Morgunblaðið - 07.04.1984, Blaðsíða 1
48 SÍÐUR OG LESBÓK
STOFNAÐ 1913
82. tbl. 71. árg._____________________________________LAUGARDAGUR 7. APRÍL 1984________________________________Prentsmiðja Morgunblaðsins
Undirbýr megin-
her Irana innrás?
Bagdari, 6. aprfl. Al’.
ÍRAKAR gerðu í dag að eigin
sögn miklar árásir á „gífur-
legan liðssafnað“ írana á
suðurvígstöðvunum og beittu
jafnt stórskotaliði sem
orrustuflugvélum. íraska
fréttastofan flutti þá frétt í
dag, aö háttsettur íranskur
erkiklerkur hefði flúið á náð-
ir Iraka.
f tilkynningum íraska her-
ráðsins kemur fram, að íranir
hafi safnað saman þremur
fjórðu alls síns hers syðst við
Valdarán í
Kamerún?
Abidjan, KílabeinNNtröndinni, 6. aprfl. AP.
HERMENN úr lífverði forsetans í Kamerún reyndu í dag að
ná völdunum í sínar hendur en talið er, að þeir hafi ekki haft
erindi sem erfiði. Fréttir eru þó enn mjög óljósar og sögöu
vestrænir sendimenn, að allnokkur skothríð hefði verið í dag
í höfuðborginni, Yaounde.
Flugvellirnir í Yaounde og
Doula, annarri helstu borg í
Kamerún, voru lokaðir og út-
varpssendingum var hætt á miðj-
um morgni en teknar upp aftur
undir kvöld. Paul Biya, forseti
landsins, sem kom til valda í nóv-
ember árið 1982, er sagður fjar-
Paul Biya, forseti Kamerún.
staddur en franska blaðið Le
Monde sagði í dag, að herinn, sem
er skipaður 8000 mönnum, væri
honum enn trúr.
Fyrir skömmu fóru fram rétt-
arhöld í Kamerún þar sem fyrr-
um forseti landsins, Ahmadou
Ahidjo, var fjarstaddur dæmdur
til lífláts fyrir samsæri gegn
stjórnvöldum en síðar var dómin-
um breytt í fangelsisdóm. Ahidjo,
sem var forseti landsins í 22 ár
eða þar til hann afhenti Biya
völdin í hendur, býr nú í Suður-
Frakklandi og vill ekkert um það
segja hvort hann átti hlut að
byltingartilrauninni.
Heimildir herma, að hluti for-
setalífvarðarins hafi gert upp-
reisn þegar skipað var svo fyrir,
að þeir lífvarðanna, sem væru frá
norðurhluta landsins, skyldu
settir í önnur störf. I Norður-
Kamerún eru flestir múhameðs-
trúar en kristnir þeir, sem í suð-
urhlutanum búa og er Biya for-
seti þaðan. Kamerúnbúar eru
tvítyngdir og tala frönsku auk
sinnar eigin tungu.
víglínuna og stefni að meiri-
háttar innrás í írak. Segjast fr-
akar hafa gert harða atlögu að
þessum liðssafnaði í dag með
áköfum loftárásum og stór-
skotahríð og unnið óvininum
óbætanlegt tjón. Að þeirra sögn
unnu íranir nokkurt tjón í borg-
inni Basra með fallbyssuskot-
hríð og hefðu fimm manns fall-
ið.
INA, hin opinbera fréttastofa
í írak, sagði í dag, að í gær hefði
Sayed Ali Tehrani, háttsettur
erkiklerkur í íran, flúið til íraks
og að „innan stundar" myndi
hann koma fram í sjónvarpinu í
Bagdad og greina þar frá
„hroðalegum grimmdarverkum
Khomeinis gegn íröskum borg-
ururn". Við þennan flótta vilja
íranir hins vegar ekkert kann-
ast.
i>að lá vel á geimforunum þegar þeir fóru um borð í Challenger, sem skömmu
seinna var komin heilu og höldnu á braut um jörðu. ]>ar eiga þeir að vinna
ýmis erfið verk, koma fyrir hnetti og gera við annan bilaðan. Fremstur á
myndinni er leiðangursstjórinn, Kobert Crippen, og er þetta hans þriðja
ferjuferð. ,\P.
Geimferjan Challenger komin á braut:
Reyna að gera við
bilaðan gervihnött
Kanaveralhöfóa, 6. apríl. AP.
GEIMFERJUNNI Challenger var skot-
ið á loft í dag og gekk allt að óskum
þegar síðast fréttist. Að þessu sinni
mun ferjan fara á fjarlægari braut en
fyrr, en meiri tíðindum sætir, að nú á í
fyrsta sinn að reyna að ná í og gera við
bilaðan gervihnött.
Fimm menn eru um borð í geim-
ferjunni og er leiðangursstjórinn,
Robert Crippen, í sinni þriðju ferð.
Farmurinn er sá mesti til þessa, veg-
ur rúmlega 11 tonn, og er þar aðal-
lega um að ræða gervihnött, sem
settur verður á braut. Með í ferðinni
eru einnig 3.300 býflugur og 13 millj-
ónir tómatplöntufræja. Leikur
mönnum forvitni á að vita hvaða
áhrif þyngdarleysið hefur á flugurn-
ar en fræin verða látin vera á braut
um jörðu og safnað aftur saman að
ári.
Mikilvægasta verkefnið verður að
ná tangarhaldi á gervihnetti, sem
notaður hefur verið við rannsóknir á
sólinni, en hann reikar ráðalaus um
himingeiminn eftir að stjórntækin
biluðu fyrir þremur árum. Mun einn
skipverjanna, George Nelson, yfir-
gefa skipið einn og óbundinn og
koma böndum á hnöttinn, sem síðan
verður dreginn um borð. Verður
Nelson með eldflaugar á bakinu, sem
knýja hann áfram. Á morgun verður
hnettinum komið fyrir á braut en
með honum á að gera 57 einstakar
vísindatilraunir. Eftir tíu mánuði
verður hnötturinn sóttur og fluttur
til jarðar.
Þetta er í ellefta sinn sem geim-
ferju er skotið á braut og fimmta
ferð Challenger. Lýkur ferðinni nk.
fimmtudag.
Finnland:
Læknaverkfall
llelsinki, 6. apríl. AP.
FJÓRTÁN hundruð sjúkrahús-
læknar í fjórum borgum í Finn-
Líbanon:
Gemayel vongóður
þrátt fyrir bardaga
Beirút, 6. aprfl AP.
BARDAGAR í Beirút voru í dag ákaf-
ari en þeir hafa verið síðustu tíu daga.
2.000 manna lögregluliði á vegum
stjórnarinnar hefur verið skipað að
stía sundur stríðsmönnunum og taka
sér stöðu á milli fylkinganna.
Þrátt fyrir átökin sagði í fréttum
útvarpsstöðva í Beirút, að Gemayel,
forseti, væri vongóður um að fyrir-
hugaðar viðræður hans við Assad,
Sýrlandsforseta, gætu stuðlað að
vopnahléi og myndun nýrrar stjórn-
ar í landinu. Yrði það verkefni
hennar að koma á þjóðarsátt og
pólitískum umbótum.
Síðustu tíu daga hefur verið bar-
ist látlaust við grænu Ifnuna svo-
kölluðu, sem skilur borgarhluta í
Beirút og hafa margir fallið og enn
fleiri særst. Hefur stjórnin skipað
2.000 manna lögregluliði að ganga á
milli og taka sér stöðu milli borg-
arhlutanna. Haft er eftir heimild-
um, að stjórnvöld hafi einnig í
hyggju að biðja Frakka um fleiri
eftirlitsmenn en 40 franskir her-
menn eru enn í Beirút til aðstoðar
við vopnahlésgæslu.
Amin Gemayel
landi hófu í gær fyrsta verkfall
sinnar tcgundar í landinu. I»eir
fara fram á að laun þeirra hækki
um 2.700 til 7.000 finnsk mörk
en það samsvarar um 13.500 til
35.000 ísl. kr.
Verkfallslæknarnir starfa á há-
skólasjúkrahúsum í Helsinki,
Turku, Tampere og Oulu. Ekki er
talið að hættuástand skapist við
verkfallið þar sem neyðarþjónustu
verður áfram sinnt. Miklar .tafir
verða hins vegar á almennri heil-
brigðisþjónustu á sjúkrahúsum og
heilsuverndarstöðvum.
Finnskir læknar telja sig hafa
dregist verulega aftur úr í launa-
breytingum undanfarinna ára og
þeir hafa gefið í skyn að fleiri
læknar, sem alls eru um tiu þús-
und í landinu, muni bætast í hóp
verkfallsmanna ef ekki verður
komið til móts við kröfur þeirra.