Morgunblaðið - 27.05.1984, Page 1
Þorsteinn Pálsson 49/50
Carrington lávarður 52
Fórnarlömb barsmíða 53
Sir John Gielgud 56/57
Veröld 60/61
Listahátið 64/65
Or heimi kvikmyndanna 68/69
Matur og matgerð 70
Sunnudagur 27. maí
Bátsferð í Engtandi 72/73
Á Drottinsdegi 76
Sígildar skifur 80
Karlaveldi 82/83
SVFÍ 84
Á förnum vegi 87
Bió/leikhús/dans 88/89/90/91
Velvakandi 92/93
Járnsíðan 94/95
FELAGSLEGT
MÆAÐSKERFIER LEM
TFL MEM HAGSÆLDAR
„A
uðvitað voru það
mikil viðbrigði að
setjast á Alþingi.
Fyrir mig hefði þetta þó átt að
vera minna stökk en marga aðra
þar sem ég hafði verið þing-
fréttaritari og átt samskipti við
þingmenn um margvísleg mál í
fyrri störfum. En þingið er
óvenjulegur vinnustaður og
framgangur mála þar er í raun
og veru mjög flókinn,“ sagði
Þorsteinn Pálsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins og fyrsti
þingmaður Sunnlendinga, í upp-
hafi samtals okkar á fimmtudag-
inn, aðeins rúmum sólarhring
eftir að fyrsta þingi hans lauk.
Síðustu þingdagarnir voru
strangir og þegar þeir Þorsteinn
og Svavar Gestsson hittust í
beinni sjónvarpsútsendingu að
kvöldi þriðjudags, þinglausna-
daginn, voru þeir báðir að Ijúka
38 klukkustunda törn.
— Finnst þér að málin gangi hægar
fyrir sig á þingi en þú væntir eða er stað-
an þar flóknari en þú bjóst við?
„I störfum þingmanna endurpeglast
litróf þjóðfélagsins. Þar takast á bæði
ólíkir flokkar og mismunandi sjónarmið.
Starfið er bæði fólgið í því að höggva á
hnúta og flétta saman fjölbreytt sjón-
armið.“
— Hafa þingmenn tilhneigingu til að
fletja málin of mikið út, ef þannig má að
orði komast? Teygja sig svo langt til sam-
komulags að ekki fáist bitastæð niður-
staða?
„örugglega ekki. En flóknir samningar
innan flokka og milli flokka hafa oft og
tíðum leitt til moðsuðu. Ég hygg þó, að í
vetur hafi verið minna um hana en oft
áður. Skýr þingmeirihluti tryggir ekki
snurðulausan framgang allra mála. Þing-
menn eru fulltrúar umbjóðenda sinna og
hagsmunir þeirra eru ólíkir. Þegar beina
á þessum kröftum öllum í einn farveg
vilja ekki allir h&ida til sömu áttar. Af
þessu leiðir oft að niðurstaðan verður
ekki nógu markviss, en ákvörðunin ræðst
ekki sist af þvi hve sterka pólitiska stöðu
SJÁ NÆSTU SÍÐU.
Morgunblaðið/Ól.K.M.
Þorsteinn Pílsson, formadur Sjílfstædisflokksins.
Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálfstæðisflokksins,
lýsir viðhorfi sínu til stjórnmála og landsstjórnar við þinglausnir þegar
ár er liðið frá myndun ríkisstjórnarinnar