Morgunblaðið - 24.03.1984, Qupperneq 46

Morgunblaðið - 24.03.1984, Qupperneq 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. MARZ 1984 Titillinn í höfn mi T" •> • Liverpool sigraöi sem kunnugt er portúgalska liðiö Benfica 4:1 á útivelli á miðvikudag og komst þar meö í undanúrslitin. Ronnie Whelan skoraöi tvö mörk í leiknum — fyrsta og síðasta markiö. Hér hefur Whelan (lengst til vinstri) skallað knöttinn í mark Benfica. Örin bendir á knöttinn sem fór milli fóta markvaróarins. Staðan orðin 1:0. Morgunblaöiö/Símamynd AP Dregið í Evrópukeppninni í knattspyrnu: Bresk lið gætu mæst í úr- slitum keppnanna þriggja Genf, Manchtittr og DundM. Fré fréttamönnum AP. ENN er möguleiki á því að bresk lið mætist í úrslitaleikjum Evr- ópukeppninnar — keppni meist- araliða, keppni bikarhafa og UEFA-keppninni. Dregiö var í keppninni í gær í Genf í Sviss og þau sex bresku lið sem eftir eru — tvö í hverri keppni — lentu ekki saman. Drátturinn var sem hér segir — það lið sem talið er á undan á heimaleikinn fyrst: Evrópukeppni meistaralióa: Dundee Utd. — Roma Liverpool — Dynamo Bukarest Evrópukeppni bikarhafa: Manchester United — Juventus Porto — Aberdeen UEFA-keppnin: Nottingham Forest — Anderlecht Hajduk Split — Tottenham Fyrri leikir undanúrslitanna fara fram 11. apríl og þeir seinni 25. apríl. Úrslit UEFA-keppninnar verða svo 9. og 23. maí — heima og heiman aö vejnu, úrslitaleikur í keppni bikarhafa veröur 16. maí og í keppni meistaraliöa verður miövikudaginn 30. maí á Ólympíu- leikvanginum í Róm. Liverpool, sigursælasta breska liðiö í Evrópukeppninni fyrr og síð- ar, mætir rúmanska liöinu Dynamo Búkarest, en Rúmenarnir hafa staöið sig mjög vel í vetur. Liöiö sló Evrópumeistara Hamburger SV úr keppninni og í síöustu umferð sigraöi liöiö Dynamo Minsk frá Sovétríkjunum. En Liverpool burstaöi Benfica fá Portúgal á úti- velli i siöustu umferö og er til alls líklegt. Þetta verður örugglega skemmtileg viöureign. Roma mæt- ir Dundee United. „Þetta var mjög góöur dráttur fyrir okkur,“ sagöi Ricardo Viola, einn stjórnarmanna Roma, í gær. „Ég á von á því að Liverpool gangi vel gegn Búka- rest,“ sagöi hann. Forráöamenn Dundee sögöust einnig ánægöir. „Með þaö í huga aö úrslitaleikurinn fer fram á heimavelli AS Roma í Róm var þetta þaö besta sem gat gerst. Þaö er betra að mæta þeim heima og heiman en einungis á þeirra eigin heimavelli,“ sagöi hann. Ron Atkinson, framkvæmda- stjóri Man. Utd., sagöist „öruggur um sigur“ á Juventus eftir aö lið hans haföi slegiö Barcelona úr keppninni. „Ef þetta á að vera erf- itt fyrir okkur — er þetta alveg eins Meistarafagnaður liði IBK hjá Knattspyrnuráð Keflavíkur efn- ir til „meistarafagnaöar" í dag. Kallar saman alla þá leikmenn, sem hafa orðið íslandsmeistarar undir merki ÍBK. Það eru nú liðin 20 ár síðan Keflvíkingar tryggöu sér fyrst íslandsmeistaratitilinn í knattspyrnu — 1964, en alls hefur meistaratitillinn hafnað fjórum sinnum í Keflavík — 1964, 1969, 1971 og 1973. Þá urðu Keflvík- ingar bikarmeistarar 1975. „Meistarafagnaðurinn" er hald- inn í tilefni þess aö nú eru 20 ár síðan Högni Gunnlaugsson, fyrrum fyrirliöi Keflavíkurliösins, hampaöi Islandsbikarnum á Laugardalsvell- inum. Allir þeir leikmenn, sem hafa leikiö í meistaraliöum ÍBK, mæta til leiks i hófiö, sem veröur haldiö í Stapanum laugardagskvöldiö 24. mars. Sérstakir heiöursgestir verða þjálfararnir sem stjórnuöu Keflvíkingum til sigurs: Óli B. Jónsson (1964), Hólmbert Friö- jónsson (1969), Einar Helgason (1971) og þeir Jón Jóhannsson og Guöni Kjartansson (1975). Eng- lendingurinn Joe Hooley (1973) kemst ekki til landsins. í tilefni fagnaöarins hefur Knattspyrnuráö Keflavíkur gefiö út vandaö „Meistarablaö". í blaöinu er sagt frá meistaralíöunum og ýmsum sögulegum atburöum — í máli og myndum. Blaöiö er 80 blaösíöur og er þaö aöeins gefiö út í 2.000 eintökum. Leikmenn Kefla- víkurliösins, sem nú eru á förum til Englands, þar sem þeir veröa í æf- ingabúðum hjá Tottenham, munu ganga í hús i Keflavík og selja blaöíö. erfitt fyrir Juventus. Ég fann þaö á mér aö viö myndum lenda gegn þeim nú, einfaldlega vegna þess aö viö viröumst ekki geta dregist gegn auöveldum mótherjum í vet- ur,“ sagöi Atkinson. hjá Fram Þrátt fyrir aö heil umferö sé eft- ir í 1. deild kvenna í handbolta hefur Fram tryggt sér íslands- meistaratitilinn. Liðiö sigraöi KR 24:16 í vikunni og þar með komst titillinn í höfn. Leikur þessi átti að vera skömmu áður en landsliðið fór til Bandaríkjanna á dögunum — en var þá frestaö skyndilega án þess aö það væri tilkynnt, og nú í vikunni fór hann fram jafn skyndilega og honum var frestað áöur. Guöríöur Guöjónsdóttir og Sig- rún Blomsterberg skoruóu sex mörk hvor fyrir Fram, Guóríóur tvö úr víti, Oddný Sigsteinsdóttir geröi fimm, Hanna Leifsdóttir þrjú, Margrét Blöndal þrjú, og Kolbrún markmaöur geröi eitt úr vitakasti. Valdís Hallgrímsdóttir, Sigur- björg Sigþórsdóttir, Jóhanna Ás- mundsdóttir og Karolína Jónsdótt- ir geröu allar þrjú mörk fyrir KR — Karolína tvö úr vítum, Arna Garö- arsdóttir geröi tvö og Hjördís Ás- grímsdóttir og Bryndís Pétursdótt- ir eitt hvor. KR-stúlkurnar höföu yfir, 10:8, í leikhléi, en i siðari hálf- leik haföi Fram yfirburöi og sigraöi örugglega. Tveir aörir leikir fóru fram í vik- unni: ÍR sigraöi Fylki 32:20 og Val- ur lagöi ÍA 14:10. Staöan i 1. deild- inni fyrir síöustu umferöina er þannig: Fram FH ÍR Valur ÍA Víkingur KR Fylkir Spilaðir verða 200 leikir: 97 taka þátt í íslands- mótinu í borðtennis íslandsmótið í borötennis í flokkum fulloröinna verður haldið í Laugardalshöll 24. og 25. mars nk. Tímaseöillinn er þannig: Laugardagur 24. mars: kl. 12.50 Húsið opnað. kl. 14.00 Keppni hefst í tvíliöa- leik karla og tvíliðaleik kvenna. kl. 15.00 Einliðaleikur í 2. flokki karla. kl. 17.00 Tvenndarkeppni. Sunnudagur 25. mars: kl. 12.00 Húsið opnað. kl. 13.00 Keppni hefst í einliða- leik í 1. flokki kvenna og í meistaraflokki kvenna. Úrslit í flokkakeppni unglinga. kl. 16.30 Keppni hefst í einliða- leik í 1. flokki karla og í meistaraflokki karla. Skráöir keppendur eru 97 tals- ins frá 5 félögum í Reykjavík og 6 félögum og héraössamböndum utan af landi. Alls veröa leiknir yfir 200 leikir á mótinu, þannig aö borötennisunnendur ættu aö geta skemmt sér vel, enda veröa oft óvænt úrslit á íslandsmótum. Allir bestu borötennismenn landsins eru skráöir til keppni. I meistaraflokki karla er Islands- meistarinn Tómas Guöjónsson skráöur, en hann hefur aöeins tap- aö einu móti í vetur, sem hann hef- ur tekiö þátt í. Þó eru margir sem hafa áhuga á aö ná titlinum af Tómasi, svo sem Tómas Sölvason, • Það veröa spilaðir 200 leikir á borðtennismótinu um helgina. Allt besta borðtennisfólk landsins keppir þar. sem er punktahæstur, og Gunnar Finnbjörnsson, sem sigraöi í Vík- ingsmótinu um síöustu helgi, en þá tapaöi Tómas fyrir Stefáni Kon- ráössyni, sem vafalaust blandar sér í toppbaráttuna. í meistaraflokki kvenna munu þær líklega berjast í úrsiitum þær Ragnhildur Siguröardóttir og Ásta Urbancic, en þær hafa leikiö alla úrslitaleiki frá 1977 aö undan- skildu 1979, þegar Ásta var ekki meö. Ragnhildur hefur sigraö 5 sinnum á íslandsmóti en Ásta 4 sinnum. I tvíliöaleik karla ætla Tómas Guöjónsson og Hjálmtýr Haf- steinsson aö verja titil sinn, en þeir hafa sigraö 5 sinnum. Líklegt er aö helstu keppinautar þeirra veröi Gunnar Finnbjörnsson/ Tómas Sölvason, Hilmar Konráösson/ Kristján Jónasson, en þeir unnu þá Tómas og Hjálmtý í 1. deildinni um daginn. Einnig er líklegt aö Stefán Konráösson/ Friðrik Berndsen og Jóhannes Hauksson/ Kristinn Már Emilsson blandi sér í baráttuna. í tvíliöaleik kvenna er líklegt aö baráttan standi á milli islands- meistaranna í fyrra, Ragnhildar Siguröardóttur/ Kristínar Njáls- dóttur og meistaranna í hitteö- fyrra, Ástu Urbancic/ Hafdísar Ásgeirsdóttur. I tvenndarkeppni munu þau lík- lega berjast um titilinn þau Ásta Urbancic og Tómas Guöjónsson annars vegar, en þau hafa sigraö síöustu 3 ár, hins vegar eru Ragn- hildur Siguröardóttir og Hjálmtýr Hafsteinsson sem unnu næstu 2 ár þar á undan.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.