Morgunblaðið - 05.05.1984, Side 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. MAÍ1984
ársins
drottningar verða
ir hússi
íslahds 1984
' hliðs§pi(d§ þ
föstuda
Hér
ngu Reykjavíkur 198T. ~Dómnefnd keppninnar
ardrottningarnar verða valdar og krýndar við
yerður
^ah
kynnir MorgunhlaðédkMp^^^Íknanna, sem taka þátt í úrslitakeppnin
m verða kynntar
Magðalena
Ósk
Einarsdóttir:
Ætla að verða
læknaritari
MAGÐALENA ÓSK EINARSDÓTTIR er Breiðhyltingur í húð og hár,
þar hefur hún búið síðan hún var kornabarn. Hún verður 18 ára 15. júlí
í sumar, fædd 1966. „Ég stunda nám á læknaritarabraut í Fjölbrauta-
skólanum í Breiðholti og hef hugsað mér að reyna að fá vinnu sem
læknaritari þegar ég lýk námi um tvítugt," sagði hún. „Mér líst vel á að
taka þátt í þessari keppni þótt ég hafi ekki mikinn tíma til að hugsa um
hana vegna prófanna, sem eru búin hjá okkur 10. maí. Það hefur verið
gaman að kynnast fólkinu og öllu, sem er að gerast í kringum keppnina."
Magðalena lagði stund á dansnám áður fyrr en nú tekúr skólinn allan
hennar tíma — það er rétt svo, að hún gefur sér tíma tvö eða þrjú kvöld
í viku til að fara út að hlaupa.
Tek öldungadeildina
í kvöidskóia í haust
GUÐRÚN Reynisdóttir er fædd og uppalin í Keflavík og vill heist ekki
annars staðar vera. Hún verður 18 ára 9. ágúst í sumar og starfar nú
sem stendur í tískuversluninni Coda í heimabæ sínum. Framtíðaráform-
in eru enn nokkuð óljós en hún er þó ákveðin í að fara í öldungadeild
Fjölbrautaskólans á hausti komanda og sækja kvöldskóla. „Keppnin
leggst bara vel í mig,“ sagði hún, „en ég neita því ekki að ég er svolítið
óstyrk í aðra röndina. Annars er erfitt að segja nokkuð um keppnina
fyrr en hún er yfirstaðin — en mér finnst mjög gaman að taka þátt í
þessu." Helstu áhugamál Guðrúnar eru ferðalög og skíðaiðkun. „Flínk?"
endurtók hún. „Ja, ég get að minnsta kosti staðið!"