er ákværuvaldinu sjálfu faiið frum- *kvæði og ábyrgð á upplýsingu máls, en sakborningi gefinn kost- ur á að fylgjast með eða láta fylgj- birt það úr þessari skýrslu sem að mati blaðsins er fréttnæmt vegna handtöku Arne Treholts ogjafn- framt skýrt lesendum sínum frá meginefni skýrslunnar eins og sjá má á spurningum og aðdróttunum Hallgríms Hróðmarssonar. Tal hans um „hræðslu“ Morgunblaðs- ins er því út í hött en á hinn bóg- inn er honum bent á að snúa sér beint til höfunda skýrslunnar hafi hann áhuga á að hún verði birt í heild. 4. Morgunblaðið hefur ekki „ túlkað“ ummæli skýrsluhöfund- anna um íslenska embættismenn heldur birt þau eins og sjá má á baksíðu blaðsins 29. janúar 1984. Athugasemd Hallgríms Hróð- marssonar ber þess öll merki að hann hafi lesið þennan kafla úr skýrslunni, honum ferst því síst allra að saka Morgunblaðið um „útúrsnúninga óg rangtúlkanir". Þeirri staðreynd verður á engan hátt mótmælt að stuðningsmenn þeirra flokka sem þremenningarn- ir, höfundar Treholt-skýrslunnar, svonefndu, tilheyra, hafa leitast við að snúa „umræðunni“ um njósnir og áhrifastörf Treholts í þágu KGB og annarra upp í þras um Morgunblaðið, fréttir þess og hugsanleg afglöp íslenskra emb- ættismanna. Grein Hallgríms Hróðmarssonar var aðeins ein af mörgum misheppnuðum tilraun- um í þessa veru. Morgunblaðið biður Hallgrím afsökunar á hve lengi hefur dreg- ist að birta athugasemd hans. ast með rannsókn og taka þátt, ef hann óskar, og skjóta ágreiningi til hlutlauss dómstóls. í reynd ger- ist það tiltölulega sjaldan, en rétt- urinn veitir geysimikilsvert að- hald og flytur ábyrgð á því að gætt hafi verið sjónarmiða og réttinda sakbornings yfir á verj- anda. Verkaskipting verður glögg og störf auðveldari. Árangur við upplýsingu mála ætti að batna, réttarstaða sakborninga verða mun betur tryggð og traust al- mennings á réttarkerfinu að stór- aukast. Alveg vonlaust er að al- menningur geti treyst störfum lokaðrar lögreglustofnunar. Lokaorö Hallvarður telur ákaflega mik- ilvægt að milli lögreglu og alls al- mennings ríki gagnkvæmt trúnað- artraust. Undir það skal tekið að hluta. Mikilsvert er að almenning- ur hafi allar forsendur til að treysta því að örugglega og rétti- lega sé unnið að rannsóknum meintra afbrota í landinu. Hins vegar hiýtur að geta gegnt öðru máli um traust rannsóknalög- reglumanna á almenningi. En hvernig á að afla trausts almenn- ings? I viðtalinu er vikið að ráð- gerðum störfum Réttarfarsnefnd- ar, en ekki greint frá því hver þau eru að þessu leyti. Vegna mögu- legra aðgerða til lagfæringa á rannsókn opinberra mála, skal lögð áhersla á að kanna mál sem best áður en rokið er í aðgerðir. Afar brýnt er að Alþingi móti stefnu í réttarfari opinberra mála sem annarra og nauðsyn ber til að skoða réttarkerfið allt þegar skip- aðer jafn mikilsverðum þætti sem opinberum málum. Góð ákvæði verða ekki lögfest, nema byggt sé á réttum upplýsingum og forsend- um i b.vrjun. Þess vegna leyfi ég mér að beina áskorun til þín, Hall- varður Einvarðsson. Hún er sú, að þú, sem rannsóknalögreglustjóri, beitir áhrifum þínum til þess að fram fari óhlutdræg og fræðileg at- hugun á því hvort rekstur og starfs- hættir Rannsóknalögreglu ríkisins samrýmist viðurkenndum aðferðum um meðferð opinberra mála og niðurstöður athugunarmanna verði birtar opinberlega. Áskoruninni er beint til þin vegna stöðu þinnar og áhuga á vönduðum rannsóknum opinberra mála. Eindregið er mælt með að fengnir verði viður- kenndir erlendir sérfræðingar. Annars er hætt við að vakni efa- semdir um óhlutdrægni og þekk- ingu. Nauðsyn ber til að niður- stöður verði birtar opinberlega, m.a. til að auka traust á möguleg- um síðari aðgerðum. Reykjavík, 19. mars 1984. Tómas (lunnarsson er starfandi lögmaður í Reykjavík. % # JV DTA - OFURKRAFTUR - ▼ VAK I AK ~ ÓTRÚLEG ENDING FRAMLEIÐENDUR BETRI BÍLA í EVRÓPU VELJA VARTA RAFGEYMA í BÍLA SÍNA Það segir meira en mörg orð. Framleiðendur Mercedes Benz, BMW, Volkswagen og fleiri, velja VARTA rafgeyma, enda hefur reynslan sýnt að VARTA rafgeymum má treysta. Þeir bjóða upp á meira kaldræsiþol, eru viðhaldsfríir og einnig ódýrir. 60 AMP-stundir kr. 1.494.00. 70 AMP-stundir kr. 1.788.00. Hentar flestum gerðum bifreiða. Á OLÍS stöðvum færðu VARTA rafgeymi, og ísetningu á staðnum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.