Morgunblaðið - 05.05.1984, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. MAÍ 1984
19
Sinfóníutónleikar
Tónlist
Jón Ásgeirsson
Efnisskrá:
J.S. Bach — Forlcikur í g-moll
Áskell Másson — Konsert fyrir lág-
fiðlu
Dvorák — Sinfónía nýja heimsins
Einleikari: Unnur Sveinbjarnardótt-
ir
Stjórnandi: Jean-Pierre Jacquillat
Fyrsta verkið á efnisskránni er
svíta nr. 5 og sögð eftir J.S. Bach.
Svíturnar kallaði Bach forspil
(Overture) og eru til fjögur slík
verk eftir hann. Fimmta verk
sömu gerðar er til með rithendi
Bachs, en ekki talið eftir hann, þó
það beri merkið 1070 í tón-
verkaskránni, sem eins konar af-
gangsnúmer. Gárungar segja að
verkið sé eftir strákana hans en
aðrir, að gamli maðurinn hafi af-
ritað verkið, sem nú sé glatað í
upprunalegri gerð. Hvað sem því
líður er gerð verksins ólík því sem
heyra má hjá Bach, endalausar
hljómeltur, einfaldar endurtekn-
Unnur Sveinbjarnardóttir
ingar steffryma og mjög einfaldur
hljómrænn ritháttur, sem meira
að segja minnir á fyrstu píanó-
sónötur Haydns. Svona lagað
hefði gamli Bach ekki gert, enda
er verkið skráð í listanum aftast
og með athugasemdinni óekta —
falsað — rangfeðrað. Aðalvið-
Askell Másson
burður kvöldsins var frumflutn-
ingur lágfiðlukonserts eftir Áskel
Másson. Verkið er einþáttungur,
sem rofinn er með kadensu og
endar á kadensu. Samleikur
hljómsveitar og einleikshljóðfær-
is er skýr og hljómfallegur en öll
átök mjög skammæ. Kadensurnar
og þó einkum sú seinni eru ekta
kadensur með sterkum „impró-
vístorískum" blæ. Unnur Svein-
bajrnardóttir er frábær fiðluleik-
ari og lék hún konsertinn með
glæsibrag. Síðasta verkið var svo
Sinfónía nýja heimsins eftir
Dvorák. Þetta glæsiverk var á
köflum mjög vel leikið, þrátt fyrir
óþarfa ónákvæmni í samspili sem
víða mátti heyra. Enska sólóin í
Largo-þættinum var mjög vel
leikin af Daða Kolbeinssyni og
eitt og annað var einnig vel leikið,
svo að í heild var flutningurinn
ánægjulegur undir stjórn Jean-
Pierre Jacquillat.
Jón Ásgeirsson
P.s. Smáleiðrétting: 1 umsögninni
um Pierre Laniau breyttist e_in
setning lítillega en þar segir:
„Pierre Laniau ræður yfir ótrú-
lega mikilli tækni" en átti að vera
samkvæmt handriti „ræður trú-
lega yfir mikilli tækni“. Eitt lítið
„ó“ getur breytt miklu. Önnur
mistök er rétt að nefna og það var
í umsögn um tónleika Mótettu-
kórs Hallgrímskirkju en þar eru
raddsetningar sagðar eftir söng-
stjórann, Hörð Áskelsson, en rétt
er að þær eru gerðar af bróður
hans, Jóni Hlöðver Áskelssyni,
sem áður hefur sýnt að hann á
erindi við nótnablaðið. J.Á.
Þriöja útboð ríkisvíxla:
Lágmark
víxlafjölda
nú fímm
Fjármálaráðuneytið hefur tilkynnt
þriðja útboð ríkisvíxla, að upphæð 30
milljónir kr. Sú breyting er á orðin
frá fyrri útboðum, að nú er lágmark
víxlafjölda sem tilboð þarf að gera í
5 víxlar í stað 10 áður. Hver víxill er
að fjárhæð 50 þúsund kr. og lág-
marksupphæð því 250 þús. kr. í stað
500 þús. kr.
f öðru útboði ríkisvíxlanna sem
var í síðasta mánuði seldust 57
víxlasett, hvert þeirra að nafn-
verði kr. 500 þús. kr., eða samtals
28,5 millj. kr. Söluverðið nam 26,9
millj. kr., sem jafngilti 25,97%
ársávöxtun að meðaltali.
í fréttatilkynningu frá fjár-
málaráðuneyti segir, að fækkun
lágmarksfjölda víxla sé nú ákveð-
in í þeim tilgangi að gefa fleirum
kost á að gera tilboð í ríkisvíxla.
Skilafrestur tilboða rennur út kl.
14 hinn 9. maí nk.
w
öiiuni huð^gi^um.
&
týrl. rafdr 1
laesiua3/:
jepp' a '
réttlHð' ,álfvirkur ]
itýri oð sJafdrifnar
)asti"ir' lngar oð
rúöur. [f ks0Pnari-
r .kottioksoi' u
ÞORA DAL AUGL YSINGASTOFA
LUXUS