Morgunblaðið - 24.03.1984, Síða 34
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. MARZ 1984
34
Minning:
Jóna E. Jóhannes-
dóttir frá Horni
Fædd 1. september 1892
Dáin 15. mars 1984
Lit ég liðin árin
langa farna braut.
Gleði, sorg og sárin,
sigur, tap og þraut.
Brosir myndin bjarta,
besta drottins gjöf,
móðurhönd og hjarta,
helgar líf og gröf.
(M.M.: Til móður minnar)
Þann 15. mars sl. lést í Sjúkra-
húsi ísafjarðar tengdamóðir mín,
Jóna, eftir erfiða sjúkdómslegu.
Er ég lít yfir þau liðnu ár sem
ég hefi átt því láni að fagna, að
þekkja og eiga samvistir við þessa
elskulegu konu, koma ótal minn-
ingar upp í hugann.
Frá því ég, sem ung stúlka,
tengdist fjölskyldu hennar, hefur
mér þótt vænt um hana sem hún
væri mín eigin móðir, enda hefur
hún reynst mér þannig alla tíð.
Ég minnist hve gott var að
koma í Krókinn til Jónu og Stígs
fyrstu árin eftir að við Arnór gift-
um okkur og hve elstu börnin, sem
báru nöfn þeirra beggja, nutu þess
að vera hjá afa og ömmu, sem allt-
af voru jafn mild og hlý. Á heimili
þeirra ríkti góðvild og glaðværð,
sem alltaf fylgdi þeim hjónum
hvar sem þau komu.
Oft var mannmargt í Króknum,
því mörg voru bðrnin sem sóttu til
þeirra og mörg töluðu um Jónu
ömmu, þó þau væru ekkert skyld.
Sum þeirra hafa alla tíð haldið
tryggð við hana síðan. Sýnir það
best persónuleika Jónu, hve hún
laðaði börn að sér og vakti með
þeim virðingu og ást, sem ávallt
hélst.
—lengdafaðir minn lést 8. sept-
ember 1954, þá aðeins rúmlega
sextugur, og harmaði Jóna hann
mikið eins og við öll.
Eftir lát hans bjó hún með
börnum sínum, Helgu og Stíg, að
Hnífsdalsvegi 10, eða Króknum
eins og það er kallað, eða þar til
hún flutti með syni sínum, Stíg, að
Hlíðarvegi 32. Er Stígur giftist,
var hún áfram á heimili hans og
Halldóru þar til hún fór á Sjúkra-
hús ísafjarðar, þar sem hún var að
mestu leyti síðan.
Ég man vel hve ég var kvíðin
fyrir því að okkur mundi nú ekki
semja eins vel er við værum í svo
nánu sambýli. En sá kvíði reyndist
ástæðulaus, og hefi ég oft þakkað
guði fyrir að hafa átt þess kost að
njóta samvista við hana öll þessi
ár, án þess að nokkurn tíma bæri
skugga á okkar kynni. Verður
aldrei fullþökkuð sú ást og um-
hyggja sem hún sýndi okkur, og
ekki síst börnunum, sem voru svo
gæfusöm að hafa ömmu svo ná-
lægt sér. Hún hafði alltaf nógan
tíma til þess að sinna þeim og
taldi ekki eftir sér sporin niður
stóran stiga, þegar hún heyrði
barnsrödd kalla á ömmu, eða
löngu, eins og langömmubörnin
kölluðu hana. Þá var farið í
svuntuvasann og vissu þau alltaf
hvað þar var geymt. Ef vantaði
plástur, var hann alltaf betri hjá
Jónu ömmu.
Enn koma minningar; börnin
okkar biðu alltaf í ofvæni eftir því
að heyra hreyfingu á efri hæðinni,
svo þau gætu farið að bjóða góðan
dag. Ég man einn morgun, er ég
hafði bannað litlu orðhvötu stúlk-
unni minni að fara of snemma
upp, að hún sagði: „Hún amma
mín er víst farin að skrölta" og
hve Jóna hló dátt, þegar henni var
sagt frá þessu, enda hafði hún ríkt
skopskyn. Er. stundum komu erf-
iðar stundir. Lát tveggja barna-
barna sinna tók Jóna mjög nærri
sér, hafði hana dreymt fyrir láti
þeirra, og sýnir það hið nána sam-
band hennar við þau. Okkur í þeim
fjölskyldum seip um sárt áttu að
binda, reyndist hún stoð og stytta
og var það mikill styrkur fyrir
okkur öll.
Jóna var fædd að Dynjanda í
Grunnavíkurhreppi 1. september
1892. Hún var dóttir hjónanna
Guðríðar Helgadóttur og Jóhann-
esar Ámundasonar, sem þar voru í
húsmennsku. Bróðir Jónu, Guð-
mundur, og hálfsystir, María að
nafni, eru nú bæði látin.
Jóna bjó með móður sinni, þar
til hún fór til Ragnheiðar Jóns-
dóttur og Guðbjarts Kristjánsson-
ar á Höfðaströnd í Grunnavíkur-
hreppi og ólst upp hjá þeim þar til
hún fór að Horni 19 ára gömul.
Þar kynntist hún manni sínum,
Stíg Haraldssyni, og hófu þau
búskap þar. Þá tóku þau til sín
móður Jónu, Guðríði, og bjó hún á
heimili þeirra til dauðadags.
Jóna og Stígur eignuðust 10
börn. Eitt barnanna misstu þau
nýfætt, en dóttir þeirra, Guðný, dó
8. mars 1972, aðeins rúmlega fer-
tug. Hún var gift Benedikt Dav-
íðssyni og áttu þau fjögur börn.
Börn Jónu og Stígs eru: Harald-
ur, sem giftur var Elínu Guð-
mundsdóttur, sem nú er látin, áttu
þau tvær dætur. Hann býr með
Bjarnveigu Jakobsdóttur, búa þau
í Kópavogi. Bergmundur, giftur
Jónu Guðmundsdóttur, þau eru
búsett á Akranesi. Eiga þau tvö
börn. Sigrún, gift Herði Davíðs-
syni, þau eiga þrjár dætur og búa í
Kópavogi. Arnór, giftur Málfríði
Halldórsdóttur, búsett á ísafirði.
Þau eiga þrjú börn. Rebekka, gift
Sturlu Halldórssyni, þau eiga
fimm börn og búa á ísafirði.
Helga, gift Ragúel Hagalínssyni,
búa á ísafirði og eiga fjögur börn.
Anna, býr í Reykjavík, hún á eina
dóttir. Stígur, giftur Halldóru
Daníelsdóttur, þau búa á ísafirði.
Á heimili Jónu og Stígs dvöldu
oft börn um lengri eða skemmri
tíma og var þeim sýnd sama ástúð
og eigin börnum
Það er augljóst að margt hefur
hvílt á herðum húsmóðurinnar á
Horni með þetta stóra heimili.
Þau hjónin voru mjög gestrisin og
hjálpsöm, og dvaldi oft fjöldi
r
manns hjá þeim, sérstaklega á
vorin, yfir bjargtímann. Einnig
hef ég heyrt af einstæðingum, sem
alltaf áttu þar athvarf hvenær
sem þeir þurftu með. Ef einhver
veikindi eða erfiðleikar steðjuðu
að var Jóna sótt, sérstaklega ef
ekki náðist í lækni, sem þurfti að
sækja til Hesteyrar eða jafnvel til
Isafjarðar. Var Jónu alltaf trúað
fyrir meðölum og umbúðum, sem
hægt var að grípa til í neyð.
Hún var snyrtimenni svo af bar
og vel verki farin, ákveðin ef því
var að skipta, en umfram allt sú
sem hægt var að treysta.
Mikillar forsjálni varð að gæta í
öflun og geymslu matvæla fyrir
svo stórt heimili, því samgöngur
voru mjög strjálar, oft engin
skipsferð allan veturinn. Má nærri
geta, að ekki var sótt til annarra
sem til þurfti, urðu börnin því
snemma að taka til hendi. Þau
hafa sýnt það síðar, að sú leiðsögn
sem þau hlutu í foreldrahúsum
hefur reynstJ)eim gott veganesti á
lifsleiðinni. Á heimilinu var mikið
lesið, bæði ljóð og sagnir og öll
höfðu þau gaman af söng.
Síðustu árin sem barnakennsla
var á Horni, var skólinn til húsa
hjá þeim. Einnig voru þar oft aðr-
ar samkomur, svo sem framboðs-
fundir og messur.
Finnst okkur nú, er við komum í
Stígshúsið á Horni, ótrúlegt að
allur þessi fjöldi hafi dvalið í
þessu litla húsi sem enn er haldið
vel við, þó staðurinn sé kominn í
eyði. En ég segi eins og mætur
maður ritaði í gestabókina á
Horni, er hann var á ferð um
Hornstrandir: „í Stígshúsi ríkir
góður andi“ og má það með sanni
segja, að svo hafi verið og sé enn.
Jóna og Stígur fluttu til ísa-
fjarðar í september 1946, vegna
veikinda Stígs og fór þá Horn í
eyði, þar sem þau voru síðustu
ábúendur þar.
Tengdamóðir min var heilsu-
hraust mestan hluta ævi sinnar og
var vel ern, en fyrir rúmlega tveim
árum brotnaði hún á mjöðm og
varð að flytja hana til Reykjavík-
ur í aðgerð. Náði hún sér nokkuð
vel en varð þó að mestu að dvelja á
sjúkrahúsinu hér. í janúar sl. datt
hún og mjaðmarbrotnaði á ný og
var þá flutt aftur til Reykjavíkur í
aðgerð.
Mun mér alltaf verða minnis-
stætt hve dugmikil og kjarkgóð
þessi aldna kona var í bæði skipt-
in, bæði í flugvélinni og eins er
komið var á sjúkrahús. Á leiðinni
heim nú síðast reyndi hún að
glettast, þó líðanin væri ekki góð
eftir svona stóra aðgerð. Sú að-
gerð virtist takást vel, en Jónu
hrakaði upp frá því og lést eftir
erfitt sjúkdómsstríð þann 15.
mars sl. Þó söknuður okkar, sem
eftir lifum, sé mikill, erum við
þakklát fyrir að hún hefur nú
fengið þá hvíld sem hún þráði.
Jóna naut ástar og virðingar
barna sinna og ástvina allra til
hinstu stundar og munum við
ávallt minnast hennar með þakk-
látum huga. Guð blessi hana.
Börnum hennar og fjölskyldum
þeirra votta ég innilega samúð.
Hvíl, þín braut er búin,
burt með hryggð og tár.
Launað traust og trúin,
talið sérhvert ár.
Fögrum vinafundi,
friðarsunna skín.
Hlý að hinsta blundi,
helgast minning þín.
(M.M.: Til móður minnar.)
Málfríúur Halldórsdóttir,
ísafirði.
Minning:
Guðbergur Már
Reynisson
Fæddur 1. september 1961.
Dáinn 17. mars 1984.
Á björtum vetrardegi, með
hækkandi sól á lofti og fólk farið
að búa sig undir vorkomuna, og
allt virtist leika í lyndi, var eins og
allt í einu yrði myrkur um stund
og tíminn stæði í stað, þegar sú
harmafregn barst um okkar litla
byggðarlag að Guðbergur væri
látinn. Maður hugsaði ósjálfrátt:
Þetta getur ekki verið. Þó var
þetta staðreynd sem ekki verður
breytt. Hann hefur verið tekinn
frá okkur alltof snemma. Það er
erfitt að sætta sig við slíkt, þegar
ungir drengir í bióma lífsins eru
teknir burtu, svona allt í einu og
fyrirvaralaust. Það er átakanlegt
að sjá á bak jafn dugmiklum og
góðum dreng og Guðbergi svo
snemma á lífsleiðinni.
Þegar maður stendur frammi
fyrir því að samband við vin og
samferðamann er á enda, leita
minningarnar á hugann ein af
annarri, og verður mér þá hugsað
til okkar- fyrstu kynna, þegar ég
kenndi honum í skóla. Þó hann
væri stundum svolítið baldinn á
sínum yngri árum, gat ég alltaf
komist að samkomulagi við Guð-
berg og hef ég ævinlega metið það.
Það var alltaf Ijóst í mínum huga
að hann var vel greindur, og átti
auðvelt með nám, enda ræddi
hann það við mig nú seinni árin að
halda áfram í skóla og ná sér í
einhver starfsréttindi, til þess að
búa sig betur undir lífsbaráttuna.
Okkar kynni héldu svo áfram eftir
að skóla lauk, er við vorum saman
til sjós eina loðnuvertíð, og dáðist
ég þá oft aö því hve harðskeyttur
og ósérhlífinn hann var til vinnu,
og snöggur að átta sig á hlutunum.
Það kom oft fram er við Guð-
bergur ræddum málin að hann var
raunsær maður í skoðunum og
fyrirleit allt fals og hræsni. Hann
vænti þess jafnan að fólk kæmi til
dyranna eins og það var klætt.
Hann hafði ákveðnar skoðanir og
sagði þær umbúðalaust, hvort sem
mönnum líkaði það betur eða verr.
Hann var vinur vina sinna, þó
hann bæri ekkí tilfinningar sínar
á torg, þá var hann alltaf mið-
punkturinri í vinahópnum.
Það var ekki ósjaldan að Guð-
bergur gladdi hug og hjörtu þeirra
Reyðfirðinga er lögðu leið sína á
völlinn, þegar voru knattspyrnu-
leikir, þar var hann oft og einatt
besti maðurinn. Guðbergur skilur
eftir sig mikio skarð, hjá fjöl-
skyldu, vinum og í okkar litla
samfélagi sem ekki verður fyllt,
og söknuðuriníi er mikill, en samt
skulum vió lfta björtum augum til
framtíðarinnar. Ég hefði ekki trú-
að því er ég átti tal við Guðberg
vin minn þessa örlagaríku nótt, að
ég ætti aldrei eftir að sjá hann
framar, og að þetta væri hinsta
kveðja er við kvöddumst þá.
Að lokum viljum við hjónin
votta foreldrum, þeim Guðríði og
Birni, og systkinunum Skúla, Guð-
björgu og Þórdísi, og öðrum ást-
vinum og vandamönnum samúð og
hluttekningu i þeirra þungu sorg,
og ljúka mínum fátæklegu orðum
með þessum ljóðlínum:
Er við missurr. okkar drengi,
öll með trega syrgjum þá.
En við grátum ekki lengi,
því öll við mætumst himnum á.
(„Kristur Konungur vor“)
Einar Baldursson.
Það getur ekki verið satt. Það
má ekki vera satt. Þetta voru mín-
ar fyrstu hugsanir, er ég frétti lát
vinar míns, Guðbergs Márs Reyn-
issonar, eða Guja, eins og hann
var alltaf kallaður. Hve örlögin
geta verið grimm og miskunnar-
laus. Loksins þegar farið er að
birta og hlýna, standa aðstand-
endur og vinir skyndilega í myrkri
og kulda við þessi hörmulegu tíð-
indi. Hvernig verður að koma
heim á komandi sumri og eiga
ekki von á að hitta Guja, kátan og
hressan? Að sjá hann ekki á fót-
boltavellinum í harðri baráttu, því
að Guji var alltaf með okkar
fremstu mönnum á vellinum. Veit
ég að það mun reynast okkur öll-
um erfitt. Því að það kemur eng-
inn í staðinn. Hver gæti bætt upp
kátínu hans og glettin tilsvör, er
hann hafði alltaf á hraðbergi? Við
gátum alltaf vitatr hvar Guji var,
ef verið var í margmenni. Við
þurftum ekki annaö en að leggja
við hlustir andartak, og ef við
heyrðum gjallandí hlátur, vissum
við að Guji var nálægt Hann var
sá maður sem gat komið öllum til
að hlæja. Oft fyrtist maður við til-
svör hans, en gleymdi þeim um
leið og hann byrjaði að hlæja.
Maður gat ekki annað en hlegið
með.
F?n á bak við hláturinn og al-
vöruleysi æskunnar voru góðar
gáfur og mikil hlýja. Það var fyrst
sumarið 1982 að ég kynntist vel
þessum eiginleikum Guja. Þá töl-
uðum við stundum um lífsins gát-
ur og lausnir mála, bæði lands og
þjóðar. Þó að oft væru skoðanir
okkar ólíkar, hafði ég alltaf gam-
an af þessum samtölum og vona
að það hafi verið gagnkvæmt.
I minningunni mun ég geyma
glettni hans og hlátur og veit ég
að hann mun enduróma í eyrum
allra vina hans.
Ég bið Guð að styrkja Gurru og
fjölskyldu hennar í þessari miklu
sorg. Með þessum fátæklegu og
einskis nýtu orðum kveð ég Guja
vin minn, og bið góðan Guð að
geyma hann.
Anna Árdís Helgadóttir.
Vaktu minn Jesú, vaktu í mér.
Vaka láttu mig eins í þér.
Sálin vaki, þá sofnar líf,
sé hún ætíð í þinni hlíf.
Laugardagsmorguninn 17. mars
rennur upp bjartur og stilltur,
samt virðist einhver órói vera í
þorpinu, bifreiðir þjóta fram og
aftur, og allir virðast eiga erindi
niður á höfnina. Það er greinilegt
á öllu að eitthvað hefur komið
fyrir, en það getur ekki verið neitt
alvarlegt, hugsar maður og reynir
að losna við óþægilegar grun-
semdir sem leita á mann.
Um hádegið er hringt og okkur
færðar þær fréttir að Guðbergur,
vinur minn og frændi, sé látinn.
Þessu var erfitt að trúa, það gat
ekki verið að þessi lífsglaði dreng-
ur væri horfinn okkur.
Fyrir rúmum tveimur árum
vann Guðbergur hjá mér sem
handlangari, hann var sérstaklega
duglegur verkmaður og ósérhlíf-
inn með afbrigðum, skapmikill var
hann en bjó yfir mikilli kimnigáfu
og var oft glatt á hjalla hjá okkur
í vinnunni. Þegar maður lætur
hugann reika til liðins tíma, sér
maður Guðberg fyrir sér skelli-
hlæjandi, að segja brandara um
leið og hann vinnur af fullum
krafti. Guðbergur lék knattspyrnu
með meistaraflokki Vals á Reyð-
arfiði og var þjálfari þeirra
sumarið 1982. Undir stjórn hans
það sumar fór liðið úr fjórðu deild
upp í þá þriðju. Hann var
skemmtilegur leikmaður, baráttu-
þrekið og leikgleðin lýstu af hon-
um og hann var óspar á að hvetja
félaga sína í leik eða skamma þá,
er honum þurfa þótti. Á keppnis-
ferðalögum var hann hrókur alls
fagnaðar, svo sem alls staðar þar
sem hann var. Skarð það, sem eft-
ir er, verður vandfyllt, en minn-
ingarnar um góðan og skemmti-
legan félaga verða varðveittar um
ókomin ár.
Við hjónin sendum aðstandend-
um Guðbergs okkar innilegustu
samúðarkveðjur, sérstaklega for-
eldrum hans, Guðríði og Birni, og
afa hans, Ingibergi. Megi góður
guð gefa þeim styrk og þor á þess-
um erfiðu tímum.
Bænin má aldrei bresta þig.
Búin er freisting ýmislig.
Þá líf og sál er lúð og þjáð,
lykill er hún að drottins náð.
Þorgrímur og Ásta