Morgunblaðið - 10.05.1984, Side 3
■' •MORGUNÖLAÐIÖ, FlMMTUPAGUR 10. MA< 1984
51
Leikdeild UMF Skallagríms í Borgamesi:
Boðið að sýna Dúfna-
veisluna á Listahátíð
Borgarnesi, 7. maí.
LEIKDEILD Umf. Skallagríms hefur fengid boð um að sýna Dúfnaveisl-
una eftir Halldór Laxness á Listahátíð. Dúfnaveislan var sýnd 13 sinnum
í vetur undir leikstjórn Kára Halldórs og á sýningarnar komu rétt um
1000 manns.
Bandalag íslenskra leikfélaga
fékk boð um að sýna leikrit á
Listahátíð og auglýsti þetta boð
meðal aöildarfélaga sinna. Tvö
leikfélög sóttu um, Skallagrímur
með Dúfnasveisluna og leikfé-
lagið á Höfn með Elliærisplanið.
Dómnefnd var skipuð til að gera
upp á milli sýninganna en niður-
staðan varð sú að báðar uppsetn-
ingarnar væru vel frambæri-
legar og báðum félögunum því
boðið að vera með tvær sýningar
hvoru á Listahátíðinni. Leikdeild
Skallagríms sýnir Dúfnaveisl-
una í Iðnó 6. og 7. júní en auk
þess verður ein sýning enn í
Borgarnesi áður en farið verður
suður.
„Þetta er mikil viðurkenning
fyrir okkur og það sem við höf-
um verið að gera,“ sagði Theódór
Þórðarson, formaður leikdeildar
Skallagríms, í samtali við Mbl. í
þessu tilefni. „Fyrir okkur verð-
ur ekki lengra komist en að fá að
sýna á Listahátiö. Ég held líka
að viðurkenning sem þessi geti
orðið til að ýmsir heimamenn
líti þetta starf okkar öðrum aug-
um en áður og átti sig jafnvel á
að þessi uppsetning okkar hafi
nú kannski verið það athyglis-
verð að ástæða hafi verið til að
sjá hana.“ — HBj.
Frá uppsetningu Leikdeildar Umf. Skallagríms á Dúfnaveislunni.
FLUGLEIÐIR
AUGLÝSA
FLUG OG BÁTUR
Flugleidir og Blakes-bátaleigan opna islensku ferðafólki nýja
ferðamöguleika Slgllngu á húsbátl eftlr fögrum vatnalelðum
Bretlands. Siðustu árin hefur mjög færst í vöxt að fólk verji
sumarleyfi sinu i að sigla á húsbáti um friðsæl og falleg sveitahéruð
og heimsæki skemmtilega smábæi, forna kastala og sveitakrár
I rúma öld hefur ferðafólk leitað hvíldar og skemmtunar á
vatnasvæðinu i Norfolk Broads við austurströnd Englands, enda
hentar svæðið auk þess mjög vel fyrir byrjendur i bátasiglingum
Blakes hefur í boði margar gerðir húsbáta af ýmsum stærðum.
I húsbátunum eru svefnherbergi, setustofa, eldhús og bað. Allur
aðbúnaður miðast við nútíma þægindi. Vistarverur eru með
húsgögnum og heimilistælgum, - meira að segja litasjónvarpi Má
segja að húsbáturtnn sé fqotandl lúxusíbúð.
Það er afar einfalt að sigla húsbáti eftir lygnum vatnaleiðum.
auðveldara en að aka bfl. Þú færð aHar nauðsynlegar upplýsingar
áður en þú leggur af stað Sklpstjóratlgnlna færðu án sérstaks
leyflsi
Frekari upplyslngar velta söluskrtfstofur Fiugleiða. umboðs-
menn og ferðaskrtfstofur.
Dæmi um verð fyrir 4 m. fiölsk.
Flus oe skipstjómtien
^ 45.696