Morgunblaðið - 24.03.1984, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 24.03.1984, Blaðsíða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. MARZ 1984 íbúðir á Hvolsvelli 2ja hæða einbýlishús + ris. Grunnflötur 80 fm. 4ra herb. einbýlishús. Bílskúrsplata. 4ra herb. einbýlishús meö bílskúr. FANNBERG s/f > Þi úóvangi 18, 850 Hellu. Sími 5028 — Pósthólf 30. 2ja- -3ja herb. I Stelkshóli á 1. hæð 3ja ibuð Sérleg ingar. Verð 1 ar herb. afar glæsileg a fallegar innrétt- 650 þús. Dalsel: 45 fm einstakl- ingsíbúð. Mjög snyrtileg. Verð 1 millj. 4ra Alftaholar: 115fm4raherb ibúð + bilskúr. Tvennar svalir. Sérþvottahus. Akveðin sala Verð 2 millj Kvistaland: 220 fm einbýl- ishus ásamt kjallara. Eign 1 sér- flokki Akv sala. Uppl. á skrífst. Möguleiki að taka minni eign upp 1 kaupin. Flúðasel: 120 fm 6 herb. með bílskýli. Allt fullgert. Verð 2.200 þus. Vikurbakki: Glæsilegt hús 205 fm + innbyggður bílskúr. Afar falleg og vel með farin eign. Vantar Vegna gífurlegrar sölu undan- fariö vantar okkur allar stærðir eigna á söluskrá. Eigna m markaðurinn Mafnarstræti 20. simi 26933 (Nyja husinu viö Lækjartorg) “ Jón Magnússon hdl. SIMAR 21150-21370 S0LUSTJ LARUS Þ VALDIMARS L0GIVI J0H Þ0ROARS0N HDL Til sölu og sýnis auk annarra eigna: Stór úrvals íbúð við Jöklasel 3ja herb. á 2. hæö um 95 fm. Næstum fullgerö. Sér þvottahús. Tvöföld stofa, rúmgóö herb. Fullgerö sameign. Svalir. Lau* 1. sept. nk. Bílskúr getur fylgt. Teikn. á skrifstofunni. í smíðum við Ofanleiti Vorum að fá í sölu 3ja herb , 2ja herb., og 4ra herb. íbúöir. Byggjandi Húni sf. Afhendast fullbúnar undir tréverk 1. marz 1986. Fullfrágengin sameign. Eitf besta verð á markaðnum í dag. Teikning á skrifstofunni. Íbúðírnar eru í miðbas framtíðarinnar í höfuðborginni. Á vinsælum stað í gamla bænum 4ra herb. ibúö á 3. haaö um 100 fm í um 20 ára reisulegu steinhúsi. Mjög vel með farin. Sérhæð á Seltjarnarnesi — Skipti möguleg 5 herb. 3. hæð um 130 fm við Miðbraut. Sér þvottahús, sér hitaveita, bílskúr um 45 fm. Frábssrt útsýni. Hagkvæm skipti möguleg á góðri 3ja herb. íbúð. 2ja herb. íbúðir við: Fífusel jaröhæð um 55 fm. Nýleg og góð. Fullgerö sameign. Drápuhlíð í kj. um 75 fm. Stór og samþykkt, sér inng., sér hiti. Vinsæll staöur. Lindargötu í kj. um 65 fm samþykkt lítiö niöurgrafin. Sér hiti. Sér inng. Alfhólsveg — Kóp. 2. hæö um 75 fm. Stór og góö. sérþvottahús. Glæsilegt útsýni. Kríuhóla 4. hæð háhýsi 65 fm. Ljós haröviöur, næstum skuldlaus. Kársnesbraut — Kóp. 2. hæö um 75 fm, ný og góö, sérþvottahús. Útsýni. Við Leirubakka með sérþvottahúsi 4ra herb. stór og góö íbúö um 110 fm á 1. hæð. Teppi, haröviöur. Rúmgott herb. í kj. um 10 fm meö snyrtingu. Glæsilegt raðhús í Suðurhlíðum nú fokhelt í byggingu. Húsiö er tvíbýlishús. Sár íbúð 6 herb. um 170 fm á 2. hæö og þakhæö. Bilskúr fylgir. Sóríbúð á 1. hæö um 100 fm 3ja—4ra herb. Frábært útsýni. Margskon- ar eignaskipti möguleg. Skammt frá sundlaug Vesturbæjar 5 herb. suöuríbúö á 3. hæö um 115 fm í suðurenda viö Grandaveg Vel með farin. Útsýni. Á skrá eru nokkur einbýlishús og raðhús í borginni, Kópavogi, Garöabæ og Mosfells- sveit. Á skrifstofunni eru teikningar og nánari uppl. Á úrvalsstaö í Hafn. — Skiptamöguleiki Raöhús i smíöum viö Stekkjarhvamm, selst fokhelt á næstunni með 5—6 herb. ibúö á 2 hæöum um 160 fm auk bílskúrs sem er innbyggöur. Teikning á skrifstofunni. Fjöldi fjársterkra kaupenda hefur faliö okkur aö útvega sér íbuöir, sérhæöir, raöhús og einbýlishús. Margir með mjög miklar útborganir. Opiö í dag laugardag, lokaö á morgun sunnudag. ALMENNA FASTEIGNASAIAN LAUGAVEG118 SÍMAR 21150 - 21370 Umsjónarmaður Gísli Jónsson Enn hlýt ég að þakka þeim mörgu sem skrifa mér bréf, hringja til mín eða taka mig tali á annan hátt. Ég hef stundum verið spurður, hvernig ég héldi þessum þætti í horfinu. Svarið er: orð og uppörvun annarra. Annars þryti mig hugkvæmni og þol. Mér skrifa jafnt lærðir sem leikir, og aldrei fæ ég vond bréf. Eftir þennan formála gef ég Ingþóri Sigurbjörnssyni í Reykja- vík orðið: „Heill og sæll, Gísli Jónsson, eða: góði þáttur, ekki síst m.a. nr. 142. Sá er upp alinn var á íslandi og í sveit á fyrstu tugum þessarar aldar, hlaut að kynnast miklu fjölbreyttari vinnuháttum en nú gerist, þar sem flestir bændur hlutu að segja eins og eða líkt og Stephan G.: Löngum var ég læknir minn, lögfræðingur, prestur, smiður, kóngur, kennarinn, kerra, plógur, hestur. Líklega flestir, a.m.k. flestir er ég sá til, áttu nokkuð af smíða- áhöldum, og sakna ég þess að eiga ekki meðal nokkurra gamalla hluta löð, vita ekki heldur hvað var látið ráða tölu gatanna (til- viljun?) en þó ég hafi enga við hendina til að skoða, dettur mér helst í hug fingratalan, 10, því að svo finnst mér margs konar sam- anburður hafi oft verið hafður í huga. Ekki hafði mér hugkvæmst, né heyrt um sambandið sð laða, þótt daglegt mál væri að laða að sér menn og skepnur, en þakka skýringuna og ljóð Steingríms: Hans á tungu ljóðið lék svo létt og glaðan. Auðug ríkir yndis laðan í því besta sem að kvað 'ann. Orðfæð yngri kynslóðarinnar er í mínum eyrum áberandi og hættuleg frjóleika tungunnar. T.d. finnst mér mjög áberandi að sagt sé um alla snjókomu: „Nú, það er bara komin hríð,“ hvort sem hvesst hefur og farið að skafa, eða komin slydda, hunds- lappadrífa, lognmugga eða ein- hver önnur tegund snjókomu. Fróðlegt væri að vita hversu mörg þessi orð eru, eða voru í máli eldri kynslóðarinnar. Vel getur verið að þú eða aðrir hafi fjallað um þetta, þó framhjá mér hafi farið, þótt ég hlaupi síst yfir slíka þætti, vel munandi námsleysi mitt. Ég hrökk við f leátri fyrrnefnds þátt- ar. Er átta ljóðlínu erindi Níelsar skálda vísa? Getum við kallað öll ljóðerindi vísur? Þú last í málið svo villurnar verða vafalaust ekki þér að skaða. Þegar að óþol vill að mér herða, álpast ég til þess að láta það vaða.“ Bréfi sínu lýkur Ingþór með eft- irfarandi fylgiorðum: „Ef til vill bæri mér að biðja afsökunar á heldur ómyndarlegu bréfi sem ber þess merki, að ég er ekki mikill skrifstofumaður, þótt stundum ólgi hitt og þetta svo í huga mér að til að róa hugann set ég það á blað, sem fer svo oftast aldrei lengra en í ruslabinginn og mundu víst margir segja líka að þar væri það best geymt..." Að lokum kveður Ingþór vin- samlega og vonar að meinalaust sé, þótt þetta hafi farið lengra en í ruslabinginn. Ég þakka Ingþóri kærlega fyrir að trúa mér fyrir þessu. Fleiri mættu láta „fýsnina til fróðleiks og skrifta", svo notuð séu orð próf. Jóns Helgasonar, verða til þess að skrifa mér en fleygja ekki í rusl því sem hefur ólgað í hug þeirra og umbreyst í orð. Skal nú vikið nánar að bréfi Ingþórs. Enga tölu kann ég á nafnorðum sem tákna snjókomu í öllum tilbrigðum, enda eru þau fjölmörg. Bráðum fáum við sam- heitaorðabók og léttist þá þess konar leikur. Orðabækur gefa löð í tvenns konar merkingu, og óvíst um sam- eiginlegan uppruna. Annars vegar áhaldið sem Ingþór minntist á: járnfleinn með götum sem naglar eru mótaðir í, málmplata með holum, gat á steðja — og svo löð = gestrisni, heimboð og góðar við- tökur, og er það sýnilega af sögn- inni að laða. Buðumk hilmir LÖÐ þar ák hróðrar kvöð, orti Egill Skalla-Grímsson. Mun sú löð Eiríks blóðöxar að vísu hafa verið meini blandin. I Háva- málum segir að gestur þurfi þjóð- löð ásamt mörgu öðru sem upp er talið. Vafalftið merkir þjóðlöð al- úðlegar viðtökur, góða gestrisni. Ingþór vitnar í hina frægu og yndislegu braghendu Steingríms Thorsteinssonar um Sigurð Breiðfjörð. Umsjónarmaður hefur oft hrifist af henni. Hann heldur að laðan sé nýyrði Steingríms, hefur lítt fundið það annarstaðar. Vísa getur að dómi umsjónar- manns sem best haft 8 braglínur, sbr. dróttkvæðan hátt og margt fleira. Hinu þorir hann ekki að svara játandi að öll ljóðerindi séu vísur. Fyrir umsjónarmanni er t.d. kvæði og ljóð ekki endilega það sama. En vísu hina prýðilegu sem Ingþór samdi og sendi þakkar umsjónarmaður kærlega. * Þá fær orðið Þórarinn Þórar- 236. þáttur insson í Reykjavík (fyrrv. skóla- stj.): „Góði Gísli. í upphafi þessara lína vil ég þakka þér þin ágætu skrif i Morg- unblaðinu laugardag hvern. Ég les þennan þátt þinn næst á eftir athugun á mynd Sigmunds. Það sem knýr mig til þessara skrifa er vísan „Sódómiskur" etc. sem birt var í pistli þínum þ. 11. febr. og 18. febr. þar sem Halldór Hall- dórsson fyrrv. prófessor leiðréttir vísuna. En hann segir hana vera eftir Þórð Eyjólfsson. Þetta er rangt — hún er eftir Tryggva Magnússon, málara, eins og segir í fyrri pistlinum frá 11. febr. Þar sem ég þekki persónulega til tilorðnings vísunnar, langar mig til að hann gleymist ekki og fylgi vísunni sem annars gæti misskilist þar sem engri tæpi- tungu er talað og ekki um marga biskupa að gera. Á árunum 1926 til '27 var ég stundum í hópi gálít- illa ungra manna og dæmdist eitt sinn í gleðskap á Tryggva að hann yrkti mergjaða níðvísu um sér- hvern heldri mann borgarinnar, hvað Tryggvi gerði. Umrædd vísa er úr þessum vísnaflokki sem vissulega var ekki ætlað að koma á prent. Auk þessarar vísu um biskupinn man ég enn vísuna um borgarstjórann, en hún var á þessa leið: Þó slær Knútur alla út, engir hnútar duga, íhaldsgrútar lepur lút lævís mútu suga. Ja, ekki var fallega kveðið, en það get ég fullyrt að allar voru vísurnar án minnsta tilefnis, það ég vissi, en aðeins til að sýna hag- mælsku Tryggva og njóta í þröng- um kunningjahópi. Vinsamlegast. P.s. Halld. Halld. sagðist ekki hafa fullyrt að vísan væri eftir Þórð Eyjólfsson, aðeins hafa heyrt það samkvæmt símtali í morgun." Umsjónarmaður þakkar Þór- arni upplýsingarnar og lætur svo útrætt um þetta mál. A í sjónvarpsþætti á dögunum mátti heyra undarlegt tal. Afgang- ur hét rest og haft í hvorugkyni, restið, og spurt var hvenær hljóm- plata kæmi á götuna. Umkomu- litlar stúlkur fóru stundum á göt- una og síðan bílar, en hvenær fóru hljómplötur þangað. Skyldu bæk- ur líka vera orðnar götudrósir? P.s. I síðasta þætti varð smá- villa í ljóði Gríms Thomsens: Lengi fyrir lengir í upphafinu. Einnig urðu villur sem augljóst er að lesa í málið í vísunni um Odd sauðaþjóf. ÞINGIIOLT Sími 29455 — 4 línur Opiö frá kl. 1—4 Stærri eignir Hlíðavegur Ca. 130 fm góö sérhæö ásamt 40 fm bilskúr. 3—4 herb. og stofur. Fallegar innr. á eldhúsi og baöl. Þvottahús og búr Innaf eldhúsi. Suö-vestursvalir. Ákv. sala. Verö 2,7—2,8 millj. Arnartangi Ca. 140 fm fullbúiö einbýtí á einni hæö ásamt 36 fm bílskúr. Fallegt og rúmgott hús. Góö ræktuö lóö. Verö 3,1—3,2 millj. Dunghagi Ca. 160 fm góö sérhæö ásamt 30 fm Innb. bílskúr og góðu herb. i k(. með aðg. að S snyrtingu. Hæðin er 2 góöar stðfur ðg í M svefnálmu 4 herb. og baö. Tvennar svaiir M Allf sár. Ákv. sala eöa möguleiki aö skipta á 1 ^ 4ra herb. meö bílskúr i vesturbæ. • Goöheimar n Ca. 152 fm mióhæó ásamt bílskúr. Stór ^ stofa og eldhús meó nýjum tækjum. Nýtt M gler Góó og vegleg hæó. Ákv. sala. • Fossvogur V| Ca. 230 fm vandaö raöhús ásamt bílskur J Byggt á 3 pöllum ♦ stór og góóur kjallari. J Veglegar stofur. Fallegur garöur Kjallari ^ sem nota má sem tómstundasal. Akv sala. M Veró 4,3—4,5 millj. • Kópavogur ** Ca. 180 fm gott einbýli á 2 hæöum ásamt 2 bílskúr í húsinu eru tvær sjálfstæöar ibúöir !■ meö sérinng. Ákv. sala eöa skipti á minna 9 etnbýli eöa raöhúsi i Kópavogi. Langholtsvegur Ca. 125 fm sárhæö og ris í tvíbýli ásamt bilskúr Hægt aö nota sem tvær íbúóir. Nýtt gler. Góö lóð. Verö 3250 þús. Unufell Gott ca. 125 fm fullbúiö endaraöhús á einní hæö ásamt bílskúr. Þvottahús innaf eldh. Stórt flísal. baöherb Góöur garöur. Ákv. sala. Seltjarnarnes Ca. 127 fm góö efrl sárhæö ásamt bilskúr Stórar stotur, 3 svetnherb , flisalagt baö, rúmg. eldhus Akv. sala. Verö 2,6 millj. 4ra—5 herb. íbúðir Vesturberg Ca. 100 fm ibúö á 3. hæö. Stór stofa meö nýjum teppum. Verö 1800—1850 þús. Flúöasel Ca. 115 fm íbúö á 3. hæö meö bílskýli. Góö- ar stofur. 4 svefnherb. og baö á sérgangi. Góö íbúð. Verö 2,1 miltj. Stóragerði Ca. 110 fm íbúö á 4. hæö. Akv. sala. Verö 1950—2000 þús. Háaleitisbraut Ca. 100 tm ibúö á 1. hæö á góöum staö i Haaleiti. Parket á holi og eldhúsi Suöursval- ir. Bilskúrsréttur Verö 2—2.1 millj. Orrahólar Mjög góö ca 110 fm ibúö á 3. hæö ásamt góöum innb. bilskúr. Góöar innr. Þvottahús innaf eldhúsi. Afh. 15.7. Verö 2,1 millj. Viö Sundin Ca. 113 fm góö íb. á 6. hæö Nýleg teppi á stofu, parket á holi og eldh. Verö 1850—1900 þús. Engjasel Ca. 100 fm íb. á 2. hæö meö fullb. bilskýli. Ákv. sala. Verö 1800—1900 þús. Leifsgata Ca. 100 fm 10 ára gömul góö ibúö á 3. hæö í fjórbýli. Arinstofa. Þvottahús í íbúöinni. Nýtt gler. Sérhiti. ófullgeröur 30 fm geymsluskúr fylgir. Verö 2,0 millj. Engihjalli Ca. 110 fm góö íbúö á 1. hæö. Góöar innr. Þvottahús á hæöinni. Verö 1850—1900 þús. 3ja herb. íbúðir Ugluhólar Ca. 83 fm góö ibúö á 2. hæö. Nýleg teppi. Laus 1. júlí. Verö 1600 þús. Lindasel Ca. 90 fm ný íbúö á jaröhaBÖ. Sérlnng. Rúmgóö ibúö en ekki fullbúin. Verö 1600 þús. Kársnesbraut Ca. 70 fm ibúö á jaröhæö. Sérinng. Verö 1400 þús. 2ja herb. íbúðir Orrahólar Ca. 65 fm góö ibúö i lyftublokk. Þvottahús á hæöinni. Björt ibúö. Verö 1350 þús. Furugrund Ca. 45 fm ibúö á 1. hæö. Suöursvalir. Verö 1150 þús. FriArik Stefánsson vióskiptalræöingur. Ægir Breiöfjörö sölustj. Sverrir Hermannsson, sími 14632.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.