Morgunblaðið - 10.05.1984, Side 28
. MORGUN,BlAÐJ£VFJMftlT-lJDAG.UR 1Q. MAÍ 1984
"76
3,Pctbbi, eg era& riia geúsöga mírvx.
Er „ b/á-fótekur " ei tt or2 Tw
HÖGNI HREKKVÍSI
KartöDuneytandi hafði þessar kartöflur meðferðis og viidi vekja athygli á hversu lélegar þær væru kartöflurnar sem
boðið er upp á núna. Lj6sm. Mbl. Friðþjófur.
Lélegar kartöflur
Kartöfluneytandi hafði samband
við Velvakanda og hafði eftirfar-
andi að segja:
— Ég keypti kartöflur i verslun
hér í bænum fyrir nokkrum dög-
um og sólarhring síðar ætlaði ég
að sjóða þær en þá kom í ljós mik-
ill ófögnuður.
Mér brá illilega við þetta og vil
hér með koma því á framfæri að
kartöflurnar sem nú er boðið upp
á eru ákaflega lélegar.
Líkist verslunarháttum á 18. öld
Ágústa Ágústsdóttir skrifar.
Mikið er langlundargeð okkar
íslendinga í kartöflumálum. Ár
eftir ár hafa okkur verið boðnar
óætar kartöflur. öðru hverju
heyrast óánægjuraddir, en áfram
skal haldið að flytja þetta óæti inn
f landið. Nú heyri ég í útvarpi, að
enn eigi að flytja inn þetta finnska
óæti, sem þeir nefna kartöflur.
Þetta líkist helst verslunarháttum
á 18. öld, þegar Hörmangarar
fluttu inn maðkað mjöl. Ég vil hér
með skora á allar húsmæður að
láta ekki bjóða sér svona vöru og
einfaldlega að hætta að kaupa
þetta óæti. Einnig skora ég á
Neytendasamtökin að fylgja þessu
máli eftir. Hvernig væri að gefa
kartöfluinnflutning frjálsan, þá
myndu svona verslunarhættir
ekki látnir viðgangast.
Stígum
skrefið
til fulls
Diðrik Jóhannsson skrifar.
Enn er ríkisstjórnin að reyna að
fylla í gatið. Margar hugmyndir
hafa komið fram og næstum jafn
mörgum hefur verið mótmælt af
hagsmunaaðilum. Hér er ein
hugmynd handa heilbrigðisráð-
herra.
Ráðherra, fáðu landlækni til að
reikna út — einu sinni enn —
hversu margar milljónir kr. megi
spara á þessu ári í heilbrigðiskerf-
inu með einu pennastriki — með
því að lögleiða fullkomlega notkun
bílbelta. Þetta er ekki einkamál
nokkurra, sem rísa upp og heimta
frelsi handa sjálfum sér. Nei. Við
höfum komið okkur upp víðtæku
samtryggingarkerfi, m.a. í heil-
brigðiskerfinu og þar höfum við
öll skyldum og hagsmuna að gæta.
Enginn hefur betur gert grein
fyrir nauðsyn á notkun bílbelta en
landlæknir. Lítum á reynslu ann- það strax. Við erum öll þátttak-
arra og stígum skrefið til fulls og endur í umferðinni.
Sóðaskapur fylgir veggspjöldum
G.Þ. skrifar.
Ég get ekki orða bundist vegna
þess sóðaskapar sem fylgir því að
límd eru plaköt í öllum litum á
alla mögulega og ómögulega veggi
og timburskilrúm í borginni.
Ljóst er að enginn nema við-
komandi eigandi getur heimilað
uppsetningu auglýsinga á hús sín
og er því um að ræða frekju og
yfirgang þeirra sem stunda þenn-
an sóðaskap.
Út yfir tók þann 1. maí sl. þegar
félagsmáladeild Samhygðar setti
upp plaköt á nánast alla ljósa-
staura fjölförnustu gatna í borg-
inni auk veggja sem blöstu við
umferð.
Ég geri ekki ráð fyrir að borgar-
yfirvöld hafi heimilað uppsetning-
una svo ósmekkleg sem hún var.
Ég furða mig á að félagsskapur-
inn Samhygð skyli standa fyrir
svona uppsetningu, því mér hefur
virst sem stefna þeirra og jákvæð
viðhorf til lífsins væru um margt
athygli verð.
Önnur spurning er svo hvað
kemur til að Samhygð yfirtekur
með þessum hætti hlutverk verka-
lýðsforustunnar 1. maí.
Menn geta deilt um efni áróð-
urs, en Reykvíkingar hljóta að
frábiðja sér framvegis uppsetn-
ingu auglýsinga með þessum hætti
og ætlast til að þeir sem að þessu
stóðu, hreinsi burtu leifarnar.