Morgunblaðið - 07.04.1984, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. APRÍL 1984
fclk í
fréttum
o
39
__________________i_________
Gömlu dansarnir í kvöld í
Tónabæ kl. 21.00. Tíglar
leika fyrir dansi.
Danssýning í hléi.
Þjóðdansafélag Reykjavíkur
Richard Burton
í einvígi upp
á líf og dauða
+ Leikarinn Richard Burton er
maður vinsæli og vinmargur
þótt hann geti stundum átt dá-
lítið bágt með skapsmunina eins
og kunnugt er. Burton á samt
sem áður tvo óvini, sem hann
segir sitja um líf sitt og nota
hvert tækifæri til að bregða
fyrir sig fæti. Þeir heita
sígarettur og áfengi. Lengi hef-
ur hann reynt að snúa þessa
fjandmenn sína af sér en þeir
hafa alltaf séð við honum. Hafa
kannski sleppt af honum takinu
stundarkorn en þjarmað síðan
að honum þannig, að hann hefur
legið óvígur eftir. Nú finnst
Burton hins vegar komið nóg og
hefur skorað illþýðinu hólm.
Vopnið, sem hann ætlar að beita
gegn því, heitir „aikido" en það
er austræn hugleiðsluaðferð,
sem margir hafa notað með góð-
um árangri. Segir Burton, að nú
sé annaðhvort að duga eða drep-
ast. Ef hann bíði ósigur í þessu
einvígi sé hann búinn að vera.
„Alltaf jafn fegin þegar
ég fer frá Hollywood“
— segir bandaríska leikkonan Meryl Streep
+ Bandaríska leikkonan Meryl
Streep nýtur mikilla vinsælda
nú um stundir og hefur enda
þegar hlotið tvenn óskarsverð-
laun og er tilnefnd til þeirra
þriðju fyrir leik sinn í myndinni
„Silkwood". Meryl hefur þó ekki
látið frægðina stíga sér til höf-
uðs.
f leikarasamfélaginu vestra
Eru feitlagnar konur
ástheitari en grannar?
+ „Feitlagnar konur eru miklu
ástleitnari og þurftafrekari í
kynferðislegum efnum en þær
grannvöxnu," segja höfundar
bókar, sem er nýkomin út í Eng-
landi.
Höfundarnir, Caroline Buch-
anan og Sandra Sedgebeer, segj-
ast hafa komist að þessari niður-
stöðu eftir viðtöl við og aðrar at-
huganir á mörgum hundruðum
kvenna. „Við komumst að raun
um, að feitlagnar konur hafa svo
mikla kynferðislega þörf, að hún
veldur þeim sálrænum erfiðleik-
um. Og eins og oft vill verða þeg-
ar haldið er aftur af einni ástríð-
unni, þá er huggunar leitað í
annarri — í því að borða."
þykir enginn maður með
mönnum nema hann búi í Holly-
wood en á það má Meryl ekki
heyra minnst. Hún vill ekki eiga
heima annars staðar en í New
York og býr þar ásamt manni
sínum, myndhöggvaranum Don
Gummer, og tveimur börnum
þeirra, Henry sex ára og Mary
sex mánaða.
„Ég hef að sjálfsögðu oft verið
í Hollywood og ég er alltaf jafn
fegin þegar ég fer þaðan. Þar
keppast allir við að troða á
náunganum og ég skil ekki þann
hugsunarhátt," segir Meryl
Streep.
Meryl, sem er 34 ára gömul,
ólst upp í New Jersey og fékk sín
fyrstu Óskarsverðlaun fyrir leik
í myndinni „Kramer vs Kram-
er“. Önnur verðlaunin voru fyrir
myndina „Sophie’s Choice" og nú
er að bíða og sjá hvort þau
þriðju eru á næsta leiti.
+ Gott er að hafa barn til
blóra segir máltækið og það á
svo sannarlega vel við um FBI
og CIA, bandarísku alríkis-
lögregluna og leyniþjónust-
una. Eins og kunnugt er, þá er
þeim jafnan kennt um allar
vammir og skammir, sannar
eða lognar, og nú hefur Yoko
Ono, ekkja John Lennons,
bæst í hópinn. { nýútkominni
bók heldur hún því fram, að
FBI hafi fyrirskipað morðið á
manni sínum af því að hann
var á móti kjarnorkuvopnum.
aö kaupa húsgögn og fá þau afhent samdægurs, — fá
uppl. um verö og gæöi og fá sendan myndalista á
meöan Auto '84 stendur yfir í Húsgagnahöllinni.
Hringdu í þjónustusíma okkar
Afgreiðsla og afhending húsgagnanna fer fram sam
dægurs, greíðsla ýmist við afhendingu eða í pósti.
HAGSYNN VELUR ÞAÐ BESTA
BDS6AGNAB0LLIN
BÍLDSHÖFÐA 20-110 REYKJAVÍK S 91-81199 og 81410