Morgunblaðið - 27.05.1984, Page 26

Morgunblaðið - 27.05.1984, Page 26
74 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. MAÍ 1984 Þar hefur maðurinn skapað landið ráðleggja þeim sem ætla að sigla um Norfolk Broad að taka með sér góðan sjónauka og fuglabók, því áhuginn og spurningar vakna þeg- ar á staðinn er komið. Dýralíf er ekki auðugt fyrir utan skordýr á fenjasvæðinu. Þó er þar eitt dýr óvelkomið, svonefnd Coypu, er líkist stórri rottu og gef- ur í búrum af sér dýrmæt nutriask- inn. En það er einmitt meinið. Þetta dýr slapp úr búri í nánd við Norwich 1937 og tók að fjölga, enda á það sér engan óvin í landinu. Samkvæmt talningu 1980 voru þeir taldir 10 þúsund, þegar ákveðið var að reyna að eyða þeim. Þeir eru mikill skaðvaldur þarna, því þeir lifa í holum og grafa sundur bakk- Gömlu flutningabátarnir, sem voru um aldir samgöngutæki á vatnasvæðinu. Við sáum einn, sem haldið er við og leigður í ferðir, koma eftir ánni. Báturinn er mjög flatbotna og stórt seglið svart. Borin í það blanda af tjöru, sfldarlýsi og lampasvertu til að verja það fyrir veðrum. Við árbakkana eru víða gamlar rústir. Hér eru rústir af St. Benets-klaustri. Klaustrið var í fyrsta sinn lagt í rúst af dönskura víkingum árið 870. Mylla var byggð í rústunum fyrir 200 árum. Hásetinn við stjórnvölinn. Sakir anna þegar lagst var að eða haldið af stað gafst skipstjóra ekki tími til að taka af honum mynd í sínu aðalhlutverki, að stökkva í land eða út í bátinn snarlega með kaðalinn. ana, sem vatnið vinnur svo á, og eyðileggja uppskeru bænda. Ég nefndi skordýrin, sem ég kann eng- in skil á, en geta má þess að á vatnasvæði Norfolks er að finna eitt sjaldgæfasta og fegursta fiðr- ildi Bretlands, að nafni Swallow- tail, með 90 mm vængjahafi. Og áður en skilið er við dýralífið á svæðinu, ber að geta þess að þar eru uglur, m.a. þekkt hvít ugla, sem við bátverjar á Mayfly sáum vit- anlega aldrei, enda annaðhvort að horfa á frábærar kvikmyndir BBC-sjónvarpsins í bátnum fyrir svefninn eða steinsofnaðar í kyrrð- inni við árbakka um það leyti sem ugla kemur á kreik. En á náttúruverndarsvæðunum fara fram rannsóknir á einstökum dýrategundum eins og á öllu svæð- inu, m.a. á fiðrildunum og copu- dýrinu. Það er ekki að undra þótt Nor- folk-vatnasvæðið hafi löngum verið talið tilefni eins allsherjar þjóð- garðs. Það er það þó ekki, en viss dýrmæt svæði tekin frá sem rann- sókna- og náttúruverndarsvæði og þá gerð aðgengileg almenningi, en reynt með stjórnunaraðgerðum að halda öllum þessum löngu vatna- leiðum kyrrlátum og óskemmdum. Þótt hámarkshraði sé 7 mílur á bátaferðum, og engir hraðbátar leyfðir, þá vill öldugangur frá þeim rífa upp bakkana. Og þótt ekkert skolp fari frá bátum, berst áburður frá bændunum og þvottaefni i árn- ar og hefur að einhverju leyti breytt lífríkinu. Norfolk Naturalist Trust hefur undir sinni umsjá nokkur vernduð svæði. Eitt þeirra er í Ranworth Broad, skammt frá Wroxham, og nær yfir stórt fenja- svæði. Við komum þar við. Ekki er leyfilegt að leggja beint upp að við náttúruverndarsvæðið nema á árabátum, og í bátalæginu við stöðuvatnið fyrir framan var þétt setinn bekkurinn, svo að ein- asta leiðin til að komast þar upp að reyndist að bakka bátnum inn milli tveggja annarra báta. Skipstjórinn hikaði og fór hringi fyrir framan, en góðhjartaðir Bretar kölluðu hvatningarorð og voru tilbúnir tii aðstoðar þegar klaufinn kæmi inn til lendingar. Þar létum við í fyrsta sinn faila þungt lóð úr stefni, sem sekkur í leðjuna og er notað sem akkeri til að halda bátnum. En reynslan af Bretum var á þessu ferðalagi öll á sama veg. Allir reiðubúnir til hjálpar. Notalegt fólk. Þarna er verslun og ágætt veitingahús. En í þorpinu 1000 ára gömul kirkja, einstaklega falleg. Að náttúruverndarsvæðinu er gengið eftir tréstíg á leðjunni, og samskonar sýning meðfram honum á jarðvegi og gróðri svamplandsins sem við Hoveton, aðeins ítarlegra. En þarna er fljótandi safnahús á bakkanum, einstaklega falleg bygging með stráþaki. Þaðan má af efri hæðinni skoða fuglallfið á vatninu og niðri er frábærlega ein- föld og góð sýning á náttúrufari svæðisins, og margvíslegur fróð- leikur um náttúru þess og vernd hennar. Þeir sem fara um Broad- land ættu ekki að láta það fram hjá sér fara. Þarna er líka einstaklega yndislegt að vera. Rétt utan við dyrnar lá svanur á háu hreiðri, sem er merki um kyrrðina sem þar er. Því miður var nú kominn tími til að snúa við niður eftir Bure-ánni og ekki tími til að sækja önnur slík svæði við árnar Ant og Thurne heim. Fleyið Vorflugan tók því stefnuna til baka til heimahafnar i Brundall, með viðkomu í bæjum og sveitakrám á árbökkunum. Bátum á vikuleigu á að jafnaði að skila kl. 9 á laugardagsmorgni. Við komum inn í bátalægið hjá BB í Brundal á föstudagskvöldi, til að geta pakkað og þrifið áður en við færum frá borði að morgni. Enda er Brundal ákaflega skemmtilegur litill bær og þar er ein notalegasta breska sveitakráin sem við komum í. Bjórstofa með viðarklæðningu og mörgum gömlum fallegum munum, og sýnilega fastir viðskiptavinir. Og þar er líka, eins og á flestum slíkum stöðum, ágætan mat að hafa. Vert að geta þess að í þessari ferð skipti ég alveg um skoðun á bresku mataræði, sem ég hafði í áratugi talið með því versta i heim- inum. Allt sem við fengum á þess- um sveitastöðum við árnar og skurðina reyndist afbragðs matur. Og er þá ekki eftir annað en slá botn í frásögnina af tveimur á báti á Norfolk-vatnasvæðinu. NV Gellux LfMBÖND AGNAR K.HREINSSON Hf. Sími: 16382 • HAFNARHÚS Pósthólf 654 • 121 REYKJAVIK Skóli til sölu Ef viðunandi tilboö fæst er Mímir til sölu (mála- skólinn, einkaritaraskólinn, skrifstofuþjálfunin). Skólinn gengur vel, er skuldlaus og í fullum rekstri. Auövelt væri aö bæta viö kennslugreinum eftir þörfum. Þau félög, stofnanir eöa einstaklingar, er óska þess aö reka þróttmikla skólastarfsemi og taka þátt í þeirri fulloröinsfræöslu sem nú stendur fyrir dyrum, eru beöin aö hafa samband viö okkur. Einkum skal þeim kennurum bent á þetta, er heföu hug á aö skapa sér starfsvettvang og at- vinnu viö nýjungar í kennslu. Traustir aöilar gætu fengið skólann meö góöum afborgunarskilmálum. Útborgun er ekki meginatriöi, heldur hitt, aö kaupandi sé líklegur til aö efla skólann í samræmi viö kröfur nútímans. í sölunni er innifaliö sérhann- aö kennsluhúsnæði rétt viö Hlemmtorg. Þeir sem áhuga hafa vinsamlegast sendi skriflegar upplýsingar til Mímis, Brautarholti 4, Rvík, póst- hólf 5031.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.