Morgunblaðið - 07.04.1984, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 07.04.1984, Qupperneq 44
44 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. APRÍL 1984 jy Hvení^ má (7<ab \jero~, ab 5y$t\r mín f^r ðtór blct hyLki'^en fje hóe>tasa.fb r5" ^ísí er .. • ... aö þola hrot- .urnar í honum næturlangt. TM Reg U.S. Pat Off — aN riahts reserved •1984 Los Angeles Times Syndicate Ég vann í t-inhverri vitleysis-get- raun um daginn! Ilann er ekki heima, fór út meó hundinn! HÖGNI HREKKVÍSI HEFUF?e>U séo JÓLA^SkrAueSTANN hennar brjaludu bínu ?" Kobbavísur — hver er höfundurinn? 5142-9184 sendi Velvakanda þessar vísur og biður lesendur að aðstoða sig við að finna út hver höfundur þeirra er. Kobbi í bobba Orðum ég að þvi sný eitthvað segja um Kobba. Karlinn var kominn í konuleysisbohba. Inni jafnt sem úti hann í öllu varð að djobba slíkt vill þreyta margan mann mest það ergði Kobba. Svo fór hann með sjálfum sér svolítið að grobba og hugsar með sér: einhver er ungfrú sem vill Kobba. Hvert var best að horfa þá hafð’ann staði nóga. Þarna í næsta húsi hjá heima átti Gróa. I bónorðsför svo fór af stað fljótar hljóp en tófa heilsar fyrst en hátt svo bað: Sjálfri þér að segja um mig sögu hef ég nóga ég hef alltaf elskað þig inn að beini Gróa. Væri ekki yndislegt að eiga með þér króga er það kannsi af mér frekt — ansaðu mér Gróa. Síst þá lengi svarið brast sína breiðu lófa um háls á Kobba kreisti fast kát og rjóð hún Gróa. Svo frá þeirri sögu sný. En svona fór með Kobba að nú er karlinn kominn í konuríkisbobba. „Björgunarsveit varnarliðsins hefur gegnt mikilvægu hlutverki hérlendis og bjargað mörgum mannslífum.** Þessi mynd er af þyrlu varnarliðsins að björgunarstörfum. Frestun á þyrlukaupum: Skortur á skilningi l»ór Magnússon formaður björg- unarsveitarinnar Hjálpin á Akra- nesi skrifar: „Stjórn björgunarsveitarinnar Hjálpin á Akranesi lýsir furðu sinni á vinnubrögðum og yfirlýs- ingum ráðherra ríkisstjórnarinn- ar um hugsanlega frestun á þyrlu- kaupum til gæslunnar. Ráðamenn þjóðarinnar verða að gera sér ljóst að stór hluti björgunar- og leitar- starfa hér á landi er unninn í sjálfboðavinnu. Á undanförnum árum hefur verið unnið stórátak í samstarfi Landhelgisgæslu, varnarliðs, Slysavarnafélags fslands, sjúkra- húsa og fleiri víða um land. Allir, sem nálægt þessum málum koma, gera sér ljóst að útilokað er að sinna leitar- og björgunarstörfum í algjöru fjársvelti. f flestum nágrannalöndum okkar sér herinn eða þjóðvarðliðið um þessi mál. Hér eru það félög sjálfboðaliða. Til skipa- og þyrlu- rekstrar höfum við Landhelgis- gæsluna. Það er skylda ráða- manna þjóðarinnar að hún sé öfl- ug bæði til gæslu- og björgunar- starfa. Það er margsannað að ekki skortir okkur hæfa starfsmenn, heldur skortir peninga í þessi mál. Eða réttara sagt: skilning á nauð- synlegri þörf. Björgunarsveit varnarliðsins hefur gegnt mikilvægu hlutverki hérlendis og bjargað mörgum mannslífum. Áhafnir þeirra eru þrautþjálfaðar en mannaskipti eru með tveggja til þriggja ára millibili og fer því oft dýrmæt reynsla á staðháttum og veðri úr landi. Þá má ekki gleyma því að björgunarsveit varnarliðsins er hér fyrst og fremst fyrir herstöð- ina og þau umsvif sem henni fylnja. Gott samstarf Landhelgisgæslu, Slysavarnafélags íslands, varnar- liðs og fleiri aðila, er grundvöllur fyrir árangri í meiriháttar leitar- og björgunaraðgerðum. Áhafnir gæslunnar hafa yfir mikilli þekk- ingu og þjálfun á landinu að ráða. Þetta er þekking sem ekki má tap- ast. Við trúum því ekki að ríkis- stjórnin ætli að renna á rassinn í þessu mikilvæga öryggismáli. Það væru svik við sjómennina og fólk- ið í landinu. Að lokum viljum við þakka þeim aðilum sem aðstoðuðu okkur við framkvæmd og merkingu þyrlu- vallar á Akranesi, en það voru SVFÍ, flugmálastjórn, Landhelg- isgæslan, varnarliðið og margir fleiri. Fyrir hönd björgunarsveitar- innar Hjálpin.“ Ónákvæmni í orðabókum Sigurjón Sigurbjörnsson skrifar: „í orðabók Blöndals er orðið „sjóborg“ með þeirri einu skýringu „By ved Havet“. 1 orðabók Menningarsjóðs, sem kom út 1963, er skýringin líka ein og þessi: „skip sem aldrei hlekkist á“. Þetta tel ég ófullkomna skýr- ingu. Sjóborgir eru þau skip og bátar nefndir, sem verja sig afburðavel í miklum sjógangi á rúmsjó. And- stæður þeirra eru nefndar sjókæf- ur. En þó þessar fleytur séu svo góðar í sjó að leggja, að varla komi dropi á dekk, getur þeim hlekkst á. Strandað, lent í árekstri, fengið óstöðvandi leka, eða brunnið svo nokkuð sé nefnt. Ekkert er án hættu um að hlekkjast á í heimi hér.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.