Morgunblaðið - 07.04.1984, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. APRÍL 1984 27
Anna Cronin
London — sextug
Ungt fólk með hlutverk:
Hlutavelta og flóamarkaður
SAMTÖKIN Ungt fólk með hlutverk halda í dag kl. 14.00 hlutaveltu og
flóamarkað í starfsmiðstöð sinni að Stakkholti 3, þar sem áður var Heyrn-
leysingjaskólinn í Reykjavík.
Ágóði af sölunni rennur síðan til starfsmiðstöðvar samtakanna á Eyjólfs-
stöðum, sem sést á meðfylgjandi mynd.
Rauði krossinn þingar um friðarmál
Fyrir 60 árum geisaði berkla-
veikin á íslandi. Fjöldi manns fór
á Vífilsstaði og önnur sjúkrahús.
Svarti sjúkrabíllinn kom í hverja
götu og sótti pabba eða mömmu,
bróður eða systur. Sumir komu
aftur, aðrir fóru í svarta bílnum
vestur í kirkjugarð. Með miklum
dugnaði og ósérhlífni margra
tókst að vinna sigur á berklaveik-
inni, ekki síst lækna og hjúkrun-
arfólks. Þegar einhver af heimil-
inu fór á sjúkrahús kom hjúkrun-
arkonan frá Líkn í heimsókn, gaf
börnunum lýsi og fylgdist með
heilsufari þeirra. Mér er minnis-
stæður einn vetrardagur með
norðan kalda og frosti að ég var
sendur niður í Líkn eftir lýsi. Líkn
hafði aðsetur í litlu herbergi í
Sambandshúsinu. Þegar ég bank-
aði á dyrnar sagði hlýleg rödd
„kom inn“. Við skrifborð sat ung
og falleg hjúkrunarkona og bauð
mér sæti meðan hún lauk skýrslu-
gerð. Svo sagði hún „nú skulum
við ná í lýsið". Lýsið var geymt í
tunnu austan við húsið. Það var
þykkt og stirt í frostinu og við vor-
um bæði orðin blá af kuida þegar
við höfðum náð flöskufylli af
tunnunni. Þessi Líknarkona, Sig-
ríður Eiríksdóttir, er síðar í huga
mér tákn þeirrar elju og ósérhlífni
sem einkennir svo marga er starfa
við hjúkrun.
Hálfri öld síðar kynntist ég
annarri ágætis konu, sem ber
þessi aðalsmerki með engu minni
sóma í baráttunni við annað mikið
mein sem herjar nú á þjóðina.
Hafa fjölmargir íslendingar leitað
til London og gengist þar undir
uppskurð við hjarta- og æðasjúk-
dómum. Þessi kona er Anna Cron-
in, sem heldur í dag upp á sextugs-
afmæli sitt. Hún er gift ágætis-
manni og á með honum 7 börn.
Ævintýrið hennar Önnu hófst
þannig að sonur hennar bar út
dagblað og kom meðal annars á
Hammersmith-sjúkrahúsið. Þegar
hann eitt sinn kom inn á sjúkra-
stofu sá hann súkkulaðipakka með
íslenskri áletrun á borði eins
sjúklingsins. Hann sagði móður
sinni frá þessu. Anna lauk við
uppþvottinn og fór því næst á spít-
alann til að huga að þessum ís-
lenska sjúklingi. Þar með rann
boltinn af stað. Frá þessum degi
hefur Anna Cronin veitt hundruð-
um íslendinga, sem hafa leitað
Safnaðarheim-
ili Áskirkju
tekið í notkun
Salur í kjallara Áskirkju verður tek-
inn í notkun sunnudaginn 8. apríl kl
14.30. Salurinn rúmar á annað hund-
rað manns í sæti og verður hann safn-
aðarheimili kirkjunnar fyrst um sinn,
eða þar til byggingu aðalsafnaðar-
heimilisins lýkur.
Við opnunina syngur Kirkjukór
Áskirkju sálm, sóknarprestur ann-
ast bænargjörð og frú Helga Sig-
mundsdóttir flytur ávarp. Veislu-
kaffi verður reitt fram og verður
það selt til ágóða fyrir kirkjubygg-
inguna. Að kaffisamsætinu loknu
heldur safnaðarfélagið aðalfund
sinn, en um þessar mundir er það 20
ára.
lækninga í London, aðstoð sfna og
hjálp. Vinnutími hennar hefur oft
verið langur, stundum meiri hluti
sólarhringsins svo nærri má geta
að þetta hefur komið niður á
heimilinu. En þetta var Önnu hug-
sjónastarf sem hún vann af festu
og alvöru.
Nú er svo komið að Anna getur
aðeins hægt á sér. En hún er eng-
an veginn hætt að sinna sjúkling-
um í London og allar vonir standa
til að við fáum að njóta krafta
hennar enn um sinn.
Ég og fjöldi annarra íslendinga
sendum þér, Anna, og fjölskyldu
þinni bestu árnaðaróskir í tilefni
dagsins. Lifðu heil í mörg ár enn.
Reynir Eyjólfsson
Heimilisfang hennar er:
Anna Cronin,
4 Badhurst house, White City,
London W 12, England.
Norrænu Rauðakrossfélögin hafa
ákveðið að boða til ráðstefnu um
friðarmál dagana 6. til 8. aprfl
næstkomandi. Hún verður haldin í
Sundvollen scm er í námunda við
Ósló. Á ráðstefnunni verður reynt að
samræma aðgerðir norrænna Rauða-
krossfélaga í friðarmálum. Gert er
ráð fyrir því að 9 félagar RKÍ sæki
ráðstefnuna.
Enda þótt Rauði krossinn hafi
fyrst og fremst leitast við að
draga úr þjáningum vegna styrj-
alda hefur megintakmark hans
frá öndverðu verið að koma í veg
fyrir ófrið með því að hvetja til að
friðsamlegra úrlausna sé leitað í
öllum deilumálum.
Nú hefur verið ákveðið að efna
til alþjóðlegrar friðarráðstefnu
sem verður haldin á Álandseyjum
2. til 6. september. Ráðstefnan
verður haldin í boði Rauðakrossfé-
laga Finnlands og Svíþjóðar. Gert
er ráð fyrir að hún verði sótt af
fulltrúum um 100 landsfélaga.
Aðalskrifstofu RKÍ hafa nýlega
borist frá Genf bæklingar og ann-
að kynningarefni um friðarmál.
Þar er að finna upplýsingar sem
geta verið nytsamar til hugleið-
ingar um friðarmál fyrir nemend-
ur í skólum, eða aðra hópa sem
vilja efna til kynningar á friðar-
stefnu Rauða krossins og um-
ræðna um hann.
Fyrirlestrar
um velferðar-
ríkið Island
„ÍSLAND: Velferðarríki fyrir
hvern?“ er yfirskrifl ráðstefnu sem
hópur einstaklinga hefur boðað til í
Gerðubergi, menningarmiðstöðinni
í Breiðholti í dag, laugardag, og
hefst hún klukkan 13.00.
Dagskrá ráðstefnunnar hefst
með fjórum framsöguerindum.
Stefán Ólafsson flytur erindi
sem heitir „Er ísland velferðar-
ríki?“, því næst talar Árni Gunn-
arsson undir yfirskriftinni „Er
velferðarríkið á undanhaldi?", þá
flytur Svanur Kristjánsson tölu
sem nefnist „Atvinnurekendur,
velferðarríki og íslensk þjóðar-
vitund", og að síðustu heldur
Guðrún Jónsdóttir framsöguer-
indi sem kallast „Hugmynda-
fræði velferðarþjónustunnar —
tæki til undirokunar eða frelsis?"
Umræðuhópar um efni fram-
söguerindanna taka til starfa kl.
15.00. Umræðustjórar fyrsta er-
indis verða Ingibjörg Hafstað og
Jón Sæmundur Sigurjónsson,
annars erindis Birgir Björn Sig-
urjónsson og Margrét S. Björns-
dóttir, þríðja erindis Geir Gunn-
laugsson og Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir og fjórða erindis
Guðmundur Ólafsson og Jónína
Leósdóttir.
Umræðuhópar skila greinar-
gerð kl. 16.30, en síðan verður
áframhaldandi skipulag starfs-
ins rætt. Ráðstefnunni lýkur kl.
18.00.
HÓTELBOB
Höfum endurvakið rómað
andrúmsloft liðinna ára
Vistlegur veitingastaður
við allra hæfi
Nýr
sérréttamatseðíll
Gisting í stórum
og skemmtilegum
herbergjum s: 11440.
KOMIÐ — SJÁIÐ — SANNFÆRIST
Opiöídagkl.9-16 £
TT A fí Tf ITTp Skeifunni 15
nAVJiiAU r Reykjavík