Morgunblaðið - 24.03.1984, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. MARZ 1984
5
Listsýningar
í Hafnarborg
Hjónin Ingibjörg SigurjónsdóUir
og Sverrir Magnússon gáfu Hafn-
arfjaróarbæ í fyrra fasteignina
Strandgötu 34 í tilefni 75 ára af-
mælis kaupstaðarins. Auk hússins
sjálfs fylgdi gjöfinni veglegt bóka-
og málverkasafn.
Þegar gjöfin var formlega af-
hent var þess getið, að hún
skyldi verða stofn menningar-
og listastofnunar er bæri heitið
„Hafnarborg — menningar- og
listastofnun Hafnarfjarðar".
Á síðasta ári var stjórn stofn-
unarinnar skipuð. í henni eiga
sæti Sverrir Magússon, sem er
formaður, Einar I. Halldórsson,
Ellert Borgar Þorvaldsson og
Rannveig Traustadóttir.
Stjórnin hefur nú ákveðið í
samvinnu við nokkra hafnfirska
listamenn að efna til málverka-
sýninga í sal Hafnarborgar. Sú
fyrsta hefst í dag, 24. mars, og
standa sýningarnar yfir með
stuttum hléum til 11. júní.
Stjórnin áætlar að halda áfram
á þessari braut og bjóða upp á
listsýningar í sal Hafnarborgar.
Verður hver sýning eða sýn-
ingaröð kynnt sérstaklega þegar
þar að kemur.
Varðbergsfundur á Akureyri:
Fyrirlestur um
her naðarjafn vægi
á N-Atlantshafi
í DAG klukkan fjórtán flytur
Arnór Sigurjónsson fyrirlestur
á vegum Varðbergs, félags um
vestræna samvinnu á Akur-
eyri, í Mánasal Sjallans. Arnór
nefnir erindi sitt „Hern-
aðarjafnvægið í Norður-
Atlantshafi.“
Arnór var í norska hern-
um frá 1975 til 1982. Hann
lauk prófi frá hinum kon-
urglega norska herskóla ár-
ið 1980 og er liðsforingi að
tign. Hann starfaði á vegum
norska hersins í friðargæslu-
liði Sameinuðu þjóðanna í
Miðausturlöndum í átta
mánuði.
Arnóri Sigurjónssyni veitt lautin-
antsgráða frá Norska herskólanum.
Hrafninn flýg-
ur hærra
KVIKMYNDIN „Hrafninn flýgur er
nú sýnd í Nýja Bíói á öllum sýning-
um, en myndin hefur verið sýnd þar
á síðustu kvöldsýningum eftir að
sýningunni í Háskólabíói lauk.
Áhorfendur að myndinni í
Reykjavík eru nú orðnir 27 þús-
und, að sögn Hrafns Gunnlaugs-
sonar, leikstjóra.
Myndin verður einnig sýnd í
Vestmannaeyjum um helgina.
FIAT TEKUR FORYSTUNA
Á árunum 1965 til 1975 var FIAT í forystu í framleiöslu á litlum
bílum til almenningsnota. FIAT bílar hlutu titilinn ,,bíll ársins í
Evrópu" þrisvar sinnum á sex árum. Nú er FIAT aftur kominn
íforystusœtiömeö framleiöslu FIAT UNO, sem kjörinn hefurver-
iö bíll ársins 1984. Óhemjufé, tíma og fyrirhöfn var eytt í undir-
búning og hönnun áöur en framleiösla hófst á þessum frá-
bœra bíl. FIAT verksmiöjurnar lögöu 700 milljónir dollara í
þetta verkefni og haía augljóslega variö því fé skynsamlega
því útkoman, sjálfur UNO bíllinn, er einstaklega vel hannaöur
og er af sérfrœöingum talinn vera e.t.v. besti smábíll sem
nokkru sinni hefur veriö smíöaöur (' 'possibly the best small car
ever made").
UNO FÍLSTERKUR,
ER FRAMTÍDARBÍLL
Smiðjuveg/ 4, Kópavogi Símar 77200 - 77202