Morgunblaðið - 07.04.1984, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 07.04.1984, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. APRÍL 1984 19 „Tel sjálfsagt að athuga hvað þarna fór fram“ — segir Jón R. Hjálmarsson, fræöslustjóri á Suðurlandi „Upphaf málsins hvað mig snertir má rekja til þess að skólastjórinn á Hvolsvelli hringdi og tjáði mér að þeim hefði borist tilboð um land- fræðilega kynningu á Sovét- ríkjunum í framhaldi af sýn- ingu sem verið hefði á bóka- safninu. Unglingarnir myndu keppa um hvað þau vissu um hitt og annað og verðlaun yrðu ferð til Sovétríkjanna,“ sagði Jón K. Hjálmarsson, fræðslustjóri í Suðurlands- umdæmi í samtali við blm. Morgunblaðsins um kynn- ingu þá sem fram fór í grunnskólanum á Hvolsvelli á Sovétríkjunum. „Nú, ég sá ekkert sem mælti á móti þessu, því ég álít að heim- sóknir sem þessar lífgi mikið upp á skólastarfið og séu áhugavekj- andi fyrir nemendur. Ég tæki svona tilboði frá hvaða landi sem það kæmi, en því miður hafa ekki verið mikil brögð af tilboðum sem þessum. Heimsóknir heyra ekki undir skólastarfið sem slíkt og ég er illa settur ef ég á að fylgjast með hvað þeir gestir kunna að segja í heimsóknum sínum, sem koma i skólana, og þó fór þessi getraun ekki fram í skólanum sjálfum eftir því sem ég best veit, heldur í bókasafninu," sagði Jón R. Hjálmarsson. Jón sagði það sínar upplýsingar að þarna hefði eingöngu átt að fara fram landfræðilegt próf, þar sem nemendur yrðu spurðir um það sem þau vissu um Sovétríkin og hefði því átt að geta komið þeim að gagni þekkingarlega. Hann sagði að engin kvörtun hefði borist frá foreldrum varðandi þá kynningu á Sovétríkjunum, sem þarna hefði farið fram. Fullyrð- ingar um að ároður hefði farið fram við þetta tækifæri hefði hann einungis úr Morgunblaðinu og hann teldi ótrúlegt og bágt ef svo hefði verið. Jón sagði aðspurður að náms- efni væri ákveðið í öllum megin- atriðum, en kennurum væri frjálst að nota ýmislegt efni, sem þeir teldu geta hjálpað við kennsluna innan þess ramma, sem settur væri. Skólarannsóknadeild reyndi að sjá grunnskólum fyrir náms- efni í meginatriðum, en alltaf þyrfti að fylla út í rammann hvað ýmis atriði varðaði. Það væri gengið út frá því að kennarar sýndu ekki hlutdrægni og hann hefði ekki reynt þá að öðru og aldrei fengið kvartanir þess efnis, og foreldrar myndu trúlega kvarta, ef um áróður væri að ræða. Kennarar væru af öllum mögulegum stefnum og flokkum og skoðanir þeirra ættu ekki að verða þeim fjötur um fót í starfi. Jón var spurður um hver skoðun hans væri á því, ef rétt væri að ákveðnar hugmyndir hefðu verið boðaðar eða áróðri dreift við fyrrgreint tækifæri á Hvolsvelli? „Ég er að sjálfsögðu eindregið þeirrar skoðunar að slíkt megi ekki eiga sér stað, því þá er um innrætingu að ræða. Öll kennsla á að vera hlutlæg og hlutlaus. Ég tel alveg sjálfsagt áð athuga hvað þarna fór fram vegna skrifa Morg- unblaðsins um það að þarna hafi verið dreift áróðri. Ég talaði við skólastjórann á Hvolsvelli eftir að Fróðleikur og skemmtun fyrirháa sem lága! blaðamaður Morgunblaðsins hringdi og spurði hvort einnig hefði verið hringt í hann. Hann svaraði því játandi og ég sagði honum það vera mitt sjónarmið, að ef þetta væri upplýsingar- starfsemi til fróðleiks, þá sæi ég ekkert athugavert. Og ég vil taka það skýrt fram að ég tel allar heimsóknir í skóla geta verið til góðs fyrir nemendur sé það ómengað, sem er borið á borð fyrir þá,“ sagði Jón R. Hjálmarsson að lokum. Jón R. Hjálmarsson, fræðslustjóri í Suðurlandsumdæmi. Hafskiphf. styðuraukíð atakti útflutníngs íslenskiar iðnaðarvöru Vegna aukins átaks í sölu á íslenskum iðnaðarvörum erlendis og í tilefni 25 ára afmælis Hafskips bjóðum við útflytjendum eftirfarandi aðstoð: 1. 2. 3. 4. Aukin umsvif Hafskips erlendis skapa okkar mönnum þekkingu á erlendum stað- háttum, einkum á sviði flutninga, viðskipta og markaðsmála. Þessi þekking stendur til boða, m.a. með ráðgjöf og milligöngu. Fimm svæðisskrifstofur Hafskips erlendis; í Kaupmannahöfn, Hamborg, Rotterdam, Ipswich og New York og eigið flutningafyrirtæki, COSMOS Shipping Co. með skrif- stofur sínar í fimm borgum Bandaríkjanna, eru tilbúnar að veita enn frekari þjónustu. T.d. við ýmiskonar upplýsingaöflun, leit að viðskiptasamböndum, lækkun erlends milliliðakostnaðar, tilboðaleit í flutninga milli svæða erlendis, aðstoð við hráefnisöfl- un og útboð. Skipaður hefur verið sérstakur milligöngumaður á aðalskrifstofu Hafskips í Reykjavík, Þorsteinn Máni Árnason, til að sinna þessum verkefnum auk framangreindra aðila. Leitið til hans með frekari fyrirspurnir. Auk annarrar þjónustu sem að gagni gæti komið nefnum við síðast en ekki síst hvetjandi flutningsskilmála á iðnaðarhráefnum til landsins og fullunninni iðnaðar- vöru héðan. Aukið átak í útflutningi er íslensku þjóðinni lífsnauðsyn. Hafskip hf. gengur heilshugar til leiks. Okkar menn,- þínir menn HAFSKIP HF.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.