Morgunblaðið - 07.04.1984, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 07.04.1984, Blaðsíða 24
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. APRÍL 1984 PítrgtM Útgefandi nMuM$> hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Fulltrúar ritstjóra Þorbjörn Guömundsson, Björn Jóhannsson. Fréttastjórar Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aóalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aö- alstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskrift- argjald 250 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 20 kr. eintakiö. Innlendur sparnaður — samkeppni í bankakerfinu Sparifjáreigendur voru hornrekur hér á landi á liðnum áratug. Stjórnvöld héldu vöxtum langt innan við hækkanir verðlags. Fé, sem lagt var til hliðar í þeirri trú, að bankakerfið ávaxtaði það, skrapp saman. Þetta varð ti! þess að uppspretta lausafjár þvarr og lánastofnanir urðu að skömmtunarskrifstofum. Niðurgreiðsla lánsfjár leiddi og til vafasamra fjárfestinga. Erlend lán á gengistryggðum kjörum komu í stað innlends sparifjár og skuldastaðan við útlönd óx svo, að efnahagslegu sjálfstæði þjóðarinnar var hætta búin. Enn eru það stjórnvöld sem ákveða í megindráttum, hvaða kjör bankar og sparisjóðir mega hafa á inn- og útlánum. En stefnan hefur verið sveigð allnokkuð til réttrar áttar. Nokkurt svigrúm hefur verið veitt til þess að bankar geti sjálfir ákveðið vaxtakjör. í fyrsta lagi geta lánastofnanir ákveðið vaxtakjör á lánum, sem þær veita sín á milli. í annan stað geta þær ákveðið vexti fyrir innlán sem bundin eru í a.m.k. sex mánuði. Þess- ara heimilda sér þegar stað í nokkurri samkeppni banka um sparifé fólks. Samtímis hefur ríkissjóður seilst með fjölbreyttari hætti inn á lánsfjármarkaðinn, m.a. með framboði gengistryggðra spariskírteina og ríkisvíxla. Þá hefur ríkissjóður hækkað vexti á nýjum flokkum vísitölubund- inna spariskírteina. Þessi á- sókn ríkissjóðs á takmarkaðan lánsfjármarkað er umdeilan- leg. En meginmáli skiptir, að þróunin leiði til verulega auk- ins innlends sparnaðar. Þróun- in, sem orðið hefur sl. ár er sparifjáreigendum ótvírætt til hagsbóta. Stöðugleiki í þjóðarbú- skapnum og breytt stefna í vaxtamálum eflir hvata til innlends sparnaðar, sem skipt- ir miklu máli eins og skulda- staða þjóðarbúsins er í dag. Þess vegna er nauðsynlegt að þau skref til samkeppni í bankakerfinu, sem stigin hafa verið, leiði til áframhaldandi þróunar í frjálsræðisátt. Tryggvi Pálsson, forstöðu- maður hagfræði- og áætlana- deildar Landsbanka íslands, lýkur grein um þetta efni í Morgunblaðinu sl. miðvikudag með þessum orðum: „Mikilvægast er, að áfram sé haldið á braut frjálsræðis í viðskipta- og vaxtamálum. Bankar og sparisjóðir verða ætíð að geta boðið kjör, sem hvetja til sparnaðar. Að lokum má ekki gleymast, að ef vel á að vera, þarf bein fjárfesting í atvinnurekstri, sem vissulega er áhættumeiri en inneign hjá ríkissjóði eða lánastofnun, að gefa beztu ávöxtunina." Eimskip — hvati til átaka Eyland, miðsvegar milli hins gamla og nýja heims, er háðara samgöngum en meg- inlandsríki. Fáar þjóðir, ef nokkur, er jafn háð milliríkja- verzlun og íslendingar, þ.e. flytur út jafn hátt hlutfall þjóðarframleiðslu — eða inn jafn mikið af nauðsynjum. ís- landssagan hefur fært okkur heim sanninn um það, að eigin stjórn á samgöngum til og frá landinu er mikilsverð forsenda sjálfsstjórnar þjóðarinnar yfir höfuð. Eimskipafélag íslands hélt 70. aðalfund sinn í vikunni. Það hefur gegnt forystuhlut- verki í millilandasiglingum okkar lungann úr öldinni. Skin og skúrir hafa skipzt á í rekstri þess, en á sl. ári skilaði félagið umtalsverðum hagnaði, eða tæplega 100 m.kr. Þessa góðu afkomu má rekja til ýmissa þátta, innan fyrirtækis og utan, s.s. betri nýtingar skipastóls, hagræðingar í rekstri, aukinna fjármuna- tekna og efnahagsaðgerða stjórnvalda, sem vissulega hafa komið öllum atvinnu- rekstri í landinu til góða. Engin trygging er þó fyrir áframhaldandi góðæri í sjó- flutningum. Veður skipast- skjótt í þeirri atvinnugrein sem öðrum. Aldin og úrelt ein- okunarákvæði í bandarískum lögum, sem varðað geta flutn- ing fyrir varnarliðið, eru hættuboði, sem stangast á við efni og anda varnarsamnings- ins frá 1951. Stöðugleikinn í verðlags-, gengis- og vaxta- þróun, sem sett hefur svip sinn á efnahagslíf okkar í eitt ár, eftir áratugs ringulreið, er mikils virði, en oft er erfiðara að gæta fengins fjár en afla. Fyrirtæki verða að skila hagnaði, mynda eiginfjármagn til að geta byggt sig upp, tæknivæðst og staðizt sam- keppniskröfur. Framtíðaratvinnuöryggi, framtíðarlífskjör og efna- hagslegt sjálfstæði okkar hvíla á afkomu atvinnulífsins — því að þjóðartekjur aukizt. Þannig er hagnaður Eimskips 1983 .,hvati nýrra átaka", eins og stjórnarformaður félagsins komst að orði á aðalfundinum. Sverrir Hermannsson, iðnaðarráðherra, kannar hér hve þægilegt er að sitja í Lincoln bfl, sem smíðaður var fyrir sýninguna. Er innréttingin í bflnum búin plussklæddum sætum, myndbandi og sjónvarpi, fullkomnum hljóm- flutningstækjum, bflasíma og barborði. Mbi./Gunniaugur. Bflasýningin form lega opnuð í gær Meðal sýningargripa er þessi Audi Quattro, sem kostar hingað kominn 2,5 milljónir miðað við að kaupa hann af bflasölu í V-Þýskalandi. Bfllinn mun þó vera mun ódýrari gegnum umboðið hérlendis, sem kynnir bflinn. ÞRIÐJA alþjóðlega bflasýningin, sem haldin er í Reykjavík, var opnuð í gær í Húsgagnahöllinni á Bfldshöfða. Lýsti Sverrir Her- mannsson, iðnaðarráðherra, sýn- inguna opna í fjarveru Matthíasar Bjarnasonar, samgönguráðherra, sem er erlendis, en hann er vernd- ari bflasýningarinnar. Átján bílaumboð eru á sýning- unni auk fyrirtækja sem sér- hæfa sig í vörum og þjónustu fyrir bíleigendur. Auk þess er Fornbílaklúbbur íslands með sýningu á fornbílum í húsnæði ÁG, sem er í næsta húsi við Hús- gagnahöllina. Er sú sýning hald- in í tilefni af 80 ára afmæli bíls- ins hér á landi, en fyrsti bíleig- andinn hérlendis var Ditlev Thomsen, kaupmaður. Glæsivagnarnir nýju sem sýndir eru á sýningunni eiga fátt skylt við frumburðinn, og fjöl- margir bílar eru á sýningunni, sem ekki hafa sést hérlendis áð- ur. Ódýrasti bíllinn mun kosta rúmar 100 þúsund krónur, en sá dýrasti tæpar 5 milljónir. „Undirbúningur sýningarinn- ar hófst á sl. ári og var Haf- steinn Hauksson ráðinn fram- kvæmdastjóri sýningarinnar, en hann lést af slysförum á miðju undirbúningstímabilinu, en svo vel var undirbúningsstarf Haf- steins á veg komið, á þeim skamma tíma að ekki þurfti frá þeirri stefnu að hverfa," sagði formaður Bílgreinasambandsins, Þórir Jónsson, m.a. í ávarpi er hann flutti við opnun sýningar- innar. „Ég vil þakka sýningar- stjórn góð störf og ekki síst Jón- asi Þór Steinarssyni, fram- kvæmdastjóra sýningarinnar, fyrir umsjón með uppsetning- unni síðustu vikurnar," sagði Þórir. Bílasýninginn verður opin í dag frá kl. 14.00—22.00, á morg- unn frá kl. 10.00—22.00, en virka daga frá kl. 16.00—22.00. Sýn- ingin stendur til 15. apríl. Gífurlegur áhugi á utanferðum: Útsýn fékk 298 ferða- pantanir á einum degi FERHASKRIFSTOFAN Útsýn fékk sl. miðvikudag 298 pantanir í utanlands- ferðir og er þetta metdagur í sögu Útsýnar, að sögn Ingólfs Guðbrandssonar forstjóra. Langflestar pantanir voru í sólarlandaferðir eða 198, en einnig var mikið pantað í aðrar ferðir. Að sögn Ingólfs Guðbrandsson- ar virðist vera mjög almennur áhugi á utanlahdsferðum meðal landsmanna í vor og sumar og eft- irspurnin t.d. margfalt meiri en í fyrra. Ingólfur nefndi sem dæmi að páskaferð Útsýnar til Spánar, 130 sæti, hefði selst upp fyrir löngu og nú væri fullbókað í Spán- arferðir fram í júlt. Þá verða 150 manns á vegum Útsýnar í London um páskana. „Það hafa að meðal- tali borist um 100 pantanir á dag undanfarnar vikur og með sama áframhaldi verða allar okkar ferð- ir uppseldar eftir 5—6 vikur," sagði Ingólfur. Aberandi er, að sögn Ingólfs, hve fólk ákveður ferðalög sín fyrr nú í ár en undanfarin ár og væri það eflaust því að þakka að tekist hefði að ráða niðurlögum verð- bólgunnar og því væri ekki sama óvissa í efnahagsmálum og t.d. hefði ríkt árið 1983. „Verð á utan- iandsferðum og þá einkum sólar- ferðum er mjög hagstætt núna og það ásamt því að fólk hefur gefist upp á veðurfarinu á Islandi á að mínu mati stærstan þátt í hinum mikla áhuga íslendinga á utan- ferðum í vor og sumar," sagði Ing- ólfur Guðbrandsson að lokum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.