Morgunblaðið - 24.03.1984, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. MARZ 1984
Víkingssigur
VÍKINGAR sigruöu Stjörnuna í
fyrsta leik úrslitakeppni elri liöa
1. deildar í handbolta í gærkvöldi
í íþróttahúsi Seljaskóla 23:20.
Staöan i hálfleik var 14:12 fyrir
Víkinga.
Leikurirth var mjög jafn fyrstu
min. — eftir tíu mín. leik var staö-
an 4:4 en Víkingar komust svo yfir
7:5, síöan 9:6 og breyttu stööunni
svo í 14:7. Á þeim tíma gekk ekk-
ert upp hjá Stjörnunni, en hún
skein skært á ný þaö sem eftir var
hálfleiksins og minnkaöi muninn
niöur í 14:12 — skoraöi fimm siö-
ustu mörkin.
Hilmar Sigurgíslason, Víkingur,
fékk rautt spjald og fór af velli
snemma í seinni hálfleik — fékk þá
sína þriöju áminningu, en Víkingar
komust engu aö síöur i 16:12 og
haföi forystu eftir það. Stjörnunni
tókst aö minnka muninn niður í eitt1
mark á tímabili, 20:19, en eftir það
keyröu Víkingar aftur lengra fram
úr og tryggöu sér sigur.
Viggó Sigurösson var marka-
hæstur Víkinga ásamt Siguröi
Gunnarssyni meö 6 mörk, 1 gerði
hvor þeirra úr viti, Steinar Birgis-
son, sem lék sinn 100. leik fyrir
Víking, skoraði 5/1, Karl Þráinsson
3, Guðmundur B. Guömundsson 1,
Guömundur Guömundsson 1 og
Hilmar Sigurgíslason 1. Gunnar
Einarsson skoraöi 8/1 fyrir Stjörn-
una, Eyjólfur Bragason 7, Magnús
Teitsson 2, Guömundur Þórðarson
2 og Gunnlaugur Jónsson 1.
Úrslitakeppnin heldur áfram í
dag: kl. 14. leika FH og Stjarnan
og strax á eftir, kl. 15.15, Valur og
Víkingur. Á morgun leika svo Vík-
ingur—FH kl. 20 og Stjarnan—
Valur kl. 21.15. Allir leikirnir veröa
í íþróttahúsi Seljaskóla. —BJ/SH.
Svipmyndir frá úrslitaleik Vals og UMFN
• íslandsmeistarar Njarövíkur.
• Vonsviknir Valsmenn.
• Ha,
upp á 101 þúsundl
• Þjálfararnir Torfi og Gunnar í leikslok.
• Ekkert gefið eftir.
• Hreiöar og Kristján berjast.
• Barátta í algleymingi.
• Sigurdansinn stiginn.
• Einar afhendir Júlíusi bikarinn.
Gífurleg barátta
— er FH-ingar sigruðu Valsara
FH sigraöi Val í úrslitakeppn-
inni í handbolta 24:21 í gærkvöldi
í æsispennandi og vel leiknum
leik. Mjög mikil barátta einkenndí
leikinn.
Jafnt var á flest öllum tölum þar
til tíu min. voru til leiksloka — er
FH-ingar sigu fram úr. Þeir komust
þá í þriggja marka mun, 19:16, og
var þaö mesti munur i leiknum.
Hjá FH var Kristján Arason
bestur — skoraöi níu mörk þó aö
henn væri tekinn úr umferö allan
leikinn. Atli Hilmarsson var einnig
tekinn úr umferö allan tímann.
Hann skoraði samt sem áöur fimm
mörk. Einar Þorvarðarson var lang
bestur leikmanna Vals og Stefán
Halldórsson var einnig góöur. Þor-
björn Jensson og Jón Pétur Jóns-
son voru góöir framan af í sókninni
og Þorbjörn var einnig góöur í
vörn. Ólafur H. Jónsson lék meö
Val aö nýju eftir langa fjarveru og
stóö sig prýðilega í vörninni.
Mörkin. FH: Kristján Arason
9/2, Atli Hilmarsson 5, Hans Guö-
mundsson 5, Þorgils Óttar Mathie-
sen 2, Pálmi Jónsson 2 og Guö-
mundur Magnússon 1. Valur: Stef-
án Halldórsson 7/4, Jón Pétur
Jónsson 4/1, Þorbjörn Jensson 3,
i Ólafur H. Jónsson 2, Jakob Sig-
urösson 2, Þorbjörn Guðmunds-
son 1, Júlíus Jónsson 1 og Björn
Björnsson 1.
Þaö riölaöi leik FH-liðsins talsv-
er aö Atli og Kristján skyldu teknir
úr umferð — t.d. fékk Þorgils ekki
eina einustu sendingu inn á línuna
í leiknum.
— BJ/SH.
Þrjú jafntefli í
Vestur-Þýskalandi
Dússeldorf geröi 1:1 -jafnteflí í
gærkvöldi á heimavelli viö Uerd-
ingen í Bundesligunni. Theis
skoraði mark Dússeldorf í fyrri
hálfleik en Uerdingen jafnaðí í
seinni hálfleik. Tveir aðrir leikir
fóru fram í gærvköldi: Dort-
mund-Offenbach 0:0 og Werder
Bremen-Kaiserslautern 1:1.
Liverpool gegn Everton:
Bein útsending
frá Wembley
Á MORGUN veröur bein útsend-
ing frá Wembley-leikvanginum í
London er Liverpool og Everton
leika í úrslitum mjólkurbikarsins.
Sjónvarp hefst kl. 13.15 en beina
útsendingin hefst kl. 13.25. Það er
ávallt mikill viðburður þegar úr-
slitaleikir í bikarleikjum fara fram
á Wembley og mikil verður
stemmningin að þessu sinni
vegna þess aö þaö eru tvö lið frá
Liverpool sem mætast.
Þaö eru sjálfir risarnir í ensku
knattspyrnunni, Liverpool, og
nágrannar þeirra, Everton, sem
mætast í þessum úrslitaleik. Liv-
erpool hefur unniö þessa keppni
þrjú síöustu ár og stefnir nú aö
fjóröa sigri sínum. Everton hefur
hinsvegar ekki leikiö á Wembley
síöan 1977 en þá lék liðiö til úrslita
gegn Aston Villa í mjólkurbikarn-
um. Þá var keppni þessi kölluó
deildarbikarinn, en nafninu hefur
nú veriö breytt.
Framkvæmdastjóri Everton hef-
ur gert góölátlegt grín aö því aó
Liverpool leiki á morgun á heima-
velli. Og má segja aö þaö sé nokk-
ur sannleikur í því, svo oft hefur
Liverpool-liðiö leikiö á Wembley á
undanförnum árum.
Leikur lióanna á án efa eftir aö
veröa æsispennandi og tvísýnn og
sjálfsagt veröur barist af meiri
hörku fyrir þaö aö um nágrannaliö
er aö ræöa. Meö öllu er ógerlegt
aö spá um úrslit í svona leik.
Leikmenn Everton munu leggja allt
í sölurnar til þess aö stööva sigur-
göngu Liverpool í þessari keppni.
— ÞR.
Leikur Vals og UMFN
sýndur í sjónvarpinu
Urslitaleikur Vals og UMFN í ís-
landsmótinu í körfuknattleik
verður á dagskrá íþróttaþáttarins
í dag. Leikur liðanna var mjög
góður og æsispennandi allt fram
á síöustu sekúndur leiksins.
Körfuboltaáhugamenn fá því
gott efni i dag. Hér til hliöar má sjá
svipmyndir sem Friöþjófur Helga-
son Ijósmyndari Mbl. tók á leiknum
í fyrrakvöld. Njarövikingar voru vel
aö Islandsmeistaratitlinum komnir
í ár. Liöiö haföi misst tvo af sínum
sterkustu leikmönnum vegna
meiðsla áöur en lokakeppnin hófst
en þrátt fyrir þaö tókst UMFN aö
sigra. Viö óskum liöinu til ham-
ingju. — ÞR.
Sjá íþróttir á bls. 32
Fyrirtækjakeppni Fram
í innanhússknattspyrnu
veröur haldin laugardaginn
31. mars og sunnudaginn 1.
apríl.
Þátttökugjald krónur 1800.-.
Tilkynning um þátttöku skal
berast í síma 34792 milli kl.
13 og 15 alla virka daga, eigi
síöar en miövikudaginn 28.
mars.
Knattspyrnudeild Fram