Morgunblaðið - 05.05.1984, Síða 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. MAl 1984
Notaöur
Áttræð
Citroen
nsest besti
kosturinn
Arg. Km Verö
CX25D 8 manna 1982 140.000 550.000
CX25D 8 manna 1982 110.000 530.000
CX25D 1982 70.000 480.000
CX25D 1980 100.000 370.000
BX16TRS 1983 16.000 390.000
GSA Pallas 1982 40.000 270.000
GSA Pallas 1982 36.000 270.000
GSA Pallas 1981 30.000 210.000
GSA Pallas 1981 40.000 210.000
GSA Pallas 1980 40.000 170.000
VISA 1982 17.000 175.000
OPIÐ FRÁ 2—5
WMGtobusi assss
Guðmunda Regina
Sigurðardóttir
Fljótt hverfa ár og dagar, tím-
ans niður áfram líður, því að rit-
aðar heimildir segja mér að hún
Munda vinkona mín í Hnífsdal sé
áttræð. Hún fæddist 5. maí 1904 á
Látrum í Aðalvík, en þar ólst hún
upp hjá foreldrum sínum en þau
voru Sigurður Þorkelsson ísleifs-
sonar bónda í Neðri-Miðvík og
kona hans, Ólína Sigurðardóttir
Gíslasonar hreppstjóra á Látrum.
Guðmunda ólst upp við algeng
sveitastörf eins og þá tíðkaðist.
Meðan hún dvaldist í foreldrahús-
um annaðist hún símavörslu og
afgreiðslu, en þá var bara einn
sími á Látrum. Hún var tvo vetur
í vist hjá Ólafi Pálssyni á ísafirði
og konu hans Helgu og minnist
þess tíma með mikilli ánægju. Síð-
an var hún fanggæsla á Látrum í
tvær vorvertíðir hjá Sölva heitn-
um Þorbergssyni í Efri-Miðvík.
Vorið 1929 kynntist hún ungum
bóndasyni frá Atlastöðum í sömu
sveit sem þá var við sjóróðra á
Látrum. Þessi kynni leiddu til
þess að þau gengu í hjónaband 6.
nóvember 1931 og hófu búskap á
Látrum, og voru þar til ársins
1938 er þau fluttu til Fljótavíkur
og byggðu þar nýbýlið Geirmund-
arstaði. Á Látrum eignuðust þau 6
börn og 1 í Fljótavík sem upp
komust. Þau eiga nú 58 afkomend-
ur sem öll eru mesta dugnaðar- og
myndarfólk. Á Hornströndum var
sjósókn og landbúnaður stundað
jöfnum höndum ásamt nýtingu
hlunninda sem til féllu. Vorið 1945
flytja þau aftur til Látra en höfðu
þar stuttan stans því ári síðar
flytja þau til Hnífsdals og hafa átt
þar heimili síðustu 3 árin. Að lok-
um vil ég geta þess að þau hjónin
og börn þeirra eru gestrisið og
glaðvært fólk, sem gaman er að
blanda geði við á góðri stund og
veit ég að glatt verður á hjalla á
þessum heiðursdegi í lífi ættmóð-
urinnar þegar fjölskylda hennar
og vinir koma saman og skemmta
sér og rifja upp gömul kynni.
Munda mín, ég vonast til að þú
Sumarhjólbarðar
VEITUM
FULLA
ÁBYRGÐ
155 x 12
155 x 13
165 x 13
175 x 14
185 x 14
175/70x 13
185/70 x 13
kr. 1.080.
kr. 1.090,-
kr. 1.095.-
kr. 1.372.-
kr. 1.396.-
kr. 1.259.-
kr. 1.381,-
Heilsoluð radial-
dekk á verði sem
ffáír keppa við
Alkaup
Siðumula 17, inngangur að
neðanverðum austurenda.
Sími 68-73-77.
Kaffisala
Kvenfélags
Háteigs-
sóknar
ÁRLEG kaffisala Kvenfélags Há-
teigssóknar verður á morgun, sunnu-
daginn 6. maí, í Domus Medica og
hefst kl. 3 e.h.
Kvenfélagið hefir undirbúið
þessa kaffisölu af mikilli kost-
gæfni eins og undanfarin ár og
verður hún þeim án efa til sóma.
Safnaðarfólk í Háteigssókn og
aðrir velunnarar kirkjunnar eru
því hvattir til að ieggja leið sína í
Domus Medica á morgun og njóta
þar góðra veitinga jafnframt því
sem þeir styrkja það verkefni, sem
kvenfélagið hefir tekið sér fyrir
hendur að vinna að, en það er að
M FISHER
FRAMTÍÐARTÆKI: P-615 MYNDSEGULBANDIÐ
FÆST ENNÞÁ Á ÞESSU SKEMMTILEGA SUMARVERÐI,
KR.
34.900
STGR.
EN NU FER HVER AÐ VERÐA SIÐASTUR AÐ
EIGNAST ALVÖRU MYNDSEGULBAND
Á VERÐI, SEM EKKI VERÐUR ENDURTEKIÐ.
— 1 LAGMULA 7
REYKJAVÍK. SÍMI 85333
SJONVARPSBUDIN
misvirðir ekki við mig þótt ég hafi
þennan hátt á að minnast þín á
afmælisdaginn. Þér færi ég að síð-
ustu árnaðar- og heillaóskir í til-
efni dagsins og bið þess að Guðs
blessun falli þér í skaut hér eftir
sem hingað til.
Heill þér áttræðri.
Guðjón Finndal Finnbogason
altarismynd komi senn á kórvegg
Háteigskirkju.
Margir hafa haft á þvi orð, síð-
an kirkjan var reist, að altaris-
myndina vantaði og hafa látið í
ljós óskir og vonir um að úr því
yrði bætt. Altarismynd af þeirri
gerð, sem fyrirhuguð er kostar
mikið fé. Ýmsir hafa á undanförn-
um árum látið fé af hendi rakna af
góðhug til kirkjunnar til þess að
hægt verði að koma þessu til veg-
ar.
Kvenfélagskonunum, sem unnið
hafa mikilsvert og fórnfúst starf
til fegrunar og umbóta kirkjunni,
er það mikið áhugaefni, að þetta
komist sem fyrst í framkvæmd.
Við væntum því að sem flestir
leggi leið sína á kaffisöluna á
morgun, kvenfélagskonunum til
uppörvunar, svo að takmarkinu
verði náð.
Prestarnir.
Stykkishólmur:
Hótelið bauð sér-
staka þjónustu
Stykkíshólmi, 25. apríl.
ÞÓ VEÐURSPÁ hafi ekki beint
verið hagstæð, þá var hér ágætt
páskaveður, milt og þurrt að
mestu. Eins og undanfarin ár bauð
Hótel Stykkishólmur ferðamönn-
um upp á sérstakan páskapakka,
þ.e. gistingu og hátíðarmat fyrir
ákveðið verð og voru margir til að
notfæra sér þessa þjónustu og seg-
ir hótelstjórinn að þetta hafi verið
metið að verðleikum og gestir lát-
ið í ljós sérstaka ánægju að dvöl-
inni lokinni. Hótelið hefir oft áður
boðið slíka þjónustu og þótt gefast
vel fyrir báða aðila.
— Árni.