Morgunblaðið - 07.04.1984, Qupperneq 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. APRÍL 1984
Einsog mer synist ....______________________________________________ (jísli J. Ást|)órsson
Prúðmennin
o g
páfuglarnir
Gat þad verið að síldarstúlkur smjöttuðu jafn
hroðalega og stóri frændi?
Einu sinni fyrir ótta-
lega mörgum árum varð
mér það á í langferðabíl
að setjast við hliðina á
blökkumanni á þeim slóð-
um sem það þótti þá enn-
þá aldeilis forkastanlegt
að hvítur maður deildi
sæti með svörtum; og mér
er í táningsminni dreyr-
rautt andlitið á stúlku-
kindinni sem ég var í
samfloti með, þvíað hún
var næstum komin niðrúr
gólfinu á rútunni, svo
mikið varð henni um
þetta brot mitt á hirðsið-
unum suður þar. Þetta var
þó ekki ásetningsglæpur.
Ég var einfaldlega ekki
orðinn útlærður í durts-
hættinum sem hvítir áttu
að sýna svörtum á þessum
punkti jarðkringlunnar,
né varð það raunar aldrei
svoað sæmilegt mætti
kallast, þvíað mér fannst
það eiginlega jaðra við að
sparka í rassinn á sjálfum
sér að dingla til dæmis af
einskærum gikkshætti
uppá endann í funheitum
langferðabíl þegar þetta
líka forlátasætið stóð al-
autt við hliðina á mér.
Svonalagaðar hunda-
kúnstir, sem viðgangast
því miður sumsstaðar enn
í dag, eiga vitaskuld ekk-
ert skylt við þokkalega
mannasiði ef einhver
skyldi vera sá álfur að
halda það, né prúðmann-
lega framkomu ef einhver
skyldi vera sá asni að ætla
að tylla hofmóði sínum á
þá nibbuna. Sönn háttvísi
er alltaf blandin all-
nokkru lítillæti sem er
ekki bara til þess að sýn-
ast að heldur: hún er að
minnstakosti aldrei stór
uppá sig; og hef ég ekki
minni kall fyrir þessu en
sjálfan mannvininn og
heimspekinginn og stílist-
ann Montaigne, sem
kvaddi þennan heim að
vísu fyrir nær fjögur
hundruð árum en lifir enn
góðu lífi í ritverkum sín-
um.
Hann segir meðal ann-
ars að ágætasta fólkið
hafi þann eiginleika að
sóma sér allsstaðar vel og
undir öllum kringum-
stæðum og hvernig svo-
sem hamingjuhjólið kunni
að snúast. Hann hnykkir
á þessu með því að bæta
við að sannur maður beri
ævinlega höfuðið hátt,
jafnt í andstreymi sem í
meðbyr og hvort heldur
hann klæðist leppum ell-
egar skartklæðum; og síð-
an leiðir hann sjálfan
Horace í vitnastúkuna og
sá sómamaður og skáld
staðfestir þetta alltsaman
afdráttarlaust. Mætustu
mennirnir, segir Horace
gamli, kunna sig jafnt í
hreysinu sem í höllinni.
Háttvísin er semsagt
umfram allt lýðræðisleg,
og einn dropi af stærilæti
getur mengað heilan haf-
sjó af hirðsiðatöktum.
Meðal annars af þeim sök-
um hefur mér alltaf fund-
ist það fremur hvimleitt
þegar fullorðinn maður er
með þetta „væni minn“ og
„góði minn“ við annan
fullorðinn mann. Mér
finnst oft einsog sá fyrr-
nefndi sé einsog að klappa
góðlátlega á kollinn á hin-
um, vera einsog að aug-
lýsa lítillæti sitt en meina
ekkert með því, hafa uppi
tilburði í þá átt að vera
„notalegur" við viðmæl-
anda sinn en gæta þess
jafnframt vandlega að
halda honum í hæfilegri
fjarlægð.
Afturámóti sá ég til að
byrja með eftir þéringun-
um. Þéringin hentaði til
dæmis ágætavel þegar
maður þurfti að yrða á
ókunnuga. „Heyrið þér“ er
hljómmikið og alls ekkert
fleðulegt, en „heyrðu“
hinsvegar fremur kauða-
legt og máttlaust, að ég
nú ekki tali um hið ófrýni-
lega „heyrðö".
Það var náttúrlega van-
inn sem réð mestu um
viðbrögð manns, þvíað
þetta ólst maður upp við.
En við nánari athugun
höfðu þéringarnar samt
þann regingalla að þá veg-
ur þeirra var mestur voru
þær óneitanlega einn af
þáttunum í gaddavírs-
strengnum sem átti að
skilja sauðina frá höfrun-
um, heldra fólkið frá al-
múganum. Og þegar það
er haft í huga verður jafn-
vel „heyrðö" allt að því
þolanlegt.
Að auki voru þéring-
arnar hálfgert skrifstofu-
og stássstofumál, hefðu að
minnstakosti hljómað í
meira lagi hjákátlega á
fjölmörgum sviðum þjóð-
lífsins, svo harkalega sem
þær hefðu stungið í stúf
við umhverfið. Hugsið
ykkur trollaradekkið á
kafi í fiski og sjó og skipp-
erinn alveg trítilóðan í
brúnni. Þá fyrst hefði
köllunum undir beljand-
anum frá honum nú fund-
ist kasta tólfunum, ef
hann hefði þaraðauki
byrjað að þéra þá.
„Þér eruð asni, Gísli,"
sagði Bogi Ólafsson ofan-
úr púltinu, og satt var það
að vísu að ég hafði oft
staðið mig skár í enskunni
hjá honum. Hann hleypti
líka í brýnnar, en þær
voru kapítuli útaf fyrir
sig í þessu eftirminnilega
andliti. Hann gat gert
mann að kvikindi þóað
hann léti ekki nema aðra
augabrúnina síga um
svosem hálfan millimetra.
En mér er það samt
ógleymanlegast hvernig
hann með þéringunni
einsog tyllti pípuhatti
ofaná dómsorðið.
Þéringar voru með hvítt
um hálsinn og á dönskum
skóm. Þær voru ekki í
bættri peysu og gúmmí-
hnöllum. „Viljið þér lána
mér kúbeinið yðar,
Gvendur?" Gvendur hefði
meldað þennan starfs-
bróður sinn inná Klepp.
„Var það sleggjan yðar
sem datt oná tána á mér?“
„Hvað í andskotanum
haldið þér að þér séuð,
mannherfa?" „Viljið þér
gera svo vel að koma yður
á lappir, Bogga, og pilla
yður út og hypja yður
niðrá plan, heyrið þér
það!“ Naumast hefði ég
verið einn um það að
álykta að þetta fólk væri
allt með tölu gengið af
göflunum.
En þéringarnar eru
allavega komnar í kirkju-
garðinn: þeim byrjaði að
hnigna í stríðinu ef ég
man rétt og kynslóðin sem
þá var að vaxa úr grasi sá
um útförina. Og þær voru
þegar maður fór að íhuga
þessi mál hálfgerð svika-
gylling. Þær áttu stund-
um allsekkert skylt við
kurteisi. Undirgefnin var
æði oft fylgja þeirra og
svo óttinn, og þeir sem
einhvers þóttust mega sín
notuðu þær að auki óspart
til þess að halda náungan-
um „pá sin plads" einsog
Danskurinn segir.
Hvað sem því líður er
einlæg kurteisi manns-
prýði, gagnstætt þeirri
fölsku sem felst einkan-
lega í flaðrinu. Einsog
Montaigne leggur áherslu
á er besta kurteisin líka
meðfædd, og einsog svo
margt sem er ágætast í
þessum heimi er hún ein-
föld og óbrotin. Hún er
hvorki tilgerðarleg né ýkt,
og sá sem er svo lánsamur
að vera kurteis að eðlis-
fari, hann kann sig alls-
staðar.
Ég man að þegar ég var
agnarlítill snáði var það
stundum notað sem
hnjóðsyrði um kvenfólkið
að segja um það: „Hún
hagar sér einsog síldar-
stelpa." Þetta varð mér
tilefni mikilla heilabrota,
óvitanum, svipuð ráðgáta
og hendingin úr sálminum
sem amma var að reyna
að kenna mér: „ó, þá heill
að halla mega höfði
þreyttu í drottins skaut."
Hvað var drottinn eig-
inlega að skjóta á, og gat
það verið að síldarstúlkur
smjöttuðu jafn hroðalega
og hann stóri frændi þeg-
ar afi og amma buðu hon-
um í rjúpur? Síðan hefur
reynslan vitanlega kennt
mér að eðlisprúð kona er
indæliskona hvort sem
hún er að salta síld eða
snæða síld, hvort heldur
sem hún er með botninn
uppí loft í söltunarstöð
suðrí Grindavík eða með
hann oná ekta damaski
hérna í ráðherrabústaðn-
um.
Að byggja gæðamat sitt
á fólki á starfi þess og
flíkunum sem það notar
til daglegs brúks er útí
hött, og sá sem þykist
þess umkominn að segja:
„Segðu mér hvað þú starf-
ar og ég skal segja þér
hver þú ert,“ sá maður er
uppskafningur og kann
ekki mannasiði fremur en
beljan. Það er ekki hægt
að klæða af sér ruddaskap
eða fávisku eða heiguls-
hátt svoað eitthvað sé
nefnt: að troða löstunum
oní skúffu ef svo mætti
segja og taka dyggðirnar
fram með nærfötunum.
Þegar þeir þóttust vera
að rannsaka hvort mærin
frá Orleans væri í raun og
veru gædd yfirnáttúru-
legum gáfum, þá hug-
kvæmdist einhverju
gáfnaljósinu að láta leiða
hana inní höllina þarsem
Karl kóngur var með hirð-
fólki sínu, og nú átti
stúlkan að benda á kóng-
inn. Þetta þótti mönnum
alveg einstaklega klárt af-
því Jóhanna hafði aldrei
séð hátignina. En hún
gekk rakleitt þangað sem
Karl stóð í samskonar
páfuglafjöðrum og aðals-
mennirnir og kraup fyrir
honum.
Gæti hvarflað að manni
hvort sveitastúlkan unga
hafi kannski séð innri
manninn undir silkinu,
séð hverskonar mann há-
tignin hafði í raun að
geyma undir gyllingunni.
Sagan sýnir okkur óvenju-
lega lítilsigldan mann,
snauðan af dyggðum,
ístöðulausan, kjarklausan
og undirförulan: mann
sem var kóngur í engu
nema nafni.
Mærin skyldi þó aldrei
hafa lesið þetta alltsaman
útúr svip hans þarsem
hann stóð og lést ekki
vera kóngurinn? Og ætli
hún hafi þá kannski líka
lesið úr augnaráðinu
hvernig hann átti eftir að
svíkja hana og launa
henni kóngsríkið með því
að láta sér fátt um finnast
að ekki sé sterkar að orði
kveðið þegar henni var
kastað á bálið?
Iðnskóladagurinn
í dag kl. 10—16 er lönskólinn á Skólavöröuholti
opinn almenningi. Allar verklegar deildir eru í fullu
starfi. Nemendur og kennarar veröa til viötals.
lönskólinn í Reykjavík
Kökubasar—
Kökubasar
Kvenstúdentafélag islands heldur glæsilegan köku-
bazar í Blómavali, laugardaginn 7. apríl. Komiö og
geriö góö kaup til páskanna.
Stjórnin.
Réttur
áagsins
Margrét Þorvaldsdóttir
Það ber við á góðum degi að efnt
er til veislu óvænt fyrir fjölskylduna
eina. Dúkað er borð með servíéttum
í broti, kerti í stjaka og flösku af öli.
Uppákoman þessi kemur ætíð á
óvart, enda ekki bundin ákveðnum
degi viku eða mánaðar.
„Hvert er tilefnið?"
„Að þakka það góða sem lífið gef-
ur.“
Gleymist það ekki stundum.
„Hvað er til matar?“ er spurt með
eftirvæntingu.
„Sólarsteik
delux“
1. 500 gr. hakkað kjöt (kinda-,
lamba- eða nauta-)
% bolli haframjöl
'k. laukur meðalstór (smátt saxað-
ur eða niður rifinn)
1 stk. egg
1 matsk. Worcestershire sauce
1 dós tómatkraftur (lítil), útþynnt
með 1 dós af vatni (1 á móti 1)
1 tsk. salt og örlítill pipar
2. 'Æ laukur
2 matsk. matarolía
2 bollar vatn
1 ten. kjötkraftur
1. ten. kjúklingakraftur
1 dós tómatkraftur (lítil)
2 matsk. hveiti
1. Blandið öllu saman, kjöti,
lauk, haframjöli, eggi, salti,
Worcestershire sauce, tómatkrafti
og vatni. Hrærið vel. Mótið 5
ílangar bollur og raðið í eldfast fat
eða pott. Setjið síðan í ofn undir
grill eða í ofn við góðan yfirhita í
10—15 mín. eða þar til komin er
góð skorpuhúð á steikurnar, þá er
hitinn lækkaður niður í 180°C.
2. Olían er hituð og laukurinn
saxaður settur út í og látinn
krauma við lítinn hita í 5 min.
Vatni, tómatkrafti, kjöt- og kjúkl-
ingakrafti bætt út í og allt látið
sjóða saman smástund. Þá er sós-
an jöfnuð með hveitinu. Saltið eft-
ir smekk. Fatið er tekið úr ofnin-
um, sósunni síðan hellt yfir steik-
urnar. Lok er sett yfir ef um pott
er að ræða, en álpappír ef notað er
eldfast fat, lokið þétt. Bökunar-
tími er í allt 50 mín.
Ef til eru stórar kartöflur
mjölmiklar, þá má baka þær í
ofni.
Bakaðar kartöflur: Kartöflurnar
eru þvegnar vel með bursta, mik-
ilvægt er einnig að þerra þær vel.
Þær eru síðan stungnar með gafli,
til að hleypa út gufu við bakstur.
Leggið á grindina í ofninum og
bakið með steikinni. Kartöflurnar
þurfa 45—60 mín. bakstur. Ann-
ars er ágætt að bera fram með
steikum þessum stappaðar kart-
öflur, grænmeti t.d. baunir og
vetrarsalat.
Kldhúsráð: Kjúklingakrafturinn í
sósunni kemur í stað víns. Hann
má nota í stað víns í sósu, 1—2
teninga í bolla af vatni.
VerÖ
hráefnisins
Mjög misjafnt verð er á hökk-
uðu kjöti í verslunum borgarinn-
ar. Verðið segir ekkert til um gæð-
in. Ágætt kindahakk má fá fyrir
kr. 95.00 kílóið. Egg má einnig fá
fyrir kr. 89.00 kílóið. Fylgist því
vel með auglýsingum um sértilboð
verslana.
kjöt
laukur
egg
tómatkr.
kartöfl.
Alls.
með baunum
og vetrarsalati
Alls kr.
kr. 47.50
kr. 1.50
kr. 7.50
kr. 4.60
kr. 10.00
71.10
17.80
21.00
109.50