Morgunblaðið - 07.04.1984, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 07.04.1984, Qupperneq 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. APRÍL 1984 Gerda Schmidt — Panknin í Bogasal Myndlist Bragi Asgeirsson í Bogasal Þjóðminjasafnsins sýnir um þessar mundir kunn þýsk listakona, Gerda Schmidt- Panknin 53 myndir frá Græn- landi og íslandi. Listakonan er fædd árið 1920 í Slésvík-Holstein og nam við Listaháskólann í Bremen. Sýningin er styrkt af félaginu Germanía, mennta- málaráðuneytinu í Slésvík- Holstein og sendiráði Sam- bandslýðveldisins Þýskalands hér í borg. Langflestar myndirnar á sýn- ingunni eru frá Grænlandi en þar virðist hún hafa víða komið og unnið að list sinni á árunum 1980 og ’81. Það sem öðru fremur einkenn- ir myndir listakonunnar er mjúkur, þokukenndur og dökkur myndheimur ásamt mistur- kenndum stígandi í litablæ- brigðum. Þetta á aðallega við í landslagsmyndum því að mannamyndir listakonunnar eru iðulega öllu sterkar og skýrar mótaðar. Þau tæknibrögð sem Gerda Schmidt-Panknin hefur tileink- að sér geta á köflum minnt sterklega á batík og hún virðist vera mjög háð þeim hvar sem hana ber niður í myndsköpun og hvert sem myndefnið nú er hverju sinni. En þetta eru mjög þróuð og menningarleg vinnu- brögð og er auðséð að hér fer vel menntuð og þroskuð listakona. Listrýnirinn hafði mesta ánægju af myndum skýrra yfirvegaðra forma þar sem fram kemur hreint og mettað ljósflæði, svo sem í myndinni „Fólk“ (10) ásamt öllum myndunum á þeim vegg. Aðrar myndir er ég stað- næmdist sérstaklega við voru myndirnar „Cap Dan“ (7), „Kona í Cap Dan“ (11), „Eskimóa- stúlka/ Kulusuk" (14), „Börn í Cap Dan“ (15) og „Fiskimaður frá Narssarssuaq" (37). Hér þótti mér listakonunni takast einna best upp í hinum sérkenni- lega myndstíl sínum en hinar misturkenndari myndir þótti mér bera full mikinn keim af endurtekningum. Það er fengur að þessari sýn- ingu og ber að þakka framtakið. Sýning Erlu B. Axelsdóttur í kjallarasölum Norræna hússins sýnir Erla B. Axelsdóttir 32 málverk og 47 pastelmyndir fram til 8. apríl. Erla hefur sótt myndlistartíma hjá þeim Einari Hákonarsyni og Hring Jóhann- essyni á síðastliðnum þrem ár- um og eru allar myndirnar á sýningunni gerðar á þeim tíma. Aður hefur Erla haldið tvær myndlistarsýningar. Skoðandinn verður næsta lítið var við áhrif frá áðurnefndum lærimeisturum í myndum Erlu en þó má segja, að rétt grilli í þau og þá aðallega í vali mynd- efna. Erla hefur tiieinkað sér hrað- an og hressilegan vinnumáta og þegar henni tekst að sameina hann rökréttri myndhugsun þykir mér henni takast einna best upp. Hér nefni ég sérstak- lega málverk eins og „Púdda púdd" (2), „Morgunhanar" (17), „Vorkoma" (19), „Tvær galvask- ar“ (20) og „Sunnanvindur" (27). Allar þessar myndir þykja mér vera flokki ofar flestu öðru á sýningunni. Á sama hátt má benda á pastelmyndir svo sem nr. 40 „óður til Esjunnar", „Sí- gild borg“ (46), „Skilagrein um skútu“ (51), „f klakaböndum" (58) og „Haust á heiðinni" (66). Þetta er að vísu fullmikil upp- talning en mér þótti áberandi hve þessar myndir og aðrar þeim líkar báru af á sýningunni fyrir öguð einföld vinnubrögð. Vinnu- brögðum Erlu hættir nefnilega ósjaldan til að nálgast það að vera full yfirborðskennd ásamt því sem litirnir höfða ekki til dýpri kennda skoðandans. Form- in geta verið laus og ósann- færandi og litirnir full væmnir. Þetta virðist vera það sem Erla þarf helst að varast í listsköpun sinni um leið og hún mætti að ósekju leita meira í smiðju hreinna, yfirvegaðra forma og litasambanda. Um grisjun, snyrtingu og áburðarþörf trjáa — eftir Hákon Bjarnason Sá tími árs, sem hentar best til ofannefndra hluta, eru einmitt þessar vikurnar fram í byrjun maí. Meðan lauftrén eru enn nak- in og ber er auðvelt að sjá hvernig greinar þeirra fléttast saman og hvar að þeim þrengir. En af því má ráða hvaða tré verði að víkja, hvernig grisja skuli. Grisjun og snyrting trjáa er sitthvað og skyldu menn ekki rugla því saman. Markmið grisj- unar er aðeins eitt: Að veita þeim trjám nægilegt vaxtarrými, sem standa eiga til frambúðar. Snyrt- ingin er fólgin í þvf að fylgjast með vexti trjánna frá ári til árs og gæta þess að vaxtarlag þeirra verði á þann veg, sem maður helst vill, með hæfilegri klippingu eða stýfingu. Grisjun Eitt af því, sem mest hefur verið og er vanrækt í sambandi við trjárækt í görðum landsmanna, er grisjun trjáa á réttum tíma og í tæka tíð. Flestum er ljóst að planta verður trjám aliþétt við upphaf ræktunarinnar svo að þau megi njóta skjóls og hæfilegrar samkeppni sín á milli á meðan þau eru á bernskuskeiði. En þegar þau fara að vaxa úr grasi verður að hafa auga með þeim og þegar greinar þeirra fara að slást saman fer að verða tímabært að grisja. Meðan trén eru lítil eða innan við hæð manns er auðvelt að rótstinga þau, sem á að taka burtu og flytja þau til og gefa t.d. vinum eða kunningum. En þegar þau eru komin yfir þá hæð mun varla borga sig að flytja þau. Þá er ekki annað úrræði til en að fella þau Hákon Bjarnason „Viö grisjun eykst loft- rými þeirra trjáa, sem eftir standa, og þá batna skilyröi þeirra til vaxtar og þroska aö mun. Sama máli gegnir um vöxt róta. Þær fá meira rými í jaröveginum og því verkar grisjun sem mild áburðargjöf.“ tré, sem standa hinum betri fyrir þrifum. Þetta er afar einfalt at- riði, en samt hefur það vafist fyrir flestum þegar á hólminn er komið. Sérhvert hik verður þó ávallt til tjóns. Hér áður fyrr var algengt að gróðursetja tré í raðir á lóðamörk- um eða meðfram götum og gang- stígum með eins og hálfs metra millibili. Svo hefur fólk kinokað sér við að fækka trjánum þótt þau hækkuðu. Fyrir bragðið standa nú víða þéttar raðir mjósleginna stofna krónulítilla trjáa þar sem í raun og veru er aðeins rúm fyrir tvö eða þrjú falleg tré. Sem betur fer er aldrei of seint að hafast eitthvað að og þó að tré séu bæði há og mjóslegin er það þjóðráð að fækka stofnum. T.d. má taka þriðja hvern stofn til að byrja með og síðan álíka mikið eftir tvö eða þrjú ár. Með þessu má oft bæta gamlar vanrækslu- syndir að miklu leyti á nokkrum árum. Síst af öllu ættu menn að hafa áhyggjur þótt skörð sjáist í laufkrónunum eftir slíka grisjun. Þau lokast fljótt. Við grisjun eykst loftrými þeirra trjáa, sem eftir standa, og þá batna skilyrði þeirra til vaxtar og þroska að mun. Sama máli gegnir um vöxt róta. Þær fá meira rými í jarðveginum og þvi verkar grisjun sem mild áburðargjöf. Jafnframt minnka skuggaáhrifin af trjákrónunum um skeið og kemur það sér oft vel fyrir bæði grös og runna. í aðalatriðum gildir hið sama um grisjun barrtrjáa og lauftrjáa. Þó skyldu menn athuga, að þar sem barr- og lauftré standa þétt er hætt við því að lauftrén skemmi krónur barrtjánna en aldrei á hinn veginn þótt undarlegt kunni að virðast. Snyrting Hún er fólgin í því, eins og áður segir, að klippa eða stýfa greinar á einstökum trjám til þess að vaxt- arlag haldist fallegt. T.d. með því að sjá við tvítoppum, of stórum og þungum hliðargreinum, rótaskot- um o.fl. Sakir þess að hver trjá- tegund hefur sitt eigið vaxtarlag er ekki unnt að gefa neina al- menna reglu fyrir snyrtingu. Menn verða helst að þekkja sín eigin tré og vita hvað hverju kem- ur best. Þó skal fátt eitt tekið fram. íslenska birkið er ákaflega vandmeðfarið ef menn ætla að koma upp stofnfögrum trjám. f fyrsta lagi getur ávallt brugðið til beggja vona með vaxtarlag þeirra trjáplantna, sem menn fá í hend- ur. Af útliti þeirra verður ekkert ráðið um eðli þeirra, en mikill hluti íslenska birkisins hefur til- hneigingu til bæklaðs vaxtar, sem aldrei verður bætt úr, hversu góða aðhlynningu, sem plantan fær. En jafnvel þótt menn hafi kyngóða plöntu handa á milli verður samt að hafa nánar gætur á henni i mörg ár. íslenska birkinu hættir til að verða tví- eða margstofna, mynda alltof grófar hliðargreinar til allra átta ásamt róta- og stubbaskotum og vinda sig á ýmsa lund. Menn verða að sjá við þessu öllu með hæfilegum klippingum annað eða þriðja hvert ár. íslenska birkinu til afbötunar skal þess getið að enda þótt birkið um norðverðan Noreg sé yfirleitt miklu stofnfallegra og beinna en okkar birki, verða menn samt að klippa það og laga, þegar rækta á einstök tré í görðum. Hið sama gildir um norðanverða Svíþjóð. Þess vegna er það skilyrðislaus nauðsyn hér á landi, að fylgjast með vexti birkisins ár eftir ár og hlynna að því með hæfilegum skammti af áburði, ætli menn að koma upp fallegum birkitrjám í görðum sínum. Svipað má segja um snyrtingu annarra trjátegunda í görðum, en engin þeirra er eins vangæf og birkið. Reynir hefur t.d. tilhneig- ingu til að verða margstofna og standi hann í svelti vaxa upp ótal rótaskot en trén verða þá afar ótótleg. Hins vegar myndar reynir sjaldan gildar og útstæðar grein- ar. Alaskaösp hefur yfirleitt gott vaxtarlag og þarf lítið að sinna henni nema ef til vill að stytta gildar hliðargreinar. Álmur og hlynur geta orðið stór og falleg garðtré, en þau varpa miklum skugga og neðstu greinar þeirra geta orðið mjög viðamiklar og til óþæginda, ef þær eru ekki styttar á meðan tími er til. Barrtré þarf sjaldan að laga til með snyrtingu, en greni má klippa og stýfa á ýmsa vegu til að halda því í skefjum. Erfiðara er að eiga við furutegundirnar. Það er aðeins á vissum tíma miðsumars, sem stýfa má árssprotana með góðum árangri, og yrði of langt mál að lýsa því nanar. Markmiðið með snyrtingu trjáa mætti ef til vill orða á þessa leið: Að halda skuli hverju tré innan ákveðinna vaxtarmarka og gæta þess að hvert tré fái þann vöxt er því og umhverfinu hæfir. Áburður Reynslan hefur sýnt svo ótví- rætt er, að í gömlum görðum standa tré mjörg oft í svelti. Með því að reita illgresi og hreinsa lóð- ir berst ótrúlega mikið af mold úr görðum eftir því sem tíminn líður. Ennfremur síga uppfyllingar lóð- anna í mörg ár og jarðvegurinn þéttist. Úr þessu þarf að bæta, t.d. með aðkeyrslu á mómold, skurða- ruðningi og húsdýraáburði, ýmist eitt af þessu eða saman blönduðu. Trén verða hraustari og blaðfal- legri í frjóum jarðvegi en ófrjóum, og þau hrinda iíka betur frá sér bæði möðkum, lús og sveppum þegar þeim líður vel. Ekki þarf annað en að skoða nákvæmlega þroska síðustu árssprota ofarlega í krónu trjánna, til þess að færa nærri um áburðargjöf. Sprotarnir eiga að vera hæfilega gildir og langir, og verður þá að bera þá saman við sprota af öðrum trjám, sem eru í góðum vexti. Með lítilli æfingu geta allir lært þetta á örskömmum tíma, en þeir sem læra þetta kom- ast að raun um, að trén geta talað við okkur á sínu eigin máli. Eigi menn í einhverjum vand- ræðum með að ákveða hvað gera skuli í grisjunarmálum eða snyrt- ingu, ættu þeir að leita til garð- yrkjumanna og draga það ekki úr hófi. Ilákon Bjarnason cr fyrrrerandi skógræktarstjóri.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.