Morgunblaðið - 05.05.1984, Side 1

Morgunblaðið - 05.05.1984, Side 1
48 SÍÐUR OG LESBÓK tratisiMfiMfe STOFNAÐ 1913 101. tbl. 71. árg. LAUGARDAGUR 5. MAI 1984 Prentsmiðja Morgunblaðsins Lech Walesa leiðtogi óháðu verkalýðssamtakanna í Póllandi: Næst verður ofbeldi lögreglunnar svarað Moskvu og Varsjá, 4. maí. AP. „MÉR ÞYKIR leitt að þurfa að segja það, en þetta eru líklcga sfðustu mót- mælaaðgerðirnar þar sem lögreglan er látin komast upp með að beita fólk ofbeldi án þess aö það svari fyrir sig,“ sagði pólski verkalýðsleiðtoginn Lech Walesa í dag í viðtali við vest- ræna fréttamenn um óeiröirnar í nokkrum stórborgum Póllands á þriðjudag og fimmtudag. Walesa kvaðst hafa hvatt til friðsamlegra mótmæla, en gæti ekki lengur haldið aftur af fólki sem vildi verja hendur sínar. Sjálf- ur sagðist hann ætla að svara i sömu mynt ef á hann yrði ráðist. Pólsk yfirvöld hafa viðurkennt að 686 manns hafi verið handteknir er lögregla réðst á mótmælagöngur óháðu verkalýðssamtakanna 1. maí og leysti þær upp. Til óeirða kom einnig 3. maí, en þann dag minnast Pólverjar stjórnarskrárinnar frá 1791 er færði þeim aukin lýðrétt- indi. Ekki er vitað hve margir voru þá handteknir, en yfirvöld segja að þeir hafi verið „mun færri" en 1. maí. Wojciech Jaruzelski leiðtogi Pólverja er nú staddur í Moskvu til viðræðna við Konstantin Chern- enko forseta Sovétríkjanna. í dag undirrituðu þeir samning sem ríkin hafa gert með sér um samvinnu á sviði efnahagsmála og tækni og vísinda. Talið er fullvíst að óeirð- irnar í Póllandi að undanförnu og almennt stjórnmálaástand í land- inu hafi einnig borið á góma í við- ræðum leiðtoganna og það þykir til marks um mikilvægi þeirra að auk Chernenkos tóku þátt í þeim for- sætisráðherra, utanríkisráðherra og varnarmálaráðherra Sovétríkj- anna. Jaruzelski sagði í hádegisverð- arboði í Kreml að ekki kæmi til greina að víkja frá stefnu komm- únistaflokka í Póllandi. Chernenko sagðist trúa því að Pólverjar gætu komist yfir erfiðleika sína og lagði áherslu á að kommúnistar styrktu stöðu sína í Austur-Evrópu. Forkosningar bandarískra demókrata í dag: Framtíð Harts ræðst í Texas Wa-shington, 4. maí. AP. DEMÓKRATAR í Texas munu á morgun, laugardag, leggja sitt lóð á vogar- skálarnar í forkosningabaráttunni innan flokksins. Eru þeir Mondale og llart báðir sigurvissir og fyrir þann síðarnefnda er um „líf eða dauða“ að tefla. Ef hann sigrar ekki nú getur hann tekið pokann sinn. Um það eru flestir sam- mála. Flokksvélin og flestir frammá- Bentsen, öldungadeildarþingmað- Kosið í E1 Salvador á morgun: Duarte sigur- stranglegur San Salvador. 4. maí. AP. NAPOLEON DUARTE úr Kristi- lega demókrataflokknum er talinn sigurstranglegur í úrslitaumferð forsetakosninganna í El Salvador, sem fram fer á sunnudag milli hans og Roberto D’Aubuissons, forsetaefnis hægri manna. Duarte hlaut 43% atkvæða í fyrri umferð kosninganna 25. marz sl., en D’Au- buisson fékk þá 29%. Talið er að Duarte fái mikið af fylgi þeirra frambjóðenda, sem tóku þátt í fyrri umferð kosn- inganna. Sjá: „Sigurlíkur Duarte hafa far- ið vaxandi", bls. 16—17. Þrjú þúsund manna herlið stjórnar El Salvador er nú í (’abanas-héraði í norðausturhluta landsins og sækir þar fram gegn skæruliðum vinstri manna. Er markmiðið að hindra að skæruliðar komi í veg fyrir þátttöku kjósenda í forsetakosningunum á morgun. A þessari símamynd frá AP sést hluti herliðsins. menn demókrata í Texas styðja Mondale, en stuðningsmenn Harts eru þó bjartsýnir á að sigra. Lloyd Grænland: Mokveiði á rækjunni Kaupmannahöfn. 4. maí. Krá NJ. Hruun, GrænlandsfrétUiriUra Mlil. ÁTTA af níu togurum dönsku Grænlandsverslunarinnar eru nú hættir þorskveiðum og teknir til við rækjuna með góðum árangri. Fyrstu þrjá mánuði ársins fengu þeir 1.687 tonn af rækju við vest- urströndina, en á sama tíma f fyrra fengust þar aöeins 500 tonn. Rækjuveiðarnar ganga sér- staklega vel á svokölluðum Banan-banka vestur af Nuuk, þar sem löngum hafa verið góð þorskmið, og allt norður til Disko-eyjar. Hvað þorskveið- arnar snertir er hins vegar um algert hrun að ræða. Eini tog- ari Grænlandsverslunarinnar, sem þær stundar, fékk 260 tonn á fyrstu þremur mánuð- um ársins. ur, kom fram með Mondale á fundi í Austin og sagði, að demókratar þyrftu á að halda leiðtoga, sem gæfist ekki upp, þótt á móti blési. Atti hann þá við, að Mondale hefði tvíeflst við ósigrana fyrir Hart snemma í forkosningunum. Texas sendir 169 fulltrúa á landsfundinn í júlí og það er nú eða aldrei fyrir Hart að sýna að hann eigi einhverja möguleika. Um helg- ina, frá laugardegi til þriðjudags, munu demókratar velja samtals 600 fulltrúa í forkosningum og svo getur farið, að úrslit á landsfundin- um verði raunverulega kunn strax á miðvikudag. Bæjar- og sveitarstjórnakosningar í Bretlandi: íhaldsflokkurinn galt mikið afhroð London, 4. maí, AP. ÍHALDSFLOKKUR Margrétar Thatchers forsætisráðherra beið mik- inn ósigur í bæjar- og sveitarstjórna- kosningum sem fram fóru í Bretlandi Hermdaryerkasveitir gyðinga afhjúpaðar Tel Aviv, 4. m»í. AP. ÚTVARPIÐ í Tel Aviv greindi frá því í dag að ísraelska öryggislögreglan hefði afhjúpað nokkur leynileg samtök öfgasinnaðra gyðinga sem höfðu á prjónun- um hermdarverk gegn Palestínumönnum. Samkvæmt frétt útvarpsins hafa margir verið handteknir og búist er við frekari handtökum. Samtökin munu hafa haft í bígerð að ráðast á palestínska stúdenta á hernáms- svæði ísraela á Vesturbakkanum. M.a. höfðu verið lögð drög að árás á Bir Zeit-háskólann, en þar eiga þjóðernissinnaðir Palestínumenn miklu fylgi að fagna. Fyrir nokkrum dögum voru 35 öfgasinnaðir gyðingar handteknir eftir að sprengjur sprungu í fimm strætisvögnum í eigu Palestínu- manna með þeim afleiðingum að 33 óbreyttir borgarar slösuðust. í gær. Verkamannaflokkurinn og Bandalag jafnaðarmanna og frjáls- lyndra juku hins vegar fylgi sitt. íhaldsflokkurinn tapaði einnig fylgi í aukakosningum til þingsins í þremur kjördæmum, en hélt þó þeim tveimur þingsætum sem hann hafði þar fyrir. íhaldsmenn töpuðu meirihluta sínum í 14 bæjum og borgum, þar á meðal í iðnaðarborginni Birming- ham, hafnarborgunum Liverpool og Southampton, Cheltenham, og Edinborg, höfuðstað Skotlands. A þessum stöðum er Verkamanna- flokkurinn nú í meirihluta. Frambjóðendur íhaldsflokksins í kjördæmunum South-West Surrey og Stafford náðu endurkjöri, en misstu mikið fylgi til Bandalags frjálslyndra og jafnaðarmanna. Frambjóðandi Verkamannaflokks- ins vann á ný öruggan sigur í kjör- dæminu Cynon Valley í Suður- Wales. Ef tekið er mið af úrslitum síð- ustu þingkosninga í Bretlandi þýða þessi úrslit 9 prósent fylgisaukn- ingu Verkamannaflokksins. Neil Kinnock, formaður flokksins, sagði á fundi verkalýðsfélags í Llan- dudno í Welsh, er úrslit voru kunn: „Ef þetta hefðu verið þingkosn- ingar væri ég ekki staddur hér núna. Ég væri að flytja inn í for- sætisráðherrabústaðinn við Down- ing Street." Diana Dors lést í gær Windsor. 4. maí. AP. BRKSKA leikkonan Diana Dors lést í kvöld eftir langvinna baráttu viö krabbamein. Hún var 52 ára aö aldri.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.