Morgunblaðið - 24.03.1984, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 24.03.1984, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. MARZ 1984 f SÝNINGARSÖLUM Institute of ('ontemporary Arts í Lundúnum stendur nú yfir sýning á lífi, verkum og starfi William Morris. Er sýningin haldin í tilefni af 150 ára fæðingar- afmæli skáldsins, útgefandans, inn- anhússarkitektsins og íslandsvinar- ins, en svo mætti lengi telja ef drepa ætti á öllum þeim málefnum og störf- um sem Morris vann að á æviferli sínura. Hann var fæddur þann 24. mars 1834 og eru því í dag liðin rétt 150 ár frá fæðingu hans. Vegna sýningarinnar voru héðan sendir gripir sem tengjast íslands- dvöl Morris og annaðist Sigríður Á. I.J Björn Gunnlaugsson teiknaði af Is- landi 1848 og Morris notaði á ferð- um á ferðum sínum og sendibréf frá leiðsögumanni hans, Jóni Söðla Jónssyni. Ljóð Williams Morris „leeland first seen“ er síðan á sýn- ingunni í frumtexta og í íslenskri þýðingu Steingríms Thorsteinsson- ar. Hver sýningargripur er tengdur Morris með tilvitnun í dagbækur hans frá íslandsferðunum, þar sem hann lýsti ítarlega því sem fyrir augu bar, mönnunum, landinu og íslensku lífi. Sýningin í Institute of Contem- porary Arts stendur til 29. apríl nk. Hugmyndir eru uppi um að fá hingað til sýningar þann hluta hennar sem tengist Íslandstímabil- inu, en sýningin verður sett upp í Madrid á Spáni eftir að henni lýkur í Lundúnum. Þá hafa Svíar sýnt mikinn áhuga á að fá hana til Sví- þjóðar. Hótelstjórinn, Auður Gunnarsdóttir, á nýja barnum á Hótel Húsavík. 50. ársþing Félags íslenskra iðnrekenda: Víglundur Þorsteinsson endurkjörinn formaður 150 ára afmæli íslandsvinarins William Morris: Sexfaldur heimsmeist- ari í vaxtarrækt „MIG hefur alltaf langað til að koma til íslands, og kem því ekki endilega vegna vaxtarræktarinnar eingongu, heldur til að kynnast fólk- inu. íslendingar virðast vera jákvæð- Það eru engir smávöðvar, sem Makkawy getur náð fram með hin- um ýmsu stellingum. ir persónuleikar og það verður ör- ugglega gaman að sýna hérna,“ sagði Egyptinn Muhamed Makkawy í samtali við Morgunblaðið, en hann mun koma fram á fslandsmeistara- mótinu í vaxtarrækt á sunnudaginn. Makkawy, sem er 29 ára, hefur stundað vaxtarrækt frá ellefu ára aldri og hlotið flesta af eftirsótt- ustu titlunum í þessari íþrótta- grein. Sex sinnum hefur Makkawy orðið heimsmeistari atvinnu- manna, vann Pro World-keppnina í Bandaríkjunum á sl. ári ásamt því að ná öðru sæti í Hr. Olympia-keppninni. Makkawy var kosinn Herra Alheimur árið 1976 og hefur oft verið nefndur Fönix vaxtarræktarinnar. Það krefst gífurlegrar þjálfunar að ná janf langt og Makkawy, en hann er ekki við eina fjölina felldur. Hann hefur fyrirlestra á fjórum tungu- málum, hefur BA í þýðingum á enskum bókmenntum og hefur lagt stund á nám í innanhússarki- tektúr. „Það fer mikill tími í vaxt- arræktina og þetta er erfið at- vinnugrein, en gefur skemmtileg- ar stundir," sagði Makkawy, „það skemmtilegasta finnst mér er að æfa og sýna „posur“ (stellingar) og ég legg það mikið uppúr þess- um þætti að ég hef balletkennara mér til aðstoðar er ég æfi þennan þátt. Makkawy þykir færastur vaxtarræktarmanna í „posum", en þar er meginmálið að tengja sam- an hreyfingar líkamans við undir- leik tónlistar í sama mund og vöðvarnir eru hnyklaðir á sem bestan hátt. Áhugamönnum um vaxtarrækt ætti að vera mikill fengur í komu Makkawys, en hann mun sýna eftir að úrslit hafa verið tilkynnt í íslandsmótinu á sunnu- daginn í Broadway. íslenskir gripir á afmæl- issýningu í Lundúnum Auður Gunnarsdóttir hótelstjóri í hinum nýja sala. Miklar breytingar og viðbót við Hótel Húsavík Á HÓTEL Húsavík hafa verið gerðar miklar breytingar á efstu hæð. Á þeirri hæð var lítill bar, en nú hefur verið útbúinn þar vistleg- ur veitingasalur, sem rúmar 70—80 manns í sætum. Með því hefur verið bætt úr brýnni þörf, því þó aðalsalur hótelsins sé vistlegur, er hann aðeins hentugur fyrir stærri samkvæmi, því hann getur rúmað 3—400 manns í sætum. Hótel Húsavík hefur fengið á sig mjög gott orð fyrir allan beina á ráðstefnum, heilsuvikum og helgarráðstefnum, og nú hef- ur skapast aðstaða til að veita gestum ennþá betri þjónustu. Næstu þrjár vikurnar býður hótelið upp á hinar þekktu „heilsuvikur" með alls konar sér- þjónustu viðvíkjandi heilsurækt, afslöppun og fleiru. Á páskum er gert ráð fyrir skíðaferðum, ef svo viðrar, eða þá annarri útivist, og er þegar farið að panta dvöl þá. Fréttaritari William Morris Snævarr, blaðafulltrúi utanríkis- ráðuneytisins val þeirra og frágang. Meðal gripanna eru ljósmyndir frá þeim tíma er Morris var hér, en hann kom hingað 1871 og 1873. Dvaldist hann í hvort skiptið um tveggja mánaða skeið og ferðaðist um landið ásamt leiðsögumanni sínum Jóni Söðla, sem svo var kall- aður. Morris var mikill áhugamaður um íslenskar fornsögur, þýddi m.a. sex þeirra eftir íslandsferðirnar og voru því sendar á sýninguna ljós- myndir úr fornum handritum frá Stofnun Árna Magnússonar. Þá eru Ijósmyndir af landakorti sem dr. VÍGLUNDIJR Þorsteinsson var endurkjörinn formaður Félags íslenskra iðnrekenda á 50. ársþingi félagsins, sem haldinn var þriðjudaginn 20. mars síðastliöinn. Auk hans voru kjörnir í stjórn: Pétur Eiríksson, Ágúst Valfells, Eggert Hauksson, Björn Jó- hannsson, Agnar Kristjáns- son og Kristinn Björnsson. Stjórnin hefur ekki ennþá skipt með sér verkum. í ályktun sem þingið sam- þykkti segir meðal annars: „Frá því síðasta ársþing Fé- lags íslenskra iðnrekenda var haldið hafa orðið jákvæðar breytingar í efnahagsmálum íslendinga. Þar ber hæst, að nú er loks í augsýn það markmið að verðbólga hér á landi verði ekki meiri en í helstu viðskipta- löndum. Það skiptir sköpum fyrir framtíðarlífskjör í land- inu, að þessi árangur glatist ekki. Hjöðnun verðbólgunnar er mikilvægasti áfanginn á þeirri leið að jafna starfsskil- yrði íslenskra atvinnuvega gagnvart erlendum keppinaut- um. Hún er einnig forsenda þess að fyrirtæki geti einbeitt sér að þróttmikilli starfsemi á sviði vöruþróunar og markaðs- mála, ekki síst í útflutningi. Mikilsverður árangur hefur náðst í stjórn efnahagsmála, en þó eru enn blikur á lofti. Þann- ig er verulegt misvægi á pen- inga- og lánamarkaði og í ríkis- fjármálum. Á þessum sviðum þarf að skapa festu og stöðug- Ieika.“ Ennfremur segir: „Ein meg- inforsenda vaxandi framleiðslu og batnandi lífskjara á næstu árum er öflug vöruþróun og markaðsstarfsemi, ekki síst á sviði útflutnings og hvers konar alþjóðlegrar starfsemi. Opinber stefna og stuðningur er hér nauðsynlegur. Frumkvæðið á hins vegar fyrst og fremst að vera hjá fyrirtækjunum. Mestu Kaffidagur Dýrfirðinga- félagsins Dýrfirðingafélag Reykjavíkur heldur árlegan „kaffidag“ sinn I Bústaðakirkju á morgun, sunnudag. „Kaffidagurinn" hefst með guðsþjónustu í Bústaðakirkju kl. 14 og að henni lokinni verður kaffisala í samkomusal kirkjunn- ar. Ágóða af kaffisölunni verður varið til dvalarheimilis fyrir aldr- aða, sem fyrirhugað er að reisa í Dýrafirði. Sovéskur gestur AÐALFUNDUR Menningartengsla íslands og Ráðstjórnarríkjanna verður haldinn í húsakynnum félags- ins að Lindargötu 48 í dag, laugar- dag og á morgun. I tilkynningu frá félaginu segir að gestir fundarins verði tveir af varaformönnum félagsins Sovét- ríkin — ísland, þeir Ivan I. Dan- ilkin og Oleg Vereiskí, sem sé í hópi kunnustu myndlistarmanna í Sovétríkjunum. Leiðrétting ÞAU MISTÖK urðu í þættinum „Hvað er að gerast um helgina?" í Mbl. í gær að sagt var að mynd- listarsýning Erlu B. Axelsdóttur yrði opnuð í Norræna húsinu í dag, laugardag. Sýningin verður hins vegar opnuð á laugardaginn eftir viku og eru hlutaðeigandi að- ilar beðnir velvirðingar á mistök- unum. Loðnuveiði dræm GOTT veður var á loðnumiðunum í gær en lítil veiði. Samkvæmt upplýs- ingum loðnunefndar virðast vertíð- arlok komin í menn og þegar eru um 10 bátar hættir veiðum. Á fimmtudag tilkynntu 14 bátar um veiði samtals 7.750 lestir: Kap 11 VE 150, Magnús NK 500, Rauðs- ey AK 500, Júpíter RE 1.200, Al- bert GK 600, Örn KE 550, Ljósfari RE 500, Guðmundur RE 450, Vík- urberg GK 520, Höfrungur AK 850, Sæbjörg VE 470, Húnaröst ÁR 600, Keflvíkingur KE 460 og Guðrún Þorkelsdóttir SU 400 lest- ir. Síðdegis í gær höfðu þrjú skip tilkynnt um afla samtals 2.510 lestir: Dagfari ÞH 510, Hilmir SU 1.300 og Súlan EA 700 lestir. Víglundur Þorsteinsson, formaður Félags íslenskra iðnrekenda. máli skiptir, að ástand efna- hagsmála og stefna stjórnvalda sé með þeim hætti að fyrirtæk- in sjálf hafi ráðrúm og hvatn- ingu til að sinna þessum málum í mun meira mæli en verið hef- ur. Það er vænlegasta leiðin til árangurs."

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.