Morgunblaðið - 24.03.1984, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. MARZ 1984
Hert eftirlit með starfsmannaráðningum hins opinbera:
Ábyrgð stofnana og
ráðuneyta aukin
FJÁRLAGA- og hagsýslustofnun sendi nýverid út bréf með tilskipun varð-
andi starfsmannaráðningar hjá hinu opinbera. I»ar er ríkisstofnunum og
ráðuneytum gert að skyldu að láta fylgja launagögnum nýrráðinna ríkis-
starfsmanna til launadeildar fjármálaráðuneytis staðfestar yfirlýsingar þess
efnis að gengið hafi verið úr skugga um að fé til greiðslu launa viðkomandi
starfsmanns sé fyrir hendi á fjárlögum ársins.
Höskuldur Jónsson, ráðuneytis-
stjóri fjármálaráðuneytisins,
sagði í viðtali við blaðamann Mbl.
í gær, að hann hefði þegar orðið
var við, eftir að bréfin voru send
út, að betur væri fylgst með stöðu
mála af hálfu forstöðumanna
þeirra stofnana sem heyrðu undir
fjármálaráðuneytið. Hann kvaðst
ekkert geta sagt um beinan fjár-
hagslegan ávinning á þessu stigi,
en ákvörðun hefði verið tekin með
það í huga og væri hún byggð á
heimildum í fjárlögum. Höskuldur
sagði að samkvæmt fjárlögum
þessa árs væri gert ráð fyrir að
dregið yrði saman í launagreiðsl-
um á föstu verðlagi um 2,5%.
Þá sagði Höskuldur að þrátt
fyrir þá staðreynd, að eftir- og
næturvinna hjá hinu opinbera
hefði oft eytt upp fjárlagafénu og
því ekki verið mögulegt að ráða
menn til sumarafleysinga eða til
ákveðinna verkefna, þá væri oft
ódýrara að greiða eftir- og næt-
urvinnu en ráða viðbótarstarfs-
menn. Því fylgdi ýmiss aukakostn-
aður, svo sem launatengd gjöld,
veikindafrí og margskonar leyfi
o.fl. Þá væri í mörgum tilvikum
ódýrara að hafa vant fólk í vinnu.
Hann sagði því skilin á miili yfir-
og eftirvinnu og nýráðninga vera
óljós og yrði að líta á launagreiðsl-
ur opinberra starfsmanna í heild
út frá þessu sjónarmiði.
Mikill áhugi fyrir tónleikum Mezzoforte í Kaupmannahöfn:
Allir miðar seldust
upp á tveim tímum
Svo mikil ásókn var í miða á tónleika með Mezzoforte, sem fram eiga að
fara í hinu virta Jazzhus Montmartre í Kaupmannahöfn í síðari hluta apríl-
mánaðar, að þeir seldust upp tæpum tveimur klukkustundum eftir að forsala
hófst. Hafa aðrir tónleikar verið ákveðnir í Montmartre til þess að fullnægja
eftirspurn eftir miöum.
Tónleikarnir í Kaupmannahöfn
eru liður í tónleikaferð Mezzoforte
um Norðurlöndin, sem hefjast á
þann 15. apríl. Hefst sú ferð að-
Skákmótið Neskaupstað:
Helgi efstur
með 3V4 vinning
HELGI Ólafsson heldur forustunni á
alþjóðalega skákmótinu í Neskaup-
stað. Hann sigraði Milorad Knezevic f
gærkvöldi og er því efstur með 3Vt
vinning.
Af öðrum úrslitum í gærkvöldi er
þetta að segja: Margeir vann Róbert
Harðarson, Harry Zchussler vann
Dan Hansson. Jóhann Hjartarson og
Tom Wedberg gerðu jafntefli, skák
Lombardys og McCambridge fór í
bið en skák Guðmundur Sigurjóns-
sonar og Benónýs Benediktssonar
var frestað.
Staðan er því sú, að Helgi heldur
forustunni með 3'k vinning. í 2.-3.
sæti eru Margeir og Zchussler með 3
vinninga hvor. Næsta umferð verður
í dag, laugardag, og hefst hún kl.
13.30.
eins rúmri viku eftir að yfirreið
hljómsveitarinnar um Þýskaland
lýkur. Tónleikaferðin um Þýska-
land stendur nú sem hæst. Hún
hófst 17. mars. Svipaða sögu er að
segja þaðan. Þar seldust miðarnir
á flesta tónleikana upp löngu
fyrirfram.
Tónleikaferðir Mezzoforte um
Þýskaland og Norðurlöndin fylgja
í kjölfar styttri yfirferðar hljóm-
sveitarinnar fyrr á þessu ári.
Snemma í febrúar hélt Mezzoforte
ferna tónleika í Japan og ferðaðist
síðan um Bretland.
Morgunblaöiö/ KÖE.
Einn slasaðra „farþega" Fokker-vélarinnar lítur bænaraugum á lögreglumanninn, þar sem björgunarmenn bera
hann frá vélinni.
Hafþór Jónsson hjá Almannavörnum ríkisins;
Ánægöir með hvern-
ig æfingin tókst“
„A HEILDINA litið erum við
ánægðir með hvernig æfingin
tókst,“ sagði Hafþór Jónsson, full-
trúi hjá Almannavörnum ríkisins,
er blm. Mbl. ræddi við hann í gær
um stórslysaæfinguna, sem svið-
sett var á Reykjavíkurflugvelli á
fimmtudagskvöld. „Við höfum enn
ekki rætt æfinguna í smáatriðum,
en þeir aðilar, sem tóku þátt í
henni, munu bera saman bækur
sínar eftir helgina."
Eins og skýrt var frá í Mbl. í
gær, var það slys sviðsett, að
árekstur hefði orðið á milli
Fokker-flugvélar í innanlands-
flugi með 54 farþega innanborðs,
og iítillar einkaflugvélar með
þrjá farþega innanborðs, rétt áð-
ur en Fokkerinn átti að lenda.
Brotlenti Fokker-vélin á braut-
arenda við Öskjuhlíðina, en litla
vélin þeyttist við höggið út í
Skerjafjörð.
Æfingin á fimmtudagskvöld
var víðtæk og tóku björgunar-
sveitir Slysavarnafélagsins,
Hjálparsveitar skáta og Flug-
björgunarsveitarinnar þátt í
henni, auk lögreglu, slökkviliðs
Reykjavíkurflugvallar og bogar-
innar. Björgunaraðgerðir voru
skipulagðar í samvinnu við Al-
mannavarnir ríkisins, Almanna-
varnanefnd Reykjavíkur og flug-
umferðarstjórn. Þá tóku sjúkra-
hús borgarinnar þátt í æfing-
unni með því að senda grein-
ingarflokka, og einhver þeirra
tóku „slasaða" farþega inn til
meðferðar.
„Reynslan hefur sýnt,“ sagði
Hafþór, „að þótt eitthvert smá-
atriði kunni að hafa farið úr-
skeiðis á æfingunum og virst við
fyrstu sýn hafa skipt litlu, gæti
það hafa verið afdrifaríkt. Hvort
eitthvað slíkt kemur í ljós núna
verður ekki ljóst fyrr en menn
hafa borið saman bækur sínar.
Æfingin á fimmtudag var nokk-
uð erfið og fjölþætt, því björgun-
araðgerðir stóðu í raun yfir á
nokkrum svæðum í einu.“
Aðspurður hvort erlend þota,
sem lenti á Reykjavíkurflugvelii
rétt í þann mund er æfingin átti
að hefjast, hefði sett æfinguna
úr skorðum, svaraði Hafþór því
til að svo hefði ekki verið.
„Æfingin átti að hefjast kl.
22.03, en seinkaði um 12 mínútur
vegna þessa. Gekk að öðru leyti
fyrir sig samkvæmt áætlun."
Tillögur bankamálanefndar:
Seðlabankinn greiði 50%
af hreinum arði í ríkissjóð
Bókagerð-
armenn
semja
Bókagerðarmenn og Félag
prentiðnaóarins undirrituðu
samninga í hádeginu í gær eftir
næstum sólarhringslangan fund
hjá ríkissáttasemjara með fyrir-
vara um samþykki félagsfunda.
Samningurinn felur í sér
tveggja launaflokka hækkun
eftir 15 ára starf, ákvæði um
lægri lágmarkslaun til handa
16—18 ára fólki er ekki í samn-
ingnum oggildir samningurinn
frá 10. mars. Að öðru leyti
byggir samningurinn á samn-
ingi ASÍ og VSI.
Trúnaðarmannaráðsfundur
hefur verið boðaður kl. 12.30 í
dag og félagsfundur verður að
honum loknum kl. 14.00 á Hót-
ei Borg, þar sem greidd verða
atkvæði um samninginn.
Samráð viðskiptabanka um ákvörðun vaxta bannað
Bankamálanefnd hefur nú lagt til
að Seðlabankinn greiði því sem næst
50% af hreinum arði til ríkissjóðs, en
það hefur ekki tíðkast hingað til.
Ennfremur leggur nefndin til, að
ákvörðun um inn- og útlánsvexti
verði færð úr höndum Seðlabankans
og í hendur viðskiptabankanna
sjálfra. Jafnframt verði samráð
viðskiptabankanna um ákvörðun
vaxta bannað. Gert verði ráð fyrir að
Seðlabankinn ákveði vexti af við-
skiptum sínum við banka og há-
marksvaxtatímabil inn- og útlána.
Bankamálanefnd hefur nú
starfað í rúmlega tvö og hálft ár
og á föstudag bárust viðskipta-
ráðuneyíinu tillögur hennar til
breytinga á lögum um Seðlabanka
íslands og lögum um einstaka
viðskiptabanka. Auk áðurgreindra
tillagna eru þessar helstar:
Bankaeftirlitið verði fært undn-
an bankastjórum Seðlabankans og
heyri framvegis beint undir
bankaráð og viðskiptaráðherra.
Æviráðning bankastjóra Seðla-
bankans og ríkisviðskiptabanka
verði afnumin. Heimild banka-
stjóra til að gegna öðrum störfum
verði þrengd mjög verulega.
Heimilt verði að setja á stofn
hér á landi umboðsskrifstofur
fyrir erlenda banka að fengnu
leyfi ráðherra.
Heimilt verði að stofna hlutafé-
lagsbanka með 100 milljóna króna
lágmarkshlutafé, sem sé allt inn-
borgað við upphaf starfsemi.
Hluthafar skulu eigi vera færri en
50 og má enginn þeirra fara með
meira en 1/5 hluta atkvæða í fé-
laginu. Engar hömlur má setja á
meðferð hlutabréfa. Starfandi
hlutafélagsbankar skulu aðlaga
sig þessum skilyrðum innan
þriggja ára.
Viðskipti Seðlabankans við pen-
ingastofnanir verði takmarkaðri
en verið hefur og Seðlabankanum
einungis heimilt að endurkaupa
afurðalán af viðskiptabönkunum,
en ekki skylt eins og verið hefur.
Er það í samræmi við það sem
segir um endurkaup afurðalána í
stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar-
innar.
Lögum um einstaka ríkisvið-
skiptabanka verði steypt saman í
einn lagabálk og starfsheimildir
þessara banka samræmdar eftir
því sem unnt er.
Sett verði ákvæði um lágmarks
eigið fé viðskiptabanka, en þau
ákvæði skortir í gildandi löggjöf.
Jafnframt verði óheimilt að þær
fasteignir, er viðskiptabanki notar
til starfsemi sinnar, nemi að verð-
mæti meira en 65% af eigin fé
banka. Með þessu telur nefndin að
unnt sé að stemma að nokkru leyti
stigu við fjölgun bankaútibúa.
Auk þessara tillagna hefur
bankamálanefnd lagt til að ráð-
herra hefði nú forgöngu um
tæknilega útfærslu á sameiningu
og fækkun ríkisviðskiptabanka.
Tekið skal fram, að einstakir
nefndarmenn áskilja sér rétt til að
skila séráliti. Tillögur þessar
munu nú teknar til meðferðar og
athugunar hjá viðskiptaráðuneyt-
inu og samin frumvörp á grund-
velli tillagna nefndarinnar.
Stjórnarráðið:
Tilfærslur í hæstu stöðum
NOKKRAR tilfærslur hafa nýlega
átt sér stað í æðstu embættum
tveggja ráðuncyta, fjármálaráðu-
neytisins og sjávarútvegsráðuneyt-
isins, skv. upplýsingum Mbl.
Þorsteinn Geirsson, skrif-
stofustjóri fjármálaráðuneytis-
ins, tók við stöðu ráðuneytis-
stjóra í sjávarútvegsráðuneytinu
1. mars sl„ en Jón L. Arnalds,
ráðuneytisstjóri, fer í liðlega
eins árs leyfi 1. maí nk. Verður
Jón áfram í ráðuneytinu næstu
vikur á meðan Þorsteinn tileink-
ar sér starfið.
Við starfi Þorsteins í fjár-
málaráðuneytinu hefur tekið
Árni Kolbeinsson, deildarstjóri
tekjudeildar ráðuneytisins.
Gegnir hann báðum störfunum
sem stendur en ekki mun end-
anlega afráðið hver tekur við
starfi hans í tekjudeildinni. Til-
færslur þessar eru tímabundnar
og er gert ráð fyrir, að menn taki
við fyrri störfum sínum á miðju
næsta ári.