Morgunblaðið - 27.05.1984, Side 20
68
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. MAÍ 1984
LL tiFIMI LVrMyNLANNA
Wílliam Hurt.
■ om Dwivngvr.
Jobetn wiiuams.
Mary Kay Place.
Stjörnubíó:
The Big Chill
Næsta mynd sem Stjörnubíó sýnir
nefnist The Big Chill, og var með vin-
sælli myndum síðasta árs í Bandaríkjun-
um. Myndina gerði Lawrcnce Kasdan,
en aðalhlutverkin eru hvorki fleiri né
færri en átta. Meðal leikara eru William
Hurt, Kevin Kline, Jobeth Williams og
Tom Berenger. The Big Chill verður sýnd
strax og Educating Rita rennur sitt skeið
í A-sal.
Leikendur
Myndin fjallar um hóp fólks, sem var
mjög nánir vinir meðan það var saman í
Michigan-háskólanum, en hefur ekki hist
í nokkur ár. Það kemur saman á ný við
jarðarför eins úr hópnum, og endurnýja
gömul kynni.
Kevin Kline er tiltölulega nýtt nafn í
heimi kvikmyndanna. „The Big Chill" er
þriðja myndin sem hann lék í; áður hafði
hann leikið á móti Lindu Ronstadt í
skylminga- og söngvamyndinni „Pirates
of Penzance", en það var leikur hans í
„Sophie’s Choice" sem gerði hann fræg-
an.
Glenn Close er mjög hátt skrifuð leik-
kona í Bandaríkjunum, þótt „The Big
Chill" sé aðeins önnur kvikmyndin sem
hún leikur í. Sú fyrri var „The World
According to Garp“. Á undanförnum
mánuðum hefur Glenn vakið feikna at-
hygli fyrir leik sinn í leikriti Tom Stopp-
ards „The Real Thing" á Broadway.
Meg Tilly leikur vinkonu mannsins
sem deyr. Meg Tilly er lítt þekkt ennþá,
en íslendingum gafst kostur á að sjá
hana í „Psycho II“.
William Hurt er örugglega þekktasta
nafn myndarinnar, þótt hann hafi ekki
hlotið alþjóðlega frægð á borð við Rich-
ard Gere. Hann er þekktastur fyrir leik
sinn í mynd Lawrence Kasdans „Body
Heat“, en nýjasta mynd hans nefnist
„Gorky Park“, og var frumsýnd vestan-
hafs um síðustu jól.
Tom Berenger á heldur skrykkjóttan
feril að baki; sumum mynda hans hefur
verið mjög vel tekið, öðrum hallmælt
heldur betur. Hann lék m.a. í „Butch and
Sundance: The Early Days“, einnig í
„Dogs of War“.
Jobeth Williams hefur leikið í a.m.k.
Jeff Goldblum.
tveimur stórmyndum án þess að hljóta
mikla frægð. Fyrst lék hún aukahlutverk
í „Kramer gegn Kramer", en fólk man
eflaust betur eftir henni sem móðurinni í
„Poltergeist".
Tveir aðrir leikendur koma við sögu:
Mary Kay Place og Jeff Goldblum. Mary
lék í Private Benjamin, en Jeff í Annie
Hall.
Leikstjórinn Kasdan
Það tók Lawrence Kasdan mörg ár að
hasla sér völl í heimi kvikmyndanna.
Hann stúderaði við Michigan-háskólann.
kynnti sér sérstaklega nútímaleikritun. I
sjö ár skrifaði hann kvikmyndahandrit
án þess að selja nokkurt þeirra. Það var
ekki fyrr en 1979 að hann komst í kynni
við Steven Spielberg og George Lucas.
Fyrsta handritið sem hann seldi var
„Continental Divide" sem Michael Apted
kvikmyndaði með John heitnum Belushi
í aðalhlutverki.
En það var George Lucas sem gaf
Kasdan fyrsta alvarlega tækifærið, þeg-
ar Kasdan bauðst að skrifa handritið að
„The Empire Strikes Back“ og síðan „The
Return of the Jedi“. Þar á eftir skrifaði
hann handritið að mynd Spielbergs „Ra-
iders of the Lost Ark“, og þarf ekki að
vekja athygli lesenda á vinsældum þeirra
mynda.
En Kasdan sjálfur hefur ekki ýkja
mikinn áhuga á ofannefndum myndum.
Hann segir það ekkert tiltökumál að
skrifa handrit að slíkum myndum, en
aldrei dytti honum sjálfum í hug að kvik-
mynda þær. En engu að síður lögðu þessi
handrit grundvöllinn að velgengni hans í
heimi kvikmyndanna.
Kasdan skrifaði svo handritið að „Bo-
dy Heat“ og setti hann það skilyrði að
hann leikstýrði. Hann fékk því fram-
gengt og hlaut mikið lof fyrir. Enn meira
lof hefur hann hlotið fyrir „The Big
Chill“: myndin var útnefnd til óskars-
verðlauna sem besta mynd 1983, en
mikla athygli vakti að Kasdan var hvergi
nefndur við útnefningu leikstjóranna.
„The Big Chill" var meðal vinsælustu
mynda síðasta árs.
Kasdan hefur mestan áhuga á per-
sónulegum kvikmyndum, og eitt einkenni
mynda hans er hve samtöl skipa þar veg-
legan sess, en að sjálfsögðu gætir þar
áhrifa frá leikritun. „The Big Chill" er
persónuleg mynd og það þykir ekki lítið
afrek á stað eins og Hollywood.
HJÓ.
Nýja bíó:
The Entity
Árið 1976 leitaði kona að nafni
Carla Moran aðstoðar sálfræðinga í
Los Angeles. Það út af fyrir sig er
ekki svo fréttnæmt í Bandaríkjun-
um, nema hvað þessi kona taldi sig
vera ofsótta af einhverju óþekktu
afli sem vildi kvelja hana andlega
sem líkamlega. Sálfræðingar fóru að
rannsaka þetta mál og reyndist það
hið furðulegasta. Var þessi Carla
einfaldlega trufluð á geðsmunum
eða var hún í raun fórnarlamb yfir-
náttúrulegs afls, kannski draugs,
sem m.a. vildi nauðga henni? —
Frank DeFelitta skráði sögu Clöru
sem nú hefur verið kvikmynduð og
Nýja bíó tekur til sýninga.
„The Entity" er skálduð útgáfa
af atburðunum sem áttu sér stað.
Frank DeFelitta, sem hefur ritað
heilmikið sálfræðilegs efnis, til
dæmis handritið að „Audrey
Rose“, hitti hina raunverulegu
konu sem átti í útistöðum við
drauginn (Carla Moran er ekki
hennar rétta nafn), fyrst þegar
hann skráði bókina, og aftur þegar
hann skrifaði kvikmyndahandrit-
ið.
Þegar Frank kom til sögunnar
höfðu nokkrir sálfræðingar rann-
sakað konuna og líf hennar. Þeir
töldu sig hafa í höndum gögn um
drauginn, meðal annars ljós-
myndir. Engu að síður voru settar
fram þrjár skýringar á þessu
fyrirbæri:
í fyrsta lagi gæti konan hafa
gert sér allt þetta upp. 1 öðru lagi
gæti það hafa verið algjör dáleið-
ing og í þriðja lagi gabb. Sumir
sálfræðingar héldu því fram að
vandræði konunnar ættu rætur að
rekja til truflaðrar undirmeðvit-
undar sem nú tæki upp á því að
ofbjóða sjálfri sér. En þeir sál-
Barbara hershey f hlutverki konunnar sem verður fyrir heldur en ekki
óþægilegum heimsóknum einhvers yfirnáttúrulegs afls, sem m.a. vill naugða
hennL
fræðingar eru til sem töldu kon-
unni stafa hætta af einhverju
yfirnáttúrulegu afli.
Hvað sem öllum sálfræðilegum
útskýringum líður réðust þeir fé-
lagar Frank DeFelitta, Harold
Schneider og Sidney J. Furie í
gerð kvikmyndar um þetta efni,
enda hefur óskiljanlegt og ótút-
skýranlegt tema alltaf höfðað til
kvikmyndagerðarmanna.
Harold Schneider er duglmikill
framleiðandi kvikmynda, sú nýj-
asta var „War Games", sem án efa
er hans allra vinsælasta mynd.
Hann hefur staðið að öðrum
merkum myndum, t.d. mynd Jack
Nicholsons „Goin’ South" og
myndinni sem gerði Richard Gere
frægan, „Days of Heaven".
Sidney J. Furie er nokkuð þekkt
nafn án þess að vera stórt nafn
innan kvikmyndaheimsins. Hann
reið á vaðið fyrir mörgum árum
með „Lady Sings the Blues" með
Díönu Ross, og nokkrum árum síð-
ar gerði hann mynd um Víetnam-
stríðið, sem nefndist „The Boys in
Company C“.
Aðalleikkonan heitir Barbara
Hershey, og er hún sennilega eft-
irminnilegust fyrir leik sinn í
myndinni „The Stunt Man“, sem
Bíóhöllin sýndi fyrir rúmu ári.