Morgunblaðið - 05.05.1984, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 05.05.1984, Qupperneq 26
T'O 26 ^ » 1Í - rr»Tr-\ f rTíT • r»TT * t nrn » rrrisrTrwrovil MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. MAÍ 1984 Þessi mynd er tekin á Flóamarkaði sem Fimleikahópur Stjörnunnar gekkst fyrir á Lækjartorgi sl. sumar. Kristjana Kristjánsdóttir mátar jakka á Hall- dór Snorrason. Fimleikahópur kvenna í Stjörnunni Garðabæ: Gengst fyrir flóamarkaði og kökubasar um helgina Ráðherrar Framsókn ar sátu fyrir svörum Rangur tími í ÞÆTTINUM „Hvað er að gerast urr. helgina" í Mbl. í gær var sagt frá máíverkauppboði sem haldið verður í Gyllta salnum á Hótel Borg nk. sunnudag. Rangt var far- ið með tímasetningu, en uppboðið verður frá kl. 15.00—17.00. Mál- verkin verða hins vegar til sýnis á staðnum frá kl. 13.00. Morgun- blaðið biðst velvirðingar á þessum mistðkum. Kristján Elís Jónasson. Söngtónleikar í Norræna húsinu KRISTJÁN Elís Jónasson, barítón- söngvari, heldur tónleika í Norræna húsinu í dag, laugardag, klukkan 16. Undirleikari er Vilhelmína Ólafs- dóttir. Kristján Elís Jónasson er frá Helgastöðum í Reykjadal. Hann hefur verið búsettur á Akranesi undanfarin fimm ár og stundað söngnám þar, fyrst hjá Guðmundu Elíasdóttur en síðan hjá Unni Jensdóttur. Fimleikahópur kvenna úr Stjörn- unni í Garðabæ fer til Noregs í sumar til að taka þátt I norrænni fimleikahátíð. Til að standa straum af kostnaði við ferðina standa kon- urnar fyrir flóamarkaði og kökusölu í Garðaskóla við Vífilsstaðaveg laug- ardag og sunnudag, 5. og 6. maí. SIGRÚN Eldjárn opnar sýningu í dag, laugardaginn 5. maí, í húsi Jóns Sigurðssonar við 0ster Voldgade 12 í Kaupmannahöfn. Sigrún dvelur um þessar mundir ásamt fjölskyldu sinni í fræðimannsíbúðinni þar í húsi. Á sýningunni verða grafík- myndir og teikningar gerðar 1983—’84. Opið er báða dagana frá kl. 14—19. Fimleikahópurinn tekur þátt í norrænni fimleikahátíð í Sande- fjord í Noregi 24,—30. júní nk. Hópurinn sýnir á hátíðinni og tek- ur einnig þátt í námskeiðum. Lov- ísa Einarsdóttir er þjálfari hóps- ins. Þetta er fjórða einkasýning Sig- rúnar, en hún hefur einnig tekið þátt í fjölmörgum sýningum heima og erlendis. Sýningin í Jónshúsi er opin virka daga frá 17—22, laugardaga 14—22 og sunnudaga 14—20, en er lokuð á þriðjudögum. Sýningin stendur til 27. maí. VEGNA mistaka við vinnslu féll niður eftirfarandi frétt, sem birtast átti í Mbl. 1. maí undir fyrirsögninni „Ráðherrar Framsóknar sátu fyrir svörum á Akureyri: Landbúnaðar- málin valda deilum innan flokks- ins.“: Akureyri, 30. apríl. „AÐ ÁLITI okkar framsóknar- manna eru forgangsverkefni í stóriðjumálum þrjú og í þessari röð: í fyrsta lagi kísilmálmverksmiðjan á Reyðarfirði, sýni útreikningar að hún sé arðbær, í öðru lagi orkufrekt fyrirtæki á Eyjafjarðarsvæðinu og í tiriðja lagi að stækka verksmiðju SAL við Hafnarfjörð,” sagði Stein- grímur Hermannsson, forsætisráð- herra, á fundi hér á Akureyri í gær, þar sem ráðherrar Framsóknar- flokksins sátu fyrir svörum fund- armanna. Ekki sýndu Akureyringar þess- um gestum mikinn áhuga, þvi fátt var fremur um fundargesti lengst af. í ljós kom í fyrirspurnum og svörum ráðherra, að framsókn- armenn eiga nú í hinum mestu erfiðleikum með að sætta fylgis- menn sína innan bændastéttar og í þéttbýlinu um nýjar leiðir í framleiðslumálum landbúnaðar- ins. Ráðherrarnir tóku fram, að hjá breytingum yrði vart komist, en tryggja yrði að þeim sem yrðu fyrir framleiðslutapi af þeim völd- um yrði að tryggja afkomu í ein- hverri hinna nýju hliðarbúgreina, svo sem í loðdýrarækt eða fiskeldi. Töldu þeir að ná mætti á fimm árum því markmiði, að útflutning- ur á dilkakjöti yrði aðeins óveru- legur. Nokkuð var rætt á fundinum um Nútímann og sýndist þeim sem til máls tóku að ýmislegt væri við þær breytingar sem gerðar hafa verið á blaðinu aö athuga. Steingrímur Hermannsson taldi að yfirráðaréttur flokksins á blað- inu væri ekki lengur fyrir hendi, og gat þess sérstaklega, að hann hefði lagt fram tvær tillögur varð- andi útgáfuna og í báðum tilfell- um hefði verið farið þveröfugt að, þannig að ljóst væri að hans áhrif á þeim bæ væru ekki mikil. Ýmislegt fleira bar að sjálf- sögðu á góma á fundi þessum, en hér er ekki ráðrúm til að rekja það. G. Berg. Kaffisala í Landakotsskóla Á SUNNUDAGINN, 6. maí, halda foreldrar nemenda í Landakotsskóla kaffisölu í skólanum. Allur ágóói rennur til styrktar starfsemi skól- ans. A boóstólum verða smurt brauð, tertur og kökur. Þessi kaffisala er að verða ár- legur viðburður, þar sem fyrrver- andi og núverandi nemendum gefst kostur á að heimsækja skóla sinn með fjölskyldu og kunningj- um. Sérstaklega er gömlum nemend- um boðið að koma. Skólinn verður opnaður kl. 15.00. Sigrún Eldjárn sýnir í Jónshúsi _ <;séúðundraheimkaWl,^nn pesbd nilum Utum, kaktusum- pr.stk.kr.69.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.