Morgunblaðið - 27.05.1984, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 27.05.1984, Blaðsíða 32
f *0rtr ♦ Mí »W» rnT^ ArTTTf/T/TTQ riTrt A TCTT/TTnor\?if 80 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. MAÍ1984 Um spænskar ástríður Plötuumslagið Sígíldar Konráö S. Konráösson Georges Bizet: Carmen. Einsöngvarar: Julía Migenes John- son, Placido Domingo, Ruggero Raimondi o.fl. Orchestre National de France. Stjórnandi: Lorin Maazel. Choeurs & Maitri.se de Radio France. ERATO NUM 751133. Það var Nietzsche, sem sagði þegar hann á sínum tíma hafði snúið baki við Richard Wagner og óperubáknum hans: „Með Carmen förum við úr súldarveðri norðursins. Látum á eftir okkur þokumistur Wagner-hugsjónar- innar. Höldum á vit tónlistar, sem hefir í sér hið tæra og þurra loftslag heitari landa." Latneska orðið „carmen" merkir söngur eða ljóð. Hvort það var af því eða öðru þá valdi Georges Bizet síðustu óperu sinni þetta nafn. Bizet, sem bráðger var í tónlist sinni og vann til ýmissa alþjóðlegra við- urkenninga þegar á unga aldri, reyndist erfitt að ná almennri hylli sem óperutónskáld. Óper- una Carmen skrifaði hann eftir samnefndri sögu Merimeé. Við frumsýninguna í París 1875 voru móttökur og gagnrýni blönduð. Létu raunar fleiri i ljós hneyksl- an sína en hrifningu. Fór svo að Bizet, sem lést aðeins 3 mánuð- um eftir frumsýningu, langt fyrir aldur fram aðeins 37 ára að aldri, naut aldrei þeirra vin- sælda, sem Carmen vann sér þó um síðir. Hvað það er sem valdið hefir sífelldum vinsældum Carmen: Ljúf, en grípandi tón- list, hið rómantíska raunsæi eða svellandi ástríður undir brenn- andi sól, skal ekki reynt að skýra hér. Aðeins bent á þá staðreynd að ópera Bizet hefir e.t.v. aldrei verið jafn vinsæl og einmitt nú. Peter Brooks, sá breski leik- húsfrömuður, hefir í túlkun sinni og uppfærslu á Carmen umbreytt og sveigt söguþráð Bizet að eigin geðþótta svo til sanns vegar má færa að gerð hans eigi aðeins nafn og tónlist sameiginlegt með samnefndri óperu. Hefir hann allt umstang sem minnst. Eru t.d. allir kórar felldir niður. Má vera að með slíkri einföldun verði raunsæið meira og rómantíkin minni, en hvaða tilgangi það þjónar að breyta gestgjafanum Lilas Pas- ita í melludólg eða töfra fram Lorin Maazel hljómsveitarstjóri kokkálaðan eiginmann Carmen líkt og skrattann úr sauðar- leggnum, skal ósagt látið. Ein af útgáfum Brooks hefir verið sýnd í sjónvarpi hér í Skandinavíu og er sem slík at- hyglisverð. Leikarar Brooks njóta sín hins vegar siður á hljómplötu, þar sem uppfærsla hans er fyrst og fremst „leikhús- verk“, þar sem notast er við valda kafla úr tónlist Bizet. Engu að síður hefir uppfærslan verið gefin út á hljómplötu (EMI 165 4403). Sú hljómplötuútgáfa sem hér er til umfjöllunar er texti og tón- list úr kvikmyndagerð Francesco Rosi. Var þessi kvikmynd raunar meðal þeirra, sem nýverið kepptu um óskarsverðlaunin, en laut í lægra haldi fyrir verki Ingmars Bergman: Fanny og Al- exander. Tónlistarstjóri við upp- færslu þessa er Lorin Maazel, sem annars er kunnur sem stjóri Vínaróperunnar og okkur að góðu kunnur sem stjórnandi i beinum sjónvarpsútsendingum þaðan á nýársdag. í bæklingi þeim sem skífunum fylgir og telur 63 síður, er að því vikið að reynt hafi verið í upp- færslu þessari að fylgja upphaf- legri gerð Bizet svo nákvæmlega sem kostur var og til þess farið í handrit höfundar, sem geymt er á bókasafni óperunnar í París. Voru þess vegna gerðar ýmsar breytingar á óperugerð þeirri sem hefðbundin er, þó smávægi- legar væru. Má telja, að hér sé hvað uppfærslu varðar stefnt i þveröfuga átt ef litið er til upp- færslu Brooks, sem áður er að vikið. Hér er ekki farið með veggjum. Kórar og hljómsveit í fullri stærð og stórstirni fylla flokk söngvaranna. Það heyrist strax er hlýtt er á Carmen með Maazel við stjórn- völinn, að hér er ekki um að ræða innihaldslausa skrautsýn- ingu. Tónlistin streymir fjörlega og með eindæmum hrífandi, gædd þrótti og þrungin þeirri tilfinningu sem svo nauðsynleg er. Bandaríska söngkonan Julia Migenes Johnson er af púertó- ríkönsku og grísku foreldri. Enda þótt hún hafi þegar á fjórða ári tekið þátt í óperuupp- færslu hefir hún hingað til ekki talist í hópi stórstirna, enda þótt frammistaða hennar hér muni reynast henni drjúgur vegsauki. Placido Domingo syngur hér Don José í þriðja sinn á hljóm- plötu. Er ástæðulaust að ausa hann frekara lofi, svo vegsamað- ur sem hann hefir verið fyrir söng sinn hvarvetna. Escamillo í flutningi Ruggero Raimondi er hins vegar nokkur ljóður á þess- ari annars gagnmerku upp- færslu. Er raddbeiting hans varla sem búast mætti við hjá svo frægum söngvara og túlkun hans þurr. Upptakan fór fram i desember 1982 í hljóðveri franska útvarps- ins. Eru skífurnar samt sem áð- ur nýkomnar á markaðinn og mun þar ráða samræming við frumsýningu kvikmyndarinnar. Má hvað upptöku snertir tína til nokkra agnúa og sem dæmi nefna er Carmen dansar fyrir Don José í II. þætti. Er þá söng- ur hennar framarlega í hljóm- myndinni, en kastanettusmell- irnir heyrast miklu aftar, frá hljómsveitinni, þannig að ímynd hinnar syngjandi og dansandi tatarastúlku smellandi kastan- ettum verður hálf hjákátleg og miður sannfærandi. Sömuleiðis stinga í eyru raddir söngvaranna í töluðum köflum, svo gerólíkur sem raddblærinn er, og ræður því eflaust mismunandi fjarlægð til hljóðnemans við söng og tal. Vindgnauðið í III. þætti minnir og á útvarpsleikrit liðins tíma. Burtséð frá slíkum hortittum er upptakan, ef á heildina er litið, í háum gæðaflokki. Pressun og frágangur ekki heldur aðfinnslu vert. Þegar upp er staðið hlýtur að telja hér eina athyglisverðustu útgáfu á óperunni Carmen, sem er á markaðnum í dag, enda þótt þar sé fyrir að finna ágætar upp- færslur þeirra Solti (DECCA Dll D3), Abbado (DG 2709 83), og nýlega útkomna uppfærslu von Karajans (DG 2741 025). Svo ágæt sem uppfærsla þessi er tónlistarlega hlýtur hún að vekja áhuga áheyrandans á kvikmyndinni sjálfri. Verður að- eins að vona að lélegur hljóm- flutningur kvikmyndahússins verði ekki til að kæfa þá eldfjör- ugu tónlist sem hér er framin. ÓSA RIO Pessi skottlausi! SUÐURLANDSBRAUT 16 - SÍMI 35200

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.