Morgunblaðið - 05.05.1984, Qupperneq 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. MAÍ 1984
Genscher til
Washington
Bonn, 4. maí. AP.
Hans-Dietrich Genscher utanríkisráðherra Vestur-I'ýzkalands heldur í kvöld til
Bandaríkjanna og í Washington mun hann kvnna bandarískum valdhöfum
áhyggjur ríkja EBE vegna áforma stjórnar Reagans um að færa vígbúnaðarkapp-
hlaupið út fyrir gufuhvolf jarðar, að sogn embættismanna í Bonn.
Genscher mun einnig hvetja
Bandaríkjamenn til að auðsýna á ný
vilja sinn til að bæta samskipti aust-
urs og vesturs. Mun hann ræða sér-
staklega við Reagan og Shultz utan-
ríkisráðherra um samband Banda-
ríkjanna og Sovétríkjanna. Ferð
Genschers hefur hlotið mikilvægi
sakir þess að síðar í mánuðinum fer
hann einnig til Moskvu til viðræðna
við ráðamenn þar.
Embættismaður, sem er náinn
samstarfsmaður Genschers, kvað
stjórnvöld í Bonn og Washington
hafa skiptst á skoðunum varðandi
tillögur Bandaríkjamanna um smíði
vopna til notkunar úti í geimnum.
Áætlun Bandaríkjamanna varðaði
ekki einvörðungu samband Banda-
ríkjanna og Rússa, heldur einnig ör-
yggishagsmuni Evrópuríkja.
Sagði embættismaðurinn að
stjórnin í Bonn hvetti til þess að
Bandaríkjamenn og Rússar hæfu
samningaviðræður um geimvígbún-
að þegar í stað, þótt vígbúnaður af
þessu tagi væri ekki á næstu grösum.
Vopnafundi Líbýu-
manna vísað á bug
London, 4. maí. AP.
STJÓRNVÖLD í Líbýu segjast hafa
fundið fimm skammbyssur, skotfæri,
táragassprengjur og gasgrímur f pen-
ingaskáp, sem brotinn hafi verið upp í
byggingu þeirri þar sem scndiráð Breta
í Tripoli var áður til húsa. Var frá
þessu skýrt í sjónvarpsútsendingu í
Líbýu í dag. Tekið var fram, að tveir
starfsmenn ítalska sendiráðsins í Trip-
oli hefðu verið viðstaddir er peninga-
skápurinn var opnaður. Ítalía gætir nú
hagsmuna Breta í Líbýu eftir að þeir
slitu stjórnmálasambandi við landið.
Brezka utanríkisráðuneytið vísaði
í dag algerlega á bug staðhæfingum
Líbýustjórnar um vopnafund í sendi-
ráðsbyggingunni. Lýsti talsmaður
ráðuneytisins þessum staðhæfingum
sem „fáránlegum". Fyrst þegar ít-
öisku sendimennirnir komu til bygg-
ingarinnar, þá hefði enginn Líbýu-
maður verið þar til staðar til þess að
taka á móti þeim. ítalirnir voru svo
aftur boðaðir á vettvang í gær eftir
að Lfbýumenn sögðust hafa fundið
vopnin. „Það ert augljóst, að Líbýu-
menn komu vopnunum fyrir í sendi-
ráðsbyggingunni i millitíðinni,“
sagði talsmaður brezka utanríkis-
ráðuneytisins í dag.
íbúar í Langasundi í Noregi æfir:
Hvíta ráðhúsið
skal rauðmálað
Osló, 4. maí. Krá Jan Krik Lauré, fréttaritara Mbl.
ÍBI ARNIR í langasundi í Noregi ná ekki upp í nef sér fyrir bræði og sjá
rautt í bókstaflegri merkingu. Bæjarstjórnin hefur nefnilega samþykkt að
niála gamla, hvíta ráóhúsið í bænum rautt, og brjóta með því gamla hefð á
þessum slóðum.
Langasund er allnokkuð fyrir
sunnan Ósló, á Suðurlandinu eins
og sagt er, en þar hefur það verið
ófrávíkjanleg regla um langan ald-
ur, að hús og byggingar séu hvít.
Þess vegna er Suðurlandsströndin
stundum kölluð „hvíta ströndin".
Ráðhúsið í Langasundi er rúm-
lega aldargamalt og á lista yfir
norskar þjóðminjar, þannig að það
má ekki rffa eða breyta nema með
leyfi þjóðminjavarðar. Fram að
síðustu aldamótum var húsið rautt
en þá var það málað hvítt og hefur
haft þann lit f rúm 80 ár. Þjóð-
minjavörður vill hins vegar hafa
það rautt eins og það var fyrir
aldamót og bæjarstjórnin féllst á
það.
íbúarnir í Langasundi voru ekki
spurðir ráða og þeir ætla ekki að
láta þjóðminjavörð eða nokkurn
annan komast upp með að spilla
hvíta litnum. Málararnir í bænum
hafa neitað að koma nálægt
verkinu og margir hafa á orði að
komið verði í veg fyrir, að húsið
verði vanhelgað með rauðum lit.
w * *r
Frá heimsókn páfa í Suður-Kóreu. Jóhannes Páll páfi II. heilsar kristn-
um konum klæddum þjóðbúningi Kóreu.
Fordæmdi hryöjuverk
Seoul, 4. maí. AP.
JÓHANNES Páll páfi II heimsótti í .dag holdsveikrabúðir í Suður-
Kóreu og sagði, að Jesús hefði framar öðrum borið þá sem þjást
fyrir brjósti.
í öðru ávarpi, sem páfinn flutti erlendum sendistarfsmönnum,
sagði hann, að binda yrði enda á „skefjalaust ofbeldi". Fordæmdi
hann sprengjutilræði þau, sem áttu sér stað í Burma í fyrra, en þá
biðu margir af helztu stjórnmálamönnum Suður-Kóreu bana.
Á morgun, laugardag, er gert ráð fyrir því, að páfinn fari m.a. til
borgarinnar Pusan í suðurhluta landsins, þar sem hann hyggst
flytja útimessu. Er gert ráð fyrir, að allt að 300.000 manns verði
þar viðstaddir.
Rás tvö
vel tekið
í Noregi
Osló, 4. maí. Frá Jan Erik Laure
fréttaritara Mbl.
Rás tvö hjá norska útvarpinu hefur
hlotið góðar viðtökur og virðist sem
fleiri hlusti á rás tvö en þá einu sem
fyrir var.
Samkvæmt skoðanakönnun um
páskana tóku 56% Norðmanna rás
tvö fram yfir rás eitt, meðan 30%
vildu frekar hlusta á rás eitt en
tvö. Rás tvö flytur fyrst og fremst
léttmeti, þar sem tónlist skipar
mikinn sess, meðan rás eitt flytur
„alvarlegri" dagskrá.
Unnið er að uppbyggingu og
skipulagi dagskrár rásar tvö og
því eru útsendingar aðeins hluta
úr degi enn sem komið er. Eftir
um það bil ár verða útsendingar á
rás tvö jafn lengi og á rás eitt.
Stjórnendur rásar eitt kveðast
ekki undrandi á niðurstöðum
könnunarinnar, en hyggjast fara í
meiri samkeppni við rás tvö með
dagskrárbreytingum til þess að
endurheimta hluta hlustendanna.
Faraldur
dregur
1500 menn
til dauða
Delhí. 4. maf. AP.
RÚMLEGA 1.500 manns hafa dáið og
nærri 30 þúsund þjáðst með ýmsum
hætti úr sjúkdómi, sem orsakast af
mcnguðu drykkjarvatni, sem inniheld-
ur bakteríur er valda bólgum ( þörm-
um, lifur og maga.
Fyrst varð sjúkdómsins vart í
febrúar, en hann hefur breiðst út
sem faraldur síðan. Flestir hinna
látnu eru börn á aldrinum eins til
þriggja ára. Sjúkdómurinn hefur
verið hvað skæðastur f fylkinu
Vestur-Bengal í austurhlut \ Ind-
lands.
Fundur frú Thatcher
og Mitterrands í gær
Tekst að leysa deilurnar í EBE?
Parí-s, 4. maí. AP.
FRÚ Margaret Thatcher, forsætis-
ráðherra Bretlands, kom til Parísar
í dag og hélt þcgar til Elysée hallar
til afar mikilvægra viðræðna við
Víetnamar segjast hafa
fellt hundruð hermanna Kína
Bangkok, 4. maí. AP.
VÍETNAMAR héldu því fram í dag
að hundruð kínverskra hermanna
hefðu verið felldir, særðir eða teknir
til fanga í vikunni, er kínverskar
innrásarsveitir réðust inn í landa-
mærahéraðið Ha Tuyen í norður-
hluta Víetnam.
Hið opinbera máigagn komm-
únistaflokks Víetnam, Nhan Dan,
sagði fjölmennt herlið Kínverja
hafa ráðist inn í Víetnam og hafi
komið til harðra bardaga. Engar
fregnir fóru af mannfalli í liði Ví-
etnama eða hvort kínversku inn-
rásarsveitirnar, sem svo eru
nefndar, hefðu verið hraktar til
baka.
Blaðið sagði mikla spennu ríkja
á landamærunum. Kínverjar
hefðu safnað þar saman gífurlega
fjölmennu herliði og lýst viðbún-
aðarástandi á stróum svæðum.
Blaðið sakaði Kínverja um dagleg-
ar árásir á víetnamskt land á
þessum slóðum frá aprílbyrjun.
Segir biaðið árásirnar standa í
beinu sambandi við Kínaferð Ron-
alds Reagan, Bandaríkjaforseta,
sem er nýlokið. Sagði blaðið að í
kjölfar Bandaríkjaferðar Dengs
Xiaoping 1979 hafi 600 þúsund
manna herlið Kínverja ráðist inn í
sex landamærahéruð í norður-
hluta Vietnam. Á blaðið þar við
sex vikna stríðið, sem blossaði upp
milli Kínverja og Víetnama í
kjölfar innrásar þeirra síðar-
nefndu í Kambódíu. Grunnt hefur
verið á því góða með Kínverjum og
Víetnömum upp frá því.
Francois Mitterrand Frakklands-
forseta um deilu þá, sem óleyst er
varðandi framlög Breta til Efna-
hagsbandalags Evrópu (EBE).
Geoffrey Howe, utanríkisráðherra
Bretlands, og Roland Dumas, Evr-
ópumálaráðherra Frakklands, tóku
einnig þátt í þessum viöræðum.
Frú Thatcher og Mitterrand
hittust síðast á fundi æðstu
manna EBE í Brussel í marz, en
þar náðist ekki samkomulag um
þá kröfu Breta, að framlög þeirra
til EBE verði minnkuð að mun.
Var Mitterrand, sem nú fer með
embætti forseta ráðherranefnd-
ar bandalagsins, mjög andvígur
öllum tillögum frú Thatcher á
þessum fundi.
Umsóknir Spánverja og Portú-
gala um aðild að Efnahags-
bandalaginu voru einnig til með-
ferðar á fundi þeirra frú Thatch-
er og Mitterrands nú.
Hvernig getur gjörbreytt garðinum þínum...