Morgunblaðið - 24.03.1984, Qupperneq 1
48 SIÐUR OG LESBOK
STOFNAÐ 1913
70. tbl. 71. árg.____________________________________LAUGARDAGUR 24. MARZ 1984 Prentsmiðja Morgunblaðsins
Kaupmannahnfn. 23. marz. Krá frélla-
rilara Morgunhladsins. Ib Björnhak.
KNUD B. Anderson, fyrrverandi
utanríkisráðherra Danmerkur,
lézt í dag eftir langvarandi veik-
indi. Hann var í hópi kunnustu
fnrystumanna danskra jafnaiV
armanna og um langt skeið einn
af áhrifamestu stjórnmála-
mönnum Danmerkur.
K.B. Andersen var mikill ís-
landsvinur. Hann fékk því
framgengt er hann var
menntamálaráðherra Dan-
merkur, að handritin voru af-
hent íslendingum.
Höfðu þeir fengið slæm brunasár
á augum, svo að tvísýnt þótti um
sjón þeirra. Aðrir skipverjar urðu
um kyrrt um borð í skipinu og
hugðust sigla því til Borgundar-
hólms. Ekki leið samt nema
skammur tími þangað til þeir
höfðu einnig fengið slæm sjúk-
dómseinkenni og það svo, að þeir
misstu sjónina. Læknar á sjúkra-
húsinu í Visby í Gautlandi sögðu í
dag, að enginn þessara manna
gæti enn séð, en vonir stæðu samt
til að unnt yrði að bjarga sjón
þeirra.
E1 Salvador:
Kaupmannahöfn, 23. marz. Frá frcttaritara Morgunhlaösins, Ih Björnhak og AP.
SJÖ færeyskir sjómenn hafa misst sjónina vegna slæmra brunasára af
völdum sinnepsgass í Eystrasalti. Er gas þetta komið frá miklum birgðum af
sinnepsgasi, sem l'jóðverjar vörpuðu í Eystrasalt í lok heimsstvrjaldarinnar
síðari. Færeyska togskipið Heldarstindur frá Sandavogi er þriðja skipið í
þessari viku, sem verður fyrir því að fá hylki með þessu hættulega gasi í
vörpuna. Gerðist þetta á hafsvæðinu milli Borgundarhólms og Svíþjóðar.
Frá áramótum hafa áhafnir á
meira en 30 togskipum orðið fyrir
sinnepsgasi á þessu svæði og er
það meira en nokkru sinni á þeim
35 árum, sem liðin eru frá því að
Þjóðverjar vörpuðu eiturefninu í
sjóinn. Það voru bandamenn, sem
eftir sigur sinn yfir Þjóðverjum
skipuðu þeim að kasta að minnsta
kosti 100.000 tonnum af sinneps-
gasi í sjóinn í grennd við Borgund-
arhólm. Var þetta gert til þess að
koma í veg fyrir, að Þjóðverjar
gætu ráðið yfir slíkum efnavopn-
um í framtíðinni.
Næstu ár á eftir hlutu margir
danskir sjómenn áverka af völdum
sinnepsgass, er skip þeirra fengu
sprengihylki með eiturgasinu í
vörpuna. En frá því í kringum
1960 hafa ekki orðið nein meiri
háttar slys af þessum sökum. Það
gerðist svo í síðustu viku, að fjórir
menn á danska skipinu Pernille
Michael urðu fyrir gaseitrun og
hlutu þrír þeirra svo slæma
áverka, að flytja varð þá á ríkis-
sjúkrahúsið í Kaupmannahöfn.
Börge Eilhorn, 37 ára gamall sjómaður af togskipinu „Pernillé Michael"
hlaut m ikil brunasár á andliti og fótum af völdum sinnepsgass, er skip hans
fékk hylki með sinnepsgasi í vörpuna við veiðar á Eystrasalti.
Mitterrand vill
fara til Moskvu
Sl. þriðjudag var svo skipverji á
danska togaranum Vibeke Foldag-
er fluttur á sjúkrahús á Borgund-
arhólmi. Hafði hann hlotið mikil
brunasár á andliti af völdum sinn-
epsgass. Alvarlegasta slysið átti
sér þó stað á fimmtudagsmorgun
um borð í færeyska togaranum
Heldarstindur, sem sendi út neyð-
arkall eftir að fengið í vörpuna
sprengikúlu, er lak sinnepsgasi út
um allt skipið.
Þrír af skipverjunum voru flutt-
ir flugleiðis á sjúkrahús í Sviþjóð.
San Salvador, 23. marz. AP.
VINSTRISINNAÐIR skæruliðar í El Salvador vörpuðu í dag sprengjum í
höfuðborginni San Salvador og í Santa Ana, næststærstu borg landsins,
gerðu þeir árás á herlið stjórnarinnar. Hefur stjórnarherinn fengið fyrirmæli
um að vera í viðbragðsstöðu, þar til forsetakosningunum er lokið, sem fram
eiga að fara í landinu á sunnudag.
Einn óbreyttur borgari var
drepinn og annar særðist hættu-
lega í árás skæruliða í Santa Ana
siðdegis í gær. Þá sprungu einnig
tvær sprengjur í bænum San Jac-
into í suðurhluta landsins með
þeim afleiðingum að tveir vörubíl-
ar eyðilögðust. Sex sprengjur
fundust ennfremur í grennd við
flugvöllinn í Ilopango, en þær voru
eyðilagðar af stjórnarhermönnum
áður en þær sprungu.
Átta frambjóðendur eru í kjöri í
forsetakosningunum. Ekki er gert
ráð fyrir, að úrslit liggi fyrir fyrr
en þremur sólarhringum eftir að
kosningunum líkur.
Telur grundvöll fyrir afvopnunarviðræöum
Wa-shington, 23. marz. Al’.
Krancois Mitt-
errand Frakk-
iandsforseti
sagði í dag, að
sennilega færi
hann til Moskvu
fyrir lok þessa
árs til viðræðna
við ráðamenn
þar. Þá spáði
hann því, að
viðræður milli Mitterrand
Bandaríkjanna og Sovétríkjanna
um eftirlit með vígbúnaði myndu
hefjast að nýju, áður en langt um
liði.
Mitterrand skýrði frá þessu
að loknum tveggja daga við-
ræðum hans og Reagans
Bandaríkjaforseta í Washing-
ton. Sagði franski forsetinn, að
uppsetning nýrra bandarískra
eldflauga í Evrópu hefði verið
mikill hnekkir fyrir Sovétmenn
og þeim væri því erfitt um vik
að láta eins og ekkert hefði
gerzt. Mitterrand, sem var ein-
dreginn stuðningsmaður þess,
að eldflaugunum væri komið
upp til þess að draga úr yfir-
burðum Sovétmanna á þessu
sviði, sagði ennfremur: „Nú er
það mikilvægt að gera ekkert,
sem geti orðið til þess að skapa
nýjar deilur.
Það er hægt að taka upp við-
ræður að nýju, en það verður
að gerast á réttum tíma,“ sagði
Mitterrand. Hann bætti því
við, að ekki væri unnt að full-
yrða, hvort hann færi til
Moskvu. „En það er mjög
sennilegt að ég fari slíka ferð í
lok þessa árs.“
íleit að skæruliðum
Stjórnarhermenn í El Salvador sjást hér í leit að skæruliðum í bænum La Palma til þess að tryggja
öryggi þar og koma í veg fyrir hugsanleg hryðjuverk er forsetakosningarnar fara fram á sunnudag. A
undanförnum tveimur árum hafa skæruliðar hvað eftir annað hernumið þennan bæ. Sjá erlendan
vettvang á bls. 20.
K.B. Ander-
sen látinn
Stórslys á Eystrasalti
af yöldum sinnepsgass
Herinn í við-
bragðsstöðu