Morgunblaðið - 24.03.1984, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 24.03.1984, Blaðsíða 45
 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. MARZ 1984 45 VELVAKANDI SVARAR f SÍMA 10100 KL. 11—12 FRÁ MÁNUDEGI TIL FÖSTUDAGS Þessir hringdu . . . Hver hefur fjár- þörf forsetaem- bættisins verið? Guðmundur Gíslason hringdi: — Þriðjudaginn 20. mars voru umræður í sjónvarpinu um svo- kaltað fjárlagagat. Athyglisvert var að heyra fulltrúa kvenna, hina hagsýnu húsmóður, hirta yfirhús- móður iandsins fyrir fjáraustur og bruðl, sem öllum landslýð ofbýður. Vill nú ekki háttvirtur þingmaður (og hin hagsýna húsmóðir) upp- lýsa þjóðina hér í Velvakanda um hver hefur verið fjárþörf forseta- embættisins á ári hverju síðustu fimm árin? Hver varðveitti Maríustyttuna? Kona hringdi: — Ég var að lesa frétt sem birt- ist í Morgunblaðinu hinn 21. marz með fyrirsögninni „Kirkjunni á Reykhólum gefin Maríustytta." Kirkjunni á Reykhól- um gefin Maríustytta iAUur, Skó«um I Þorakaflrði Sjóðurinn krltir .Minnin«nr.jó* jr brriðfirnkrn mvðrn* Kinkunnarorð þraaa ajðða aru m«ar RrykhAiakjrkju Nyla«a hafur Raykhólakirkju honit «j*f. aa það ar atjrtta afj Marlu mrð barnið af ar hún garðj aftir ityttu fri 13 aAa 14. AM ogj akorin af Svaini ölafaaynil uAu að aftirgarð atyttunar ikulúl farAar þakkír, an þair ani BjArrl Th RjAmaaon. liatfrsAincur. hr ] biakup H Frahan. UþAlika aafn I aAanrm á lalandi. og Torfa ötafi ] ■ym. formanni laikmanna ka-j Þar stendur m.a. eftirfarandi: „Upprunalega styttan var eitt sinn eign Reykhólakirkju, en þeg- ar Matthías Þórðarson, þjóð- minjavörður, skrásetti muni Reykhólakirkju 1913—1915 var upprunalega styttan horfin úr kirkjunni. En árið 1926 var hún færð Landakotskirkju að gjöf og prýðir þá kirkju nú.“ Mig langar mikið til að fá skýringu á því hvers vegna styttán var horfin úr Reykhólakirkju þegar Matthías skráði munina þar. Eins langar mig til að vita hver gaf Landa- kotskirkju styttuna og í hvers vörslu hún var þá er hún var gefin. Rífið Fjalaköttinn - leggjum niður út- flutningsbæturnar Anna hringdi: — Töluverð umræða hefur ver- ið um Fjalaköttinn að undanförnu og vil ég taka undir ósk þeirra fjölmörgu sem vilja láta rífa þetta forljóta hús. Mér finnst mikil óprýði að því og myndi það áreið- anlega lítið skána þótt eitthvað væri púkkað uppá það, því bygg- ingarstíllinn er enginn á því. Ekki skil ég í því að landsmenn séu al- mennt svo vel í álnum að þeir hafi efni á að gera upp svona hjall fyrir rúmar 100 milljónir, en ef einhverjir vilja halda í þetta hús ættu þeir bara að gera það á eigin kostnað. Þá langar mig til að taka undir þetta sem var verið að skrifa um útflutningsbæturnar. Hvers vegna er verið að ausa peningum svona í óarðbærar atvinnugreinar í stað þess að fjárfesta í einhverju af viti? Áfram meö Dallas Tvær í Breiðholtinu höfðu sam- band við Velvakanda út af sjón- varpsþættinum Dallas. Hvöttu þær sjónvarpið eindregið til að fá meira af þessum framhaldsþætti sem náð hefði svo miklum vin- sældum hér á landi. RODDIN — eftir Matthew Arnold Lýst var eftir Ijóðinu „Röddin" eftir Matthew Arn- old í þýðingu Matthíasar Jochumssonar, hér á dögun- um. I’étur Pétursson þulur átti ljóðið í fórum sínum og sendi okkur það. Er það að finna í II. bindi Ljóðmæla Matthíasar Jochumssonar, er út kom á Seyðisfirði árið 1903. Þess má geta að ísólfur Pálsson samdi lag við þýðingu Matthíasar og Árnesingakórinn söng það inn á plötu. Margrét Eggertsdóttir syngur þar ein- söng en Þuríður Pálsdóttir stjórnar. Ljóðið er 9 erindi og birtist hér allt. Ég stóð um nótt við stjórn á völtu fleyi, er stjörnur lýstu svala vetrardröfn, og var að harma þessa víðu vegi, sem vekja þrá, en sýna hvergi höfn. Svo lengi hef ég hrakist um og hjarað, og hug minn dreymt um föðurlandið ríkt, svo lengi horft og hungurmorða starað, og hjartað sjúkt á náðarmola sníkt. Þó aðrir gæti, gat ég aldrei ratað þau grunnu sund, sem horfin kendi þjóð, og — satt að segja — liggur gleymt og glatað hið gamla farbréf yfir þessa slóð. Ó, leiðarstjarna, ljá mér enn sem forðum þá lýsu, sem mér gefi stundarfró! þú dýrðarher, sem skín í föstum skorðum, ó, skift þú með mér þinni djúpu ró! — Þá heyrði’ ég eins og hvíslað lofts frá sölum og hljótt og rótt varð alt um loft og ver: „Ef viltu ró i þínum djúpu dölum, þú dauðans barn, þá lifðu eins og vér. • „Sú blíðukyrð, sem býr í sálum vorum hún bendir þér og kennir sannan frið; vér stöndum fast í björtum brautarsporum, og biðjum ekki’ um stærra skyldusvið! „Jafnvægi fyrst! Og þar næst þarf að skilja að þungamiðjan heitir e i 1 í f lög. Þú átt, sem vér, að skilja veg þins vilja; en veg þann kennir alnáttúran hög. Guðsríki’ er stórt. En girnstu aldrei annað en átt’ og mátt’, og herra ver þín sjálfs, og lær að sjá, hvað leyft þér er og bannað, því lögum móti verður enginn frjáls." — Hver var sú rödd? Ég hygg mér innst í hjarta ég heyri þetta sama guðamál: „Þú hættir ei um harma lífs að kvarta, unz hærra lögmál stillir þína sál.“ Nýja hljómplatan Heyr þú minn söng er til sölu í kaffistofunni Hverfisgötu 42 alla virka daga kl. 13—17. Tekiö er á móti póstpöntunum í síma 11000 og 10477 virka daga kl. 9—17. Samhjálp. Húseigendur — Húsbyggjendur Smíöum innveggi, einangrun, kiæöum úti- veggi og setjum timburloft. Seljum í miklu úrvali grindarefni, viðarþiljur og spónaplötur á afar hagstæðu veröi. Góöir greiösluskilmálar. Ath.: Viö erum viö símann alla helgina. Leit- iö tilboöa og upplýsinga ykkur aö kostnaö- arlausu. VERKVAL SF Simar 41529 RAFfÆKJADElLD 0MEKLA HF : fLGAVEGI 170 172 SÍMAR 11687 • 21240 l'Acier massif signé Chabanne Frönsk stálhnífapör með nylonskafti Verd frá kr. 490.- settid (hnilur galfall súpuskcið og teshcið)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.