Morgunblaðið - 07.04.1984, Page 18

Morgunblaðið - 07.04.1984, Page 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARÐAGUR 7. APRÍL 1984 Frá því hefur verið sagt í Morgunblaðinu að í framhaldi af kynningu á Sovétríkjunum sem fram fór í héraðsbókasafninu á Hvolsvelli, sem jafnframt er skólabókasafn, hafi farið fram getraun í 7., 8. og 9. bekk grunnskólans á Hvolsvelli um Sovétríkin, þar sem í boði var sem verðlaun ferð til Sovétríkjanna. Jafnframt getrauninni var dreift bæklingi sem heitir „Sovétríkin, spurningar og svör“ og er gefin út af MÍR, Menningartengslum íslands og Ráðstjórnarríkjanna. Skil á úrlausnum voru tæplega 50% og verður dregið úr réttum lausnum. Blaðamaður Morgunblaðsins brá sér til Hvolsvallar nú í vikunni til að kynna sér málið. Grunnskólinn á Hvolsvelli. Tel míg hafa metið málið rétt — segir Guðjón Arnason, skólastjóri grunnskólans á Hvolsvelíi B/EKLINGNUM var dreift samfara getrauninni til þess að þeir sem þátt tóku í henni gætu leitað sér þar upplýsinga, en ýmsar upplýsingar eru í honum, sem gátu hjálpað unglingunum til að svara getrauninni, sagði Guðjón Árnason, skólastjóri grunnskólans á Hvolsvelli, er blm. Morgunblaðsins ræddi við hann. Hann sagði að MÍR hefði verið með þessa getraun og ásamt þremur fulitrúum MÍR hefðu komið 2 stjórnarmenn í Sovésk- íslenska vinafélaginu og tveir menn frá sovéska sendiráðinu, sem fyrst og fremst hefðu komið sem túlkar. Guðjón sagðist ekki hafa ætlað að tjá sig um þetta mál frekar en hann hefði þegar gert, sér fyndist ekki ástæða til þess, hún væri hlægileg þessi Rússagrýla sem þarna væri verið að ala á. Að- spurður kvaðst hann ekki geta neitað því að það væri áróður í þessum bæklingi, en enginn væri neyddur til lesa bæklingin. Hverj- um sem er væri heimilt að láta það vera að taka þátt í getraun- inni. Hann tók undir það að sú staðreynd að verðlaun voru í boði í getrauninni virkaði sem hvatning til að skila úrlausnum, það færi ekki á milli mála, en „hann liti á svona gestakomu sem kærkomið tækifæri til að lífga upp á skólalíf- ið og ég myndi þiggja svona boð frá hvaða þjóð sem er,“ sagði hann. Hann sagði að á umræddum fundi hefði ekki verið dreift áróðri. Foreldrar hefðu væntan- lega skoðað þessi mál vel og það hefði verið tekið skýrt fram við unglingana að þeim væri það frjálst hvort þau væru með í get- rauninni eða ekki. Hann sagði um tildrögin að þessari getraun að ljósmynda- og bókasýning á vegum MÍR hefði verið í héraðsbókasafninu, sem væri tengt skólanum og þjónaði einnig sem skólabókasafn, en safnið byði upp á aðstöðu til slíkra sýninga. f því sambandi hefði ver- ið boðið upp á þessa getraun, sem þeir hefðu þegið. Unglingarnir hefðu fengið að hafa getraunina í viku áður en þau skiluðu. Hann sagðist telja sig hafa lagt rétt mat á málin, er hann leyfði þessa get- raun. Ef getraunin væri skoðuð þá varðaði hún ákveðnar staðreyndir um Sovétríkin, fyrst og fremst landfræðilegar og væri hægt að finna svör við mörgum spurn- inganna í bæklingnum, sem dreift hefði verið. En hann ítrekaði að að öllum hefði verið frjálst að taka þátt í þessari getraun og lesa bæklinginn, enginn hefði verið neyddur til þátttöku. „Ekki rétt að takmarka að- gang unglinga að upplýsingum“ — segir Friðrik Guöni Þórleifsson, héraðs- og skólabókavöröur á Hvolsvelli Friðrik Guðni Þórleifsson héraðsbókavörður í bókasafninu. „Síðastliðið haust skemmtu hér sovéskir listamenn í Njálsbúð í Vestur-Iandeyjum, á vegum MÍR, þar sem ég var staddur. I>ar sem héraðsbókasafnið er fátækt að efni og maður reynir að gera sitt til að efla það á allan hugsanlegan máta, þá skaut ég því að þeim félögum í MÍK sem þarna voru staddir, hvort þeir hefðu eitthvað sem hentaði sýn- ingaraðstöðunni á héraðsbókasafn- inu, og nefndi sem dæmi efni eins og almenna landafræði, listir eða jafnvel hljómplötur, en ég hafði þá nýverið staðið fyrir sérstakri sýningu á þýsku efni í héraðsbókasafninu með aðstoð Karls Kortssonar, kon- súls á Hellu,“ sagði Friðrik Guðni Þórleifsson, héraðs- og skólabóka- vörður á Hvolsvelli, um tildrögin að sovésku sýningunni á héraðsbóka- safninu á Hvolsvelli og eftirmálum hennar sem sagt hefur verið frá í Morgunblaðinu. „Þeir tóku vel í þessa hugmynd og sýningin var sett upp hér af þeim sjálfum um miðjan janúar. Auk þess gáfu þeir safninu bækur, sem fyrst og fremst samanstóðu af sovéskum fagurbókmenntum, listaverkabókum og einnig dálítið af bókum um samfélagsfræðileg efni, landafræði og sögu. Sýningin stóð frá miðjum janúar og fram í febrúarlok, sem var lengur en ætl- að var í byrjun, en af einhverjum ástæðum dróst að taka hana niður. Þá kom fram sú hugmynd hjá einum stjórnarmanni í MÍR, þar sem héraðsbókasafnið þjónar einnig hér sem skólabókasafn við grunnskólann á Hvolsvelli, að gefa nemendum í nokkrum efstu bekkj- unum kost á getraun í tengslum við sýninguna, þar sem verðlaunin yrðu ferð til Sovétríkjanna. Ég lagði þessa hugmynd fyrir skólastjórann hér, Guðjón Árna- son, og hann hefur þegar lýst því í samtali við Morgunblaðið hver hans viðbrögð urðu. Það mun síð- an hafa verið fimmtudaginn 22. mars, að 3 stjórnarmenn í MÍR, 2 sovéskir sendiráðsmenn og 2 gest- ir frá Sovésk-íslenska vinafélag- inu komu hingað. Það var haldin smá samkunda hér í bókasafninu, kallað á krakkana og gestirnir ávörpuðu þau. Þá var formlega til- kynnt um þessa getraun og gögnin afhent ásamt bæklingnum. Þau fengu tíu daga til að svara spurn- ingunum og skiluðu í gær,“ sagði Friðrik. — Hver er þtn skoðun á þeim bæklingi sem dreift var með get- rauninni við þetta tækifæri? „Sínum augum lítur hver á silfr- ið. Sovétmenn líta sín málefni öðr- um augum en útlendingar. Hvort túlkun þeirra heitir áróður eða eitthvað annað má leggja undir mat og ég er ekki viss um að það sé alltaf hlutlaust. Það er mikið af hreinum og beinum staðreyndum í bæklingnum. Þarna eru einnig þeirra sjónarmið hvað varðar túlkun ýmissa félagslegra atriða. Auðvitað gilda einnig önnur sjón- armið hvað þá hluti varðar, en ég minni á það sem Benjamín Franklín sagði: „Það er ekki hægt að taka hlutlausa afstöðu til máls, nema þekkja allar hliðar þess, mína hlið, þína hlið og þá réttu." Hitt ætla ég að undirstrika að unglingarnir eru ekki læstir inní búri, bæði foreldrar og kennarar skoða það sem þarna er á ferðinni og hvað eina sem sagt er í þessum bæklingi er lagt undir mat. Ungl- ingunum var frjálst að svara get- rauninni eða láta það ógert, þarna er um að ræða tilboð, ekki próf sem þeim var skylt að svara. Það getur vel verið að Morgun- blaðinu finnist voðinn vís, en þær upplýsingar sem fólk hefur að- gang að í fjölmiðlum hér á Vestur- löndum hvað varðar Sovétrikin eru mjög einhliða. Til þess að hafa hlutlæga skoðun, þarf fólk að geta kynnt sér báðar hliðar hvers máls. T.a.m. fær fólk ekki fulla mynd af ástandinu í S-Ameríku með því að lesa einungis Þjóðviljann eða bara Morgunblaðið. Maður skyldi ætíð varast áróður af hvaða tegund svo sem hann er. Hann er í öllum tilfellum nei- kvæður og er hindrun frjálsri skoðanamyndun og því fáránlegt að þyrla upp moldviðri út af því að reynt er að bæta úr upplýsinga- skorti. Það verður seint hægt að fá fullnægjandi og endanlegar upp- lýsingar og sannleika um málefni er varða sagnfræði og samfélags- leg efni. Jafnvel í þeim bókum sem við fáum til kennslu er um að ræða sögufalsanir. Sögufölsun er ekki einungis það að segja rangt frá, heldur ekki síður það að sleppa mikilvægum staðreyndum sem varpa ljósi á viðkomandi fyrirbæri og skýra eftirkomandi þróun. Mér finnst ekkert athugavert við það að þessum bæklingi skyldi dreift vegna þess að unglingarnir hafa aðgang að upplýsingum um þessi efni sem sýna hina hliðina a þessum málum og mér finnst litl- ar líkur á því, þó að þau hafi leitað ■svara við spurningum í getraun- inni í bæklingnum, að það sitji í þeim einhverjar staðreyndir sem kynnu að vera hættulegar skoðun- um þeirra í framtíðinni. Þess utan er þetta fólk komið á þann aldur að það er eðlilegt að það fari að draga ályktanir og mynda sér sjálfstæðar skoðanir á fyrirbær- um mannlífsins," sagði Friðrik. Telur þú að persónulegar skoð- anir kennara eigi að hafa áhrif á kennslu þeirra? »Ég væri ekki maður heldur maskína ef skoðanir mínar á mál- efnum hefðu ekki áhrif á það hvernig ég ber þau fram. Ef kenn- arar mega ekki hafa persónulegar skoðanir, þá væru börnin betur sett með því að setja þau fyrir framan tölvur og láta þær troða í þau og jafnvel það dugir ekki, því einhver þyrfti að mata tölvurnar. Auðvitað eiga persónulegar skoðanir að hafa sem minnst áhrif á kennsluna, en hins vegar á ekki að hindra það að börn fái sem víð- tækastar upplýsingar. Þess vegna kennum við þeim að nota bóka- söfn, til þess þau viti að ekki ber öllum heimildum saman. Og það er ekki réttmætt að takmarka að- gang unglinga að upplýsingum," sagði Fririk Guðni Þórleifsson að lokum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.