Morgunblaðið - 24.03.1984, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 24.03.1984, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. MARZ 1984 31 Guðmundur Þórar- insson — sextugur Einhver ósérhlífnasti og óeigin- gjarnasti maður sem ég hef kynnst um dagana, Guðmundur Þórarinsson þjálfari og íþrótta- frömuður með meiru, er sextugur í dag. Ymsum kann að finnast það hár aldur, en Guðmundur er sem betur fer yngri í anda en flestir jafnaldrar hans, enda lífsglaður maður og jafnan hrókur alls fagn- aðar í vina hópi. Guðmundur hefur í tæpa fjóra áratugi helgað íþróttum tóm- stundir sínar, og ef gera ætti upp þá verðmætasköpun í þágu þjóð- arinnar, sem hann hefur beint og óbeint stuðlað að á þeim tíma með liðsinni við æskufólk, yrðu vand- fundnar þær mælistikur sem dygðu til slíkrar úttektar. Og þrátt fyrir að árin séu farin að færast yfir lætur Guðmundur engan bilbug á sér finna, heldur sýnir nýliðum þeim sem á æfingar mæta alltaf sama brennandi áhugann. Og það kunna ungmenn- in að meta og búa að síðar meir. Guðmundur tekur þeim jafnan föðurlega og er það meira virði að ungviðið þroskist og dafni og verði að nýtum þegnum en miklum af- reksmönnum. Ekki má skilja þetta svo að Guðmundur ráðleggi gegn ströngum æfingum og afreksund- irbúningi, síður en svo, aðeins áherzlurnar eru aðrar, mannkost- irnir varða hann meiru en glæstir sigrar, sem jafnan vilja falla fljótt í gleymsku. Guðmundur kom til starfa hjá ÍR upp úr 1950, og hefur frá upp- hafi haft einna mestan áhuga fyrir ungviðinu sem kemur til fé- lagsins. Líklega hefur hann orðið fyrir áhrifum af verkum frum- kvöðlanna, Andreas J. Bertelsen, Benedikts G. Waage, Haraldar Jo- hannessen, Helga frá Brennu og ýmissa fleiri, sem jafnan störfuðu með heill æskunnar að leiðarljósi og voru öllum stundum vakandi yfir velferð félagsins. Voru þessir menn orðlagðir fyrir drifkraft sinn og fórnfýsi, en með starfi sínu hefur Guðmundur einnig unnið slíkt stórvirki að seint fellur í gleymsku. Auk þess sem Guðmundur hefur unnið ómetanlegt starf hjá ÍR, hefur hann aldrei legið á liði sínu þegar utanfélagsmenn hafa leitað eftir tilsögn hans. Hefur hann sýnt þann félagslega þroska að krefjast þess aldrei að viðkomandi gengju í raðir ÍR-inga. Jafnframt hefur hann reynst betri en enginn þegar úrvalshópar eða landslið hafa verið send til keppni í útlönd- um. Hin síðari ár hefur Guðmund- llr Dúfnaveislunni „Helgarpakkar“ í Borgarnesi: Dúfnaveislan í „Nýlagaðri borg- fírskri blöndu44 Horgarnesi, 21. mars. LEIKDEILD UMFN Skallagríms hefur sýnt skemmtunarleikinn Dúfnaveisl- una eftir Halldór Laxness 9 sinnum við góða aðsókn og hafa viðtökur áhorfenda sjaldan verið betri að sögn Theódórs Þórðarsonar formanns leikdeildarinnar. í samvinnu við Hótel Borgarnes og fleiri aðila býður leik- deildin höfuðborgarbúum nú upp á „helgarpakka" í Borgarnesi sem nefndur hefur verið „Nýlöguð borgfirsk blanda". Blandan inniheldur ferðir upp í Borgarnes á laugardögum, mat og gistingu á Hótel Borgarnesi, Dúfnaveislu í samkomuhúsinu og dansleik á Hótelinu. Síðan er farið til baka síðdegis á sunnudegi. Áhugi hefur verið fyrir því hjá ýmsum klúbbum og starfsmanna- félögum að bregða sér saman í slíka menningar- og skemmtiferð upp í Borgarnes að sögn Theódórs en það er Ferðaskrifstofa ríkisins sem annast sölu á þessum ferðum. Theódór sagði að sýningum færi nú að fækka en áformað væri að sýna verkið út marsmánuð. Bætti Theódór því við að uppfærsla þessi væri sú metnaðarfyllsta hjá leik- deildinni til þessa. - HBj. Brenglun í grein Hardar Bergmann f grein Harðar Bergmann um höfundarrétt og ljósritun, sem birtist hér í blaðinu í gær, féll hluti málsgreina brott á tveimur stöðum. Umræddar málsgreinar eru svona í heild sinni ásamt næstu málsgrein á undan: „Ný lagaákvæði og samningar, sem gerðir hafa verið til að koma í veg fyrir hömlulausan hugverka- þjófnað, hafa' jafnan dugað illa hér á landi. Mikið skortir hér á að virðing manna fyrir höfundarrétti vtrði jafn-rík og virðingin fyrir öðr- um tegundum eignarréttar." „Með tilkomu ljósritunarvéla í flestum skólum varð mikil um- breyting á stöðu og möguleikum útgefenda og höfunda þeirra verka sem einkum er seilst til á þessum vettvangi. Stórlega dró úr sölu á ýmsum kennslugögnum sem notuð eru í 9. bekk og framhaldsskólum, einkum verkefna- og æfingabókum og ýmiss konar textasöfnum fyrir móðurmáls- og málakennslu." ur einnig gengið til liðs við lyft- ingamenn og reynst þeim drjúgur í starfi. Það er því stór hópur manna sem stendur í þakkarskuld við Guðmund Þórarinsson á þess- um tímamótum. Og það er einmitt þess vegna sem ég drep niður penna að þessu sinni, til að auðsýna þakklæti fyrir góða viðkynningu og þann óbilandi áhuga sem hann hefur sýnt okkur íþróttamönnunum alla tíð. Ég veit að ég mæli fyrir munn margra félaga minna er ég læt þá ósk í ljós að Guðmundur eigi enn eftir að veita íþróttahreyfingunni af kröftum sínum, af þeim óbil- andi áhuga sem alla tíð hefur ein- kennt hans starf. Lifðu heill, góði vin._ Agúst Asgeirsson Kvedja frá frjáls- íþróttadeild ÍK Guðmundur Þórarinsson þjálf- ari frjálsíþróttamanna ÍR í rúm 30 ár er sextugur í dag. Guðmund- ur kom til starfa hjá ÍR 1952 og hefur alla tíð síðan starfað hjá fé- laginu af miklum krafti. Ilefur hann unnið ómetanlegt starf, sem seint verður fullþakkað. Auk þess að vera þjálfari keppnismanna var Guðmundur og um skeið einn helsti leiðtogi deild- arinnar, og enn i dag tekur hann virkan þátt í félagsstarfinu, þann- ig að hann hefur brúað bilið milli nýrra kynslóða í íþróttastarfinu. Guðmundur er enn mikilvirkur í starfi frjálsíþróttadeildarinnar, og er það ósk stjórnar deildarinn- ar, að ÍR-ingar eigi eftir að njóta krafta hans áfram um ókomna framtíð. Á þessari stundu vill stjórn frjálsíþróttadeildarinnar koma á framfæri sérstöku þakklæti til Guðmundar fyrir hans fórnfúsa starf í þágu þúsunda æskumanna og kvenna innan vébanda félags- ins frá 1952. SUMIR VERSLA DÝRT - AÐRIR VERSLA HJÁ OKKUR Bestu verðin! Nýslátrað svínakjöt: Víkingasteik Bógur l HDuin i orninn ^ I95.00 129<!g Ekta Sunnudagssteik! Kótilettur Kynff 220-SS r , Unghænur 'J'^nýreykt /TC.00 Foldala J Svínalæri -|48^ 14^.00 Beinlausbiti. Kjúklingar F8889S125S Opið til kl.4 AUSTURSTRÆT117 STARMÝRI 2

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.